Morgunblaðið - 30.07.1994, Síða 6

Morgunblaðið - 30.07.1994, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ ___________________________________FRÉTTIR_____________________ íslending-ur er meðal þeirra þriggja sem leggja Hárlínuna ’95 INTERCOIFFURE í París, al- þjóðlegur félagsskapur hár- greiðslumeistara, hefur gefið línuna í hártískunni fyrir næsta ár. Elsa Haraldsdóttir, hár- greiðslumeistari, er ein þriggja hjá samtökunum sem sjá um að móta tískuna á hverju ári og velja þau aðra hárgreiðslumeist- ara í lið með sér. Þann 12. sept- ember verður svo valin endan- leg tískulína á sýningu í París, hún kynnt og kennd. Elsa segir hártískuna fyrir árið 1995 einkennast af hreyf- ingu og léttleika, hárið eigi að vera eðlilegt. Hún segir að mik- il breidd sé í tískulínunni og ekki sé lengur um eitt ákveðið útlit að ræða. „Persónuleiki hvers og eins á að koma fram,“ segir hún. „Tískan hefur verið að þróast meira og meira í þá átt.“ Hreyfingunni er náð fram annað hvort með stórum per- Hárið létt og hreyfanlegt manentspólum eða blæstri og eru bylgjur og liðir áberandi. Ef fólk kýs slétt hár þá eru end- arnir gjarnan greiddir út, segir hún. Hárið síðara Elsa segir að hárið eigi að vera síðara en hingað til, en undanfarið hafi mjög stuttar klippingar verið áberandi. Eftir sem áður verði hárið klippt frá eyrunum eða sett aftur fyrir eyru, og segir Elsa að það eigi ekki að vera fram í andlitið. Hvað varðar litinn á hárinu segir hún að hann eigi að vera eðlilegur og ljósir og brúnir tón- ar séu algengastir. Elsa segir að á sýningunni í París, sem um 600 manns sækja, verði línan kynnt og kennd og sé það há- punktur dagsins. Þennan dag verða Norðulöndin einnig með sameiginlega sýningu og Japan- ir og Frakkar með sérsýningar. Rússar smygla vodka 155 LÍTRAR af vodka og 12 lengjur af sígarettum voru gerð upptæk í rússnesku fisk- flutningaskipi í Hafnarfjarðar- höfn á fimmtudag. Upp komst um smyglið þegar sjómenn voru að bera vodkaflöskur út í bíl á höfninni. Fimm rúss- neskir sjómenn gengust við því að eiga varninginn. Sjómennirnir voru staðnir að því að bera vodkaflöskur úr skipinu og út í bíl ungs Hafnfirðings en honum voru ■ þeir búnir að selja 50 flöskur. Að sögn Eðvarðs Olafssonar, hjá Rannsóknarlögreglunni í Hafnarfirði, kemur skipið reglulega hingað og hafði Hafnfírðingurinn pantað 50 flöskur hjá Rússunum síðast þegar skipið var hér. Við leit í skipinu fundust 155 lítrar af vodka til.viðbót- ar, faldir víðs vegar um skipið, og ellefu lengjur af sígarett- um. Rússarnir fimm gáfu sig fram og eftir yfirheyrslur, sem fóru fram með aðstoð túlks, voru þeir sektaðir um 20- 60.000 krónur. Þeir greiddu sektir sínar samdægurs. Nýr frystitog’ari til landsins NÝR frystitogari, Pétur Jónsson RE-69, sem er sérútbúinn fyrir rækjuvinnslu kemur til landsins næstkomandi sunnudag. Skipið var smíðað í skipasmíðastöðinni Aukra Industrier í Aukra í Noregi fyrir Pétur Stefánsson útgerðarmann. Eldra skip Péturs með sama nafni sem m.a. var gert út á rækju og loðnu var selt til Hjaltlandseyja í lok síðasta árs. Nýja skipið er 59 metra langt, hannað af Skipsteknisk í Aalesund. Það er útbúið fyrir tvíburatroll og sérstyrkt til veiða í ís. Pétur Stef- ánsson útgerðarmaður tók við skip- inu í Aukra í vikunni og er á ieið- inni með það til landsins. Heildarverð nálægt 70 milljónum Ekki fengust upplýsingar hjá út- gerðinni um verð skipsins en í Fis- hing News International er heildar- verð þess talið vera nálægt 70 millj- ónum norskra króna en það sam- svarar um 700 milljónum íslenskra. Áætlað er að skipið fari fyrst til rækjuveiða á Flæmingjagrunni. Gamla skipið hafði kvóta upp á 1.829 þorskígildistonn og verður hann fluttur á nýja skipið. Ætlunin er að reyna að skipta loðnukvóta þess í rækjukvóta til að drýgja verk- efni þess við rækjuveiðar. Tuttugu menn eru í áhöfn. Fjölmennu norrænu dýralæknaþingi í Reykjavík lokið Þúsund gestir vegna þingsins NORRÆNU dýralæknaþingi lauk í gær, en um 600 dýralæknar af öllum Norðurlöndunum sóttu þing- ið. Halldór Runólfsson, dýralæknir og formaður undirbúningsnefndar þingsins, sagði að þinghaldið hefði gengið vel og allt í allt hefðu gest- ir vegna þingsins verið 1.000, þar sem margir hefðu komið með maka og börn til landsins. Fyrirlesarar komu meðal annars frá Norður- löndunum, Bretlandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum. í tengslum við ráðstefnuna kynntu ýmsir framleiðendur og seljendur vörur sínar og sést einn sýningarbásinn á myndinni. Morgunblaðið/Arni Sæberg Ógreidd bifreiðagjöld dregin frá endurgreiðslum úr ríkissjóði í fyrsta sinn Gjöld innheimt af fyrrver- andi eigendum bíla SÍMINN var rauðglóandi hjá tollstjóraembættinu í Reykjavík í fyrradag í kjölfar þess að ógreidd bifreiðagjöld af bílum, sem skipt höfðu um eig- anda, voru dregin frá endurgreiðslu úr ríkissjóði til fyrrverandi eigenda bílanna, þ.e. skuldjöfnuð. Arthur Sveinsson deildarstjóri hjá tollstjóraemb- ættinu, segir ástæðuna fyrir þessu vera reglur um að bifreiðagjöldin fylgi kennitölu þess, sem á bílinn á gjalddögunum, 1. janúar og 1. júlí ár hvert. Ekki hefur áður verið mögulegt að skuldjafna þessi gjöld vélrænt. Snertir málið því marga, sem átt hafa bíla á áðurnefndum gjalddögum, þótt þeir hafi aðeins átt bílinn í einn til tvo daga. Á álagningar- og innheimtuseðli 1994 kemur fram upphæð bifreiðagjaldanna, sem dregin eru frá heildar endurgreiðslunni en ekkert sagt af hvaða bíl gjöldin eru. Aðeins er sagt að Tollstjórinn í Reykjavík og sýslumenn utan Reykjavíkur veiti frekari upplýsingar. „Fólk spyr hvað það eigi að gera, það sé nýbúið að selja bílinn, t.d. núna í júlí. Hafi það ekki athugað að setja það inn í afsal að nýi eig- andinn taki við gjaldinu, sem er fyrirfram álagn- ing í sex mánuði, er því ráðlagt að tala við nýja kaupandann sanngirnismál sé að hann greiði fyrir sinn bíl þetta tímabil. Ef hann bregst þá gangur kerfið að seljandanum. Þetta er leiðinda- mál,“ sagði Arthur. Undantekningar til Dæmi eru um tilfelli, þar sem kerfið hagar sér öfugt við þetta. Morgunblaðið hefur undir höndum álagningarseðil manns, sem keypti not- aðan bíl af bílaumboði í september 1993. Ogreidd bifreiðagjöld hvíldu á umboðinu vegna bílsins og voru ekki tekin með í samning um greiðslu á bílnum, þar sem umboðið átti að borga. Þegar maðurinn fékk álagningarseðilinn í hendurnar sá hann að þessi gjöld höfðu verið skuldjöfnuð og dregin frá upphæðinni, sem hann átti að fá endurgreidda úr ríkissjóði. Snorri sagði að til væru undantekningar frá almennu reglunni um að gjöld féllu á skráðan eiganda á gjalddaga. Ef að eigendaskipti hefðu átt sér stað en ekki verið skráð í bifreiða- skránni þá væri heimilt að innheimta bæði skráð- an eiganda og raunverulegan. Slíkt gerðist þó ekki í ofangreindu sértilfelli skv. upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu heldur áttu sér stað mistök þegar sá, sem keypti bílinn af umboðinu, greiddi bifreiðagjöld, sem féllu í gjalddaga 1. janúar sl. Greiðslan var færð sem greiðsla á skuldinni, sem umboðið átti að borga og litið svo á sem bifreiðagjöldin, sem féllu í gjalddaga 1. janúar sl. væru ógreidd. Þau voru svo skuld- jöfnuð á almennan hátt. Enginn at- vinnulaus á Eskifirði VIÐVARANDI atvinnuleysi hefur nánast ekkert verið á Eskifirði og fyrir skömmu var enginn á atvinuleysisskrá á staðnum, að því er fram kemur í samtali við Hrafnkel Jónsson, formann verkalýðsfélagsins Ái-vakurs á Eskifirði, í júlítölu- blaði blasins Gegn Atvinnu- leysi. íbúar á Eskifirði _eru 1.060, en skráðir félagar í Árvakri eru 429. Hrafnkell segir að at- vinnuleysi hafi óneitanlega verið meira undanfarið en það hafi verið lengst af eftir 1970. 6-10 manns hafi verið að jafn- aði atvinnulaus í vetur, en fyrrihluta sumars hafi dregið úr því og lítið sem ekkert at- vinnuleysi sé nú. Ekki sé um viðvarandi atvinnuleysi að ræða og þannig hafi aðeins tveir átt rétt á eingreiðslu 1. júní, en til þess hafi menn þurft að vera 87 daga atvinnulausir síðasta árið. Hrafnkell segir að atvinnu- ástand á Eskifirði og Nes- kaupsstað sé sennilega hvað best af stöðum á Austurlandi. Sjávarútvegurinn sé gerðir út tveir togarar og tvö nótaskip, auk tveggja minni báta. Gausdal Þröstur í ellefta sæti ÞRÖSTUR Þórhallsons hafn- aði í ellefta sæti með 5 Vi vinn- ing á alþjóðlega skákmótinu í Gausdal í Noregi sem lauk í gær. Sigurvegari á mótinu var Kotronias frá Grikklandi með 7'/2 vinning. Helgi Áss Grétarsson, Héð- inn Steingrímsson og Arnar Gunnarsson voru með 5 vinn- inga hver, og hefði Arnar sem er 15 ára þurft að vinna skák sína í síðustu umferðinni til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Bragi Kristjáns- son, Torfi Leósson og Björn Þorfínnsson fengu 4 vinninga. Hvammstangi Landa- bruggarar gómaðir LÖGREGLAN á Blönduósi stöðvaði um hádegi í fyrradag bifreið á Hvammstanga vegna ástands ökutækisins, og fann töluvert magn af landa við leit í honum. í bílnum voru tveir menn um tvítugt á leið á Þjóð- hátíð í Vestmannaeyjum, og játuðu þeir við yfirheyrslur að hafa bruggað hann, til eigin nota að sögn. Mennirnir tveir vísuðu jafn- framt á bruggverksmiðju sína við yfirheyrslur og gerði lög- reglan upptæka um 200 lítra af gambra í verksmiðjunni, auk um 20 lítra af landa, eim- ingartæki og annan búnað til bruggsins. Samkvæmt upplýs- ingum frá lögreglunni á Blönduósi var bifreiðin stöðvuð fyrir tilviljun, þar sem ástand hennar þótti óviðunandi. Málið telst að fullu upplýst.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.