Morgunblaðið - 30.07.1994, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ1994 25
AÐSENDAR GEINAR
„Island, sækjum það heim“
Islenskt æskufólk er
ferðalangar framtíðarinnar
GETUR átak í ferðaþjónustu
tengst myndlistarkennslu í skóla-
starfi barna og unglinga? Er þarft
að kalla fram jákvæð viðhorf barna
og unglinga til landsins? Getur sýn
barna og unglinga á land og þjóð
verið öðrum næring og hvatning til
að kynnast landinu betur? Er list-
kennsla árangursríkt afl í menntun
barna og unglinga til skoðunar á
uppruna, umhverfi, sögu og eigin
skynjun?
Þetta eru spurningar sem komu
upp þegar átaksverkefnið „ísland,
sækjum það heim“ var kynnt mynd-
listarkennurum síðastliðið haust.
Leitað var til Félags íslenskra
myndlistarkennara um samstarf.
Markmið átaksins var að hvetja ís-
lenskar fjölskyldur til ferðalaga um
eigið land. Okkur þótti það verðugt
verkefni að aðilar í ferðaþjón-
ustunni og aðrir legðu saman krafta
sína og beindu athygli að landinu.
Að ræktuð sé sú ímynd Íslands að
það sé girnilegt ferðaland fyrir ís-
lendinga. Myndlistarkennarar völdu
að taka þátt í átakinu vegna þess
að þarna var tækifæri til að vekja
athygli ungmenna á náttúru lands-
ins, mannlífi og uppruna og að vega
örlítið upp á móti sterkum erlendum
áhrifum. Svona samstarf tengir
saman skólastarf og atvinnulíf og
vekur athygli á listkennslu í skólum.
Hlutur myndlistarkennara í átak-
inu „ísland, sækjum það heim“ er
myndlistarverkefni sem var kynnt
í öllum skólum landsins í lok síð-
asta árs. 19.534 nemendur frá 131
skóla tóku þátt í verkefninu. 5.000
myndir voru sendar til dómnefndar
og var starf dómnefndar vandasamt
því velja þurfti á milli margra jafn-
góðra mynda. Við valið var haft
að leiðarljósi þema verkefnisins „ís-
land, sækjum það heim“. 120 úr-
valsverk voru valin á farandsýningu
sem hófst í ráðhúsi Reykjavíkur 27.
júní. Verndari myndlistarverkefnis-
ins, frú Vigdís Finnbogadóttir for-
seti íslands, afhenti viðurkenn'ingar
til þeirra ungmenna sem eiga verk
á sýningunni. Vegna þess hve mörg
úrvalsverk bárust ákvað styrktar-
aðili myndlistai’verkefnisins, Bún-
aðarbankinn, að setja upp sérstaka
sýningu á 100 myndum í Kringl-
unni og í Menntamálaráðuneytinu
var sett upp sýning á 80 myndum
í boði ráðuneytisins.
Myndlistarverkefnið bauð upp á
margar leiðir fyrir nemendur til
skoðunar og tjáningar út frá eigin
upplifun af landinu. Markmið okkar
var fá nemendur til að líta í hug-
skot sitt og finna ímynd sína af
veruleika landsins. Það er jákvæð
og uppbyggjandi nálgun að við-
fangsefninu. Engin sýn er annarri
lík, hver og einn lítur landið sínum
augum. Grundvallarregla í listnámi
er að vera það sem maður er, með
lifandi fjölbreytt tilfinningalíf og
skynjun og að vinna út frá því.
Að meta skoðun sína og koma á
framfæri krefst hugrekkis. Þvl get-
ur leið lista í uppeldi og skólastarfi
skapað frumkvöðla sem þora að
standa að nýsköpun á öllum sviðum
þegar á þarf að halda. Listnám
býður einnig upp á markvissar leið-
ir til að byggja upp afstöðu gagn-
vart veruleikanum vegna þess að
unnið er út frá reynsluheimi, per-
sónulegu mati og skyr.jun nemand-
ans og hægt að tengja skoðun á
fortíðinni, hefðum, sögu mannsins
og menningarsögunni.
Okkar upplifun af því að vinna
að myndlistarverkefninu tengt
átakinu, var að verulegar viðhorfs-
breytingar á afstöðu til íslands sem
ferðamannalands komu fram hjá
ungmennunum. ísland sem var
varla „með“ í upphafi, þegar rætt
var um hvert væri eftirsóknarvert
að ferðast, komst á
blað hjá „alþjóðlegum"
ungmennum okkar
sem hugsanlegur kost-
ur. Það hafði ekki síst
áhrif að á sama tíma
og unnið var með eigin
skynjun þá var mikil
umræða 1 gangi og
auglýsingaflóð í fjöl-
miðlum.
Sú umfjöliun hefur
verið ríkjandi undan-
farið að átakið „ísland,
sækjum það heim“ hafi
ekki skilað sér í aukn-
um ferðalögum í júní.
í júnímánuði í ár höfðu
Islendingar þó sér-
stakar ástæður til að að halda sig
heima. Lýðveldisafmælið og HM í
knattspyrnu. Talsmenn tjaldstæða
og bændagistinga hafa kvartað
yfir að fjárútlát til uppbyggingar
hafi ekki skilað sér I kassann. Nei-
kvæðar raddir hafa verið þær einu
sem hafa heyrst í fjölmiðlum und-
anfarið vegna átakisins og þær
virðast koma frá aðilum úr ferða-
geiranum sem ekki sáttir við að
svona uppbygging tekur tíma.
Gréta Mjöll
Bjarnadóttir
Það er sárt ef vinna
íslenskra ungmenna í
skólum landsins að
átakinu „ísland, sækj-
um það heim“ verður
undir og eyðilögð í
neikvæðri umræðu um
átakið. Viðhorfsbreyt-
ing er langtímaverk-
efni en skammfíma-
sjónarmið þar sem sem
eingöngu er hugsað
um hagnað dagsins I
dag getur eyðilagt
slíkt starf auðveldlega
og þá ekki síður það
starf sem unnið var í
íslenskum skólum. En
það er svipað og að
höggva undan sér fæturna. Islenskt
æskufólk eru ferðalangar framtíð-
arinnar. Ef ná á árangri verður
uppbygging ferðaþjónustunnar að
vera af öðrum toga en í fiskeldi
og loðdýrarækt þar sem margir
ætluðu að græða á skömmum tíma.
Verðlag verður að vera á þeim
nótum að ísland sé girnilegur kost-
ur jafnt fyrir íslendinga sem út-
lendinga. Útlendingar sem ferðast
hafa um ísland ráðleggja oft á
Hlutur íslenskrar
æsku er farandsýning
um landið, segir
Gréta Mjöll Bjarna-
dóttir, og endurspeglar
sýningin sterka og
bjartsýna íslandssýn.
þessa leið: „farðu endilega tii ís-
lands en farðu fyrst til allra ann-
arra staða því eftir að þú hefur
verið á íslandi hefurðu ekki efni á
að fara annað“. Ég hef þá trú eft-
ir að hafa unnið að átakinu „Is-
land, sækjum það heim“ að ísland
þurfi ekki að vera síðasta landið í
ferðalögum íslendinga en þá þarf
ferðaþjónusta að byggjast upp sem
vandað langtímaverkefni sem „all-
ir“ standa heilir að. Margir sem
starfa að ferðamenhsku gera það
af mikilli fagmennsku og það er
ótrúlega hugmyndaauðlegð og
kjark að finna hjá íslendingum.
íslensk ungmenni eru opin og
jákvæð en jafnframt hagsýn og það
þýðir ekkert að plata þau. Ohætt
er að segja að átakið „Island, sækj-
um það heim“ fékk athygli þeirra
og ef hugur á að fylgja máli við
að auka ferðalög um ísland verður
eitthvað að búa undir annað en
skammtímasjónarmið svo að þau
skynji áþreifanlega eitthvað eftir-
sóknar- og virðingarvert við ferða-
lög um landið. Umræða þarf að
vera jákvæð og verðlag og þjón-
usta á þá leið að allir séu sæmilega
sáttir.
Hlutur íslenskrar æsku til átaks-
ins er farandsýning um landið sem
endurspeglar sterka og bjartsýna
íslandssýn. Þessi sýning er dæmi
um að leið lista í menntun barna
og unglinga getur skilað markverð-
um árangri svo úr verði kraftmikl-
ir, gagnrýnir og sjálfstæðir ein-
staklingar sem eru óhræddir við
að fara eigin leiðir. Þeir staðir sem
farandsýningin á eftir að koma til
eru:
Mývatnssveit 5. - 14. ágúst,
Egilsstaðir 17. - 28. ágúst, Vest-
mannaeyjar 2. - 11. september,
Keflavík 16. - 25. september.
Ég hvet alla sem eru á ferðalög-
um um landið og aðra að skoða
farandsýninguna „ísland, sækjum
það heim“. Sýningin er góður
vitnisburður um æsku landsins og
gefur fyrirheit um bjartsýni og trú
á ísland.
Höfundur er formaður Félags
íslenskra myndlistarkennara.
KAÍRÓ- PÝRAMÍDARNIR-SI6LIN6Á NÍL- ASWAN
Stórkostlegt ævintýri til
Egyptalands, vöggu heimsmen-
ningarinnar, þar sem þú kynnist
umhveríi og menningarverðmæt-
um Faróanna sem eiga sér engan
líka í mannkynssögunni.
Töfrar Kaíró í góðum aðbúnaði á
4 stjörnuhóteli og ævintýrasigling
á ánni Níl með íslenskum
fararstjóra Heimsferða
allan tímann.
Inniíalið
í verði:
Flug, lerðir til
og frá flugvelli
erlendis, gising
á 4 stjörnu hótelum, sigling á
Níl, morgunverður í Kairó og fullt
fæði í siglingunni á Níl.
Gist á íbúðarhóteli á Benidorm
á útleið og heimleið og er
þá ekki fæði innifalið.
Fararstjóri:
Þorsteinn Stephensen
o rL á Spáni
~r- 99.600
Flugvallaskattar kr. 3.660,
ekki innifaldir.
AUSTURSTRÆTI 17 SIMI 624600
FERÐATILHÖGUN
» 28. september
Beint flug með flugi Heimsferða til Alicante. Ekið frá
flugvelli til Benidorm þar sem gist er í 2 nætur.
» 30. september
Flug frá Barcelona til Kairó. Lent í Kairó kl. 23.00 að
staðartíma þar sem tekið er á móti hópnum og ekið
beint heim á hótel Oasis, 4 stjörnu hótel í Kairó.
...■■■» 1. og 2. október
Dvöl í Kairó. Kynnisferð um Kairó og farið til Giza
þar sem hinir stórkostlegu pýramídar eru skoðaðir.
...3. október - Luxor, 5 dagar á Híl
Að morgni dags er farið með flugi til Luxor.
5 daga sigling niður Níl frá Luxor til Aswan.
Helstu áfangastaðir:
Luxorhofið og Karnahofið -Dalur konunganna og
grafhýsi Ramsesar II og Seti I. Hof Hatsheputs drottn-
ingar - Dalur drottninganna.
Sigling um Esna, Edfu og Kom Ombo.
Hof Hórusar - Kitchener eyjar.
Grafhýsi Agha Khans.
fStíflan mikla í Aswan. - Abu Simbel.
1 ► 8. október
Flug til Kairó og dvöl á Hotel Oasis.
—► 9. október
Morgunverður og boðið upp á aukaferð til
Alexandríu fyrir þá sem vilja. Annars er
dagurinn frjáls.
...10. október
Morgunverður. Ekið út á flugvöll um kl. 10.45 og farið
með flugi til Barcelona kl. 12.45. Lent i Spánar.
Dvalið á Benedorm á góðu íbúðarhóteli í 9 daga
► 19. október
Flug heim til íslands í beinu flugi Heimsferða
frá Alicante.