Morgunblaðið - 30.07.1994, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 30.07.1994, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIB, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK SÍMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Ekkert var flogið til Eyja eftir hádegi í gær Mörg hundruð far- þegar komust ekki Morgunblaðið/Björn Gíslason Ungur meistari • ígolfí NÝR íslandsmeistari í golfi var krýndur á Akureyri í gærkvöldi, heimamaðurinn Sigurpáll Geir Sveinsson, 19 ára. Karen Sævars- dóttir, GS, varð Islandsmeistari kvenna sjötta árið í röð. Mikill fjöldi áhorfenda, eða 500 manns, fylgdist með þegar Sigur- páll setti niður síðasta púttið á 18. flöt. Gífurlegur fögnuður braust út því 17 ár eru liðin siðan Akureyringur varð síðast íslands- meistari. „Þetta var dásamleg til- finning," sagði hinn nýi meistari þegar hann hafði tryggt sér sigur- , ian. Atján ára piltur frá Akranesi, Birgir Leifur Hafþórsson, saxaði mjög á forskot Sigurpáls undir lokin, ekki síst þegar hann fór holu í höggi á 15. braut. Birgir Leifur varð í 2. sæti og í þriðja sæti varð Björgvin Sigurbergs- son, GK. ■ íslandsmótið i golfi/52-53 MESTUR straumur ferðafólks í upp- hafi verslunarmannahelgar lá til Vestmannaeyja, að sögn talsmanna BSÍ, Flugleiða og íslandsflugs. Færri komust þó en vildu á Þjóðhá- tíð í Eyjum í gærdag þar sem allt flug flugfélaganna féil niður frá og með klukkan hálf tvö eftir hádegi. Mörg hundruð manns urðu stranda- glópar af þessum sökum. Hetjólfur hélt sínu striki og flutti um 900 manns í tveimur ferðum. Umferðar- ráð telur að umferð hafi verið minni í upphafi þessarar verslunarmanna- helgar en á sama tíma á fyrri árum. Margrét Gunnarsdóttir, vaktstjóri hjá Flugleiðum, segir að flug hafi fallið niður vegna lélegra lendingar- skilyrða í Vestmannaeyjum. Til stóð að flytja um 700 manns með vélum Flugleiða en aðeins tókst að koma um 150 á áfangastað í gærmorgun. Þegar mest var biðu um 250 manns í von og óvon eftir flugi til Eyja. Sveinn _ Ingvarsson, afgreiðslu- stjóri hjá íslandsflugi, hafði svipaða sögu að segja. Þar biðu tugir manna eftir flugi. Hann sagði í gærkvöldi, að flogið yrði um leið og veður leyfði og ferðum bætt við áætlun félagsins eins og þörf krefði. Frá BSÍ fóru flestir til Eyja, á Galtalæk og í Þórsmörk. Fimm þúsund í Eyjum Bjarni Samúelsson framkvæmda- stjóri Þjóðhátíðarinnar í Eyjum tel- ur, að um 5 þúsund manns hafi ver- ið komnir til Eyja í gærkvöldi, en þar var hátíðin sett í úrhellisrigningu og slagviðri. Seint í gærkvöldi sagði hann að veður hefði gengið mikið niður og kvaðst vona að fólk kæmi um leið og rofaði til í dag. Hann viðurkenndi, að til að endar næðu saman væri æskilegt að fá um 9-10 þúsund gesti. Bjarni staðfesti að veður hafi verið gestum óhagstætt framan af degi, tjöld hafi fokið og sumir hafi verið blautir og hraktir. Hann segir, að forráðamenn hátíðar- innar hafi sett saman neyðaráætlun. Hún miði að því að tryggja nauð- stöddum húsaskjól í Þórsheimilinu, Týsheimilinu, eða í skólahúsum. Sigurður B. Stefánsson, móts- stjóri bindindismótsins í Galtalæk, sagði að stöðugur straumur hefði legið í Galtalækjarskóg í gærkvöldi. Varlega áætlað væri tala gesta tæp- lega 2.500. ■ Samfelld dagskrá/30-31 Morgunblaðið/Golli ÞESSI hópur unglinga lét ekki dökkar horfur á flugi til Vestmannaeyja hafa áhrif á gleði sína. Mörg hundruð manns biðu á Reykjavíkurflugvelli eftir flugi en komust hvergi. íslenskt fyrirtæki byggir seiðaeldisstöð á Kamtsjatka í Rússlandi Tuttugu íslenskir starfsmenn fara utan vegna verkefnisins ÍSLENSKA fyrirtækið KamHnit, sem er í eigu verkfræðistofunnar Hnits hf., Isbús hf. og Ing- ólfs Skúlasonar er þátttakandi í byggingu seiða- eldisstöðvar á Kamtsjatka í Rússlandi. Fyrr á þessu ári tókust samningar við rússnesk-jap- anska fyrirtækið Pilenga Godo um byggingu stöðvarinnar í samvinnu við fyrirtæki frá Suður- Kóreu og Japan. Gunnar Gunnarsson, sendiherra Islands í Moskvu, var nýlega á ferð á Kamtsjatka í boði KamHnit og sagði hann í samtali við Morgun- blaðið að þessu verki ætti að ljúka í október en frá og með næstu mánaðamótum verði um 20 íslendingar, aðallega iðnaðarmenn, á Kamt- sjatka á vegum KamHnits vegna þessa verkefnis. Að sögn Gunnars eru ýmis verkefni í gangi á vegum íslenskra aðila á Kamtsjatka. Nýlega var gengið frá samningum um áframhaldandi samstarf íslenskra sjávarafurða hf. og útgerðar- fyrirtækisins UTRF á Kamtsjatka fyrir næstu þijú ár en íslenskar sjávarafurðir hafa séð um rekstur á frystitogara fyrirtækisins og annast vinnslu og sölu aflans. Miklar hitaveituframkvæmdir áformaðar Virkir-Orkint hefur gert hagkvæmniathugun vegna hitaveituframkvæmda frá svonefndu Nutnovskíj-jarðhitasvæði, sem var fjármögnuð af Evrópubankanum. Að sögn Gunnars hefur ekki verið tekin formleg ákvörðun um hvort ráðist verður í framkvæmdir, sem taldar eru kosta nálægt 160 millj. bandaríkjadala eða um 11 milljarða ísl. kr., en Evrópubankinn sé já- kvæður fyrir því að fjármagna hluta verksins ef rússneska ríkið ábyrgist lán. Gunnar sagði að sér hefði verið tjáð að haldnir hefðu verið fundir um þetta mál í Moskvu 15.-17. júlí og stjórnvöld væru jákvæð gagnvart því að veita ábyrgðir. Svavar Jónatansson, stjórnarformað- ur Virkis-Orkint, sagði fyrirtækið gera sér vonir um að fá áframhaldandi verkefni við þessar framkvæmdir en málið væri nú hjá Evrópubank- anum og heimamönnum á Kamtsjatka. „Ef út í þetta verður farið er um að ræða mjög stóra framkvæmd," sagði hann. I máli Gunnars kom einnig fram að á ferð hans á Kamtsjatka hefði borgarstjórinn í Elisovo lýst áhuga á að íslendingar aðstoðuðu við upp- bygingu ferðaþjónustu á Kamtsjatka. ■ Fjölmörg tækifæri í Rússlandi/21 Fangageymslan Renndu sér niður slönguna TVÆR stúlkur struku úr fangageymslum lögreglustöðv- arinnar við Hverfisgötu en hafa náðst aftur. Stúlkurnar voru að sitja af sér sektir en nokkrir fangaklef- ar í lögreglustöðinni eru notaðir í því skyni. Stúlkurnar tvær komust inn í ræstingarklefa á þriðju hæð, sem gleymst hafði að læsa. Þar var brunaslanga og stór veltigiuggi. Þær létu slönguna út um gluggann, létu hana síga niður eftir húsveggn- um, renndu sér niður eftir henni og komust í burtu. Önnur stúlknanna náðist fljótt aftur og hin var handtekin í verslun í fyrradag. Brotist var inn í læsta bíla- geymslu við Þverholt í fyrri- nótt. Innbrotsþjófarnir tóku hliðarrúður úr fimm bílum og stálu hljómflutningstækjum úr þeim. Skriða lok- aði hring- veginum SKRIÐA féll úr Þvottárskriðum um 50 kílómetra austur af Höfn í Horna- firði um klukkan hálfníu í gærkvöldi og lokaði hringveginum fyrir um- ferð. Að sögn Jóns Inga Björnsson- ar, lögreglumanns á Höfn, var lægri endi skriðunnar um 2 metrar á hæð en sá hærri um 4-5 metrar á efri hluta vegarins, og var hún 5-10 metrar á breidd. Jón sagði ástandið viðráðanlegt, en kvaðst óttast stóra skriðu úr Hvalnesskriðum vestan við Þvottárskriður, þar sem vegfarendur gætu þá króast inni, en smáar skrið- ur féllu úr Hvalnesskriðum í gær. Tugir manna biðu Um hálfellefu í gærkvöldi biðu á milli 40 og 50 manns í tólf bifreiðum Hafnarmegin við skriðuna, og sagði Jón Ingi fólkið rólegt en óánægt með biðina. Fáir höfðu kosið að snúa aftur til Hafnar, í þeirri von að rjúfa mætti skriðuna, sem var of viðamik- il fyrir veghefil sem reyndi að vinna á henni. Þá var sent eftir hjóla- skóflu frá Höfn sem hóf gröft rétt fyrir klukkan 23, og kvaðst Jón Ingi eiga von á að nokkrar klukkustund- ir tæki að opna veginn að nýju. Austanmegin við skriðuna biðu einn- ig bifreiðir á suðurleið, en aðrar sneru frá, þar á meðal tvær hóp- ferðabifreiðir, fullar af farþegum, sem óku til Djúpavogs. Astæða skriðunnar er rakin til mikillar úr- komu, en um hádegisbil í gær „skall á ausandi rigning og fyrst núna er að draga úr henni,“ sagði Jón Ingi. Einnig féllu smáar aurskriður úr Alnmnnaskarði, um níu kílómetra frá Höfn og var vatn byijað að grafa í veginn. VEGNA verzlunarmanna- helgarinnar kemur Morgun- blaðið næst út miðvikudaginn 3. ágúst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.