Morgunblaðið - 30.07.1994, Page 46

Morgunblaðið - 30.07.1994, Page 46
46 LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Þakka skeyti, blóm og aðrar góðar gjafir í tilefni af sjötugsafmœli mínu. Elías Mar. Sumartilboð allt að 40% afsláttur Vegna hagstæöra samninga bjóðast SCHOLTES heimilstæki nú á frábæru verði. Scholtes Scholtes ofn, FC 104 Undir og yfirhiti, blástur grill og blástursgrill Tilboðsverö kr. 52.270 Staðgrvitt kr. 49.655 Scholtes ofn, FC 115X undir og yfirhiti, blástur, grill blástursgrill, tölvukiukka, catalytic hreinsun. Tilboðsverð kr. 62.070 Staðgreitt kr. 58.970 Scholtes vifta, H9360 60 cm þunn útdregin vifta 400m3, með lýsingu í. Tiiboðsverð kr. 16.330 Staðgreitt kr. 15.500 Scholtes helluborð, TH 483 Keramic helluborð með rofum, 2 halogen hellur 21 og 14,5 cm, 2 radiant hellur 16 og 14,5 cm. Tiiboösverð kr. 60.440 Staðgreitt kr. 57.420 Scholtes helluborð, T493EX 4 hellur, 2x18 cm 2x14,5 cm, 2 hraðsuðuhellur með hitaöryggi. Tilboðsverð kr. 23.850 Staðgreitt kr. 22.660 ffcp L Scholtes helluborð, TV 483 Keramik helluborð með rofum, 4 hellur, 2x14,5 cm 1x16 cm, 1x19,5 cm, hitaljós Tiiboðsverð kr. 44.100 Staðgreltt kr. 41.895 Scholtes vifta, H260 60 cm, 350m3, 3 hraðastíllingar, Ijós. Tilboðsverð kr. 14.700 Staðgreitt kr. 13.960 Scholtes uppþvottavél LV12443. 4 kerfi, hljóðlát, sparnaðarkerfi: 22 mínútur, til innbyggingar. Tilboðsverð kr. 64.180 Staðgreitt kr. 60.970 ESchoites Þegar árangurinn skiptir máli Funahöfða 19« Sími 875680 I DAG Farsi 6-3 01994 Fwcu* Cartooní/Distributed by Urtwrsal Ptess Syndcate WA/S6ív4íS/c<50í-T«4ft.T „ Nú, 5\yo J>eoar þú ert bin'ruv ahyfcu yfírböndinrib^ h,Lustaou þá i/ot á hvað h/gtxns heÞur-að segjct." SKÁK Umsjón Margcir Fétursson ÞESSI STAÐA kom upp á opna mótinu í Kaupmanna- höfn í júnílok. Enski alþjóða- meistarinn Keith Arkell (2.500) var með hvítt en Þjóðverjinn M. Steinbacher (2.390) hafði svart og átti leik. Hvítur lék síðast 31. Rf3-gl?? _ Sjá stöðumynd Svartur vinnur nú með laglegum línurofsleik: 31. - Be2+! og það var ekki um annað að ræða fyrir hvít en að gefast upp því hann held- ur ekki valdi á f2. Þrír Ukra- ínumenn urðu efstir og jafn- ir á mótinu. Stórmeistarinn Neverov og alþjóðlegu meist- ararnir Stripunsky og Brodsky hlutu Vh v. Eng- lendingarnir Arkell og Ward og heimamaðurinn Carstein Höi með 7 v. COSPER Ég ætla að vona að hendurnar á þér séu hreinar VELVAKANDI Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Ómerktar myndir MAGNÚS H. Kristjáns- son, sonur Kristjáns H. Magnússonar, listmál- ara, hafði samband við Velvakanda í þeim til- gangi að ef einhver ætti í fórum sínum ómerktar myndir eftir föður hans væri hann meira en fús til að staðfesta þær með- an hann dvelur hér á landi næstu tvær til þijár vikurnar, en hann er búsettur á Spáni. Fólk getur lagt inn skilaboð til hans á Hótel Lind. Frábær útvarpssaga KONA hringdi til Vel- vakanda til að vekja at- hygli fólks á útvarpssög- unni sem Sveinn Einars- son, leikstjóri, er að lesa þessa dagana og er eftir hann sjálfan og heitir „Dordingull". Sagan er með afbrigðum skemmtileg og hann les hana svo vel að hún seg- ist skemmta sér konung- lega. Svar til Þóru HRINGT hefur verið vegna fyrirspurnar Þóru Jónsdóttur í blaðinu í gær um kvæðið „Upp undan bænum...“ Það heitir „Dálítil saga“ bls. 7 í bókinni Kvæði eftir Þorstein M. Gíslason gef- ið út 1893 og er í 20-30 erindum. Tryggvi Tryggvason og félagar sungu það inn á plötu sem oft er spiluð í út- varpinu. Þóra má hringja í Vilborgu Dyrset í síma 870782. hressingu. Lesandinn vill koma því á framfæri hvort ekki væri hægt að hafa sjálfsala á stöðinni eins og víða erlendis. Tapað/fundið íþróttaúlpa tapaðist GUL og blá íþróttaúlpa sem á er letrað með stór- um stöfum „Bragi“ tapaðist á ferðalagi frá Reykjavík um Snsgfells- nes nú í vikunni. Skilvís fmnandi vinsamiega hringi í síma 30447 eða 30457. Karlmannsúr fannst ÚR FANNST aðfaranótt sunnudags fyrir utan Sólon íslandus. Ólin er gyllt og úr stáli. Eigand- inn má vitja þess hjá Veru í síma 694838. Lyklakippa fannst SJÖ lyklar á kippu og einn lítill með áletraðri plötu fundust fyrir ca. hálfum mánuði í mið- bænum. Eigandinn getur vitjað þeirra í síma 877376. Gleraugu fundust LESGLERAU GU í hulstri fundust fyrir viku á horninu Snorrabraut og Mánagötu. Eigandinn má vitja þeirra í síma 27214. Gæludýr Sjálfsala í Högni týndur Leifsstöð GRÁBRÖNDÓTTUR HNEYKSLAÐUR les- högni með hvíta bringu, andi hringdi og sagðist eyrnamerktur, týndist hafa þurft að fara í frá heimili sínu á Flat- Leifsstöðina með far- eyri þann 6. júlí þar sem þega um kl. 23 eitt hann var í sumargæslu kvöldið. Veitingasölunni þannig. að hann er þar þar er lokað kl. 21.30 ókunnur og fólk því vin- og fólki, sem var að bíða samlega beðið að aðgæta eftir farþegum, stóð ekki í kjallara sína. Geti ein- annað til boða en að fá hver gefið upplýsingar sér vatnssopa á snyrting- vinsamlega hringið í unni ef það vildi fá sér síma 94-7855. Víkveiji skrifar... Víkverji verður alltaf jafn undr- andi, þegar hann sér að ein- hverjir aðilar í viðskiptum hér á landi sjá ástæðu til að auglýsa vöru sína á erlendu tungumáli, þrátt fyrir að auglýsingunni sé greinilega beint að Íslendingum. Víkverji heldur einna helst, að þarna sé um undarlegt snobb af einhveiju tagi að ræða. Hver er annars skýringin á miklum borða, sem strekktur hefur verið yfir Bankastrætið? Þar segir eitthvað á þá leið, á engilsaxnesku, að banda- ríski skyndibitastaðurinn Subway, sem býður upp á samiokur og salöt, sé „coming to Iceland this august“! xxx egar Víkveiji var í Noregi fyrir nær tíu árum voru frændur vorir að hvetja þjóðina til að drekka meiri mjólk. Líkt og hér á landi var slagorðið „Mjólk er góð“ notað í Noregi. Það sem kom Víkverja hins vegar afskaplega spánskt fyrir sjónir var að slagorðið var alls staðar á ensku, svo Norðmenn drukku meiri mjólk undir kjörorðinu „Milk is good“. Þá var Víkveiji þess fullviss að slíkar auglýsingar sæust aldrei hér á landi, en miðað við borðann í Bankastrætinu virðast íslendingar ætla að fara sömu ólukkans leiðina. xxx Yíkveiji sá um daginn mynd Frið- riks Þórs Friðrikssonar, Bíó- daga. Það var á föstudegi og til þess að forðast fulian sal af hávaðasömum unglingum sem oft hafa gert Vík- veija lífið leitt þegar hann fer á bíó um helgar, var ákveðið að fara á fimmsýningu. Víkverji var ánægður framan af og hrósaði happi yfir því að sitja í góðu sæti og horfa á ágæta mynd í friði og ró. Friðurinn var hins vegar fljótt úti þegar ungabarn fór að láta í sér heyra framarlega í saln- um. Það kom Víkveija tnjög á óvart að foreldrar ungabarnsins eða þeir sem voru með bamið þarna höfðu Iitia sem enga tilburði uppi til þess að róa það. Ungabarnið var einfald- lega látið gráta dágóða stund, væntanlega þar til það sofnaði. Vík- veiji gerir sér grein fyrir því að Bíó- dagar flokkast undir ljölskyldumynd, en er hér ekki heldur iangt gengið? Ur því að Víkveiji er að fjalla um fjölskyldumyndina Bíódaga á annað borð er ekki úr vegi að minn- ast á það sem Víkveiji viil kalla óhóf- lega verðlagningu. Miðinn á Bíódaga kostar 800 krónur og fyrir fimm manna fjölskyldu sem viil sjá mynd- ina er því um að ræða útgjöld upp á fjögur þúsund krónur. I árdaga íslenskrar kvikmynda- gerðar þótti sjálfsagt að hafa miða- verð íslenskra mynda töiuvert hærra en annars þekktist, en Víkveiji er ekki viss um hversu sjálfsagt það er í dag. Honum þótti það að minnsta kosti einkennilegt að sjá viðtal við Friðrik Þór í Morgunblaðinu sömu helgi og hann greiddi átta hundruð krónur fyrir að sjá Bíódaga, þar sem Friðrik lýsir því yfir að við gerð myndarinnar hafi hann fengið þá styrki sem hann bað um og að fjár- mögnum myndarinnar hafi ekki verið neitt vandamál. Víkveija þykir tími til þess kominn að leggja af þann ósið að hafa miða- verð á íslenskum kvikmyndum sjálf- krafa mikiu hærra en á erlendum myndum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.