Morgunblaðið - 30.07.1994, Page 38

Morgunblaðið - 30.07.1994, Page 38
38 LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ1994 MORGUNBLAÐIÐ ATVIN WnMAUGL YSINGAR Vélritun - prófarkalestur Ef þig vantar vélritun, þá vil ég kraft minn bjóða. Þér reynist vel mín réttritun og reynslu hef ég góða. María, sími 91-45085. Mars ísimmi BOUNTY Spennandi sölustarf! í tengslum við yfirtöku okkar á umboði fyrir Mars-sælgæti leitum við nú að einstaklingi til sölustarfa. Askilin er reynsla í sölumennsku og góð framkoma. Við leggjum áherslu á að viðkomandi eigi auðvelt með að starfa með öðrum, sé opinn fyrir nýjungum, reiðubúinn að læra og tileinka sér ný vinnubrögð með söluárangur að markmiði. Við leggjum ennfremur áherslu á snyrtimennsku og að umsækjandi reyki ekki. Um fullt starf er að ræða og viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Skriflegar umsóknir bexist á skrifstofu okkar að Fosshálsi 1, 110 Reykjavík, merktar „Mars - sölustarf" fyrir föstudaginn 5. ágúst 1994. í umsókn komi fram upplýsingar um aldur, menntun og starfsferil. Upplýsingar verða ekki veittar í síma. Með allar umsóknir verður farið sem trúnaðarmál. Verksmiðjustjóri Lón hf. - fiskimjölsverksmiðja, Vopnafirði, óskar að ráða verksmiðjustjóra til starfa sem fyrst. Unnið hefur verið að endurbótum á verksmiðjunni og lögð er rík áhersla á gæða- framleiðslu á mjöli. Við leitum að manni með þekkingu og reynslu af framleiðslusviði og hefur áhuga fyrir gæðamálum og þróun framleiðslu. Góð laun eru í boði fyrir réttan mann. Upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar „Verksmiðjustjóri - 253“, fyrir 5. ágúst nk. Hagva ngurhf Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir Lyfjakynnir Lyfjakynnir óskast til starfa hjá traustu inn- flutningsfyrirtæki í Reykjavík. Starfssvið: Markaðssetning og kynning á lyfjum. Umsjón með lyfjarannsóknum, skýrslugerð o.fl. Við leitum að aðila: ★ sem getur starfað skipulega og sjálfstætt ★ sem talar og ritar ensku og a.m.k. eitt Norðurlandamál ★ sem er jákvæður og á auðvelt með að umgangast fólk. Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar „Lyfjakynnir 256“, fyrir 6. ágúst nk. Hagva ngurhf Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir Innheimtustjóri fjármáladeildar KEA Kaupfélag Eyfirðinga auglýsir starf inn- heimtustjóra fjármáladeildar félagsins laust til umsóknar. Innheimtustjóri hefur með höndum eftirlit með öllum útlánum félagsins og sér um og fylgist með innheimtu þeirra. Starf innheimtustjóra heyrir undir fjármála- stjóra félagsins. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir, er tilgreini aldur og menntun, ásamt starfsreynslu, þurfa að berast aðalfull- trúa félagsins fyrir 15. ágúst nk. Kaupfélag Eyfirðinga. /jf Háskólinn xSðBS á Akureyri Laus er til umsóknar staða forstöðumanns við rekstrardeild Háskólans á Akureyri. Forstöðumaður deildar hefur yfirumsjón með kennslu, námsskrárgerð og rannsóknum. Forstöðumaður boðar til funda og stjórnar þeim. í samvinnu við framkvæmdastjóra gerir hann fjárhagsáætlanir fyrir sína deild og hefur frumkvæði um samstarf við aðrar deildir. Leitað er að manni, sem getur veitt deildinni öfluga faglega forrystu og haft frumkvæði að frekari þróun á sviði kennslu og rann- sókna. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af háskólakennslu og/eða rannsókn- um við viðurkennda vísindastofnun og hafi getið sér orðstír sem stjórnandi. Starfið er veitt til þriggja ára í senn. Laun eru samkvæmt kjarasamningum opin- berra starfsmanna. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf sín, ritsmíð- ar og rannsóknir, svo og námsferil og störf. Upplýsingar um starfið gefa rektor og fram- kvæmdastjóri skólans í síma 96-30900. Umsóknir skulu hafa borist Háskólanum á Akureyri fyrir 15. september nk. Háskólinn á Akureyri. Atvinna - sambýli í sveit Við sambýlið á Gauksmýri, Kirkjuhvamms- hreppi í Vestur-Húnavatnssýslu, er laus 100% staða starfsmanns. Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun og/eða reynslu af störfum fyrir fatlaða. Starfið krefst innsæis í mannleg samskipti og hæfileika til samstarfs. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. september nk. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofunni á Sauðárkróki, sími 95-35866, og á sambýlinu á Gauksmýri, sími 95-12988. Tvokennara vantar að Steinsstaðaskóla, Skagafirði vegna skyndilegra forfalla. Gott húsnæði á staðnum. Upplýsingar gefur skólastjóri í símum 95-38033 og 985-36402. Atvinnutækifæri í mið-Evrópu Defence Systems Limited (DSL), breskt fyrirtæki, óskar eftir hæfu, faglærðu fólki með reynslu til að taka að sér hjálparstörf í fyrrum Júgóslavíu. Um er að ræða krefjandi störf, stundum við mjög erfiðar aðstæður. Umsækjendur þurfa að vera á aldrin- um 25-45, hafa góða aðlögunarhæfni og tala og skrifa reiprenn- andi ensku, með gilt vegabréf og ökuskírteini. Reynsla af störf- um erlendis mjög æskileg. Hjá DSL starfar fólk af báðum kynjum. Laun u.þ.b. 40.000 US$ Flutnings/skipulagsoffisér (m. gráðu og 8 ára reynslu í stjórnun hópflutninga eða 10 ára herþjónustu við vöru- og fólksflutn- inga). Rekstrar- og vélaverkfræðingar/tæknifræðingar (ensk gráða og minnst 5 ára reynsla). Laun u.þ.b. 33.000 US$ Skipulags- og verkstjórnendur (offisérgráða og 5 ára reynsla við byggingastörf). Laun u.þ.b. 29.000 US$ Fjarskipta/samskiptatæknar. Verkstjórar á verkstæðum (vélar og flutningar). Laun u.þ.b. 23.000 US$ Smiðir, rafvirkjar, pipulagningamenn, suðumenn, ökumenn á stórum vinnuvélum/farþegabílum (verða að hafa ökuleyfi í flokki C+E+D), ökumenn eldsneytistankbíla (verða að hafa ADR), starfsmenn í þungaiðnaði, bifvélavirkjar, tæknimenn á sviði ra- fals, loftræstikerfa og kælitækja. Samningar eru til að byrja með aðeins til eins árs. Þeir, sem hafa áhuga, sendi ítarleg menntunar- og starfságrip og staðfest- ingu á gildu vegabréfi og ökuskírteini til Defence Systems Ltd., 25-28 Buckingham Gate, London SW1E 6LD, Englandi, simi 90 44 71 233 5611 og símbréf 90 44 71 233 7434. Óhæfir umsækjendur munu ekki fá svar. Lyftaraviðgerðir Óskum að ráða viðgerðarmann til starfa hjá traustu þjónustufyrirtæki í Reykjavík. Við leitum að rafvélavirkja/rafvirkja eða manni með aðra haldgóða, sambærilega menntun/þekkingu og er vanur viðgerðum á lyfturum og/eða tækjabúnaði. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar „Lyftaraviðgerðir 246“, fyrir 5. ágúst nk. Hagva ngurhf Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir RÍKISÚTVARPIÐ Starf fréttamanns hjá Ríkisútvarpinu á ísafirði er laust til umsóknar. Háskólapróf eða reynsla í frétta- eða blaða- mennsku er nauðsynleg. Ráðningartími er frá 1. september. Nánari upplýsingar gefur deildarstjóri Ríkis- útvarpsins á ísafirði í síma 94-4404. Umsóknarfrestur er til 14. ágúst nk. og ber að skila umsóknum til svæðisútvarpsins, Aðalstræti 22, ísafirði, eða Ríkisútvarpsins, Efstaleiti 1, Reykjavík, á eyðublöðum, sem fást á báðum stöðum. FramhaldssKólinn að Laugum óskar eftir að ráða í eftirtaldar stöður: íslenskukennara 100% staða, íþróttakenn- ara 100% staða og húsvörð 100% staða. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 1994. Allar upplýsingar í símum 96-43120 og 96-43112. HjaltiJón Sveinsson, skólameistari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.