Morgunblaðið - 30.07.1994, Side 20

Morgunblaðið - 30.07.1994, Side 20
20 LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Konur skemmta konum Leyndardómur - Alda Armanna Sveinsdóttir. KONURNAR sem halda á Nor- disk Forum héðan frá íslandi fara margar með ýmislegt athyglivert með sér í farteskinu. Auk þeirra kvenna sem ætla að halda fyrir- lestra og fundi um ýmis málefni er konur sem ætla að syngja, leika, sýna málverk og kvikmyndir og margt fleira. Blaðamaður Morgun- blaðsins kynnti sér hvað íslenskar konur munu sýna og gera til að skemmta sér og öðrum gestum á kvennaþinginu í Finnlandi. Dans og bókmenntir Tólf konur frá Akureyri sem kalla sig Eyjafjarðarskottur sýna gamla dansa við undirleik harmon- iku. Þær kalla atriðið Bærinn minn Akureyri. Astríður Johnsen stjórn- ar hópnum og Hildur Friðriksdótt- ir sér um tónlistina. Anna S. Björnsdóttir verður með stutt atriði um bókmenntir sem hún nefnir Blíða myrkur, kona kveður. Hún mun flytja það á dönsku og sænsku auk íslensku. Leiklist Hópur frá BSRB sýnir verkið Dugmikla fjölskyldan. Verkið var skrifað af meðlimum hópsins og fjallar um íslensku fjölskylduna og þá sérstaklega um stöðu kon- unnar innan hennar. Tekið er á málefnum eins og löngum vinnu- degi, tíðum barneignum og vel- ferðarkerfinu. Sýningin er að mestu flutt með látbragðsleik en auk þess verða hengdar upp töflur með tölfræðilegum upplýsingum. Konuverkfall á íslandi er sýning sem konur í ASÍ setja upp. Þetta er leikrit með söngum og dönsum sem verður flutt á íslensku, dönsku og „skandinavísku". Þórey Sigurþórsdóttir flytur einleik Elísabetar Jökulsdóttur Skilaboð til dimmu. Verkið fjallar um konu sem á í erfiðleikum með að vinna úr tilfinningum sínum þegar elskhugi hennar yfirgefur hana og faðir hennar deyr. Fimmtíu konur frá Keflavík flytja verkið Höfum við gengið til góðs götuna fram eftir veg? Þetta er götuleikhús sem er flutt á tveimur vögnum. Höfundur og leikstjóri er Hulda Ólafsdóttir. Tvær konur frá Kvennalistan- um, þær Gígja Svavarsdóttir og Guðrún Gísladóttir, flytja verkið Gerir mínus mínus virkilega plús? í verkinu er saga norræna kvenna og hlutdeild þeirra í stjórnmálum skoðuð í nýju Ijósi. Björg Gísladóttir og Kolbrún Erna Pétursdóttir sýna Og þá mun enginn skuggi vera til verk um sifjaspell. Nánari umfjöllun um það er á öðrum stað í blaðinu. Tónlist Kvennakór Reykjavíkur verður með ferna tónleika á Nordisk For- um. Hann ætlar að syngja bæði trúarlega og veraldlega tónlist undir stjórn Margrétar Pálmadótt- ur. Hljómsveit Jarþrúðar ætlar að skemmta tvisvar á kvennaþinginu. Það eru þær Ólafía Hrönn Jóns- dóttir, Guðrún Jarþrúður Bald- vinsdóttir, Lilja Steingrímsdóttir, Lana Kolbrún Eddudóttir, Þórdís Claessen og Sofía Theodórsdóttir sem skipa hljómsveitina. Myndlist Anna Ingólfsdóttir sýnir teikn- ingar og grafík á sýningu sem ber heitið Frá mínum sjónarhóli. Mar- grét Guðmundsdóttir sýnir grafísk verk. Sýningin hennar er kölluð Líf kvenna. Kristín Bogadóttir heldur ljósmyndasýninguna Frá náttúrunni. Steinunn Guðmunds- dóttir sýnir fískroð sem hún hefur málað á með akríl. Björg Atla sýnir akrílverk sem hún nefnir Q-Vita-Min. Konan, kærleikur og heimilið er yfirskrift sýningar Bryndísar Björgvinsdóttur. Á sýn- ingunni eru vatnslita- og pastel- myndir og keramík. Alda Ármanna Sveinsdóttir sýn- ir 16 málverk á Nordisk Forum. Sýningin ber yfirskriftina Gyðjur í íslensku samfélagi. Myndirnar eru allar af islenskum konum og hverri mynd fylgir stuttur texti eða hugleiðing. Auk þess að setja upp þessa sýningu mun Alda Ár- manna taka þátt í alþjóðlegu sam- vinnuverki málara á Nordisk For- um. Atvinnumálarar frá öllum Norðurlöndunum og Eystrasalts- ríkjunum ætla að vinna saman að stóru málverki í skemmtigarði í Turku. Áætlað er að verkið taki þijá daga og geta gestir og gang- andi fylgst með framvindu verks- ins. Það er danska listakonan Gitte Pedersen sem átti hugmyndina að þessu samvinnuverki. Kvikmyndir Heimildarmynd Önnu Björns- dóttur Ást og stríð, um íslenskar konur sem giftust bandarískum hermönnum, verður ein af 99 myndum sem sýndar verða á kvik- myndahátíð Nordisk Forum. Önn- ur mynd eftir íslenska konu er Hlaupársdagur eftir Önnu Th. Rögnvaldsdóttur. Þriðja framlag ís- lenskra kvenna er mynd Öldu Lóu Leifsdóttur Halló, stutt heimildar- mynd um síma- stúlkur. Báðar síð- arnefndu myndirn- ar eru frá þessu ári. Mynd Valdi- mars Leifssonar, Listakonan sem ís- land hafnaði, um Nínu Sæmundsson verður einnig sýnd á kvikmyndahátíð- inni. I flokknum myndir unnar með myndbandsupp- tökuvél er ein mynd frá íslandi. Hún ber titlinn Golf og hana gerði Margrét Guð- mundsdóttir. Listiðnaður og annað Arndís Jóhann- esdóttir sýnir hluti gerða úr fiskroði. Einnig verður sýning á íslenskri nútíma textíllist haldin í Turku. Handverkakonur" milli heiða sýna íslenskar ullar- peysur, handpijónaðar dúkkur og skartgripi gerða úr beinum, horn- um og við. Ragnhildur Steingrímsdóttir stendur fyrir_ sýningunni Ég lít liðna anda. Á sýningunni verða búningar íslenskra kvenna frá ýmsum tímum. Kristjana F. Arnd- al sýnir skyggnir af verkum sínum sem hún nefnir Hrif. Aðalvið- fangsefni verka hennar er síbreyti- leg veðrátta á íslandi. Guðrún G. Bergmann verður með athöfn sem hún nefnir helgis- iðalög fyrir konur í leit að villidýr- inu í sér. Hún ætlar að stjóma athöfninni á strönd í nágrenni Turku. Þýskur organisti í Hall- gríms- kirkju SUNNUDAGINN 31. júlí verða fimmtu tónieikarnir í orgeltónleikaröðinni Sumar- kvöld við orgellið í Hallgríms- kirkju og hefjast þeir kl. 20.30. Á tónleikunum leikur þýski organistinn Willibald Guggenmos verk eftir Richard Wagner, Sigfrid Karg-Elert, Charles M. Widor, Louis Vi- erne og Petr Eben. Willibald Guggenmos fæddist 1957 í Augsburg í Þýskalandi. Tónlist- amám hóf hann í heimabæ sínum og hann lauk A prófi í kirkjutónlist og orgelleik frá Ríkistónlistar- skólanum í Miinchen og fékk þar sérstaka viðurkenningu fyrir orgelleik sinn. Frá 1984 hefur hann verið organisti og kórstjóri við kirkju heilags Marteins í Wangen/Allgáu auk þess að vera líka listrænn stjórnandi og skipuleggjandi „Alþjóð- legra orgeltónleika“. Árin 1985-88 var hann einnig dós- ent í orgelleik og spuna við kirkjutónlistarskólann í Rott- enburg/Neckar. Hefur komið fram í mörgum löndum Willibald Guggenmos hefur komið fram á tónleikum í flest- um löndum Evrópu, Norður- Ameríku, Vestur-Indíum, Ástralíu og Hong Kong. Þá kemur hann reglulega fram sem píanó- og semballeikari á ljóða- og kammertónleikum. Auk þessa hefur hann oftlega komið fram í útvarpi og sjón- varpi í Þýskalandi, Sviss, á Ítalíu og í Bandaríkjunum. Willibald Guggenmos Lj óðatónleikar í Signrjónssafni Morgunblaðið/Árni Sæberg MARGRÉT Bóasdóttir sópran, Beate Echtler- Kaller mezzósópran og Stephan Kaller píanó- leikar leika í Sigurjónssafni. Nýjar bækur ■ Skáldsagan Sjáumst þó síðar verði eftir Mary Higgins Clark er komin út hjá bókaútgáfunni Vöku-Helgafell. Þetta er spennu saga um fréttamanninn Meghan Collins. Ekkert hefur spurst til föð- ur hennar í tæpt ár en hann hvarf með dularfullum hætti. Þegar Meg- han sér sína eigin spegilmynd í andliti óþekktrar, látinnar stúlku á sjúkrahúsi vakna efasemdir um að faðir hennar sé látinn. Hún fer að grafast fyrir um uppruna stúlkunn- ar en reynir jafnframt að komast að sannleikanum um föður sinn. Mary Higgins Clark hefur skrifað ellefu bækur frá árinu 1975 og hafa þær orðið metsölubækur um ailan heim. Níu kvikmyndir hafa verið gerðar eftir sögum hennar. H Út er komin Ijóðabókin Þegar nóttin gleypti mig eftir Björn Harðarson. Hann fæddist í Reykja- vík árið 1971 og stundar nú nám í sálfræði við Háskóla íslands. Bók- in hefur að geyma 41 ljóð eftir Björn og eru þau öll skrifuð á tíma- bilinu 1989-1994. Þetta er fyrsta ljóðabók höfundar. Bókin er 64 blaðsíður og er káputeikning eftir Emil Cl. Guðbrandsson. ÞRIÐJUDAGSTÓNLEIKAR Lista- safns Siguijóns Ólafssonar 2. ág- úst kl. 20.30 verða ljóðatónleikar. Þar koma fram Margrét Bóasdótt- ir sópran, Beate Echtler-Kaller mezzósópran og Stephan Kaller píanóleikar. Efnisskráin er fjöl- breytt og flutt verða ljóð eftir ís- lensk og erlend tónskáld, meðal annars Jórunni Viðar, Jón Hlöðver Áskelsson, Henry Purcell, Johann- es Brahms, Leonard Bernstein og Erik Satie. Margrét Bóasdóttir nam söng hjá Elísabetu Erlingsdóttur við Tónlistarskóla Kópavogs og lauk burtfararprófi árið 1975. Sama ár lauk hún tónmenntakennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hún stundaði framhaldsnám við Tónlistarháskólann í Heidelberg- Mannheim í einsöngskennaradeild, óperu- og konsertdeild og útskrif- aðist árið 1981. Hún nam ljóða- túlkun hjá prófessor Konrad Ric- hter við Tónlistarháskólann í Stuttgart og var síðar í einka- kennslu hjá prófessor Erika Schmidt-Valentin í Bayern. Hún hefur sótt fjölmörg námskeið í túlkun ljóðasöngs og barokksöngs, nú síðast hjá Ian Partridge í Skál- holti. Hún hefur haldið fjölda ljóða- tónleika hér heima og víða erlend- is og sungið einsöngshlutverk í mörgum helstu kirkjulegu verkum tónbókmenntanna. Margrét starf- ar nú hjá söngmálastjóra Þjóð- kirkjunnar varaðandi bamakóra við kirkjur og hefur kennt við guð- fræðideild Háskóla íslands. Beate Echtler-Kaller og Stephan Kaller Beate Echtler-Kaller stundaði söngnám hjá prófessor Erika Schmidt-Valentin við Berufsfac- hschule fur Musik í Krumbach, Bayem, og hefur auk þess lokið námi sem söngkennari og kór- stjóri. Hún hefur haldið Ijóðatón- leika og sungið einsöngshlutverk í kirkjulegum verkum í Þýskalandi, Austurríki og á Ítalíu. Hún starfar sem söngvari, kennari og kórstjóri í Augsburg. Stephan Kaller nam píanóleik við Tónlistarháskólann í Wurzburg og lauk einleikaraprófi árið 1984. Einnig stundaði hann sérnám í píanóleik með Ijóðasöng. Hann starfar sem píanókennari við Berufachschule fur Musik í Krumbach, Bayern. Hann hef- ur haldið einleiks- tónleika og leikið kammertónlist víða um Þýskaland, í Austurríki, Slóvak- íu,. á Ítalíu og á íslandi. Margrét, Beate og Stephan hafa starfað saman síð- an árið 1989 og haldið tónleika víða um Þýskaland. Þau hittast yfirleitt árlega og í október nk. eru fyrirhugaðir 6 tónleikar í Þýskalandi, m.a. í Munchen og Heidelberg. Þetta er í þriðja sinn sem þau leika og syngja saman á íslandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.