Morgunblaðið - 30.07.1994, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Egilsstaðir
Annir 1 sjúkraflug’i
Egilsstöðum - Mikið hefur verið
að gera hjá Flugfélagi Austurlands
í sjúkraflugi undanfarið.
Gústaf Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri félagsins segir að
jafnaði sé flogið sjúkraflug þriðja
hvern dag, en stundum verður álag-
ið meira. Þannig bar við, að s.l.
laugardag voru fimrn sjúkraflug
pöntuð en félagið gat ekki annast
nema fjögur þeirra og leigði vél
annars staðar frá fyrir það fimmta.
Þjónustusvæði félagsins er stórt,
nær frá Ingólfshöfða í suðri til
Bakkafjarðar í norðri. Gústaf sagði
álagstoppa verða, ýmist vegna veik-
inda eða slysa, og fyrir nokkru
hafi þeir flogið níu sjúkraflug á
einni viku. Á síðasta ári voru flogin
130 sjúkraflug, en rúm 70 eru flog-
in það sem af er þessu ári.
Sölusýning sunnudaginn 31. júlíkl. 14-18.
Til sölu sérlega fallegur bústaður í landi Norðurkots-
lands v/Kóngsveg í Grímsnesi. Bústaðurinn er 50 fm
að grunnfleti auk 30 fm innréttuð efri hæð. Bústaðurinn
er fullfrágenginn að öllu leyti. Stofa, eldhús, 2 svefn-
herb., bað m. sturtu, rafmagn, allar innréttingar sér-
smíðaðar. Eignarlóð 7000 m2. Símboði 984-53900.
HÚSVANGlJll
FASTEIGNASALA RO.17.17
BORGARTÚNI29,2. HÆÐ. © Wfc ■ ■ ■ ■
Sumarhús í Þrastarskógi
á söguslóðir
Fróðleikur og
skemmtun í fylgd
Jóns Böðvarssonar
dagana 5- 8. ágúst.
UPPLIFIÐ NJÁLSSÖGU Á LIFANDI HÁTT!
Allar upplýsingar veita NJÁLUFERÐIR í síma 98-78133.
- kjarni málsins!
LANDIÐ
Veiddi 13
marhnúta á
hálftíma
Tálknafirði - Nýlega var hin árlega
Marhnútaveiðikeppni haldin á
bryggjunni á Tálknafirði og sá sem
sigraði veiddi 13 marhnúta á hálf-
tíma.
Margmenni var á bryggjunni þeg-
ar keppnin hófst, og voru þar auk
keppenda, afar og ömmur, pabbar
og mömmur, sem fylgdust með börn-
unum veiða.
Alls tóku 36 keppendur þátt í
keppninni, og veiddust ails 109 mar-
hnútar, auk annarra tegunda sem
sleppt var jafnóðum. Marhnútunum
var að keppni lokinni skiiað aftur til
sinna heimkynna.
Flesta marhnúta veiddi Friðrik
Steindórsson fyrir tilvonandi mág-
konu sína Rakel Rós 4ra ára, en þau
veiddu 13 fiska. Stærsta marhnútinn
veiddi Magnús Guðjónsson, en hans
viskur vóg 480 grömm.
Ungmennafélag Tálknafjat'ðar sá
um skipulagningu og framkvæmd
keppninnar.
Morgunblaðið/Helga.
Morgunblaðið/Sigurður Mar
HELGI Gíslason framkvæmdastjóri Hér-
aðsskóga afhendir Baldri Pálssyni
slökkviliðsstjóra keðjusögina. Guðmundur
Steingrímsson stjórnarformaður Bruna-
varna á Héraði fylgist með.
Branavörnum á Héraði
veittur stuðningur
Egilsstöðum - Héraðs-
skógar afhentu nýlega
Brunavörnum á Héraði
nýja keðjusög að gjöf
ásamt fylgibúnaði og
námskeiði í meðferð tæk-
isins. Baldur Pálsson
slökkviliðsstjóri segir
sögina nýtast Brunavörn-
um vel til slökkvistarfa,
bæði til að rjúfa þök og
saga timburveggi. Auk
þess sem hægt er að saga
í gegnum ís á vötnum og
vatnsbólum þegar kom-
ast þarf í vatn til slökkvi-
starfa að vetri til.
Helgi Gíslason fram-
kvæmdastjóri Héraðs-
skóga segir mikilvægt að
mynda samstarf við
Brunavarnir á Héraði,
þar sem mikið tjón geti
hlotist af eldi við skóga
og í skógrækt. Helgi
sagði ennfremur, að
starfsmenn Hérðasskóga
hvettu menn til þess að
brenna ekki sinu, því allt-
af er hætta á því að sinu-
bruni geti komist í ný-
plantað land.
Baldur mb. 80
aftur á Búðum
Hlíðarholti - Góðir gestir komu á Hótel Búðir sunnu-
daginn 17. júlí sl. Var þar um að ræða Guðbrand
Vigfússon fyrrverandi oddvita í Ólafsvík og vensla-
fólk hans.
Fjölskyldan hafði verið stödd á sumarhátíð í Ólafs-
vík um helgina en notaði nú tækifærið til þess að
koma að Búðum þar sem Guðbrandur afhenti hótel-
inu að gjöf og varðveislu fagurlega smíðað líkan
eftir hann sjálfan af mótorbátnum Baldri mb. 80.
Báturinn Baldur var smíðaður á Akranesi 1906 og
var keyptur að Búðum af Finnboga G. Lárussyni
þeim mikla athafnamanni, en hann bjó á Búðum frá
1906 til 1927. Þessi bátur var fyrsti vélbáturinn sem
gerður var út frá Búðum. Var hann 11 rúmlestir að
stærð. Formaður á honum var hinn kunni sjósóknari
Þorleifur Þorsteinsson síðar bóndi á Hólkoti í Staðar-
sveit.
Guðbrandur var um árabil starfsmaður hjá Finn-
boga á Búðum og hefir ætíð síðan verið bundinn
staðnum tryggðarböndum.
í gjafabréfi sem fylgdi bátslíkaninu er þess getið
Morgunblaðið/Guttormur Þormar.
GUÐBRANDUR Vigfússon fyrrverandi oddviti
í Ólafsvík við likaniö af mb. Baldri.
að lest bátsins sé hugsuð sem samskotabaukur fyrir
kirkjuna á Búðum.
Svo vildi til að sóknarpresturinn séra Ólafur Jens
Sigurðsson var staddur á Búðahótelinu þegar þessi
gjöf var afhent. Þakkaði hann gefandanum þá miklu
tryggð og ræktarsemi sem hún bæri vott um. Sömu-
leiðis þakkaði hótelstjórinn, Victor Sveinsson, þessa
frábæru gjöf.
Bátslíkaninu var valinn staður upp á vegg í gesta-
móttöku hótelsins þar sem það sómir sér vel.
er tískunafniö í póstverslun í dag meö 200 ára reynslu
Yfir 1000 síður fatnaöur, jóla- og gjafavara, búsáhöld o.fl.
Vetrarlistinn kr. 600, án burðargjalds.
Pöntunarsími 52866