Morgunblaðið - 30.07.1994, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ1994 41
Eyrarsveit
Grundarfjörður
Útboð
Framkvæmdanefnd um byggingu sjálfseign-
aríbúða fyrir eldri borgara í Eyrarsveit óskar
eftir tilboðum í að byggja 8 íbúða sambýlis-
hús á lóð við dvalarheimilið Fellaskjól í
Grundarfirði.
Húsið verður 947 m2 að flatarmáli og 3158
m3 að rúmmáli.
Húsið verður byggt úr steinsteypu og tekur
verkið til allrar vinnu við gröft, fyllingar, lagn-
ir, uppsteypu og allan frágang hússins að
utan sem innan, ásamt frágangi lóðar.
Verkið skal hefjast í september nk. og er
verktíminn 15 mánuðir.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Eyrar-
sveitar, Grundargötu 30, Grundarfirði, og hjá
arkitekta- og verkfræðistofunni Húsi og ráð-
gjöf hf., Suðurlandsbraut 14, Reykjavík, frá
og með fimmtudeginum 4. ágúst 1994.
Tilboðin verða opnuð á sömu stöðum
fimmtudaginn 18. ágúst 1994 kl. 14.00 að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess
óska.
Greiða þarf kr. 10.000 í skilatryggingu fyrir
útboðsgögn.
F.h. framkvæmdanefndar,
íl
HÚS OC RAÐGJÖF
ARKITEKTA- OG VERKFRÆÐISTOFA
Sérverslun
Til sölu lítil sérverslun í leiguhúsnæði við
Laugaveg. Einnig möguleiki að leigja ein-
göngu húsnæðið.
Ahugasamir leggi inn nafn og síma á af-
greiðslu Mbl. fyrir 5. ágúst, merktan:
„SS - 12756“
■AUGLYSINGAR
Sérstakt tækifæri
Til sölu er framköllunarfyrirtæki í fullum
rekstri og í eigin húsnæði á góðum stað.
Gott fyrir tvo samhenta aðila. Selst með
vélum og áhöldum og öllu sem til þarf á
aðeins 6,5 milljónir (sem er rétt rúmlega fast-
eignaverðið). Þarf að selja vegna veikinda.
Er reiðubúinn að lána stóran hluta söluverðs
eða jafnvel allt gegn öruggum tryggingum.
Nánari upplýsingar gefur Fasteignamiðlunin
Berg, Skúlatúni 6, Reykjavík, sími 885530.
Hólaskóli, Hólum í Hjaltadal
Fiskeldi og vatnavistfræði
Heilsárs starfsnám
Góður undirbúningurfyrirframhaldsnám ífiski-
fræði, vatnavistfræði og umhverfismálum.
Getum enn bætt nemendum á fiskeldisbraut
skólans í haust.
Hringið í síma 95-35962.
Hólaskóli, Hólum í Hjaltadal,
551 Sauðárkrókur.
Fjársterkur aðili
óskast að nýju fyrirtæki nærri höfuðborgar-
svæðinu. Starfsemin er útleiga sumarhúsa,
einbýlishúsa, herbergja, hestaferðir, matsala
o.fl. Starfsemin hefst í byrjun árs.
Áhugasamir skrifi til afgreiðslu Mbl. merkt-
ar: „Fjárfesting, framtíð - 12754“
Byggðamerki
fyrir Vesturbyggð
Bæjarstjórn Vesturbyggðar óskar eftir tillög-
um að myndrænu tákni sem nota mætti sem
uppistöðu í byggðamerki fyrir Vesturbyggð,
sem nær yfir fyrrverandi Barðastrandar-
hrepp, Rauðasandshrepp, Patrekshrepp og
Bíldudalshrepp.
Hugmyndin þarf að tengjast sögu eða sér-
kennum byggðalagsins.
Tillagan má hvort heldur vera í máli eða
mynd, en Ijóst þarf að vera hvað fyrir höf-
undi vakir.
Bæjarstjórn áskilur sér rétt til endanlegrar
útfærslu á hugmyndinni í samráði við höf-
und. Verðlaunum, kr. 100.000, er heitið fyrir
þá tillögu sem notuð verður.
Tillögur skal senda til skrifstofu Vestur-
byggðar í Aðalstræti 63, 450 Patreksfirði,
fyrir 1. september 1994.
Bæjarstjórinn í Vesturbyggð.
LS-* *
.........
Eitt blaö fyrir alla!
- kjarni málsins!
auglýsingar
Þingvellir um verslunar-
mannahelgi
Laugardagur, 30. Júlí
Kl. 14: Barnastund. Við Þing-
vallakirkju. Um klukkustund. Fyr-
ir 6 ára og eldri. Yngri börn verði
í fylgd með fullorðnum.
Kl. 17: Þingvallastaður og þing-
helgi. Gönguferð. Saga þing-
halds og Þingvalla. Farið frá
Skáldareit við Þingvallakirkju.
Ein og hálf klukkustund.
Kl. 21: Kyrrðarstund. I Þing-
vallakirkju.
Sunnudagur 31. júlí
Kl. 11: Barnaguðsþjónusta. i
Hvannagjá. Liðlega klukkustund.
Kl. 14: Þinghelgin. Stutt göngu-
ferð. Fjallað um sögu og náttúru
Þingvalla. Farið frá Skáldareit við
Þingvallakirkju. Ein og hálf
klukkustund.
Kl. 14: Barnastund. Efri vellir við
Furulund. Leikjasamvera fyrir
börn eldri en 6 éra. Yngri komi
i fylgd með fullorðnum. Liðlega
klukkustund. Ath.: Þinghelgar-
gangan, sem byrjar á sama tíma,
tekur u.þ.b. jafnlangan tíma.
Kl. 17: Guðsþjónusta. ( Þing-
vallakirkju.
Mánudagur 1. ágúst
KI.14: Skógarkot - Vatnskot.
Hugað að gróðri, jarðsögu og
byggðarsögu i Þingvallahrauni.
Þriggja til fjögurra tíma göngu-
ferð. Fariö frá brúnni yfir Nikul-
ásargjá (Peningagjá).
Athugið aö gönguferðir og
barnastundir verða aðeins ef
veður verður skaplegt. Þátttaka
í gönguferðum og barnastund-
um er ókeypis. Allar upplýsingar
og staðsetningar fást í þjónustu-
miðstöð.
Tjald- og veiðileyfi fást keypt í
Þjónustumiðstöð. Ölvun er
óheimil i þjóðgarðinum á Þing-
völlum. Vinsamlegast kynnið
ykkur reglur Þjóðgarðsins.
Þjóðgarðsvörður.
Núpsstaðaskógar -
Skaftafell
Fjögurra daga bakpokaferð.
Gengið að Grænalóni, yfir
Skeiðarárjökul, Kjósareggjar og
um Bæjarstaðaskóg. Við sjáum
um matinn og tjöldin. Brottfarir
eftir beiðni. Bjóðum einnig upp
á ferðir á Hvannadalshnúk og
Þumal.
Islenskir fjallaleiðsögumenn,
SÍmi 985-42959.
GÖNGUL ©SÖGN
w
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Dagsferðir
31. júlí kl. 08.00 Þórsmörk —
dagsferð kr. 2.700.
31. júlí kl. 13.00 Hrútagjá vest-
an við Sveifluháls. Skemmtileg
gönguleið f Reykjanesfólk-
vangi. Verð kr. 1.100.
1. ágúst kl. 08.00 Þórsmörk -
dagsferð.
1. ágúst kl. 13.00 Esja - Þver-
fellshorn. Verð kr. 900.
3. ágúst kl. 20.00 Á nýjum stíg-
um i Heiðmörk.
3. ágúst kl. 08.00 Þórsmörk -
dagsferð.
6. ágút kl. 08.00 Hekla (gangan
tekur um 8 klst.). Verð kr.
2.300.
Brottför í dagsferðirnar frá Um-
ferðarmiðstöðinni, austanmeg-
in, og Mörkinni 6.
Helgarferðir 5.-7. ágúst -
brottför kl. 20.00
1) Kjölur - Hveravellir, grasa-
ferð. Gist í sæluhúsi F.t.
2) Þórsmörk - gist í Skagfjörðs-
skála/Langadal.
3) Landmannalaugar - Eldgjá.
Gist í sæluhúsi F.f.
6.-7. ágúst - brottför kl. 08.00.
Gengið yfir Fimmvörðuháls frá
Skógum. Gist í Þörsmörk.
Sumarleyfisferðir
1) 4.-7. ágúst: Hvítárnes -
Hveravellir. Nokkur sæti iaus.
2) 4.-7. ágúst: Eldgjá - Strúts-
laug - Álftavatn. Bakpokaferð.
3) 5.-14. ágúst: (10 dagar) Mið-
hálendisferð um hálendið norð-
an Vatnajökuls. Gist í húsum.
Ferðafélag íslands.
=4= Nýja
frostulakirkjan
slandi,
Ármúla 23,
108 Reykjavík.
Guðsþjónusta sunnudag
kl. 11.00. Hákon Jóhannesson
aðstoðarprestur þjónar. „Drott-
inn er nálægur þeim er háfa
sundurkramið hjarta, þeim er
hafa sundurkraminn anda, hjálp-
ar hann" (Sálm. 34.19).
Verið hjartanlega velkominl
(S
Hjálpræðis-
herinn
Kirfcjustrœti 2
Sunnudagur kl. 20: Hjálpræðis-
samkoma. Sven Fosse talar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Somhjólp
Dagskrá Samhjálpar um
verslunarmannahelgina
verður sem hér segir:
Laugardagur 30. júlf: Opið hús
kl. 14.00-17.00. Lítið inn og
rabbið um lífið og tilveruna. Heitt
kaffi á könnunni. Dorkas-konur
sjá um meðlætið. Einsöng syng-
ur Harpa Hallgrímsdóttir. Gunn-
björg Óladóttir stjórnar almenn-
um söng og kennir nýja kóra.
Takið með ykkur gesti.
Sunnudagur 31. júlí: Almenn
samkoma kl. 16.00. Mikill söng-
ur. Gunnbjörg Óladóttir kennir
nýju kórana. Harpa Hallgrlms-
dóttir syngur einsöng. Barna-
gæsla. Ræðumaður Óli Ágústs-
son. Kaffi að lokinni samkomu.
Allir velkomnir í Þríbúðir,
Hverfisgötu 42, um verslunar-
mannahelgina.
Samhjálp.
%s*
Hallveigarstig 1 «simi 614330
Sumarleyfisferðir í ágúst:
EP ( Fjörður 5.-10. águst.
Gengið frá Svínárnesi út að Látr-
um og m.a. um Keflavík, Þor-
geirsfjörð og í Hvalvatnsfjörð.
Bakpokaferð, gist í tjöldum.
Brottför frá Akureyri. Fararstjóri:
Hörður Kristinsson.
Hvftárnes-Þjófadalir-Hvera-
vellir 9.-13. ágúst.
Gengin gömul þjóðleið um Kjöl.
Bakpokaferð, gist f skélum. Örfá
sæti laus. Fararstjórar: Ágúst
Birgisson og Eyrún Ósk Jens-
dóttir.
Eldgjá-Strútslaug-Básar
15.-19. ágúst.
Skemmtileg ganga um stórbrot-
ið svaeði. M.a. farið um Torfajök-
ul ef veður leyfir. Bakpokaferð,
tjaldgisting. Hægt að framlengja
dvölina í Básum. Fararstjóri:
Gunnar Gunnarsson.
Landmannalaugar-Básar
16.-19. ágúst.
Hin sígilda gönguleið milli Lauga
og Þórsmerkur. Gist i skálum.
Fjallabaksleið syðri
18.-21. ágúst.
ur Fjallabaksleið syðri í Álftavatn
þar sem gist verður í 3 nætur.
Farið þaðan í ökuferðir og stutt-
ar gönguferðir, m.a. að Torfa-
hlaupi, í Hrafntinnusker og út á
Mælifellssand. Fararstjóri: Krist-
inn Kristjánsson.
Upplýsingar og farmiðar á
skrifstofu Útivistar.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Almenn samkoma á morgun
sunnud. kl. 11.
Allir velkomnirl Sjónvarpsút-
sending á ÓMEGA kl. 16.30
Hallveigarstíg 1 •simi 614330
Dagsferð sunnud. 31. júlí:
Kl. 10.30 Vörðufell, lágfjalla-
syrpa 7. áfangi. Vörðufell er 391
m.y.s og stendur gegnt Skál-
holti. Skemmtileg ganga fyrir
alla fjölskylduna.
Verð kr. 1.800/2.000.
Dagsferð mánud. 1. ógúst:
Kl. 10.30 Kaupstaðaferð. Gengin
verður hin gamla þjóðleið frá
Grindavik að Stapafelli. Verð kr.
1.300/1.400. Brottför i dags-
ferðir er frá BSÍ bensinsölu, fritt
fyrir börn 15 ára og yngri.
Lengri ferðir 5.-7. ágúst.
1. Fjölskylduhelgi í Básum. Sér-
stök dagskrá fyrir börnin. Frítt
fyrir börn 15 ára og yngri. Ath.
fullbókað er i skála. Fararstjóri
Fríða Hjálmarsdóttir.
2. Fimmvörðuháls. ( tengslum
við helgarferð í Bása verður
gengið yfir Fimmvöröuháls laug-
ardaginn 6. ágúst. Reikna má
með 8-10 tíma göngu. Farar-
stjóri Sigurður Einarsson.
3. Okvegur-Þingvellir. Gömul
þjóðleið. Bakpokaferð, tjaldgist-
ing.
Upplýsingar og miðasala á
skrifstofu Útivistar.
KR^SSÍJNN
Auði'mi’Li 2 . Kópnvotiur
Samkomur falla niður um helg-
ina. Næsta samkoma verður á
þriðjudagskvöld kl. 20.30.
Guð og gæfa fylgi ykkur um helg-
ina.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Vegna landsmóts hvitasunnu-
manna i Kirkjulækjarkoti, Fljóts-
hlíð, um helgina, falla samkomur
niður f Ffladelfíu, Reykjavfk, en
við viljum hvetja alla til að koma
austur og njóta mótsins með
okkur. Fyrir þá, sem ekki eiga
heimangengt, bendum við á
samkomur Samhjálpar sem eru
nánar auglýstar á öðrum stað.
Guð gefi okkur góða helgi.