Morgunblaðið - 30.07.1994, Side 2
2 LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Húnaver
Möguleiki
a fjarkrofu
kannaður
GÍSLI Gíslason, lögfræðingur
aðstandenda auglýstrar sam-
komu í Húnaveri, sem sýslu-
maður á Blönduósi ákvað á
fimmtudag að leyfa ekki, segir
ákvörðunina valda vonbrigð-
um. í athugun hafi verið að
selja tjaldstæði í Húnaveri og
láta hljómsveitir spila á hljóð-
færi sín án þess að um form-
lega tónleika væri að ræða, en
tíminn hafi verið orðinn svo
naumur að ekki hafi verið unnt
að beina fólki þangað, auk þess
sem ýmis skipulagsvinna í
tengslum við öryggismál og
heilsugæslu var eftir. Því muni
ekkert eiga sér stað í Húnaveri
um helgina.
Gísli segir skjólstæðinga sína
áætla að fjárhagslegt tjón sitt
vegna undirbúnings áformaðra
útitónleika nemi um einni millj-
ón króna, og verði athugað
hvort hugsanlegur möguleiki
sé á málsókn eða fjárkröfu á
hendur sýslumannsembætti.
„Við ætlum að skoða málið
yfir helgina, athuga hvert fjár-
hagslegt tap verður og meta
stöðuna að öðru leyti. Skjól-
stæðingar mínir telja enn, að
ákvörðun sýslumanns sé röng
og aðfinnsluvert að hann hafi
byrjað á því að veita þeim leyfi
en dregið það síðan til baka
með eins stuttum fyrirvara og
raun varð á,“ segir Gísli.
Opið í
klukkubúð-
unum um
helgina
FLESTAR verslanir á Reykja-
víkursvæðinu verða lokaðar um
verslunarmannahelgina. Versl-
anir við Laugaveg og Banka-
stræti hafa ákveðið að hafa
lokað í dag, laugardag. Hið
sama hafa verslanir í Kringl-
unni gert. Klukkubúðirnar
10/10, 10/11 og 11/11 verða
á hinn bóginn flestar opnar.
Tvær fyrstnefndu verslanak-
eðjurnar hafa opið alla þijá
daga helgarinnar en búðir
11/11-keðjunnar verða lokaðar
á frídegi verslunarmanna,
mánudag.
Bensínstöðvar verða opnar
líkt og endranær á laugardag
og sunnudag, en afgreiðslu-
stöðvar allra olíufélaganna
verða lokaðar á mánudag. Að-
eins verður opið í Litlu kaffi-
stofunni á Suðurlandsvegi þann
dag.
Frosti ÞH
með Rex
ítogi
FROSTI ÞH tók togarann Rex,
sem skráður er á Kýpur en er
með íslenskri áhöfn, í tog eftir
að hann varð vélarvana fyrir
skömmu á leið til landsins eft-
ir veiðar í Smugunni.
Áætlað var að Frosti sem
er á leið til íslands eftir veiðar
í Smugunni kæmi í gær til
móts við skemmtiskipið Leif
Eiríksson, sem útgerð Rex
hafði samið við um að draga
Rex til hafnar á íslandi.
Eldur í bænum
Höskuldamesi
Raufarhöfn. Morgunblaðiö.
SLÖKKVILIÐ Raufarhafnar var
í gærmorgun kvatt að bænum
Höskuldarnesi sem stendur um
4,5 km norður við Raufarhöfn.
Þegar slökkviliðið kom á staðinn
var eldur laus í miðbyggingu,
sem í eru smíðaverkstæði,
þvottahús, miðstöð og geymslur.
Mikinn reyk lagði úr bygging-
unni og var erfitt fyrir slökkvilið-
ið að athafna sig. Rjúfa þurfti
þakið á íbúðarhúsinu til að kom-
ast að eldi sem var kominn milli
þaks og lofts.Slökkvistarfi var
lokið um kl. 8. Miðbyggingin er
nánast ónýt. Loft í íbúðarhúsi eru
ónýtt af vatni en eldur náði aldr-
ei að komast inn í íbúðina.
Jóhannes Árnason var einn í
húsinu þegar eldurinn kom upp.
Hann vaknaði við reyklykt sem
ÓSKAR Vigfússon, formaður Sjó-
mannasambands íslands, telur að
Norðmenn bijóti alþjóðlegar reglur
um fjarskipti, en Norðmenn hafa
neitað að aðstoða íslensk skip, sem
veiða í Smugunni, við að _ná fjar-
skiptasambandi við Island. Óánægja
er meðal íslenskra sjómanna með
þetta ekki síst þar sem norsk skip,
sem eru á loðnuveiðum við ísland,
fá alla þjónustu hér á landi sem þau
óska eftir.
Óskar sagði að þetta væri við-
kvæmt atriði. Það væri hins vegar
almennt viðurkennt að Smugan væri
ÞRÍR núverandi og fyrrverandi
borgarfulltrúar í Reykjavík, Katrín
Fjeldsted, Markús Orn Antonsson
og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, eru
alvarlega að íhuga að bjóða sig fram
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík í komandi alþingiskosn-
ingum. Katrín segir raunar að hún
hafi áhuga á framboði. Ákvörðun
um hvort prófkjör verður haldið
verður tekin í fundi stjórnar fulltrú-
aráðs Sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík mjög fljótlega.
„Ég hef áhuga á að gefa kost á
mér í þessa vinnu,“ sagði Katrín
Fjeldsted, fyrrverandi borgarfull-
trúi í Reykjavík. Hún sagði að
margir hefðu hvatt sig til að gefa
kost á sér í framboð. Hún sagði að
það skipti máli varðandi ákvörðun
sína hvernig valið verði á framboðs-
listann. Hún sagðist telja prófkjörs-
leiðina gengna sér til húðar og rétt
væri að skoða aðrar leiðir. Hún
Iagði inn um opinn glugga í her-
berginu sem hann svaf í. Hann
kannaði kringumstæður og ætl-
aði svo í símann, sem þá var _
óvirkur. Skafti Jónsson frá Ás-
alþjóðlegt hafsvæði og þess vegna
ættu að gilda þar almennar alþjóð-
legar reglur í sambandi við fjar-
skipti og annað. „Ég myndi telja
þetta brot á almennum samskiptum
þjóða í milli og alþjóðlegum reglum
um fjarskipti. Við hljótum að mót-
mæla þessu,“ sagði Öskar.
Getum ekki talað heim
úr Smugunni
„Það skýtur skökku við að við
erum með 40-50 norsk skip inni í
landhelginni hjá okkur sem fá hér
alla þjónustu sem skipin þurfa á að
hafnar því hins vegar ekki að taka
þátt í prófkjöri verði sú leið farin.
„Það er þannig að ýmsir hafa
rætt þennan möguleika við mig.
Ég hef íhugað þetta alvarlega, en
ekki tekið endanlega ákvörðun enn-
þá,“ sagði Markús Örn Antonsson,
fyrrverandi borgarstjóri í Reykja-
vík. Markús sagði að endanleg
ákvörðun 'sín muni m.a. ráðast af
tímasetningu kosninga og því hvort
haldið verði prófkjör í Reykjavík.
Markús Örn benti á að fordæmi
væri fyrir því að Sjálfstæðisflokkur-
inn í Reykjavík veldi frambjóðendur
á lista án þess að viðhafa prófkjör.
Fari svo muni það hafa áhrif á
ákvarðarnir sínar. Markús Örn tók
fram að verði alþingiskosningar í
haust muni það ekki draga úr líkum
á því að hann bjóði sig fram.
„Það líður varla sá klukkutími
að ég sé ekki spurður þessarar
spurningar," sagði Vilhjálmur Þ.
mundarstöðum, sem var á leið
til vinnu á Raufarhöfn og átti
leið fram hjá Höskuldarnesi,
gerði slökkviliðinu á Raufarhöfn
viðvart.
halda, bæði varðandi talstöðvarþjón-
ustu og annað. Það þýðir hins vegar
ekkert fyrir okkur, sem erum að
veiðum í Smugunni, að reyna að
tala heim í gegnum Noreg. Þeir virða
okkur ekki viðlits. Þetta er ekkert
nema ósvífni,“ sagði Þorbjörn Sig-
urðsson, skipstjóri á Múlabergi, sem
er nýkominn úr Smugunni.
Þorbjörn tók fram að norska
Strandgæslan hefði að fyrra bragði
haft samband við íslensku skipin í
Smugunni og boðið læknisaðstoð ef
eitthvað kæmi upp á. Það bæri að
þakka.
Vilhjálmsson, borgarfulltrúi, þegar
hann var spurður hvort hann ætlaði
að gefa kost á sér í prófkjör. Hann
sagðist ekki komast hjá því að íhuga
þennan möguleika alvarlega. Hann
sagði að Alþingi væri að mörgu
leyti áhugaverður vettvangur fyrir
þá sem hafa pólitískan áhuga. Vil-
hjálmur sagðist reikna með að taka
ákvörðun í þessu máli fljótlega.
Hann sagðist telja sjálfgefið að
prófkjör verði haldið þó að boðað
verði til kosninga með skömmum
fyrirvara.
Baldur Guðlaugsson, formaður
fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík, sagði að ákvörðun um
hvort haldið verði prófkjör fyrir
komandi alþingiskosningar verði
tekin fljótlega. Hann sagði nauð-
synlegt að taka þessa ákvörðun
fljótlega óháð því hvenær kosningar
verði því að Sjálfstæðisflokkurinn
hefði venjulega haldið prófkjör fyrir
Övænt breyt-
ing á veðurspá
Reiknað
með rign-
inguum
helgina
UTLIT er fyrir að verslunarmanna-
helgin verði talsvert vætusöm, þó
að gert sé ráð fyrir að almesta
úrkoman gangi yfir í nótt, sam-
kvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofu íslands. Skúrir verða um
allt land, alla helgina. Á fimmtudag
var gert ráð fyrir þurru og góðu
veðri um mest allt land, en að sögn
Harðar Þórðarsonar, veðurfræð-
ings á Veðurstofu íslands, tók veð-
urspáin óvæntum breytingum í
fyrrinótt og gær þegar lægð, sem
hann segir mjög stóra af sum-
arlægð að vera, breytti um stefnu.
„Við gerðum ráð fyrir að lægðin
sem ræður þessu veðri færi austur
fyrir landið en þess í stað varð hún
dýpri og fór þar af leiðandi lengra
til norðvesturs en ætlað var, og
virðist ætla vestur yfir landið. Við
sáum þessa óvæntu hreyfingu ekki
fyrir og það skiptir afar miklu
máli hvar lægðin lendir nákvæm-
lega með tilliti til veðurs, jafnvel
þótt hún færist ekki langt úr stað,“
segir Hörður.
Enginn sleppur
Samkvæmt upplýsingum Veð-
urstofu verður nokkuð hvöss norð-
austanátt og rigning á Vestfjörðum
í dag, en annars breytileg átt, víð-
ast kaldi og skúrir. Á morgun er
gert ráð fyrir hægri, breytilegri átt
og skúrum um land allt, en á mánu-
dag verður komin hæg, vestlæg
átt og áfram skúrir á öllu landinu.
„Það sleppur enginn, sama hvar
hann er á landinu,“ segir Hörður.
„Mesta úrkoman var suðaustan-
lands í gær og líklega áfram í dag,
en samt verður rigning svo til alls
staðar á landinu. Suðaustanlands
mun hún standa lengst þannig að
bleytan verður töluverð fyrir ferða-
fólk og aðra. Úrkomusvæðið geng-
ur síðan yfir þannig að þegar á líð-
ur helgi stefnir í að úrkoman verði
mest á Vestfjörðum.
áramót þó að kosið væri að vori.
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík
hefur haldið prófkjör fyrir alþingis-
kosningar síðustu tvo áratugina.
Baldur sagði að það væri ekki í
lögum flokksins að halda skuli próf-
kjör heldur þurfi að taka sjálfstæða
ákvörðun um það hveiju sinni.
Gunnar skoðar þáttöku
Gunnar I. Birgisson, forseti bæj-
arstjórnar í Kópavogi, kveðst ekki
hafa tekið ákvörðun um að gefa
kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjanesskjördæmi
fyrir hugsanlegar Alþingiskosning-
ar í haust, en sá möguleiki sé í
skoðun. Menn hafi rætt við sig og
borið upp þetta mál, en hann hafi
ekki enn kanna hug manna til slíkr-
ar þátttöku með skipulögðum hætti
og íhugi ekki slíkt fyrr en og ef
ákvörðun um haustkosningar verð-
ur tekin.
Formaður Sjómannasambandsins um aðgerðir Norðmanna
Brj óta fjarskiptareglur
Ákvörðun um prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík tekin fljótlega
Vilhjálmur, Katrín og
Markús íhuga framboð