Morgunblaðið - 30.07.1994, Síða 53

Morgunblaðið - 30.07.1994, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1994 53 LANDSMÓTIÐ í GOLFI Taugar Sig - urpáls héldu Fyrsti sigur Akureyrings í 17 ár ÞAÐ var auðséð að þungu fargi var létt af Sigurpáli Geir Sveins- syni úr Golfklúbbi Akureyrar þegar hann setti niður á síðustu flöt í gær og íslandsmeistaratitillinn var í höfn. Gríðarlegri spennu, taugastríði og frábærum fjórum golfhringjum var lokið. Stoltið sagði einnig til sín þvíhann var á heimavelli og fjöldi fólks fylgd- ist með. Það eru 17 ár síðan Björgvin Þorsteinsson úr GA varð síðast íslandsmeistari og því hafði hinn ungi Akureyringur fulla ástæðu til að gleðjast. Hann var aðeins tveggja ára þegar Björg- vin vann sfðast og stoltið og ánægjan sagði þvítil sín og reyndi hann ekki að leyna geðshræringu sinni frekar en margir aðrir Akureyringar. Sigur í höfn Morgunblaðið/Björn Gíslason SIGURPALL Gelr svelnsson fagnar hér meistaratitlinum. A efri myndinni hefur hann rétt rekið í síðasta púttið fyrir pari og sigur- inn í höfn, en á neðri myndinni óskar Björgvin Sigurbergsson, sem var í þriðja sæti þriðja árið í röð, honum til hamingju. FulKrúi ungu kynslóðarinnar ÍÞRÓmR FOLK ■ TVEIR keppendur á landsmót- inu komu frá Höfn í Hornafirði, ENGUM vefst hugur um að Sig- urpáll Geir Sveinsson er maður landsmótsins. Hann lék hreint frábærlega og stóðst þá pressu sem fylgir þvf að vera f forystu. Hann er einnig glæsi- legur fulltrúi hinnar ungu kyn- slóðar sem virðist vera að taka við í íslensku golfi. Snyrtilega klæddur, kemur vel fram á golf- velli og auk þess léttur og skemmtilegur strákur. Eg verð nú að segja það eins og er að það kom mér nokkuð á óvart að mér skyldi takast að halda út allt mótið. Eg var að vísu að leika frábært golf fyrir mótið og vissi að ég hefði getuna til að sigra, en þetta var bara spurning um taugarnar. Nú veit ég að ég hef taugar til að sigra á svona móti,“ sagði Sigurpáll Geir eftir að hann hafði rekið síðasta púttið niður á 18. flöt fyrir framan um 500 manns. Þetta hefur sem sagt tekið dálít- ið á taugarnar, sérstaklega þegar Birgir Leifur skoraði vel á 14. og 15 holu? „Já heldur betur og þetta var alls ekki öruggt fyrr en síðsta pútt- ið datt. Ég hló nú bara þegar hann fékk holu í höggi á 14. holu, en þegar hann vann eitt högg til við- bótar á 15. holu fór aðeins um mig. Ég náði siðan að setja niður erfitt pútt fyrir pari á 16. holu á meðan hann þrípúttaði og þar með var ég aftur kominn í þægilega stöðu. A 17. náði ég líka góðu pútti undir mikilli pressu og þar með var þetta nokkurn veginn í höfn þó svo ég hafí ekki gert mér fyllilega grein fyrir því fyrr en síðasta púttið datt á 18. Það var rosaleg tilfinning. Ég var tveggja ára þegar Björgvin [Þorsteinsson] varð síðast Islands- meistari þannig að ég var fullur af stolti og það var eins og þungu fargi væri létt af mér. Þetta var dásamleg tilfinning,“ sagði ný- krýndur íslandsmeistari. þeir Ilalldór Birgisson, sem varð annar í 1. flokki, og Jón Björns- son, sem varð fjórði í 2. flokki. Ekki slæmur árangur hjá Horn- firðingum. ■ ROSMUNDUR Jónsson dóm- ari keppninnar braut gleraugun sín á fimmtudaginn og þurfti að bruna með þau í gleraugnaverslun niður í bæ. Rósmundur sagðist þó ekki hafa áhyggjur af því að menn reyndu að nýta sér Jiað að hann væri án gleraugna. „I stað þess að fara alveg að þeim stað þar sem dómara er óskað fer ég frá staðnum og nota kíkinn minn. Þannig sé ég þetta ágætlega," sagði Rósmund- ur. ■ ÞAÐ var dálítið furðulegt að fylgjast með síðasta riðli í meistara- flokki karla. Talsverðar tafir voru á leik vegna þess hversu ört var ræst út og í stað þess að hanga á teig og gera ekkert notfærðu þeir sér að þeir voru síðastir og voru langtímum saman að pútta á grín- unum eftir að þeir höfðu lokið leik á holunni. ■ SIGURPÁLL Árni hefur leikið mjög vel síðustu vikurnar og hefur lækkað sig í forgjöf úr 1,7 í 0 á rúmum mánuði. ■ NOKKUÐ var um að kylfingar léku í gallabuxum, nokkuð sem er alls ekki við hæfi og algjörlega bannað víðast hvar erlendis. Sum- um stendur þó greinilega á sama um þetta en aðrir vilja láta banna gallabuxurnar algjörlega á golfvöll- um, sérstaklega landsmóti. Sama á við um venjulegar íþróttastuttbux- ur, en á mánudaginn léku nokkrir þannig klæddir. Forsíðumyndin á landsmótsblaðinu er tekin á fjórðu flöt. Þar er maður í gallabuxum að pútta og sá er heldur við stöngina er með sígarettu í munninum. Skemmtileg auglýsing fyrir golf- íþróttina! segja sumir. FLESTIR keppendur í meist- araflokki karla og kvenna nota Tommy Armour golfsett og Tit- leist golfboltar eru vinsælastir meðal þessara keppenda. Keppendur í meistaraflokki karla voru 44 talsins og 14 konur kepptu, sem er það mesta sem ver- ið hefur í meistaraflokki kvenna. Samtals voru keppendur því 58. Tíu kylfingar nota Tommy Armour Sigurpáll er vel að sigrinum kominn. Hann lék frábært golf, hélt haus allan tímann og hafði forystu allt frá Skúli Unnar fyrsta degi, nokkuð Sveinsson sem ekki hefur gerst skrífar frá í fjölda ára. Sigur- Akureyrí páll átti eitt högg á Birgi Leif Hafþórsson frá Akranesi og Björgvin Sigurbergsson úr Keili þegar lagt var af stað í gær. Fljót- lega náði hann fimm högga forystu og töldu menn þá líklegt að titillinn væri í höfn en hinn ungi Skagamað- ur var á öðru máli. Hola í höggi Á 14. holu fór Birgir Leifur holu í höggi á meðan Sigurpáll fékk par og nú munaði aðeins þremur högg- um á þeim. Skagamaðurinn ungi vann annað högg á 15. braut, fékk fugl og nú var munurinn aðeins tvö högg og allt gat gerst. Á næstu braut var Birgir Leifur inn á flöt í tveimur og átti talsvert erfitt pútt fyrir höndum, fimm metrar voru eftir í holuna og talsverður hliðar- halli. Sigurpáll vippaði of langt inn á flötina í þriðja höggi og átti þriggja metra pútt eftir. Leifur Geir rétt missti púttið en boltinn stöðvaðist um metra fyrir neðan holuna. Það pútt missti hann einnig á klaufalegan hátt en á sama tíma sýndi Sigurpáll gríðarlegt keppnisskap og sterkar taugar með því að reka púttið í. Þar með var munurinn aftur orðin þijú högg, en hefði hæglega getað verið jafn því pútt Sigurpáls var erfitt og síðara pútt Birgis Leifs átti að vera öruggt. Ekki sanngjart „Það var varla hægt að ætlast til að ég setti niður púttið fyrir fugli á 16. holu eftir það sem gerðist á tveimur holunum þar á undan. Það hefði varla verið sanngjarnt ef ég hefði sett niður. Metra púttið mis- reiknaði ég hins vegar á einhvern óskiljanlegan hátt,“ sagði Birgir Leifur. „Ég viðurkenni að ég var aðeins farinn að hugsa um fyrsta sætið þarna um tíma en síðan ein- beitti ég mér aðeins að því að leika eins og maður. Ég er mjög ánægð- ur með sætið því ég hef best náð níunda sæti áður,“ sagði þessi ungi kylfingur sem fer á unglingameist- aramótið í Grafarholti um næstu helgi og síðan á stigamót á sama stað. Allt er þá þrennt er Björgvin Sigurbergsson úr Keili var ánægður með þriðja sætið enda golfsett, níu Maxfli og Ping og Slaz- enger nota átta kylfingar. Sex nota Hogan, fjórir Misuna, þrír eru með Wilson og Maruman, tveir með Taylor Made og John Letters og einn karlmaður var með Power Bilt og ein stúlka með Mac Gregor. Morgunblaðið kannaði einnig hvernig bolta meistaraflokkskylf- ingar nota. Kom í ljós að 38 kepp- endur í meistaraflokki karla nota ballada-bolta. Flestir nota Titleist er hann vanur að vera þar. Þetta er þriðja landsmótið í röð þar sem hann verður í þriðja sæti. „Allt er þá þrennt er,“ sagði hann og bætti því við að vonandi yrði það ekki fullreynt í fjórða sinn. „Ég missti af lestinni eftir 14. og 15. holu og fór þá að hugsa um sætið mitt, þriðja sætið. Síðan frétti ég á 16. braut að Siguijón [Arnarsson] væri á átta yfir þannig að ég vissi að ég þyrfti einn fugl enn til að halda sætinu mínu. Það tókst á 17. braut þannig að ég var nokkuð rólegur á þeirri síðustu því mér hefur gengið mjög vel á henni í mótinu," sagði Björgvin og bætti því við að trúlega væri þetta besta skor sem hann hefði náð á landsmóti. Frábært golf Á landsmótinu var leikið frábært golf og mörg snilldar golfhögg sáust enda var mikið slegið. Fjórir kylfíngar léku einn hring á einu höggi undir pari og sjö sinnum vai' völlurinn leik- inn á pari. Sigurpáll Geir, maÍLa mótsins, lék á fjórum yfír parinu í heildina og er það hreint frábært. Aðrir kylfingar léku ekki eins vel, eins og gefur að skilja, en engu að síður áttu margir mjög góða hringi. Sigur- jón Amarsson úr GR hafnaði í íjórða sæti eftir tvo hræðilega hringi tvo fyrstu dagana. í gær lék hann á einu undir pari og næst síðasta hringinn á pari. Tryggvi Pétursson úr GR lék einnig á parinu í gær og hífði sig upp í 14. sæti eftir dapra þijá daga. Bjöm Knútsson lék einnig vel og stöðugt. Fyrstu tvo dagana lék hann á 74 höggum og seinni tvo á 73. Þetta dugði honum í 5. sæti. ínémR FOLK ■ ÞAÐ er í nógu að snúast hjá sumum keppendum, sérstaklega í kvennaflokkunum. í meistaraflokki kvenna eru tvær stúlkur með unga- börn. Ragnhildur Sigurðardóttir úr GR er hér með þriggja mánaða gamla dóttur sína og Þórdís Geirs- dóttir úr Keili er með sex mánaða gamlan son sinn hér. Pabbarnir gæta að sjálfsögðu barnanna á meðan mömmurnar spila og síðan tekur mamman við. Björgvin Sig- urbergsson úr Keili er einnig með ungt barn hér, fjögurra mánaða gamla dóttur. bolta, 16 talsins, tíu eru með Maxfli, níu með Rextar og Slazenger, sjö með Top Flite, fimm Precept og síðan notaði einn Hogan -og Pinnacle. Mestu breytingarnar frá síðustu landsmótum eru að margir nota nú Rextar bolta sem eru tiltölulega nýir á markaðnum og einnig vekur athygli hve margir eru með Tommy Armour sett. Flestir með Tommy Armour

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.