Morgunblaðið - 30.07.1994, Síða 52
• 52 LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LANDSMÓTIÐ í GOLFI
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
Karen Sævarsdóttir úr Golfklúbbi Suðurnesja tryggði sér í gær sjötta íslandsmeistaratitil sinn á jafn mörgum árum í golfi kvenna.
Þetta er ekki leiðinlegt
- sagði besti kvenkylfingurinn um sjötta sigurinn á sex árum
Golf
Landsmótið á Akureyri
Meistaraflokkur karla:
Lokastaðan eftir 72 holur:
SigurpG. Sveinss. GA....70 71 76 71 288
BirgirL. Hafþórss. GL....73 75 70 72 290
Björgv. Sigurbergs. GK..71 74 73 73 291
SiguijónArnarsson GR..75 76 71 70 292
Bjöm Knútsson GK......74 74 73 73 294
Sveinn Sigurbergs. GK...76 75 71 73 295
Örn Arnarson, GA......72 74 73 76 295
Guðm. Sveinbjörnss. GK71 75 74 77 297
Tryggvi.Traustason.GK..77 76 73 73 299
Björgv. Þorsteinss. GA...75 74 75 75 299
Kristinn G. Bjarnas. GL..72 72 77 78 299
Þorkell Sigurðars. GR ....77 77 71 75 300
Sig. Hafsteinss., GR..75 79 73 74 301
Tryggvi Pétursson, GR...76 76 81 70 303
HelgiD.Steinsson,GL...76 74 72 81 303
Helgi A. Eiríksson, GR ...76 77 75 77 305
Hjalti Atlason, GR........72 78 76 79 305
Björn Axelsson, GA........75 77 80 74 306
Hjalti Pálmason, GR.......75 79 74 79 307
Meistaraflokkur kvenna:
Lokastaðan eftir 72 holur:
Karen Sævarsd. GS.........77 79 73 77 306
Ragnh. Sigurðard. GR....79 78 77 84 318
Herborg Amarsd. GR........76 84 80 81 321
Ólöf María Jónsd. GK......77 80 77 88 322
Þórdís Geirsd. GK.........86 81 78 81 326
RutÞorsteinsd. GS.........81 88 83 88 340
AndreaÁsgrímsd. GA....86 86 86 86 344
AnnaSigurbergsd.GR ...83 84 84 93 344
Erla Adólfsd., GA.........83 93 89 90 355
Kristín Pálsd. GK.........96 93 89 90 368
Erla Þorsteinsd. GS.......95 92 90 92 369
Inga Magnúsd. GK..........96 88 93 96 373
Jóhanna Ingólfsd. GR...90 97 95 100 382
Magdalena Þórisd., GS99 100 98 93 390
1.. flokkur.. karlai
Lokastaðan eftir 72 holur:
Sig. H. Ringsted GA.......73 76 73 75 297
Halldór Birgiss. GHH......76 73 72 78 299
Ómar Halldórss. GA........75 70 79 78 302
Einar B. Jónss. GKJ.......74 78 77 75 304
Birgir Haraldss........79 77 73 75 304
Friðbj. Oddss. GK......78 74 74 81 307
Styrmir Guðmunds. NK..80 74 80 76 310
Gunnar Einarss. GOS...76 77 79 78 310
Magnús Jóns. GBB.......80 78 78 76 312
Ólafur Gylfas. GA......77 80 78 77 312
Skúli Ágústs. GA......75 79 81 77 312
Halldór Rafnss. GA.....84 72 77 79 312
Ágúst Ársælss. GK......78 77 77 80 312
Sverrir Þorvalds. GA......89 75 78 72 314
Jón S. Ámas. GA...........80 80 81 73 314
Kristvin Bjarnas. GL......76 79 78 81 314
Kristján Hanss. GK........80 80 78 78 316
Albert Elíss. GK..........79 76 79 83 317
SteindórHallNK............81 82 79 76 318
Eiríkur Haralds. GA.......85 75 84 75 319
Helgi Ólafss. GKG.........78 84 79 78 319
Guðm. Siguijóns. GS.......80 82 83 76 320
Sig. Jónss. GG.........83 76 79 82 320
Guðm. Óskars. GR.......83 79 76 82 320
Þórh. Pálss. GA...........81 77 82 81 321
FylkirGuðm. GÓ............75 84 80 82 321
Sigurþ. Sævars. GS........81 78 88 75 322
ívar Ó. Amarss. GK........83 76 84 80 323
Morgunblaðið/Björn Glslason
Sigurður H. Ringsted frá Akureyri sigraði í 1. flokki karla eftlr harða keppni
Sigurður sigraði í 1. flokki
KAREN Sævarsdóttir úr Golfklúbbi
Suðurnesja tryggði sér í gær sjötta
íslandsmeistaratitil sinn á jafn mörg-
um árum í golfi kvenna. Karen sýndi
og sannaði, ef einhver hefur efast um
það, að hún er besti kvenkylfingurinn
og svo virðist sem aðrar stúlkur eigi
talsvert í land með að ógna henni að
einhverju marki. Ragnhildur Sigurðar-
dóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur varð
önnur á 321 höggi og Herborg Arnars-
dóttir, einnig úr GR, varð í þriðja sæti
á 322 höggum.
j^aren var að vonum ánægð með sigurinn
og þegar hún var spurð að því hvort
það færi ekki að vera leiðinlegt að vinna
svona ár eftir ár sagði hún:
Skúli Unnar „Nei, þetta er alls ekki leiðin-
Sveinsson legt. Ef það er einhver titill
skrifarfrá sem maður vill vinna þá er
Akureyri það þessi. Annars átti ég
alls ekki von á svona yfirburðum og ég
hafði undirbúið mig fyrir mikla spennu og
var tilbúinn í slíkt, en til þess kom í raun-
inni ekki. Það kemur samt að því einhvern
tíman því stelpurnar eru að draga á mig
en það kemur alltaf einn slakur hringur hjá
þeim og það gerir muninn.
Ég fann ekki fyrir neinni pressu á mér
eftir tvo daga þó svo munurinn væri ekki
mikill á okkur. Mér fannst ég ekki getað
ætlast til þess af mér að vinna sjötta árið
í röð og kom með því hugarfari í mótið.
Ég spilaði vel tvo síðustu dagana og er
mjög sátt við þetta. Við byrjuðum reyndar
frekar illa því við þurftum að bíða við hvert
einasta högg og þá kólnar maður og við
slógum allar illa en ég náði samt að skora
ágætlega og ná að auka forskot mitt,“ sagði
Karen.
Um nánustu framtíð sagði Karen að hún
tæki þátt í stigamóti í GR eftir tvær vikur
og síðan færi hún út til Bandaríkjanna þar
sem hún er við nám. En á hún sér ekki
þann draum að gera golf að atvinnu sinni?
„Jú, það blundar auðvitað í manni en það
verður ekki á næstunni. Ég ætla að klára
skólann fyrst og svo sér maður til en það
eru nokkur ár í að ég geti sagt við þig að
ég sé á leið í atvinnumennskuna. Stelpurnar
verða að glíma við mig í nokkur ár í við-
bót,“ sagði Karen.
„Hryllingur"
„Þetta var hryllingur,“ var það fyrsta sem
Ragnhildur Sigurðardóttir úr GR sagði þeg-
ar hún hafði skilað skorkorti sínu, en hún
lék á 84 höggum, sem nægði henni samt í
annað sætið.
„Ég veit ekki hvað var að hjá mér, en
ætli það sé ekki einhver spenna og hún
magnaðist bara þegar á leið ef eitthvað
var. Ég fór í allar glompur sem ég fann á
vellinum og vippaði meira að segja í þær
nokkrar. Ég er auðvitað ánægð með annað
sætið en ég hefði verið rosalega ánægð ef
ég hefði fengið fugl á síðustu holunni, en
ég var klaufí að missa púttið. Annars endað
ég ágætlega, þrjú pör í röð, en fugl á síð-
ustu hefði bjargað deginum," sagði Ragn-
hildur.
Hvenær kemur að því að þið farið að
veita Karenu einhveija keppni?
„Ég veit það svei mér ekki. Ég ætlaði
að gera það núna en það virðist sem ég
hafi sett of mikla pressu á mig, þannig að
það fór allt í vitleysu.“
„Ánægð“
Herborg Arnarsdóttir úr GR varð lék vel
í gær og kom inn á 81 höggi og skaust upp
fyrir Ólöfu Maríu Jónsdóttur í þriðja sætið.
„Ég er ánægð með hringinn, sérstaklega
miðað við veðrið. Þetta er besti árangur sem
ég hef náð á landsmóti, varð í fimmta sæti
í Leirunni í fyrra. Það er ágætt að byrja í
þriðja sæti og fara síðan aðeins upp.“
Ykkur gengur erfiðlega að eiga við Kar-
enu, á ekkert að fara að veita henni verðuga
keppni?
„Jú, það er nú alltaf ætlunin en við leik-
um alltaf illa einn dag á meðan hún er stöð-
ug og fær enga verulega slæma hringi.
Karen er rosalega sterk, rosalega grimm
og rosalega góð þannig að það er erfitt að
eiga við hana. Við getum þó veitt henni
keppni en í fjögurra daga móti leikur hún
alltaf stöðugt en við fáum slæman dag. Það
kemur samt að því að við náum að sigra
hana, hvenær það verður veit ég samt ekki,“
sagði Herborg.
SIGURÐUR H. Ringsted frá Akureyri
sigraði 11. flokki karla eftir mikla og
harða keppni við Halldór Birgisson frá
Höfn. Sigurður reyndist sterkari á síð-
asta hring og sigraði með tveimur
höggum, lék samtals á 297 höggum
en Halldór á 299. Ómar Halldórsson
úr GA varð þriðji á 302 höggum.
egar kapparnir lögðu af stað í gærmorg-
un átti Halldór eitt högg á Sigurð en
sá síðarnefni byrjaði af miklum krafti og
náði strax forystu sem hann hélt til loka.
„Það fór nú aðeins um mig á 17. braut.
Þar sló ég vestur fyrir flötina skallaði bolt-
ann síðan með sandjárni yfir flötina og í
brekkuna á móti og endaði á sjö höggum
en Halldór fékk par. Ég átti fjögur högg
fyrir holuna en aðeins tvö fyrir þá síðustu
og ég ákvað að spila öruggt og tryggja
þetta,“ sagði Sigurður og hafði orð á því
að þetta hefði verið mjög skemmtilegur dag-
ur og riðillinn frábæ:.
Sigurður er nú með um fjóra í forgjöf og
stefnir að því að leika í meistaraflokki á
næsta landsmóti. „Ég hef rokkað á milli
fyrsta og meistaraflokks undanfarin ár og
hef oft leikið í meistaraflokki á landsmóti.
En það eru orðin ein tíu ár síðan ég hef
leikið á landsmóti fyrir sunnan þannig að
maður stefnir þangað,“ sagði sigurvegarinn.