Morgunblaðið - 30.07.1994, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ1994 45
BRÉF TIL BLAÐSINS
VÉLGENGT glóaldin - hefur maðurinn rétt til að velja hið illa?
Afar ósanngjarn
leikdómur
Frá Hugrúnu Ólafsdóttur
ÁSTÆÐA þess að ég skrifa þessa
grein í blaðið er sú að ég hef rétt
lokið við að lesa dóm Súsönnu
Svavarsdóttur um verkið Vélgengt
glóaldin eftir Anthony Burgess.
Þessi dómur var afar ósann-
gjarn að mínu mati og gekk út á
það eitt að Súsönnu fannst leikrit-
ið viðbjóðslegt. Er konan heimsk,
ég spyr? Auðvitað er verkið við-
bjóður, það á líka að vera það.
Súsanna dregur þá ályktun að
fyrst að ofbeldi sé hampað eins
og raun er í leikritinu þá sé boð-
skapurinn ofbeldisdýrkun. Hið
rétta er að Vélgengt glóaldin er
hörð ádeila á ofbeldisverk ungl-
inga og komst túlkun Sumarleik-
hússins á verkinu því vel til skila.
Tepruleg augu
Súsanna segir í sínum dómi:
„Mé_r finnst þetta viðbjóðslegt leik-
rit. í því eru bara abstrakt vanga-
veltur um siðfræði sem koma okk-
ur ekkert við.“ Það skín í gegnum
allan hennar dóm að hún hefur
alls ekki skilið verkið, heldur horft
á það með teprulegum augum
upptekin af því að velta sér upp
úr hugsunum á borð við: Þetta er
hrikalega ógeðslegt og þetta líka,
oj barasta.
Vélgengt góaldin er eins og
áður sagði hörð ádeila á ofbeldis-
verk unglinga sem gengur út á
það að ná samkennd áhorfenda
með aðalpersónunni Alex. Þegar
það hefur tekist fær Burgess
hvern hugsandi mann til að fyllast
viðbjóði yfir sjálfum sér. Flestum
hlýtur að vera það óþægilegt að
finna hjá sér samkennd með manni
sem gengur um og Iemur, nauðgar
og drepur fólk.
Þegar svo Alex hefur gengið í
gegnum prógrammið sem fær
hann til að geta alls ekki, sökum
líkamlegrar vanlíðunnar, framið
ofbeldisverk fær Burgess mann til
að vorkenna honum. Snilldarlegast
finnst mér þó hvernig höfundi
tekst að láta áhorfendur hálfgleðj-
ast þegar Alex hefur náð „bata“.
Þ.e.a.s. hann er fær um að gera
allt það illt sem honum dettur í
hug.
Áleitnar spurningar
Flest teljum við okkur góð, samt
gleðjumst við með Alex þegar
hann verður aftur eins og hann á
að sér að vera. Morðingi og nauðg-
arL
Áleitnar spurningar koma fram
í verkinu eins og: Hefur maðurinn
rétt til að velja og ef hann hefur
þann rétt, má hann þá velja hið
illa? Við þessuin spurningum hef
ég engin svör en ég er að spá og
án efa einhveijir fleiri. Það er mín
skoðun að þessar siðfræðilegu
vangaveltur komi öllum við og ég
vona að fleiri séu á þeirri skoðun.
Góður árangur
Mér finnst fáránlegt að leik-
listargagnrýnir skili af sér dómi
um leikrit án þess að meta frammi-
stöðu leikara og leikstjóra. Sjálfri
fannst mér allur undirbúningur að
sýningunni góður og leikararnir
ágætir. Að öðrum ólöstuðum vil
ég nefna þann sem lék sögumann-
inn og stúlkuna sem lék fangelsis-
prestinn sérstaklega. Alex fannst
mér góður en það sem kom mér
mest á óvart var að enginn var
lélegur og allt gekk upp. Það er
mjög góður árangur hjá áhuga-
mannaleikhúsi. Eini ókosturinn við
sýninguna var að hún hefði mátt
vera styttri.
Að lokum vil ég þakka sumar-
leikhúsinu fyrir mig og ég vona
að það sé komið til að vera.
HUGRÚN ÓLAFSDÓTTIR,
Eggertsgötu 2.
Maestro/Cirrus
notuð í París
Frá Gunnari R. Bæringssyni:
í TILEFNI skrifa ferðalangs frá
París um meintar ófarir hans með
debetkort þá vill Kreditkort hf.
taka fram eftirfarandi: í París eru
75 hraðbankar sem taka við Ma-
estro/Cirrus og fer þeim sífellt
fjölgandi. Umræddur ferðamaður
notaði kort sitt 12 sinnum í lirað-
banka dagana 20. og 21. júní.
Hann fékk ávallt svar við sínum
fyrirspurnum en því miður fyrir
hann þá eru reglurnar þær að næg
innstæða eða heimild til yfirdrátt-
ar þarf að vera til staðar til að fá
úttekt samþykkta. Slíkt, var ekki
í þessum tilvikum. Því var ekki
um tæknileg vandamál að ræða.
Umræddur korthafi hafði ekki
samband hvorki við banka sinn
né Kreditkort hf. sem hefur um-
sjón með þjónustu við korthafa
erlendis til þess að afla upplýsinga
um ástæður höfnunar.
GUNNAR R. BÆRINGSSON,
framkvæmdastjóri, Kreditkorts hf.
Bílamarkaöurinn Opið ídag kl. 10-17
RÁ. Lokað á sunnudag
eTíaop'” ffiWSj °9 mánudag
Mislukkaður hræðsluáróður
Frá Sigurði Svavarssyni:
ÁHUGAHÓPUR um bætta
umferðamenningu hefur margt
gott gert eftir að hann tók til
starfa, og það ber að þakka.
En auglýsing honum merkt <
Morgunblaðinu 28. júlí síðast-
liðinn þykir mér geiga alveg
hrikalega, og get því ekki orða
bundist. Auglýsingunni virðist
sérstaklega beint til karl-
manna, nánar tiltekið fjöl-
skyldufeðra, og hún felur í sér
ýmis sk-ilaboð - flest ógeðfelld.
Stór mynd af kjarnafjölskyld-
unni úti að aka í fjölskyldubíln-
um; karlinn undir stýri,-konan
og börnin varnarlaus og að því
er virðist skelkuð, enda engin
furða því „höfuð fjölskyldunn-
ar“ hefur verið svipt húð og
andlitsvöðvum vinstra megin
svo að skín í kúpuna. „Höfuð
fjölskyldunnar" virðist hafa
boðið í bíltúr til þess eins að
leika sér að lífi og limum sinna
nánustu.
Óskapnaður
Hvaða skilaboð á þessi
óskapnaður svo að flytja? Markmið
auglýsendanna er vafalítið einhver
hræðsluáróður: Akið varlega
strákar, annars fer illa fyrir ykkur
og þeim sem eru svo vitlausir að
þiggja far með ykkur! Á þann
hátt einan verður þessi mynd
réttlætt. En auglýsingin kemur
fleiru til skila. Fjölskyldumynd-
in er algerlega hefðbundin, og
hlaðið undir þau kynhlutverk
sem enginn dró í efa fyrir rúm-
um tveimur áratugum. Faðir-
inn drottnar yfir konu og börn-
um, sem ekki eru líkleg til að
bera hönd fyrir höfuð sér, hvað
þá að reyna að hafa áhrif á
gang mála og bílstjórann, hið
óárennielga ijölskylduhöfuð -
karlófreskjuna.
Misvísandi
skilaboð
Niðurstaða mín er sú að boð-
skapurinn í þessari auglýsingu
sé afar misvísandi og ég held
að hún beinist að markhópi sem
alla jafna stendur sig vel í
umferðinni. Karlar og konur
sem komin eru á virðulegan
aldur koma yfirleitt sérlaga vel
út úr könnunum á umferðar-
óhöppum - sér í lagði þegar þau
ferðast með börn sín.
SIGURÐUR SVAVARSSON,
Grundarlandi 1.
european
áWAI.OS
PHILIPS hlaut hin eftirsóttu verðlaun frá
„European Imaging and Sound Association".
Vegna hagstæðra innkaupa getum við nú
boðið fullkomið PHILIPS sjónvarpstæki með
Blackline S myndlampa á einstöku verði.
<8>
109.900
kr.stgr.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 69 15 OO
Umboðsmenn um land allt.
PHILIPS
DU MUNINN!