Morgunblaðið - 30.07.1994, Qupperneq 1
64 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
171. TBL. 82. ÁRG. LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Berlusconi boðar „órjúfanlegan múr“ milli leiðtogaembættisins og Fininvest
Craxi dæmdur í
átta ára fansfelsi
Róm. Reuter.
BETTINO Craxi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, var dæmdur í átta og
hálfs árs fangelsi í gær eftir að hafa verið fundinn sekur um fjármáiamis-
ferli. Forsætisráðherra landsins, Silvio Berlusconi, tilkynnti á blaðamanna-
fundi að hann hygðist ijúfa tengsl sín vtö stórfyrirtæki sitt vegna þess að
hann væri eini maðurinn sem gæti stjórnað Ítalíu og tryggt hagsæld í landinu.
Craxi var sakfelldur fyrir að
þiggja jafnvirði 490 milljóna króna
í ólöglegar greiðslur frá Banco Am-
brosiano, skömmu áður en bankinn
varð gjaldþrota fyrir áratug. Þetta
er í fyrsta sinn sem kveðinn er upp
dómur yfir forystumanni eins af
gömlu flokkunum vegna spillingar-
málanna sem tröllriðið hafa ítölskum
stjórnmáium síðustu misseri. Claudio
Martelli, fyrrverandi dómsmálaráð-
herra, var einnig dæmdur í átta og
hálfs árs fangelsi, en hann var áður
annar valdamesti maðurinn í Sósíal-
istaflokki Craxis.
Craxi á yfir höfði sér réttarhöld í
Þekktum
málverk-
um stolið
Frankfurt. Reuter.
ÞREMUR verðmætum mál-
verkum var stolið úr listasafni
í Frankfurt í fyrrinótt. Tvö
þeirra eru eftir enska meistar-
ann William Turner og safnið
hafði fengið þau að láni frá
Tate-safninu í Lundúnum.
Málverk Turners, „Skuggi
og myrkur" og „Ljós og litur“,
eru metin á 12 milljónir punda
hvort, jafnvirði 1,2 milljarða
króna. Þriðja verkið, lands-
lagsmynd eftir þýska meistar-
ann Caspar David Friedrich,
hafði safnið að láni frá öðru
listasafni í Frankfurt.
„Við höfum engar vísbend-
ingar um þjófana," sagði
Bernt Paul, sem stjórnar rann-
sókn málsins.
Peningar
handa hin-
um látnu
Taipei. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Tævan hafa
ákveðið að gefa út nýja seðla,
jafnvirði 25.000 króna, sem
Tævanar eiga að brenna fyrir
hina látnu.
Kínveijar telja að gæfa
hinna látnu handan móðunnar
miklu aukist í hlutfalli við þær
fjárhæðir sem þeir brenna.
Tævanar brenna nú stórum
seðlabúntum, vegna lágs verð-
giidis þeirra. Seðlabrennurnar
hafa valdið mikilli mengun og
því var gripið til þessa ráðs.
þremur spillingarmálum til viðbótar
og verið er að rannsaka önnur 20
mál, sem snúast ýmist um mútu-
þægni eða ólöglega fjármögnun
stjórnmálaflokka. Forsætisráðherr-
ann fyrrverandi getur áfrýjað dómn-
um til tveggja dómstóla.
Craxi var ekki viðstaddur réttar-
höldin þar sem hann dvelst í sumar-
húsi sínu í Túnis. Verjendur hans
segja að hann hafi ekki komist til
Ítalíu vegna sykursýki.
Silvio Berlusconi kvaðst í gær vilja
„reisa óijúfanlegan múr“ milli leið-
togaembættisins og fjölskyldufyrir-
tækis síns, Fininvest, sem veltir jafn-
Bílsprengja sprakk á Plaza Ram-
ales í Madríd í gær og varð þrem-
ur að bana, spænska hershöfð-
ingjanum Francisco Veguillas,
sem var á ferð um torgið, bíl-
stjóra hans og lífverði. Tólf
manns særðust og að minnsta
kosti 30 bílar urðu eldi að bráð.
virði 490 milljarða króna á ári.
Berlusconi hyggst leggja fram
frumvarp til laga sem kveður á um
að forseti landsins, forsetar beggja
þingdeiidanna og ríkissaksóknari
skipi nefnd sem hafi eftirlit með
starfsemi Fininvest. Nefndin fær
talsvert neitunarvald gagnvart fyr-
irtækinu og getur sektað það eða
selt eigur þess telji hún að hags-
munaárekstrar komi upp.
Aformunum vel tekið
Forsætisráðherrann tilnefnir einn-
ig fjárhaldsmann sem tekur við hlut-
verki hans sem hluthafí í fyrirtæk-
inu. Ráðstafanir Berlusconis mæltust
vel fyrir á fjármagnsmörkuðum og
meðal fréttaskýrenda, sem sögðu
þær líklegar til að auka tiltrú manna
á stjórninni.
Ramales-torg er sá staður í
Madríd sem hvað flestir ferða-
menn leggja leið sína um. Ekkert
hafði í gær heyrst um hver bæri
ábyrgð á sprengingunni, en
skæruliðar aðskilnaðarsamtaka
Baska, ETA, hafa oft beint spjót-
um sínum að fulltrúum hersins.
Sprenging í Madríd
Reuter
SILVIO Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, á blaðamannafundi
í gær þar sem hann kvaðst ætla að ijúfa tengsl sín við stórfyrir-
tæki sitt meðan hann gegndi embættinu til að koma í veg fyrir
hagsmunaárekstra. Boðaðar ráðstafanir hans mæltust vel fyrir.
Berlusconi sagði að ítalir hefðu
„mikla trú“ á stjórninni og kvaðst
ánægður með nýja skoðanakönnun
sem bendir til þess að tæp 60% lands-
manna vilji ekki að forsætisráðherr-
ann segi af sér vegna handtöku bróð-
ur hans, Paolo, sem hefur stjórnað
Fininvest frá því Berlusconi bauð sig
fram í þingkosningunum í mars.
Saksóknarar yfirheyrðu bróðurinn
í níu klukkustundir í gær og hann
var síðan úrskurðaður í stofufang-
elsi. Paolo er sakaður um aðild að
meintum mútugreiðslum Fininvest
til skattrannsóknamanna fyrir að
fara mildari höndum um fyrirtækið.
íhuga hertar
refsiaðgerðir
gegn Serbum
Genf, Brussel, Moskvu. Reuter.
BÚIST er við því að utanríkisráð-
herrar fimm stórvelda, sem reynt
hafa að koma á friði í Bosníu,
muni á fundi sínum í Genf í dag
sameinast um að hvetja til hertra
viðskiptaþvingana gegn Bosníu-
Serbum fallist þeir ekki skilyrðis-
laust á friðaráætlun ríkjanna.
Andrej Kozyrev, utanríkisráðherra
Rússlands, hvatti þó til varkárni í
gær. „Látum þau ríki sem eru
reiðubúin að taka ábyrgð á þessu
skrefi hafa forystu í málinu," sagði
hann.
Stórveldin munu sennilega sam-
þykkja að fjölga griðasvæðum á
borð við Sarajevo en þau njóta
verndar Sameinuðu þjóðanna. Úti-
lokað er talið að samþykkt verði
tillaga sem Bandaríkjastjórn hefur
viðrað um að aflétta vopnasölu-
banni til að styrkja múslima sem
eru verr vopnum búnir en Serbar.
Frakkar og Bretar vilja að vopna-
sölubannið gildi áfram og sama er
að segja um Rússa.
Bræðraböndin
Kozyrev lýsti í viðtali við banda-
ríska blaðið Wall Street Journal
fyrir nokkru ótta sínum um að
Bosníudeilan gæti snúist upp í átök
þar sem Bandaríkin styddu músl-
ima með vopnum en rússneska
þingið svaraði með því að þvinga
í gegn aukinn stuðning við Serba.
Milli Rússa og Serba eru náin
tengsl, menningarleg og söguleg.
Rússneskir þjóðernissinnar eru
yfirleitt harðir stuðningsmenn
Serba og krefjast þess að Moskvu-
stjórnin taki ekki þátt í refsiað-
gerðum Vesturveldanna; sagt er
að ýmsum opinberum ummælum
rússneskra ráðamanna um stuðn-
ing við bræðraþjóðina sé aðeins
ætlað að friða þessi öfl. Vítalíj
Tsjúrkín, fulltrúi Rússlandsstjórn-
ar í málefnum fyrrverandi Júgó-
slavíu, hefur viðurkennt að fallist
Bosníu-Serbar ekki á friðartillög-
urnar eigi Rússar ekki annan kost
en þann að samþykkja hertar refsi-
aðgerðir.
Onefndur heimildarmaður taldi
koma til greina að dregið yrði úr
þvingunum gagnvart Serbíu en í
staðinn yrði tekið fyrir aðdrætti
Bosníu-Serba. Erfitt ef ekki útilok-
að yrði þó að hafa fullnægjandi
eftirlit með landamærum Serbíu
og svæðum Bosníu-Serba.
Þótt skortur sé á ýmsu hefur
Serbum tekist að hjara. Smyglaðar
nauðsynjar á borð við bensín ber-
ast frá nágrannalöndunum, eink-
um Makedóníu og Rúmeníu sem
hagnast vel á viðskiptunum. í
breska tímaritinu The Economist
er fullyrt að enginn matarskortur
sé í landinu. Serbíustjórn hefur
tekist að slá á óðaverðbólgu með
því að tengja gengi dínarsins við
þýska markið.