Morgunblaðið - 21.08.1994, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1994 37
i
I
I:
I
I
I
(
(
(
I
i
1
I
I
I
1
I
3
I
1
l
;
■
;
s
j
f
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Skottulæknir
í Jesú nafni?
Frá Snorra í Betel:
VEGNA komu bandaríska trúboð-
ans og lækningapredikarans Benny
Hinn, hingað til lands, kom aðstoð-
arlandlæknir fram í 19:19 í gær-
kvöldi 17. ágúst, og benti á að sam-
kvæmt læknalögum væru kristnir
söfnuðir á íslandi að bjóða til sam-
komuhalds sem er í andstöðu við
læknalög. í auglýsingum um sam-
komur með Benny Hinn er orðað
„Kraftaverk í Kaplakrika í Hafnar-
firði“, og einnig „Þjónusta Benni
Hinn einkennist af nærveru heilags
anda og stórkostleg undur og
kraftaverk gerast þegar hann biður
fyrir sjúkum".
Aðstoðarlandlæknir flokkaði
þessar kristnu aðfarir undir skottu-
lækningar. Og heyrðist mér í 19:19
að tilkoma þessarar niðurstöðu að-
stoðar- og landlæknis væri sú að
Benni Hinn væri ekki læknamennt-
aður maður. Því vil ég benda á eftir-
farandi.
1. Benny Hinn er ekki lækna-
menntaður eins og Læknisembættið
hefur réttilega komist að. Hann er
prédikari og hefur Jesú Krist sem
fyrirmynd. Jesús Kristur er einnig
fyrirmynd okkar sem viljum stuðla
að samkomuhaldinu með Benny
Hinn.
2. Kristur, fyrirmynd okkar og
höfundur kristindómsins, segir sín-
um lærisveinum og prédikurum að
þessi tákn muni fylgja þeim sem
trúa: „í mínu nafni skulu þeir leggja
hendur yfir sjúka og þeir munu
verða heilir...“
Þessi verk hafa fylgt kristninni
fram til þessa þó svo að árangurinn
sé ekki alitaf mikill. Hinn kristni
gerir sér grein fyrir því að hér er
ekki neitt annað en náð Guðs sem
staðfestir að Jesús Kristur hefur
vald til að reka frá sjúkdóma, synd
og vald dauðans.
Það er von okkar að læknar,
heilbrigðisstéttir og íslendingar sjái
þá kristnu ekki sem keppinauta um
sjúklinga.
3. Aðstoðarlandlæknir greindi
frá því í gær að þær lækningar sem
helstar verða í svona samkomum
séu á króniskum sjúkdómum sem
ganga í bylgjum og í tilfinningahita
og spenningi getur sjúklingurinn
fundið fyrir stundarlausn. Það telst
einnig áhugaverður árangur meðal
lækna ef krónískur sjúklingur fær
tímabundna lausn- í það minnsta
hefur mér heyrst það.
4. Eg var þakklátar fyrir aðstoð-
arlandlæknir talaði jákvætt um fyr-
irbænir sjúklingum til handa.
Kristnir menn hafa einnig stundað
fyrirbænir í mannsaldra. Vonandi |
verða bænasvör vegna fyrirbæn-
anna litin jákvæðum augum og
meðtekin með þakklæti af öllum
aðilum sem hlut eiga að máli.
Hins vegar er of algengt á Ís-
landi að af þeim 10 sem verða heil-
ir snýr aðeins 1 til baka til að gefa
Guði dýrðina.
Megi Jesús Kristur vera dýrlegur
á samkomunum hjá Benny í Kapla-
krika. Það er von mín og bæn að
þjóðin, Landlæknir og fjölmiðlar
sjái Jesú og lærisveina hans ekki
framar sem skottulækna.
SNORRI í BETEL,
Vestmannaeyjum.
FRÉTTIR
Útihátíð
Eurocard í
Hvammsvík
ÚTIHÁTÍÐ Eurocard verður haldin
í dag, sunnudag, í Hvammsvík
fjórða árið í röð. Hátíðin er haldin
fyrir korthafa Gullkorta og Atlas-
korta og fjölskyldur þeirra og er
endurgjaldslaus nema hvað greiða
þarf fyrir hvern fisk sem veiddur er.
Margt verður sér til gamans gert
á útihátíðinni. Gestir geta brugðið
sér í golf, farið á hestbak, skoðað
fjörur undir leiðsögn kunnugra og
veitt fisk i tjörninni við Hvamms-
vík. Þá mun Magnús Scheving sýna
þolfimi og Hafsteinn Hafsteinsson
leika og syngja og stjórna leikjum
fyrir börn. í hádeginu verður efnt
til grillveislu.
Verðlaunabikar verður veittur
fyrir golfleik og sérstakur bikar
verður veittur fyrir stærsta fiskinn
sem veiðist. Auk þess hefur sér-
merktum fiskum verið sleppt í tjöm-
ina og geta heppnir veiðimenn feng-
ið ferðavinning til útlanda með því
að veiða þá.
Hátíðin stendur frá kl. 10-18.
Gagnasafn
Morgunblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem aflienda blaðinu efni til
birtingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrirvari
hér að lútandi.
LISTDANSSKOLI ISLANDS
Engjateigi 1, 105 Reykjavíik, sími 91-889188
Inntökupróf verða dagana 31. ágúst og 1. september. Lágmarksaldur 9 ára
Kennarar: Ingibjörg Björnsdóttir, Auður Bjarnadóttir, Nanna Ólafsdóttir,
Margrét Gísladóttir, Lauren Hauser, David Greenhall, Guðmundur Helgason o.fl.
Nemendur
frá
fyrra
ári
komi
laugardaginn
3. september
milii
kl. 10.00
og 12.00
með
stundaskrár.
Upplýsingar og skráning í inntökupróf í síma 889188 mánudaginn 29. og þriðjudaginn 30. ágúst milli kl. 16.00 og 19.00,
Kennsla hefst þriðjudaginn 6. september.
Bollagarðar - Seltjarnarnesi
Vorum að fá í sölu gullfallegt 170 fm raðhús á tveimur hæðum
auk 30 fm bílskúrs. Neðri hæð: Anddyri, þvottahús, gestasnyrt-
ing, eldhús, stofa og borðstofa. Efri hæð: 3 svefnherb., sjón-
varpsherb. og baðherb.
í risi er 1 svefnherb. og vinnuherb. Eignin er fullbúin, í góðu
ástandi og getur verið laus fljótlega.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Fasteignasalan Framtíðin hf.,
Austurstræti 18, sími 62 24 24.
Arnarsmári - Kópavogi
Frábær staðsetning og útsýni
Glæsilegar 3ja og 4ra herbergja íbúðir f litlu, fallegu
fjölbýli. Húsið nú þegar tilbúðið undir tréverk.
Góð greiðslukjör.
Afhendist fullbúið með gólfefnum, hús og lóð frágengin
að utan. Verð frá kr. 7.800.000,-. Byggingaraðili Kamb-
ur hf. Teikn. og nánari uppl. á skrifstofu.
Hraunhamar, fasteignasala,
Bæjarhrauni 22, Hafnarfirði, sími 654511.
EIGNAMIÐLUNIN %
Sími 88 • 90 • 90 - Fax 88 • 90 • 95 - Síðumúla 21
Dalsel 12, „Penthouse11 - opið hús.
Mjög falleg 4ra-5 herb. íb. um 120 fm ásamt stæði í
bílageymslu. Parket. Útsýni. Áhv. ca 3,3 millj. Verðið
kemur á óvart eða aðeins 7,7 millj. eða tilboð. íb. er
laus og verðurtil sýnis milli kl. 14 og 17 í dag, sunnudag.
Meistaravellir - opið hús. Við Meistara-
velli 13 er til sýnis og sölu mjög falleg um 60 fm kjíb.
Sérinng. Verð aðeins 4,4 millj. Ásta Hrönn sýnir íb. í
dag, sunnudag, milli kl. 14 og 16.
Kársnesbraut 51,2. hæð - opið
hús. 3ja herb. mjög falleg íb. á 2. hæð í 5-íb. húsi.
íb. hefur verið mikið endurn. m.a. öll gólfefni o.fl. Laus
strax. Opið hús frá kl. 14-16 f dag, sunnudag. 3780
Eskihlíð. Vorum að fá í sölu rúmg. og fallega 123
fm endaíb. á 1. hæð. 2 saml. stofur, 4 herb. Ný gólf-
efni að hluta. Nýtt baðherb. og nýtt rafm. Laus 1. okt.
nk. Verð 8,9 millj. 3958.
ÚTSALA10-60% AFSLATTUR
• Barnaúlpur - verð kr. 3.490 (áiur kr. 6.490)
• Fullorðinsdúnúlpur - veri kr. 4.990 (átur kr. 10.750)
• Barnafþréttagallar - veri frá kr. 2.990 _ _ ^^1 vðv
• Fulloriinsíþráttagallar - veri frá kr. 3.990 Æw lÍ w
• Regnfatnaiur, (þráttaskár, bolir á mjig góia verii cpnRTBÚÐIN
Opið laugardag kl. 10-16. Ármúla 40 ■ Sími 813555 og 813655