Morgunblaðið - 30.07.1994, Síða 31

Morgunblaðið - 30.07.1994, Síða 31
30 LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ1994 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ1994 31 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDl: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 691100. Auglýsingar: 691111. Askriftir: 691122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 691329, frétt- ir 691181, íþróttir 691166, sérblöð 691222, auglýsingar 691110, skrif- stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan- lands. í lausasölu 125 kr. eintakið. SKATTSVIKARAR A FYRSTA FARRÝMI Hugarfarsbreytingar er þörf í garð skattsvika. Brýna nauð- syn ber til að skera upp herör gegn skattsvikum. Skatt- svik eru slík að umfangi, að væru allar tekjur framtaldar, nægðu skattar sem rynnu í ríkissjóð, af þeim tekjum sem ekki eru taldar fram í hinu svonefnda „svarta hagkerfi“ til þess að jafna hallarekstur ríkissjóðs. Skattsvikarar ferðast á fyrsta farrými íslensks þjóðfélags, á kostnað þeirra sem greiða skatta sína og skyldur til samfélags- ins, og verða þar af leiðandi í mörgum tilvikum að sætta sig við annað farrými. Hér í Morgunblaðinu í fyrradag kom fram að heildarálagning tekjuskatts á tekjur sem aflað var á liðnu ári nam 30,6 milljörð- um króna, en þar af innheimtust ekki nema 25,2 milljarðar króna, eða 82%. Þó innheimtist hærra hlutfall af tekjum liðins árs, en gerðist af tekjum ársins 1992, en þá var hlutfallið um 81%. Ljóst er þó að skattskilin þurfa að verða mun skilvirkari en þau eru og innheimtuhlutfall álagðs tekjuskatts þarf að hækka frá ári til árs. En það er ekki í innheimtunni sem aðalvandinn er fólginn, heldur í svartri atvinnustarfsemi, sem veltir milljörðum króna á ári hverju, án þess að gjalda samfélaginu það sem því ber. í skýrslu um umfang skattsvika á Íslandi sem unnin var að frumkvæði Friðriks Sophussonar fjármálaráðherra og kynnt á liðnu hausti, kom fram að áætlað var að tekjur á árinu 1992 hefðu verið vantaldar um 16 milljarða króna og ríkissjóður og sveitarfélög orðið af um 11 milljörðum króna í tekjum. Ekkert bendir til annars, en þess að þessi tala fyrir liðið ár sé hærri en hún var fyrir árið 1992. Auðvitað er þetta mikið áhyggju- efni fyrir þjóðfélagið í heild. Ýmis konar skattsvik tíðkast hér á landi, sem fela í sér svarta atvinnustarfsemi, óskráð fyrirtæki, svört laun, svarta sölu, svarta framleiðslu, tvöfalda tekjuskráningu, virðisaukaskatt- svik, sem fela í sér margfalda innskáningu, skattsvik sem tengj- ast gjaldþrotum fyrirtækja og staðgreiðslu- og tryggingagjalda- svik. Þetta svarta hagkerfi er íslensku þjóðfélagi stórskaðlegt: Hið opinbera verður fyrir umtalsverðu tekjutapi og vegið er að atvinnurekstrinum, þar sem samkeppnisstaða raskast. En á þessu sviði getur ekki náðst markverður árangur, nema hér eigi sér stað hugarfarsbreyting alls almennings og um það myndist þjóðarsamstaða að fordæma skattsvik og það mark- mið að reyna að útrýma þeim. Kannanir benda til þess, að margir landsmenn mundu nota tækifærið og skjóta tekjum undan skatti, ef þeir ættu kost á því. Spurning er, hvernig hægt er að breyta því viðhorfi. í návígi okkar fámenna samfé- lags, þar sem hver fylgist með öðrum, er nauðsynlegt að eitt gangi yfir alla í skattamálum. Skattalöggjöfin eins og hún er nú mismunar þegnum með ýmsum hætti og þessi mismunun ýtir undir þá skoðun, að sjálfsagt sé að skjóta tekjum undan skatti, sé þess nokkur kostur. Umbætur á löggjöf geta bætt úr að þessu leyti. Erfiðara er að fást við þau skattsvik, sem byggjast á lagabrotum. Vera má, að stórhert viðurlög við skattalagabrotum séu eina færa leiðin til þess að takast á við þann vanda að nokkru ráði. í Bandaríkjunum hefur tekizt með afbrigðum vel að aga landsmenn í skattamálum m.a. með mjög hörðum viðurlögum, ef skattalög eru brotin. Slík viðurlög ættu þó aðeins við hér á landi, ef almenningur hefði sannfæringu fyrir því, að hið opinbera færi vel með þá fjármuni sem því er trúað fyrir, en því fer víðsfjarri, að slík tiltrú sé fyrir hendi í þjóðfélaginu, þegar ráðstöfun ríkisfjár- muna er annars vegar. Reynslan hefur kennt Islendingum að það er nærtækasta fjáröflunartæki ríkisstjórnar hverju sinni, að hækka álögð gjöld á almenning, og m.a. þess vegna eru skattsvik ekki litin jafnalvarlegum augum og annað refsivert athæfi. ÖRYGGIÐ í ÖNDYEGI Nú er hafin mesta ferðahelgi ársins, þar sem bílar í tugum þúsunda munu leggja undir sig vegakerfi landsins. Ávalit er brýnt að fara að öltu með gát í umferðinni, en aldrei brýnna en þessa helgi, ekki síst vegna þeirrar staðreyndar, að mikill fjöldi ungmenna er á ferð um helgina og margir lítt reyndir ökumenn þeirra á meðal. Ábyrgðarkennd, tillitssemi og hófsemi ættu ferðalangar að hafa að leiðarljósi. Aðeins þannig verður öryggið í öndvegi. Morgunblaðið óskar landsmönnum ánægjulegrar verslunar- mannahelgar og þeim sem á faraldsfæti verða, góðrar heim- komu. + ÚTIHÁT8ÐIR UM VERSLUNARMANNAHELGINA Hellnar: Rólegt fjölskyldumót I fyrir áhugafólk um mannrækt og heilun. Sýnikennsla í heilun, fræðsla um nálastungur, náttúrulækningar, nudd, reiki, öndun og slökun, tónlistar- heilun, ilmolíumeðferð, I huglækningar og áhrif drauma, fyrirbænir, bænahringur, sögustund og Ijóðalesturfyrir börn og fullorðna, kvöldvökur, varðeldur og söngur. Rás 1,93,5/Rás 2,90,1/ Bylgjan 96,4. Frá Akureyri... km á Siglufjörð ..192 að Reykjahlíð ..106 í Ásbyrgi ..148 til Egilsstaða ..280 til Neskaupstaðar. ..351 Síldarævintýri: I dag er hægt að taka þátt í íþróttakeppni og leikjum, skemmtidagskrá á torginu, | A morgun er meðal annars hestasýning og dorgveiðikeppni. Mikið um heimaunnið efni í skemmti- I dagskránni en KK-band og Þúsund andlit skemmta. Síldarævintýrinu lýkur svo á sunnudagskvöld. [ Allt, sem fer fram á útisvæðum bæjarins er endurgjalds- laust en yfirieitt verður selt inn á það, sem gerist innan- dyra enda er það ekki á vegum bæjarins. Eftiriit verður með unglingadrykkju og unglingum yngri en sextán ára, sem ekki eru í fylgd með fullorðnum, verður ekki hleypt inn á svæðið. I Tjaldstæði eru næg, bæði utan við bæinn og eins á opnum svæðum inni í bænum og verður að greiða fyrir notkun. Rás1,99,0/Rás 2,88,7/Bylgjan 97,9. Sækjum Akureyri heim: Fjölskylduhátíð með fjölbreyttri dagskrá. Meðal annars verður alls kyns keppni, leikir og íþróttir í tengslum við Kjamaskóg, miðbæinn og sundlaugina. Dagskráin í miðbænum stendurfram undirkvöld en þar verða ekki unglingadansleikir. Fyrir 16 til 20 ára verður dansleikur í 1929 og önnur danshús á Akureyri munu sjá þeim fullorðnu fyrir kvöldskemmtun. Auk lögreglu mun Hjálparsveit skáta vera við eftiriit í bænum. Hátíðin er haldin undir áskoruninni Stöðvum unglingadrykkjuna. I Rás 1,91,6/Rás 2,96,5/Bylgjan 101,8. Ætlað fjölskyldufólki. Nóttin kr. 500/tjald Dansleikir í kvöld og annað kvöld r. 450/mann, 1 ára og eldri Vopnaskak: Hátið á vegum Hótel Tanga. í dag verður haldið sjóstangaveiðimót og þátttökugjald er 900 krónur. I kvöld leikur unglingahljóm- sveitin Orkuverið í Miðgarði. Auk þess em djass- og blústónleikar með Magnúsi Eirikssyni, Pálma Gunnarssyni, Gunnlaugi Briem og Eyþóri Gunnarssyni á Hótel Tanga. Á morgun verður dorgkeppni og mót í fjörufótbolta í Sandvík. Einnig verða útitónleikar. Selt er inn á dansleikina, 1.800 kr, og 500 kr. á unglinga- dansleikinn. Miðaverð á djasstónleikana er 800 kr. Rás1,93,5/Rás2,97,4/ Bylgjan 98,9. Frá Reykjavík... km ÍVatnaskóg 80 að Hellnum 242 íHúsafell 138 í Bjarkariund 278 Ætlað fjölskyldufólki. Nóttin kr. 400/mann, 12áraogeldri Ætlað fjölskyldufólki. Nóttin kr. 400/mann, 16áraogeldri Ætlað fjölskyldufólki. Nóttin kr. 400/mann, 15áraogeldri Vatnaskógur: Sæludagar á vegum nokkurra starfshópa innan kirkjunnar. Ýmislegt er á döfinni; kvöldvökur, varðeldur, fræðslustundir, þrautakeppni, guðsþjónusta, fijálsar íþróttir og fleira. Sæludagar eru fyrir alla aldurshópa, þar sem útivist og skemmtun helst í hendur við boðskap kirkjunnar. Aðgangseyrir er 2.500 kr. og fritt fyrir börn yngri en 13 ára og fólk eldra en 67 ára. Sæludagarnir eru áfengislaus hátíð. Rás 1,92,4/Rás 2,99,9/ Bylgjan 96,4. Ætlað fjölskyldu- og útivistarfólki, Nóttin kr. 3-400/mann. Neysla áfengis bönnuð. Gönguferðir, barnastundir og leikjadagskrá. Kyrrðarstund í Þingvallakirkju i dag. Bama- guðsþjónusta á sunnudag í Hvannagjá og guðsþjónusta í Þingvallakirkju. J7K7-. Ætlað fjölskyldu- og útivistarfólki. Nóttin kr. 400/mann, 12 ára og eldri. Ellilífeyrisþegar borga 200 kr. Ætlað fjölskyldufólki. Nóttin kr. 370/mann, 12 ára og eldri j7~~r~7 Grindavík Bindindishátíð í Galtalækjarskógi: i dag: Hjólreiða- keppni, söngkeppni, þolfimi, tónleikar með Richard Scobie og Sigurði Dagbjartssyni, þrautakeppni í ökuleikni, barnaskemmtun og grillveisla við tjöldin. Mótssetning, kvöld- vaka, dansleikur, flugeldasýning, varðeldur og dansleikir. Á morgun verður körfubolti, helgistund klukkan 14.00, bama- skemmtun og bamadansleikur, auk fjölmargra annarra atriða sem lýkur klukkan 3.00 aðfaranótt mánudags. Aðgangseyrin 17 ára og eldri 4.300,13-17 ára 3.800, yngri en 12 ára fá fritt inn. Rás 1,97,1 /Rás 2,88,1 /Bylgjan 97,9. U Kirkjulækjarkot: Mótið er fyrir alla fjölskylduna og fer fram í stóm samkomutjaldi. Fjöldi tjaldstæða er á staðnum og hægt er að kaupa mat í matsal safnaðamiiðstöðvar hvítasunnu- manna, Skálanum. Á dagskrá eru bæna- og lofgjörðarstundir, skrúðgöngur og varðeldur auk móts fyrir böm til 12 ára aldurs frá 10 á morgnana fram á kvöld. Börnin fá kennslu auk þess sem þau geta farið í sundferð, veiðiferð og nestisferð. Einnig koma tníðar og leikbrúður í heimsókn. Barnamótið kostar 1.800 og innfalið er nesti, bolur og ýmislegt dót. Systkini fá afslátt. Mótinu lýkur á hádegi á mánudag. Ekkert kostar inn á hátíðina. Áfengisneysla bönnuð. Rás 1,97,1/Rás 2,88,1/Bylgjan 97,9. Þjóðhátíð í Eyjum: Á stóra danspallinum sjá SSSól og Vinir vors og blóma um fjörið. Bong verður á svæðinu og á Tjamarsviðinu verður Upplyfting auk fleiri hljómsveita. Meðal skemmtikrafta á kvöldvökum enr Raddbandið, Magnús Ólafsson og Ön/ar Kristjánsson. Áhersla á bamadagskrá. Afmarkaðar fjölskyldubúðir i Dalnum. Bjargsig, brenna, flugeldasýning, varðeldur og brekkusöngur með Áma Johnsen. Aðgangseyrin 6.500 krónur. Hægt er að kaupa miða inn á svæðið og ferð með Herjólfi frá Þorlákshöfn út í Eyjar á kr. 8.600. Rás 1,97,1/Rás 2,88,1/Bylgjan 100,9. ______ IV /'/ Vík Frá Reykjavík... km í Galtarlækjarskóg .124 í Kirkjulækjarkot .115 íVík .192 að Kirkjubæjarklaustri .273 Frá Galtarlæk í Kirkjul.kot ...67 Frá Kirkjul.koti í Vík ...87 Frá Vík að Klaustri ...71 —HIHÍMMI — Kirkjubæjarklaustur: Aðstaða fyrir fjölskyldur. Fritt inn á svæðið sem opið er fýrir ferðalanga þótt ekki sé beinlinis um hátíð að ræða. Tveir dansleikir verða haldnir og mun hljómsveitin Bergmál leika í kvöld og annað kvöld. í dag verður boðið upp á sitthvað fyrir krakka og i kvöld verður varðeldur og fjöldasöngur á tjaldstæðinu að Kleifum. Eins og um aðrar helgar verður einnig hægt að fara í ferðir í Laka, Eldgjá, Núpstaðaskóg, Skaftafellsfjöru, upp á Skálafellsjökul og víðar. Að auki golfvöllur, sundlaug og hestaleigur. Rás 1,88,0/Rás 2,98,7. fiiSiMSfMSStl gtaggeiisAiisai ÍBgélllfeáglSlSS Víkurhátíð: í dag er meðal annars hægt að fara í morgunleikfimi, leiki og stunda íþróttir. Trúður kemur í heimsókn, vatnsfótbolti, söngkeppni, útigrill og lýðveldishlaup. Einnig verður kveiktur varðeldur, sungið í brekkunni og loks er dansleikur i Leikskálum. A morgun er götukörfubolti og fjársjóðsleit, auk morgunleikfimi og svipaðar dagskrár og í dag. Einnig verða báts- og vélsleðaferðir gegn gjaldi. Dagskránni lýkur með dansleik. | Aðgangseyrin Gisting kostar 1.500 á mann alla helgina á tjaldsvæði og 1.000 frá kl. 22 i kvöld. Skemmtidagskráin kostar 500 krónur á mann fyrir þá sem gista annars staðar. Einnig kostar inn á dansleiki, í gðtukörfubolta og vatnsfótbolta. Rás 1,91,2/Rás 2,98,7/Bylgjan 100,9. Neistaflug '94: Fjölskylduhátið á vegum ferðamálaráðs bæjarins. Enginn aðgangseyrir og frí tjaldstæði. Hátíðin fer að mestu leyti fram í miðbænum og næsta nágrenni fram á mánudagsmorgun. Meðal þeirra, sem troða upp, eru Bubbi Morthens, Geirmundur Valtýsson ásamt hljómsveit, Páll Óskar og milljónamæringamir auk fjölda annarra hljómsveita og ýmissa uppákoma eins og skemmtidagskrá á sunnu- dag, sem endar með varðeldi og flugelda- sýningu í Lystigarði bæjarins. Rás 1,91,0/Rás 2,97,4/Bylgjan 98,9. Eyjólfsstaðir: Mót tileinkað fjölskyldunni undir yfirskriftinni „Guð gerir alla hluti nýja - einnig þig“. Unglingar eru boðnir sérstaklega velkomnir. Á Eyjólfsstöðum, sem eru um 10 km sunnan við Egilsstaði rekur Ungt fólk með hlutverk biblíuskóla. Predikarinn Eivind Fröen kemur auk þess sem ungt fólk frá Englandi tekur þátt i unglingastarfinu. Fræðslustund á morgnana og samkomur á kvöldin, frjáls tími á milli. Dagskrá fyrir böm á morgnana, m.a. vatnasport og körfuboltamót. Sérdagskrá fyrir unglinga. Mótsgjaldið er 2.000 kr., matur kostar 3.000 kr. og gisting inni er á kr. 1.800. Þeir sem vilja geta komið með eigin mat. Krakkar á aldrinum sex til tólf ára borga hálft gjald en ókeypis er fyrir yngri. Rás 1, 99,8/Rás 2,87,7/Bylgjan 98,9. 50 km Samfelld dagskrá á 12 stöðum Hátíðahöld í tilefni Verslunarmanna- helgarinnar standa nú sem hæst og samfelld skemmtidagskrá hafin á 12 stöðum um land allt. Sums staðar er unglingum gert hæst undir höfði, annars staðar er gert ráð fyrir rólegu fjöl- skyldu- og bindindisfólki. Flest tjaldstæði á landinu eru opin, en tjaldstæðið á Búðum á Snæfellsnesi verður lokað að þessu sinni. Á tjaldstæðunum í Húsafelli, Vaglaskógi, Atla- vík, á Laugarvatni og Þingvöllum er gert ráð fyrir fjölskyldum og útivistarfólki og þess má geta að neysla áfengis er bönnuð í þjóðgarðin- um. Lögð er áhersla á að friður ríki frá mið- nætti til sjö á morgnana og þeir sem gerist brotlegir verði fjarlægðir af lögreglu. Einnig vill Náttúruverndarráð leggja áherslu á að þjóðgarðarnir í Jökulsárgljúfrum og í Skafta- felli séu fyrst og fremst ætlaðir þeim sem vilja njóta útiveru og náttúrufegurðar í friði og ró. Er sérstaklega tekið fram að ekki sé ætlast til skemmtanahalds á tjaldsvæðum. Heilunarhelgí, síldarævin- týri og bindindismót eru meðal valkosta og sums staðar standa hátíðahöldin fram á miðjan mánudag í Galtalækjarskógi er árlegt bindindismót íslenskra ungtemplara og Umdæmisstúku Suðurlands nr. 1. Boðið er upp á dagskrá, sem hófst í gærkvöldi, fram á sunnudagsnótt og læknir, hjúkrunarfólk og hjálparsveit verða á staðnum. Einnig leikur hljómsveitin Karnival og unglingahljómsveitir spila í kúluhúsi. Edda Björgvinsdóttir og leikhópur skemmta og þar fyrir utan verða Magnús Scheving, Hörður Torfason, Raddbandið og fleiri. Einnig setja flugeldasýning og varðeldur svip á mótið. í Vík í Mýrdal er hafin fjölskylduhátíð og meðal annars hægt að fara á hjólabáta, í sil- ungsveiði, kíkja á útimarkað eða fara í hestaferðir. í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð stendur landsmót hvítasunnumanna sem hæst en það er hátíð fyrir fjölskylduna. Öll neysla áfengis er stranglega bönnuð og samhliða landsmót- inu er Barnamót sem ætlað er börnum til 12 ára aldurs. Þjóðhátíð stendur yfír í Vestmannaeyjum í 120. skipti og til að koma til móts við fjöl- skyldur eru afmarkaðar fjölskyldubúðir inni í Dal. Öll aðstaða á Kirkjubæjarklaustri er opin fyrir ferðalanga þessa frídaga þótt ekki sé beinlínis um hátíð að ræða. Á Vesturlandi er meðal annars haldin heil- unarhelgi á vegum Snæfellsáss á Snæfells- nesi. Um er að ræða rólegt fjölskyldumót sem opið er öllu áhugafólki um mannrækt og heil- un._ í Vatnaskógi standa yfir Sæludagar á vegum nokkurra starfshópa innan kirkjunnar. Á Austurlandi má nefna fjölskylduhátíðina Neistaflug ’94 í Neskaupstað sem ferðamála- ráð bæjarins stendur fyrir. Enginn aðgangs- eyrir er inn á svæðið og boðið upp á frí tjald- stæði. Samtökin Ungt fólk með hlutverk, sem starfa innan þjóðkirkjunnar, halda mót á Eyjólfsstöðum, sem tileinkað er fjölskyldunni en unglingar eru boðnir sérstaklega velkomn- ir. Á Akureyri er fjölskylduhátíðin Sækjum Akureyri heim undir slagorðunum „stöðvum unglingadyrkkjuna“. Boðið er upp á fjöl- breytta dagskrá í dag og á morgun. Á Siglu- firði er hafið síldarævintýri. Mikið er lagt upp úr heimaunnu efni í skemmtidagskránni. Alla helgina verða síðan ýmiss konar leiksýningar, hljómleikar, dansleikir og rifjuð upp stemmn- ing síldaráranna á Sigló. Ennfremur er skipulögð dagskrá á Vopna- firði á vegum Hótels Tanga og loks má geta tjaldstæðanna í Bjarkarlundi, Ásbyrgi og Reykjahlíð sem öll verða opin. Reykjavík, sögustaður við Sund/Sigfús Eymundsson LÍKFYLGD Ingibjargar Einarsdóttur og Jóns Sigurðssonar forseta í Aðaistræti 4. maí árið 1880. HEFUR ÞÚ GENGIÐ í GUÐS HÚSINN? Morgunblaðið/Golli HLUTI af kirkjulofti Dómkirkjunnar í Reykjavík, þar sem hægt er að sjá svipmyndir úr sögu Reykjavíkur og ýmsa kirkjugripi. Dómkirkjan í Reykjavík er eitt af þeim húsum sem íslendingar hafa oft barið augnm. Færri hafa eflaust litið inn til að sjá hvaða sögu hún hefur að geyma. Signr- jón Pálsson hitti sr. Þóri Stephensen í Dóm- kirkjunni til að fræðast um hana og leit meðal annars á sýningu, sem þar stendur yfir. Dómkirkjan í Reykjavík er án efa ein minnsta dómkirkja, sem fyrirfinnst í höfuð- borg. Þrátt fyrir það teng- ist stór hluti sögu íslands og íslend: inga henni á einn eða annan hátt. I sumar stendur yfir sýning í kirkju- lofti Dómkirkjunnar á þjóðlífinu í Reykjavík á árum áður og ýmsum gi’ipum í eigu kirkjunnar. Sr. Þórir Stephensen staðarhaldari í Viðey var lengi dómkirkjuprestur og þekkir inn- viði Dómkirkjunnar og sögu hennar vel. Það sem hér fer á eftir byggist að mestu leyti á samtali við hann. Árið 1785 var ákveðið, eftir að jarð- skjálftar höfðu lagt Skálholtsstað að mestu í eyði, að flytja biskupsstólinn til Reykjavíkur. Þar þurfti fljótlega að reisa nýja kirkju, þar sem eldri kirkja við Áðalstræti þótti ekki rísa undir kröfum, sem gerðar voru til dómkirkju. Nýja kirkjan er talin vera fyrsta kirkjan hér á landi, sem stóð utan kirkjugarðs. Hún var vígð 30. október 1796 en frá árinu 1801 þegar biskupsstóllinn á Hólum í Hjaltadal var einnig lagður niður hefur Dóm- kirkjan í Reykjavík verið dómkirkja allra landsmanna. „Þá þú gengur í Guðs hús inn“ Þar sem sýningin er á kirkjuloftinu verður ekki hjá því komist að virða innviði kirkjunnar fyrir sér á leiðinni upp og reka augun í munina, sem þar eru geymdir. Þegar komið er inn í forkirkjuna, eða anddyrið eins og ein- hverjir mundu vilja kalla það, blasir við vers séra Hallgríms Péturssonar „Þá þú gengur í Guðs hús inn“ en það er í ramma, sem Ríkarður Jóns- son myndhöggvari skar út. Á norður- veggnum er táknmynd Lúkasar guð- spjallamanns og á suðurveggnum tákn Jóhannesar, verndardýrlings gömlu kirkjunnar, sem stóð við Aðalstræti. Þegar komið er inn í kirkjuskipið sjálft sést í miðjum kórnum einstakt lista- verk Bertels Thorvaldsens, skírnar- fontur, sem hann gerði í Róm og gaf „Dómkirkjunni í landi feðra minna, íslandi" að eigin sögn. Mektarfólk og sætaskipan Gaman er að velta sætaskipaninni í kirkjunni forðum fyrir sér. Úppi og niðri geta alls hátt í sex hundruð manns setið. Niðri er hefðbundin kirkjusætaskipan; gangur í miðjunni og sæti til hægri og vinstri handar. Á innstu sætaröðunum við ganginn eru hurðir til að loka aðgangi að bekkjun- um fyrir ölium öðrum en þeim, sem fyrr á tíð keyptu sér aðgang að þeim. Voru hurðir við mun fleiri bekki áður fyrr. Á svölunum sunnanmegin í kirkj- unni, næst predikunar- stólnum, er biskupsstúka, sem enn er notuð af bisk- upi íslands og hans flöl- skyldu. Utar á þessum sömu svölum sátu áður fyrr nemendur úr Lærða skól- anum á hveijum sunnudegi þegar þeir gengu til kirkju. Var stundum kvartað yfir hávaða úr þeirri átt. Á norðursvölunum er stúka, sem upp- haflega var fyrir stiftamtmann, þá landhöfðingjann og loks er hún nú ætluð forsætisráðherra. Forseti ís- Iands á hins vegar sæti í öðrum bekk niðri að sunnanverðu. Við opinberar athafnir fær hann sæti innst á kirkju- gólfi gegnt prédikunarstóli, en stól- amir sem hann notar þá kannast margir við sem stóla brúðar og svara- manns hennar. Skemmtilegt er sjá skýr merki um það í Dómkirkjunni hve íslendingar hafa almennt hækk- að. Veggljósum kirkjuskipsins og áður sneru niður, hefur nú verið snúið upp svo hæstu menn rekist ekki í þau. Kirkjuloft, og svipmyndir úr Reykjavík forðum daga Kirkjuloftið hefur snert ýmsa strengi í sögu landsins. Þar á uppruna sinn Landsbókasafnið, Þjóðminjasafn- ið og Þjóðskjalasafnið, öll þrjú helstu söfn íslendinga. Bókmenntafélagið var þar einnig lengi. Það, sem snertir sálartetur landsmanna kannski mest, er þó það að talið er að Jón Sigurðs- son forseti hafi setið þar við skriftir og rannsóknir þegar stund var milli stríða í stjórnmálaátökum. Skrifborð- inu, sem hann á að hafa setið við, hefur því miður ekki verið stillt upp á sýningunni sjáifri en það er að finna i geymslu ofan við kirkjuloftið ásamt ýmsum merkum hlutum úr byggingar- sögu kirkjunnar og sögu landsmanna. í þessari ferð með séra Þóri um innstu staði kirkjunnar fékk blaðamaður einnig að sjá minnstu kirkjuklukkur, sem finnast í dómkirkju og stundaklukkuna, sem dreg- in er upp einu sinni í viku af Ólafi Tryggvasyni úr- smið. Fleiri hluti ber fyrir augu en best er að snúa sér að sýningunni sjálfri. Sr. Þórir segir að þótt hún sé áhugaverð fyrir útlendinga eigi íslendingar ekkert síðra erindi á hana. Þar má meðal annars sjá ljósrit af Guðbrandsbíblíu, Grallarann, messusöngsbók útgefna árið 1763, skildi sem hengu utan á kirkjunni á árum áður, danska gyllta biskupskápu frá árinu 1898 og ýmsa aðra kirkju- muni. Á veggjum kirkjuloftsins hanga gamlar ljósmyndir úr sögu Reykjavík- ur og sýna vel þá bæjarstemmningu, sem ríkti fyrr á árum. Meðal þess sem sjá má er ístaka á tjörninni, Hannes Hafstein að ganga til kirkju, jarðarför Jóns forseta, svipmyndir frá lífinu í bænum og svo mætti lengi telja. Ekki er síður skemmtilegt að virða fyrir sér vatnslitamyndir Jóns Helgasonar biskups af gömlu Reykjavík. Sýna þær vel hvernig Reykjavík breyttist úr þorpi í bæ, þar sem gömlu ljósmynd- irnar taka við og sýna hvernig Reykja- vík breyttist úr bæ í borg. Dómkirkjan er mjög söguleg bygging

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.