Morgunblaðið - 30.07.1994, Page 17

Morgunblaðið - 30.07.1994, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ Notkun hjálma á hestbaki Fordæmið er þýðingarmikið ÞEIR SEM hafa verið lengi í hesta- mennsku nota síður reiðhjálma en þeir sem byijað hafa „í hestunum“ á síðustu fjórum til fimm árum. Venjan er að kennarar í reiðskól- um noti hjálma og nemendur gera það nánast undantekningarlaust. Þetta á alla vega við þegar riðið er út, en þegar kennsla fer fram innan dyra, er misjafnt. hvort krafa er gerð um hjálmanotkun. Sú mun þó alltaf vera raunin þegar nem- endur eru börn eða unglingar. Margrét Dögg Halldórsdóttir kennari í reiðskólanum í Gríms- nesi segjr að í upphafi hvers nám- skeiðs sé valinn mátulegur hjálmur á börnin og brýnt fyrir þeim að nota hjálm af réttri stærð. „Síðan nota þau sama hjálminn allt nám- skeiðið. Kennarar nota alltaf hjálm, því fordæmið skiptir miklu máli og við viljum gefa krökkunum gott fordæmi." Verulega púkalegt I kappreiðum hefur um margra ára skeið verið skylda að nota reið- hjálma og nú gildir hið sama einn- ig á íþróttamótum og í gæðinga- keppni. Hestamaður sem rætt var við sagðist álíta að hugmyndin væri fyrst og fremst sú að keppnis- fólk gæfi gott fordæmi, en kvað marga ósátta við þessa hjálma- skyldu. „Fæstir þessara aðila hafa vanist því að nota hjálm og því finnst þeim hann óþægilegur. Auk þess þykir mörgum verulega púka- legt að nota hjálm.“ Þeir sem fara með hestaleigum í útreiðatúra eða í hestaferðir nota nánast undantekningarlaust reið- hjálm. Hins vegar er undir hælinn lagt hvort fylgdarfólk og leiðsögu- menn gera það. „Mikil viðhorfs- breyting hefur átt sér stað á síð- ustu fjórum til fimm árum,“ segir Bryndís Einarsdóttir hjá Ishestum. „Þeir sem hafa verið árum eða áratugum saman í hestamennsku og koma með okkur í ferðir á eig- in hestum eru tregari að nota hjálma en þeir sem hafa verið skemur í hestamennsku.“ Sjálf segist Bryndís ekki hafa vanist því að nota hjálm sem barn og hún geri það helst ekki nema hún ríði hest.i sem hún þekki ekki. „Þeir fararstjórar hjá okkur sem vinna í barna- og unglingastarfi nota alltaf hjálm, enda átta þeir sig manna best á fordæmisgild- inu.“ Hjálmur er orðinn hluti af nauð- synlegum búnaði, segja þeir sem selja reiðtygi og annan varning fyrir hestamenn. Asgeir Ásgeirs- son eigandi Hestamannsins segist hafa séð mikla breytingu til batn- LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1994 17 NEYTENDUR Morgunblaðið/RAX í REIÐSKÓLUM nota allir nemendur reið- hjálm, en hjá hestaleigum er undir hælinn lagt hvort fararstjóri notar hjálm eða ekki. aðar hvað þetta varðar á síðustu árum. „Þeir sem eru að byija kaupa sér strax hjálm, en þeir sem hafa verið lengi í hestamennsku kaupa frekar hjálm ef þeir hafa orðið vitni að slysi. Eftir slys á hestbaki kemur alltaf kippur í hjálmasölu.“ Sigríður Guðmunds- dóttir eigandi Ástundar tekur í sama streng. Hún segist leggja mikla áherslu á hjálma þegar hestafólk kaupir búnað hjá henni. „Þeir sem eru að byija núna í hesta- mennsku kaupa hann nánast allir.“ Evrópskur gæðastaðall Hollustuvernd ríkisins hefur gefið út bækling um reiðhjálma þar sem meðal annars er fjallað um val á hjálmum og greint frá því að á Norð- urlöndum þurfi hjálmar að upp- fylla ákveðnar kröfur. Samkvæmt heimildum blaðsins er gert ráð fyrir að um næstu áramót taki samræmdir gæðastaðlar fyrir reiðhjálma gildi í löndum Evrópu- bandalagsins. Þar er jafnframt bent á að flest slys í hestamennsku verði þegar knapi missir jafnvægi og fellur af baki. „Víða erlendis gera tryggingafélög þær kröfur að hestamenn noti reiðhjálma á hest- baki. Að öðrum kosti falla allar bótagreiðslur niður verði maður fyrir slysi í hestamennskunni. Gildir þar einu hvort um er að ræða höfuðáverka eða til dæmis handleggs- eða fótbrot eða einhver önnur meiðsl." Uppþvotta- vélaefni í töfluformi Á markaðinn eru komnar svokallað- ar „Finish Tablets", sem er nýjung í uppþvottavélaefni frá Finish. Töfl- urnar eru handhægar í notkun þar sem búið er að móta töflur úr upp- þvottavélaefninu og pakka hverri þeirra í plastumbúðir. Ein tafla dugir fýrir hvern þvott. Töflur þessar eru hannaðar úr hágæðaefnum til að þvo erfiðan þvott svo sem þurrar matarleifar af diskum og innihalda þær ekki ætandi efni. Umboðsaðili fyrir „Fin- ish Tablets“ hér á landi er Eggert Kristjánsson hf., Sundagörðum 4, Reykjavík. - kjarni málsins! Lokað sunnudag og mánudag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.