Morgunblaðið - 30.07.1994, Síða 4

Morgunblaðið - 30.07.1994, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Skrifstofusljóri ASÍ Launa- hækkanir verða að vera meiri HALLDÓR Grönvold, skrif- stofustjóri ASÍ, segir að Al- þýðusambandið fagni yfirlýs- ingum forystumanna VSÍ um að hægt verði að semja um launahækkanir í næstu kjara- samningum. Hann segir hins vegar að launahækkanimar verði að verða mun meiri en framkvæmdastjóri VSÍ hefur nefnt. Launahækkanir upp á 1-2% nái ekki að halda í við verðbólgu. Halldór segir að ASÍ hafni því að tengja launa- hækkanir við breytingar á vinnulöggjöfinni. Vinnuveitendasambandið hefur í síðustu kjarasamning- um haft þá stefnu að ekki væri rúm til launahækkana. Halldór sagðist fagna því að nú skuli heyrast annað hljóð úr herbúðum VSI. Hann sagði hins vegar að tæplega væri hægt að tala um launahækk- un þegar nefndar væru launa- breytingar á bilinu 1-2%. Hækkun af þeirri stærðar- gráðu næði ekki einu sinni að halda í við verðbólgu. „Það liggur ljóst fyrir að Alþýðusambandið hefur nú þegar gert kröfu um launa- hækkanir á grundvelli þeirra breytinga sem átt hafa sér stað á vinnumarkaðinum á samningstímanum. Þetta þarf að eiga sér stað fyrir gerð næstu kjarasamninga þannig að aðilar komi jafnsterkir að samningaborðinu," sagði Halldór. Hann sagði að krafa ASÍ vegna þessara breytinga væri upp á 5-6% launahækkun. FRÉTTIR Grasker ræktuð í Vogum Morgunblaðið. Vogar. „ÉG HEF fylgst með vextinum daglega," segir Sveinlaugur Hannesson sem ræktar grasker í gróðurhúsi við hús sitt í Vogum. „Eg hef mælt ummálið á hverjum degi og hefur stækkunin verið mest 6 sentimetrar í ummál eftir sólarhringinn," sagði hann. Fræ graskersins sem Svein- laugur gróðursetti í gróðurhús- inu fékk hann hjá Sölufélagi garðyrkjumanna. Á plöntuna komu tvö grasker sem verða að Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson liggja í neti vegna þunga síns, en fyrir nokkru valt annað úr netinu og slitnaði niður. Þá mældist það 128,5 sentimetrar í ummál og vó 18,5 kíló. Grasker eru notuð til matar og vinnur Sveinlaugur nú að því að afla uppskrifta. Stj órnarandstöðu- flokkarnir vilja haustkosningar FORYSTUMENN stjórnarand- stöðuflokkanna eru sammála um að ganga eigi til alþingiskosninga í haust og segja að stjórnarflokk- arnir ráði greinilega ekki við vand- ann í ríkisfjármálum. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, þingflokksformaður Kvennalista, segist vel geta fallist á þá röksemd forsætisráðherra að veður og færð torveldi kosningar í byijun apríl en hún telur hins vegar heppilegast að kosningar verði haldnar í síðari hluta nóvember. Halldór Ásgríms- son, formaður Framsóknarflokks, segir aftur á móti að það sé fyrir- sláttur að veður og samgönguerfið- leikar standi i vegi fyrir að kosning- ar geti farið fram í apríl. Hvorki Halldór né Ólafur Ragnar Gríms- son, formaður Alþýðubandqjags, hafna þeim möguleika, sem forsæt- isráðherra hefur orðað, að kosið verði um mánaðamót september og október, en Halldór tók þó fram að ágústmánuður myndi nýtast illa til kosningaundirbúnings vegna sumarleyfa. Ólafur Ragnar segir Alþýðu- bandalagsmenn styðja eindregið að fram fari kosningar í haust. „Ég tel mjög skynsamlegt út frá öllum hagsmunum íslendinga að ný landsstjórn mæti þingi þegar það kemur saman í október," sagði hann. Ólafur Ragnar sagði að kosn- ingaumræðan myndi ekki snúast um hvort Islendingar ættu að senda aðildarumsókn til Evrópusam- bandsins. „Raunverulegu vanda- málin eru hrikalegur ríkissjóðshalli, vextirnir eru farnir að hækka á nýjan leik, launamálin eru í al- gjörri upplausn og atvinnulífið í kyrrstöðu,“ sagði hann. „Ég hef alltaf reiknað með því að það yrðu haustkosningar," sagði Jóna Valgerður. „Ríkisstjórnin setti sér það markmið að ná niður halla íjárlaga á tveimur árum. Þau mark- mið hafa engan veginn náðst og stefnir hallinn núna í yfir 30 millj- arða á árunum 1992-1994. Það er alveg ljóst að það verður enn erfið- ara en nokkru sinni fyrr að setja saman fjárlög í haust og með því að efna til kosninga núna og kalla þing ekki saman kemst ríkisstjórn- in hjá því að leggja fram fjárlög fyrr en eftir kosningar,“ sagði hún. Ágreiningur um að- haldsaðgerðir Halldór Ásgrímsson segist hafa verið þeirrar skoðunar um skeið að kjósa ætti í haust en ummæli forystumanna stjórnarinnar nú væru merki þess að þeir treystu sér illa til að takast á við fjárlaga- gerð og Evrópumál. „Það er vitað að það er ágreiningur innan stjórn- arflokkanna um aðhaldsaðgerðir í fjármálum ríkisins og ég tel að þeir séu í reynd að viðurkenna þess- ar staðreyndir með þessum yfirlýs- ingum,“ sagði hann. Fyrsta einbýl- ishús í 14 ár Grýtubakka. Morgunblaðið. Á GRENIVÍK er nú verið að byggja hús, sem ekki væri í frásögur fær- andi ef ekki væri um að ræða fyrsta einbýlishúsið sem reist er í þorpinu í fjórtán ár. Það eru hjónin Ragnheiður Harð- ardóttir og Hermann Stefánsson sem eru að byggja þetta hús, sem er 156 fermetra stórt að meðtöldum bílskúr. Nokkuð hefur verið byggt af íbúðarhusnæði í Grýtubakka- hreppi á þessu langa tímabili, aðal- lega í sveitinni, en á Genivík hafa verið byggðar félagslegar íbúðir, 3 parhús. Flutt var inn í það fyrsta þeirra árið 1990. Kosningar hafa þrívegis farið fram um haust eða í vetrarbyrjun á lýðveldistímanum Alþýðuflokkur hafnaði haustkosningum 1970 ÞRISVAR hefur verið gengið til alþingiskosninga að hausti til eða í byijun vetrar á lýðveldistímanum. Þetta var árin 1949,1959 og 1979. Sumarið 1970, á stjórnartíma Við- reisnarstjórnarinnar, höfnuðu Al- þýðuflokksmenn tillögu sjálf- stæðismanna um haustkosningar en samkomulag var um það frá upphafi stjórnarsamstarfs flokk- anna að þingrofsrétti yrði ekki beitt nema með samþykki beggja flokk- anna. Sumarið 1949 var við völd samsteypustjóm Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks, Stefanía sem svo var kölluð, en hún var mynduð í febrúar árið 1947. Fór að bera á óánægju framsóknarmanna með stjórnarsamstarfið þegar kom fram á sumar 1949 og samþykkti mið- stjórn Framsóknarflokksins að ná bæri samkomulagi milli stjórnar- flokkanna um aðgerðir í efnahags- málum en annars yrði að leita úr- skurðar þjóðarinnar. Kynntu ráð- herrar flokksins tillögur um þetta í ríkisstjórn og settu þau tímamörk að ákveðin niðurstaða yrði að liggja fyrir fyrir 10. ágúst, annars yrði stjórnin að biðjast lausnar. Ekki náðist samkomulag um þetta innan ríkisstjórnarinnar og var þá ákveð- ið að ijúfa þing og boða til nýrra kosninga um haustið, dagana 23.-25. október. Fóru þær fram á tilsettum tíma og var kosningaþátt- taka tæplega 90%. Vorið 1959 náðist samkomulag milli Sjálfstæðisflokks, Alþýðu- flokks og Alþýðubandalags um nýja kjördæmaskipan og breytingar á stjórnar- skránni. Þá var við völd minnihlutastjórn Alþýðu- flokks með stuðningi Sjálfstæðisflokks. Al- þingiskosningar fóru fram í júni en Alþingi kom svo saman 21. júlí þar sem stjórnarskrárbreytingin var samþykkt á ný og var aftur gengið til þingkosninga samkvæmt hinni nýju kjördæmaskipun um haustið. Ákveðið var að hafa tvo kjördaga, 25. og 26. október. Var kosningaþátttakan rúmlega 90%. Sjálfstæðismenn hlynntir haustkosningum 1970 Sumarið 1970 hafði samsteypu- stjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðu- flokks verið við völd í tæplega 11 ár. Að afloknum sveitarstjórnap- kosningum um vorið komu fram raddir innan beggja stjórnarflokk- anna að skynsamlegt væri að ijúfa þing og efna til kosninga um haust- ið. Reglulegar alþingiskosningar áttu að fara fram sumarið 1971. Var sérstaklega mikill áhugi á þessu innan Sjálfstæðisflokksins. í fyrrihluta ágústmánaðar tilnefndu flokkarnir fulltrúa sína til viðræðna sem fram fóru næstu daga um það hvort ijúfa ætti þing og efna til haustkosninga. Fengu ráðherrar Sjálfstæðisflokksins umboð frá þingflokki og miðstjóm til að efna til þingrofs og kosninga ef um það næðist samkomulag við samstarfs- flokkinn. Á meðan á viðræðum stjórnarflokkanna um haustkosn- ingar stóð hófu sjálfstæðismenn undirbúning prófkjörs fyrir næstu þingkosningar og ákvað fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna 10. ágúst að efna til prófkjörs í september hvort sem alþingiskosningar yrðu haldn- ar um haustið eða vorið. Þáverandi forsætisráðherra, Jó- hann Hafstein, lagði á það áherslu í Morgunblaðsviðtali á þessum tíma að ef efnt yrði til haustkosninga, þyrfti að ákveða það fljótlega,. því ekki hentaði að hafa kjördag miklu síðar en um veturnætur. Jóhann rökstuddi tillögur sjálfstæðismanna um haustkosningar m.a. með þeim orðum, að gefa ætti kjósendum kost á að veita Alþingi og ríkis- stjórn, hver sem hún yrði, nýtt umboð sem væri líklegt til að styrkja aðstöðu þessara aðila í sam- ráði við samtök verkalýðs og vinnu- veitenda til að skapa meiri festu í þjóðfélaginu. Það væri forsenda þess að unnt væri að varðveita þann bata, sem orðið hefði í þjóðfé- laginu og myndi tryggja launþeg- um raunhæfar kjarabætur. Viðræður stjórnarflokkanna urðu hins vegar árangurslausar og lauk þeim þegar miðstjórn Alþýðu- flokksins kom saman 21. ágúst og ályktaði að ekki væri tímabært að efna til haustkosninga, heldur væri rétt að kanna til hlítar hvort samstaða gæti náðst milli aðila vinnu- markaðarins og ríkis- stjórnarinnar en viðræð- ur milli þessara aðila voru þá nýhafnar um undirbúning að gerð kjarasamninga. Stjórnar- samstarfið hélst svo út kjörtímabil- ið og var gengið til kosninga 13. júní 1971. Dr. Gylfi Þ. Gíslason, sem var ráðherra og formaður Alþýðu- flokksins á þessum tíma, sagðist í samtali við Morgunblaðið í desem- ber síðastliðnum telja, að það hafi verið rétt af Alþýðuflokknum að hafna haustkosningum sumarið 1970. Efnahagsráðstafanir ríkis- stjórnarinnar hafi verið farnar að bera árangur og rétt hefði verið að láta hann koma ótvírætt í ljós. Ef kosið hefði verið um haustið hefði viðskilnaður stjórnarinnar orðið allt annar og lakari en hann var. Veður hamlaði ekki vetrarkosningum 1979 Að loknum þingflokksfundi sjálf- stæðismanna sl. fimmtudag þar sem rætt var um hugsanlegar haustkosningar, sagði Davíð Odds- son forsætisráðherra m.a., að sam- göngutruflanir og ótryggt veðurlag í febrúar og mars væru ókostir ef gengið yrði til kosninga 8. apríl. Minnti hann á umræður um vetrar- kosningarnar sem fram fóru í des- ember árið 1979. „Það var rifjað hér upp á fundinum að 1979 fundu ýmsir flokkar að því og töldu þjóð- arvoða að þjóðinni skyldi vera otað út í kosningabaráttu í október og nóvember, eins og það var orðað þá,“ sagði Davíð. Alþýðu- flokkurinn sleit stjórnar- samstarfi við Framsókn- arflokk og Alþýðubandalag um haustið 1979 og var þing rofið 15. október og boðað til þingkosninga í byijun desember. I fréttum frá þessum tíma kom fram að ýmsir höfðu áhyggjur af því að þurfa að ganga til kosninga um hávetur. Var ákveðið að hafa kjördaga tvo, 2. og 3. desember. í frétt Morgun- blaðsins að kosningum loknum kom fram að veður hamlaði hvorki kosn- ingunum né talningu og lauk kosn- ingu víða á fyrri degi vetrarkosn- inganna árið 1979. Var kosninga- þátttaka 89,3% eða örlítið minni þátttaka en í kosningunum áratug- ina á undan. Talað var um þjóðarvoða 1979 Alltaf hafa verið tveir kjördagar f I > I I I f í l \ l i I I > i i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.