Morgunblaðið - 30.07.1994, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
'OKM, I TIEP MY OUJM
V SHOE5...NOU) UJHAT?
MOU), VOU CAN UJALK,0R.
RUN, OK JUMP, OR 00
ANYTHIN6 YOU LUANT..
YOU MEAN I DON T HAVE
J0 6ETPERMISSION? >
Allt í lagi, ég reimaði skóna mína Nú geturðu gengið, eða hlaupið, Áttu við að ég þurfi ekki að fá
sjálfur... hvað nú? eða stokkið, eða gert hvað sem leyfi?
þér sýnist
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
Afram konur
í pólitík
Frá Magnúsi Hafsteinssyni:
HINN 18. júlí sl var forstöðumanni
húsnæðisnefndar Hafnarfjarðar sagt
upp störfum án útskýringa af meiri-
hluta bæjarráðs. Þessu fylgdi jafn-
framt að ráðinn yrði nýr og það á
faglegum grunni eins og það var
kallað ásamt því að ráðinn yrði
tæknimenntaður starfsmaður.
Ráðning tæknimenntaðs starfs-
manns hafði áður verið samþykkkt
samhljóða af húsnæðisnefnd Hafn-
arfjarðar hinn 24. maí sl.
A fundi í húsnæðisnefnd Hafnar-
fjarðarbæjar hinn 19. júlí benti for-
maður starfsmannafélags Hafnar-
fjarðarbæjar á að samkvæmt 10 gr.
reglna um réttindi og skyldur Hafn-
arfjarðarkaupstaðar gagnvart
starfsmönnum sínum væri uppsögn
án ástæðu óheimil. Athygli vakti að
fulltrúar annarra verkalýðsfélaga í
nefndinni töldu samt sem áður enga
ástæðu að mótmæla slíku broti á
kjarasamningi sem formaður STH
benti á.
Blóraböggull
Núverandi meirihluti bæjarráðs
hefur fundið blóraböggul fyrir þann
vanda sem húsnæðisnefnd bæjarins
er komin í, þ.e. opinberum embætt-
ismanni skal sagt upp þrátt fyrir að
allir þeir sem til þekkja vita að meg-
inhluti vandans er þeir flýtisamning-
ar sem gerðir voru og nefndin ber
fulla ábyrgð á, þetta ætti hver mað-
ur með þekkingu og reynslu af fjár-
málastjórn að sjá. Að kenna embætt-
ismanninum um þann vanda sem
Húsnæðisnefnd Hafnarfjarðar er
komin í er ekkert annað en þröng-
sýni og flótti frá raunveruleikanum
og ábyrgð meirihluta Húsnæðis-
nefndar undanfarin ár.
Embættisfærslur
Til að kóróna allt er stefna hins
nýja meirihluta sjálfstæðismanna í
Hafnarfirði að ráðið verði í stöður á
faglegum grunni. Gott og vel. Hins-
vegar er vert að fara yfir þær emb-
ættisfærslur sem nýi meirihlutinn
hefur staðið fyrir. 1. Ráðning í nýja
stöðu svokallaðs starfsmanns
reynslusveitarfélagsins Hafnarfjörð-
ur, Guðmundur Rúnar, kosninga-
stjóri Alþýðubandalagsins ráðinn. 2.
Fyrrum forseti bæjarstjórnar og Al-
þýðuflokkskona rekin sem forstöðu-
maður húsnæðisnefndar.
Stefnan skýr, framkvæmdin einn-
ig. Hvað næst? Verður kannski
Magnús Gunnarsson ráðinn til hús-
næðisnefndar og Jói Begg gerður að
framkvæmdastjóra tæknideildar?
Olíklegt, en allt getur gerst í hinu
nýja leikhúsi fáránleikans.
Fréttaflutningur
Athygli mína sem Alþýðuflokks-
manns vekur hversu fréttaflutningur
af þessu öllu hefur verið lítill og þá
hlutdrægur ef hann hefur verið og
þá miðað við það írafár sem verður
ævinlega er krati er ráðinn til opin-
berrar stofnunar. Ég neita hreinlega
að trúa því, sem margir vilja halda
fram, að hér sé um að ræða að for-
maður Blaðamannafélagsins er jafn-
framt bæjarráðsmaður og formaður
Húsnæðisnefndar Hafnarfjarðarbæj-
ar.
MAGNÚS HAFSTEINSSON,
fulltrúi húsnæðisnefndar
Hafnarijarðar.
Svar við grein um
hj ólreiðakeppni
í Galtalækjarskógi
Frá lngibergi Jóhannssyni:
í MORGUNBLAÐINU sl. fimmtudag
birtist grein Guðrúnar Bjargar Sverr-
isdóttur um hjólreiðakeppni á bind-
indismótinu í Galtalækjarskógi í fyr-
rasumar. I grein sinni lýsir Guðrún
vonbrigðum sonar síns, þegar hin
áður auglýstu veglegu verðlaun, sem
hann vann í hjólreiðakeppninni
reyndust vera verðlaunapeningur.
Undirritaður, sem var mótsstjóri
bindindismótsins í fyrrasumar, og er
því miður fyrst núna að heyra um
tilvik þetta, vill þakka Guðrúnu
Björgu fyrir góða ábendingu hennar,
Gag-nasafn
Morgunblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem afhenda blaðinu efni til
birtingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrii-vari
hér að lútandi.
sem vonandi verður til þess að atvik
sem þetta endurtaki sig ekki, þ.e.a.s.
að orðalag í auglýsingu dagskrár sé
ekki nægilega skýrt. Hvað varðar
reiðhjólavinninga skal tekið fram að
keppnin í Galtalækjarskógi er hluti
af landskeppni Bindindisfélags öku-
manna en í þeirri landskeppni eru
reiðhjól sem vinningar. Á bindindis-
mótinu sjálfu hafa reiðhjól aftur á
móti ekki verið vinningar í reiðhjóla-
keppninni.
Ljóst er að við undirbúning og
framkvæmd samkomu á stærð við
bindindismótið, má alltaf búast við
að eitthvað fari úrskeiðis, þrátt fyrir
vonir mótshaldara um að allir gestir
mótsins megi eiga þar góða og
ánægjulega verslunarmannahelgi.
Því er mikilvægt að mótsgestir komi
áleiðis athugasemdum um hvaðeina
sem betur má fara. Sú er von undir-
ritaðs að atvik sem þetta dragi ekki
úr áhuga Guðrúnar Bjargar og ann-
arra mótsgesta að koma aftur á bind-
indismótið um helgina.
Þá má geta þess að í þetta sinn
munu verðlaun hjólreiðakeppninnar
verða vöruúttektir í fjallahjólaverslun
G.Á. Péturssonar auk verðlaunapen-
inga.
INGIBERGUK JÓHANNSSON,
mótsstjóri bindindismótsins 1993.