Morgunblaðið - 30.07.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.07.1994, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT Áhyggjufullir hluthafar Reuter Tævanþing Forseti kjörinn beint Taipei. Reuter. ÞJOÐÞING Tævan samþykkti í gær áætlun um fyrstu beinu forsetakosningarnar í landinu, eftir að fulltrúar stjórnarand- stöðunnar gengu af fundi, en höfðu áður látið í ljósi óánægju sína með því að velta húsgögn- um og kýla stjórnarþingmenn. Þingið ákvað að kosningarn- ar muni fara fram 1996, en þá lýkur sex ára kjörtímabili nú- verandi forseta, Lee Teng-hui. Forseti hefur hingaðtil verið kjörinn af þinginu, sem saman- stóð að mestu af öldruðum full- trúum Þjóðarflokksins, sem stendur að stjórninni, þangað til umbætur voru gerðar 1991, fulltrúunum flestum gert að fara á eftirlaun, og teknar upp beinar þingkosningar. Þjóðar- flokkurinn hefur haldið í stjórn- artaumana á Tævan frá því flokksmenn komu til eyjarinnar eftir að hafa orðið undir í borgarastríðinu í Kína árið 1949. HLUTHAFAR í MMM, einu stærsta fjárfestingarfélagi í Rússlandi, bíða hér hundruðum saman fyrir utan aðalstöðvarn- ar í Moskvu í þeirri von, að þeir geti fengið hlutinn inn- leystan. Því var þó hætt fyrir nokkrum dögum. Verðbólga hefur verið mikil í Rússlandi og þeir, sem hafa keypt hlut í MMM, hafa jafnan getað selt skömmu síðar með miklum hagnaði. Nú er hins vegar veru- lega farið að draga úr verð- hækkunum og verðbólgu og margir óttast, að fjárfestingar- fyrirtækið muni hrynja eins og hver önnur spilaborg. Baráttan gegn hryöjuverkum og einangrun fransstjórnar á alþjóöavettvangi Christopher gagnrýninn á bandamenn Bonn, Washington. Reuter. WARREN Christopher, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gagnrýnir harðlega ónefndar bandalagsþjóðir lands síns fyrir að taka ekki þátt í að einangra íranstjórn á alþjóðavettvangi. Ráðherrann fullyrti á fimmtudag að írönsk stjórnvöld styddu alþjóðleg hryðjuverkasamtök og væru „alþjóðlegur út- lagi“. Talið er að hann hafi einkum viljað gagnrýna afstöðu Þjóðveija og Japana en báðar þjóðirnar hafa mikil viðskipti við Iran. Þjóðverjar taka þó ekki orð ráðherrans til sín, að sögn Dieters Vogels, talsmanns stjómvalda í Bonn. „Ráða verður niðurlögum hópa á borð við Hizbollah sem valda skelf- ingu og úthella blóði, einangra þarf bakhjarl þeirra, íran“, sagði Chri- stopher á fundi með utanríkismála- nefnd fulltrúadeildar þingsins. Hann sagði að með því að halda áfram viðskiptum við Irana væru ónefndar vinaþjóðir Bandaríkjamanna að gera auðveldara fyrir klerkastjórnina í Teheran að aðstoða hryðjuverka- menn um allan heim. íranar for- dæmdu í gær ummæli Christophers og sögðust engan þátt eiga í tilræð- um gegn gyðingum í Argentínu, Panama og London að undanförnu. Á annað hundrað manns hafa týnt lífi í tilræðunum. írönsk stjórnvöld segja að ísraelsstjórn hafi sjálf verið að baki tiiræðunum og sé ætlunin að koma óorði á islamska heittrúar- menn um allan heim með því að kenna þeim um hryðjuverkin. Hvorki Bretar né Argentínumenn segjast treysta sér til að fullyrða að Iranar hafi átt þátt í hermdarverk- unum en sterkar vísbendingar munu vera um að þeir eigi a.m.k. hlutdeild að sprengjutilræðinu í Argentínu. Reuler UNG stúlka virðir fyrir sér skemmdir á heimili sínu í gær en það er í þorpinu Kfartebneit í suðurhluta Líbanons. Israelar gerðu stórskotaliðsárás á þorpið eftir að skæruliðar múslima réðust á bandamenn ísraela á líbanskri landræmu sem ísraelsher hefur hersetið um árabil. Ágreiningur við Sýrlendinga þröskuldur í vegi meiri árangurs í friðarviöræöum Peres hvetur til viðræðna Jerúsalem, Damaskus. Reuter. SHIMON Peres, utanríkisráðherra Ísraels, hvatti í gær Sýrlendinga til að hefja óformlegar viðræður við ísraela til að reyna að setja niður deilur ríkjanna. Er ágreiningur ísraela og Sýrlendinga helsti þrö- skuldurinn í vegi frekari árangurs í friðarviðræðunum um Mið-Aust- urlönd. Minnti Peres, sem staddur er í opinberri heimsókn á Kýpur, á að óformlegar viðræður hefðu verið fyrsta skrefið í átt að friðarsamn- ingi ísraela og Egypta árið 1979. Stjórnvöld á Kýpur hafa boðist til að vera gest- gjafar slíkra viðræðna. Sýrlending- ar krefjast þess að ísraelar láti Gólanhæðir af hendi, sem þeir hernámu í sex- dagastríðinu árið 1967. ísra- elar skilyrða hins vegar alla eftirgjöf því að eðlilegt ástand komist á í samskipt- um ríkjanna. Utanríkisráðuneyti Líbanons skýrði frá því í gær að Sýrlending- ar hefðu fallist á að senda sameigin- lega sendinefnd með Líbönum til friðarviðræðnanna. Peres sagði að Israelar myndu ekki setja sig upp á móti slíku fyrirkomulagi en upp- haflega mun hugmyndin vera kom- in frá Assad Sýrlandsforseta. Líbanir gera einnig þá kröfu til ísraela að þeir hverfi á brott frá hernumdum svæðum við landamæri ríkjanna. Sagði Peres að ísraelar hefðu engan hag af því að reyna að taka land frá Líbönum en for- dæmdi hins vegar veru 35 þúsund sýrlenska hermanna í Iandinu. Á sunnudag munu þeir Yitzhak Rabin, forsætisráðherra ísraels, og Hosni Mubarak, forseti Egypta- lands, eiga fund í borginni Taba við Rauða hafið. Að sögn embættismanna verður staða friðarviðræðna og tilraunir til að koma þeim á skrið á ný helsta umræðuefnið. Fimm slas- aðir í Dan- mörku AÐ minnsta kosti fimm manns slösuðust eða var saknað eftir að klettar hrundu á dönsku eynni Mön í gær. Um 40 metra kafli, efst í Manarklettum, sem eru 143 m háir, hrundi niður í fjöru skömmu fyrir hádegi. Fjórir slösuðust og eins var saknað, að sögn björgunar- manna. Walesa hvet- ur til sátta LECH Wa- lesa hrósaði í gær þeim sem tóku þátt I Varsjárupp- reisninni gegn her- námsliði Þjóðveija 1944, en sagði að kominn væri tími tii að slíðra sverðin og sættast við fyrrum andstæðinga. í tilefni af því að fimmtíu ár eru liðin frá uppreisninni, þar sem 200 þúsund manns létust, hitti Walesa 150 manns sem tóku þátt í uppreisninni og veitti þeim orður. Hátíðahöldin ná hámarki á mánudag, þegar nákvæmlega 50 ár verða liðin frá því uppreisnin hófst, með hátíðarsamkomu þar sem Ro- man Herzog, forseti Þýska- lands, John Major, forsætisráð- herra Breta og A1 Gore, vara- forseti Bandaríkjanna, verða meðal gesta. Kóngafólk græðir á ESB BRESKA konungsfjölskyldan, sem er einn stærsti landeigandi á Bretlandi, mun hagnast tals- vert á áætlun Evrópusam- bandsins um að bændum verði borgað fyrir að hætta búskap. Elísabet drottning, sem er rík- asta kona heims, á rétt á rúmri milljón punda fyrir að láta af hendi land við Sandringham- setrið, og 90% af tekjunum af setri Onnu dóttur hennar koma til vegna áætlunarinnar. Tals- maður hirðarinnar var í gær spurður hvort það væri rétt að drottningin gæti hagnast um 200 þúsund pund á ári vegna áætlunarinnar, og sagði hann að hið sama gilti um konungs- fjölskylduna og aðra bændur. Kinnock til ESB NEIL Kinnock, fyrrum leið- togi Verka- mannaflo- kksins á Bret- landi, var í gær kjörinn fulltrúi Bret- lands í fram- kvæmdast- jórn Evrópu- sambandsins. Fyrir hálfum öðrum mánuði var kona Kinnocks kjörin á Evrópu- þingið. Kinnock lætur nú af þingmennsku á Bretlandi eftir hartnær 25 ára setu, og sagði nýja embættið vera krefjandi verkefni sem hann hlakkaði til að takast á við.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.