Morgunblaðið - 30.07.1994, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 30.07.1994, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Könnun á viðhorfi til verslunarhátta í A-Skaftafellssýslu * Anægðir með vöru- úrval en ósáttir við verðlagið ÍBÚAR á svæðinu milii Fagurhóls- mýrar og Djúpavogs eru alla jafna ánægðir með Kaupfélag Austur Skaftfellinga. Þeir eru hins vegar óánægðir með vöruverð, sem þeir telja að sé mikilvægasti þátturinn í verslun. Þetta kom fram í könn- un sem gerð var í vor og náði til 233 íbúa á þessu svæði. íbúar Djúpavogshrepps kaupa oftar matvörur í Reykjavík en aðr- ir á þessu svæði og þegar könnun- in var gerð hafði um helmingur íbúa Djúpavogshrepps gert það undanfarna 12 mánuði. Aldur virðist skipta máli hvað þetta varð- ar, því ungt fólk verslar frekar í Reykjavík en þeir sem eldri eru. Kennarar Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu unnu könnunina ásamt nemendum. „Vinran kom inn í nám í félags- fræði og stærðfræði og krakkarn- ir lögðu spurningarnar fyrir og fylgdust með úrvinnslu. Þeir stóðu sig mjög vel í þessu verkefni," segir Eyjólfur Guðmundsson kenn- ari við skólann. Einn af hverjum þremur að- spurðra leggur meiri áhersiu á lengri afgreiðslutíma verslana en lægra vöruverð og samkvæmt könnuninni er þetta fremur álit yngra fólks en eldra. Hins vegar kaupir afgerandi meirihluti fólks vörur í stórum umbúðum, ef það er ódýrara. NEYTENDUR Verðkönnun vikunnar Þj óð vegamaturinn misdýr eftir stöðum VERÐ á skyndibitafæði við þjóð- vegi landsins getur verið mjög mismunandi, eins og blaðamaður Neytendasíðunnar komst að við gerð verðkönnunar á hamborgur- um, pylsum, köldum og heitum samlokum, en ætla má að margir ferðalangar noti sér slíkt fæði á sjoppum hringinn í kringum landið á ferðum sínum. Ódýrasti hamborgarinn fannst hjá Frábæ á ísafirði þar sem hann kostaði 198 krónur. Þann dýrasta var aftur á móti að finna norður á Húsavík, í Söluskála Skeljungs þar í bæ, á 390 krónur. Mismunur- inn nemur 192 krónum sem þýðir að næstum því má fá tvo hamborg- ara á Frábæ fyrir einn á Húsavík. Spurt var um verð á hamborgara í brauði með sósu og salati inní. Pylsa með öllu kostar frá 140 krónum og upp í 160 krónur á þeim 27 stöðum, sem haft var samband við, en sölustaðir þessir bjóða flestir ef ekki allir upp á sæti innanhúss þar sem hægt er að setjast niður á meðan borðað er. Verð á samlokum reyndist einn- ig nokkuð misjafnt eftir því hvar verslað er. Köld samloka með hangikjöti og salati kostar frá 150 krónum í Ásakaffi í Grundarfirði og upp í 280 krónur í Bitanum á Egilsstöðum. Þegar spurt var um verð á heitri samloku með osti og skinku er verðið frá 200 krónum og upp í 330 krónur. Að gefnu tilefni skal það tekið fram að hér er eingöngu um verð- könnun að ræða. Ekki er tekið tillit til gæða. Hvað kostar bitinn? Hamborgari brauði með Heit pylsa " Köld samloka m. Heit samloka sósu og með hangikjöti m. osti og salati öllu og salati skinku Frábær, ísafirði 198,- - - 215,- Aktu taktu, Reykjavík 220,- 140,- 190,- 260,- Braut, Grindavík 265,- 140,- 200,- 200,- Lindin, Akureyri 295,- 150,- 210,- 300,- Veganesti, Akureyri 295,- 150,- 210,- 300,- Esso-skálinn, Blönduósi 300,- 150,- 220,- 280,- Ásakaffi, Grundarfirði 300,- 140,- 150,- 270,- Fossnesti, Selfossi 310,- 150,- 200,- 200,- Söluskálinn, Ólafsfirði 320,- 160,- 220,- 300,- Fitjagrill, Njarðvík 325,- 140,- 200,- 260,- Grillskálinn, Ólafsvík 325,- 140,- 210,- 290,- Brúarnesti, Borgarnesi 330,- 150,- 210,- 260,- Bitinn, Egilsstöðum 335,- 155,- 280,- 320,- Blönduskálinn, Blönduósi 340,- 160,- 250,- 330,- Brú, Hrútafirði 340,- 150,- 250,- ■ O 04 co Hreðavatnsskáli, Borgarfirði 340,- 150,- 250,- 310,- Hyrnan, Borgarnesi 340,- 140,- 190,- 200,- KS-Varmahlíð, Skagafirði 340,- 150,- 220,- 300,- Ábær, Sauðárkróki 350,- 160,- 250,- 290,- Esso-Patró, Patreksfirði 350,- 150,- 260,- 260,- Ferstikla, Hvalfirði 350,- 150,- 250,- 320,- Þyrill, Hvalfirði 350,- 150,- 250,- 320,- Botnsskáli, Hvalfirði 350,- 150,- 250,- 310,- Staðarskáli, Hrútafirði 350,- 150,- 220,- 310,- Eden, Hveragerði 365,- - 255,- 275,- Hafr.arbúðin, Höfn 370,- 155,- 240,- 260,- Söluskáli Skeljungs, Húsavík 390,- 160,- 210,- 270,- Uppskriff vikunnar Karlínn ákránni Á SKEMMTILEGRI krá, sem rek- inn hefur verið í nærri 100 ár í bænum Sanluear de Barrameda á suður Spáni, vinnur skemmtilegur karl, sem heitir Rafael Mellado. Þetta er ein af fáum krám þar sem enn er hægt að fá sérrí úr tunnum, en sá siður er á undan- haldi á Spáni vegna herts eftirlits heilbrigðisyfirvalda. „Sótthreins- unaræði vitleysinga,“ eins og Rafael kemst að orði. Sanlucar de Barrameda er fremur gamaldags bær, enda hef- ur hann aldrei orðið aivarlega fyr- ir barðinu á okkur, erlendum ferðamönnum. Sérrí-framleiðsla hefur verið lifibrauð margra íbúa í rúm 200 ár, en fisk- og skelfiskveiðar eru einnig algengar. Hvort tveggja er áberandi á öllum veitingastöðum bæjarins þar sem algengast er að menn borði ferska sjávarrétti og sötri þurrt sérrí með. Bar Los 48 heitir staðurinn og er vel falinn skammt frá miðbæn- um, í götunni Ruiz Somavia. Rafa- el hefur gaman af vinnunni sinni og syngur mikið meðan hann af- greiðir sérrí, bjór eða smáréttina tapas yfir barborðið. Viðskiptavinir eru úr öllum stéttum þjóðfélagsins og Rafel finnst þeir allir góðir. Gamlar krár, eins og sú sem hann rekur, njóta virðingar, sér í lagi þær sem gefa sérviskupúkum kost á að fá sér sérrí „eins og það kemur af skepn- unni“. í Sanlucar eru margir sér- viskupúkar, enda er alltaf nóg að gera hjá hinum söngelska og glað- lynda Rafael. Hann eldar alla smáréttina sjálfur og suma hveija útbýr hann á gamalli gasvél fyrir framan við- skiptavinina. Eftir að hafa borðað hvítlauksrækjur hjá honum nokkra daga í röð, var afráðið að falast eftir^ uppskriftinni. „Ólífuolía er málið. Þú verður að nota ólífuolíu og mátt alls ekki nota sólblóma- eða aðra jurtaolíu," svarar Rafael. Eftir nokkra stund, Morgunblaðið/BT RAFAEL logsteikir rækjurnar eftir að áfengið er komið út í, en því má sleppa ef vill. þegar búið er að sannfæra hann um að íslendingum muni aldrei detta í hug annað en nota ólífuol- íu í rækjuréttinn, gefur hann upp- skriftina. Þetta er smáréttur, tveggja manna tapa. Rækjur Rafaels 100 g. frosnor risarækjur eðo litlir ___________humarholar_____________ ___________5 hvíllauksrif_________ 'h dl ólífuolía 'h þurrkaður chili-pipar 'h glas þurrt sérrí (mó sleppa) Rafael notar risarækjur sem búið er að pilla og frysta. Hann notar þær beint úr frosti og mæl- ir ekki með að notaðar séu rækjur í skel. Aftur á móti telur hann að hægt sé að nota humarhala, sem búið er að taka úr skel. Saxið saman hvítlauk og chili- pipar. Hitið eldfast mót, sem notað verður til að bera rækjurnar fram í. Hitið olíu á pönnu og steikið hvítlauk og chili-pipar þar til hvít- laukur verður gulbrúnn. Gæta í SANLUCAR er algengt að menn borði ferska sjávarrétti og sötri þurrt sérrí með. þarf þess að hvítlaukurinn brenni ekki. Rækjur settar út í hvítlauksol- íuna og þurru sérríi hellt yfir. Eld- að við hressilegan hita í 1-2 mínút- ur. Hellt í eldfasta mótið sem á að vera vel heitt, því olían með rækjunum á að krauma þegar rétt- urinn er borinn fram. Brauð, t.d. ciabatta-brauð sem fæst í Hagkaup, er gott með þess- um rétti, því ætlast er til að hvít- lauksolían sé hreinsuð upp með brauði, þegar rækjurnar eru bún- ar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.