Morgunblaðið - 15.09.1994, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra
Húsbréfin ganga
ekki til þurrðar
FRIÐRIK Sophusson, fjármálaráð-
herra, segir enga ástæðu til að
óttast að húsbréf gangi til þurrð-
ar. Nú sé búið að gefa út þá flokka
húsbréfa á þessu ári sem lög heim-
ili, en þurfi að gefa út fleiri áður
en þing komi saman verði það
gert með ákvæði í lánsfjáraukalög-
um.
Engin beiðni um útgáfu
Af 11,5 milljörðum sem Hús-
næðisstofnun hefur heimild fyrir á
árinu til að lána í húsbréfakerfinu
eru nú eftir um 1,3 milljarðar og
er reiknað með að búið verði að
ráðstafa því fé innan eins mánað-
ar. Húsnæðisstofnun telur þörf á
2-3 milljörðum króna til viðbótar,
en að meðaltali eru afgreidd hús-
bréfalán fyrir um einn milljarð á
mánuði.
„Það hefur ekki borist nein
beiðni til fjármálaráðuneytisins um
útgáfu nýrra flokka húsbréfa,"
sagði Friðrik Sophusson. „Það mun
vera beðið eftir að húsnæðisstjórn
afgreiði breytt greiðslúmat og
hugsanleg útgáfa nýrra flokka
húsbréfa verður rædd að því loknu.
Það er hins vegar engin ástæða
fyrir fólk að óttast að engin hús-
bréf verði afgreidd síðustu mánuði
ársins. Búið er að gefa út þá flokka
sem lög heimila á þessu ári, en sé
ný útgáfa nauðsynleg áður en þing
kemur saman verður útgáfan stað-
fest í lánsfjáraukalögum.“
Morgunblaðið/Þorkell
HALLDÓRA Þorvarðardóttir húsvörður virðir fyrir sér afleið-
ingar þeirra skemmdarverka sem unnin voru.
Kosningar í framkvæmdastjórn Alþjóðaþingmannasambandsins
Geir H. Haarde fram-
Skemmdar-
verk unnin
á skeiðvelli
bjóðandi í stjómina
ALLAR líkur eru á að Geir H. Haarde alþingismaður verði kjörinn í
ellefu manna framkvæmdastjóm Alþjóðaþingmannasambandsins, Inter-
Parliamentary Union (IPU), sem fulltrúi vestrænna lýðræðisríkja næst-
komandi laugardag, en þing sambandsins stendur nú yfir í Kaupmanna-
höfn. í alþjóðaþingmannasambandinu eiga sæti fulltrúar um 130 þjóð-
þinga og er það elsti alþjóðlegi samstarfsvettvangur á sviði stjórnmála
sem starfandi er. Yrði það í fyrsta sinn sem íslendingur tæki sæti í
stjórn samtakanna.
Geir hefur verið formaður svo-
kallaðs Vesturlandahóps innan IPU
undanfarin tvö ár, en í honum eru
öll lýðræðisríki Evrópu ásamt Ástr-
alíu, Nýja-Sjálandi, Bandaríkjunum
og Kanada. Geir hefur ákveðið að
gefa ekki kost á sér til endurkjörs
í Vesturlandahópnum og hefur fall-
ist á að vera framþjóðandi vest-
rænna ríkja í kosningunum til fram-
kvæmdastjórnar en þar losnar staða
sem Vesturlönd hafa skipað og er
talið ósennilegt að mótframboð
komi fram.
Nýtur mikils álits fyrir
störf sín
Að sögn Margrétar Frímanns-
dóttur, alþingismanns, sem situr
þingið, virðist Geir hafa einróma
stuðning þingfulltrúa í kosningun-
um til framkvæmdastjórnarinnar,
sem er valdamesta stofnun sam-
bandsins. Margrét sagði áberandi
að Geir nyti mikils álits og trausts
innan sambandsins og þætti hafa
staðið sig mjög vel. Sagði hún að
það væri sérstaklega ánægjulegt
að fylgjast með hvað ísland nyti
mikillar virðingar vegna starfa
Geirs á vegum Alþjóðaþingmanna-
sambandsins og sagði hún að marg-
ir, einkum fulltrúar Norðurland-
anna, hefðu einnig hvatt Geir að
gegna áfram formennsku í Vestur-
landahópnum.
Geir sagði í samtali við Morgun-
blaðið að kjörtímabil fulltrúa í
framkvæmdastjórninni væri fjögur
ár. Framkvæmdastjórnin tæki m.a.
ýmsar ákvarðanir um störf og
stefnu sambandsins, en það lætur
sig varða öll helstu heimsmálefni
á hverjum tíma, m.a. alþjóðleg
deilumál, mannréttindamál og
framþróun lýðræðis í heiminum.
Fulltrúar 115 ríkja sitja þingið í
Kaupmannahöfn. Á laugardag
verður einnig kosinn nýr forseti
sambandsins.
RANNSÓKNARDEILD lögreglunn-
ar í Hafnarfirði hafði í gær uppi á
japönskum fólksbíl sem notaður var
til að vinna skemmdarverk á hesta-
gerði og girðingum umhverfis hring-
völl og skeiðbraut hestamannafé-
lagsins Sörla í bænum í fyrrinótt.
Völlurinn er í útjaðri bæjarins og
gat tjónvaldurinn athafnað sig óá-
reittur í skjóli nætur, en hann ók
bifreiðinni fram og aftur þrisvar í
gegnum gerðið og í gegnum girðing-
una. Að sögn Gissurar Guðmunds-
son, rannsóknarlögreglumanns, voru
„nokkur hundruð metrar af timbri
keyrð í spað“. Auk girðinga voru
tré- og plaststaurar brotnir. Bíll
ökumannsins fannst í gærmorgun
við Klukkuberg í Hafnarfirði og er
bifreiðin gjörsamlega ónýt, að sögn
Gissurar. Bifreiðin skipti nýlega um
eigendur og er enn skráð á nafn
fyrri eiganda sem mun hvergi hafa
komið nærri skemmdarverkunum.
Gissur segir ekki hægt að finna
neina skýringu á þessu athæfi. Ný-
búið var að setja upp girðinguna
umhverfis skeiðbrautina og er tjónið
talsvert.
Leit enn
árang-
urslaus
LEIT að ítalska
ferðamanninum
sem talið er að hafi
fallið í Gullfoss
hófst að nýju í birt-
ingu í gærmorgun
en hefur enn ekki
borið árangur.
Ámundi Kristj-
ánsson í leitarstjórn
björgunarsveita í
Árnessýslu segir
ekki líklegt að mað-
urinn hafi borist mjög langt niður
Hvíta, hafi hann fallið í Gullfoss,
meiri líkur séu taldar á að hann
gæti verið í gljúfrunum nærri fossin-
um. Ekki sé fært að kafa á því svæði
vegna iðukasta og sterkra strauma.
Ferðamaðurinn ítalski heitir Gius-
eppe Mirto, fæddur 31. janúar 1965.
Hann starfaði á ítölsku skrifstofu
Alþjóðlegra ungmennaskipta í Róm
og var hérlendis á vegum alþjóða-
samtaka þeirra sem einn þriggja
dagskrárstjóra ráðstefnu um mann-
réttindi í Evrópu. Mirto hafði komið
hingað til lands áður en aldrei ferð-
ast út fyrir höfuðborgarsvæðið, en
ferðin til Gullfoss var einn liður ráð-
stefnuhaldsins.
----♦ ♦.♦---
Fyrirtæki
styrkja
þátttöku
Kristjáns
ÓPERAN Vald örlaganna eftir Giué-
seppe Verdi verður frumsýnd í Þjóð-
leikhúsinu á laugardagskvöldið og
er þetta frumflutningur óperunnar á
íslandi.
í einu aðalhlutverkanna er Krist-
ján Jóhannsson og hafa eftirfarandi
aðilar tekið að sér að styrkja þátt-
töku hans í óperunni: íslandsbanki,
Landsbanki íslands, Búnaðarbanki
íslands, Samband íslenskra spari-
sjóða, Seðlabanki íslands, Sjóvá-
Álmennar, Olíufélagið hf., Essó og
Eimskip.
Tengibygging fjarlægð í tillögu hönnuða að endurbyggingu Aðalstrætis 2 og Vesturgötu 1
Útlit Geysis-
húss miðað
við árið 1890
í TILLÖGU hönnuða að endurbygg-
ingu Geysishúss við Aðalstræti 2
og Vesturgötu 1, er gert ráð fyrir
að núverandi tengibygging verði
fjarlægð. í stað hennar verði reist
tveggja hæða bygging úr gleri er
tengi húsin saman. Að sögn Ólafs
Jenssonar, forstöðumanns Geysis-
húss og starfsmanns vinnuhóps um
Ingólfstorg, Grófartorg og Geysis-
hús, er hugmyndin að húsin verði
að útliti eins og þau voru árið 1890.
Áætlaður kostnaður er rúmar 227,7
milljónir.
„Þetta er hugmynd enn sem kom-
ið er og engar ákvarðanir hafa ver-
ið teknar," sagði Ólafur. „Með því
að rífa núverandi tengibyggingu
minnkar Geysishús töluvert en
byggingin er í raun gamalt port á
milli Aðalstrætis 2 og Vesturgötu
1, sem byggt hefur verið yfir í
áföngum. Húsinu var síðast breytt
árið 1977 eftir að kviknað hafði í
því en þá var lokið við núverandi
tengibyggingu og um leið var opnað
á milli húsanna."
Það er teiknistofa Manfreðs Vil-
hjálmssonar arkitekts sem lagt hef-
ur drög að forsögn breytinganna.
Þar segir meðal annars að augljóst
þyki að sú umfangsmikla starfsemi
sem þar fari fram fái ekki þrifist
nema til komi tengibygging eins
og forsögnin geri ráð fyrir.
Aðalstræti 2
Fram kemur að á fyrstu hæð í
Aðalstræti 2 er gert ráð fyrir upp-
lýsingamiðstöð ferðamála og upp-
lýsingaþjónustu fyrir borgarbúa. Á
2. hæð er skrifstofa starfsmanna
Geysishúsin í Reykjavík (útlit húsanna erfrá 1890)
Aðalstræti 2 Vesturgata 1
VESTURGATA (Horft til suðurs)
GÖTUMYND af Geysishúsi við Aðalstræti 2 og Vesturgötu 1, að lokinni endurbyggingu samkvænit
hugmyndum hönnuða. Tillagan hefur verið kynnt í borgarráði.
og í risi er fundarsalur fyrir 16 til
18 manns, kaffiaðstaða og snyrt-
ing. Áætlaður kostnaður við fram-
kvæmdina er um 45,2 millj.
Tengibygging
Tengibyggingin er 160 fermetrar
og er hugsuð sem upphituð gler-
bygging úr hefðbundnu gagnsæju
gleri með fullkomnu loftræstikerfi.
I forsögn segir að þar megi hugsa
sér aðstöðu fyrir minniháttar uppá-
komur, tengdar Ingólfstorgi. Bygg-
ingin ætti þó fyrst og fremst að
vera tengiliður milli Upplýsinga-
miðstöðvar ferðamála og kynning-
ar- og fræðslustarfs sem lagt er til
að verði í húsinu við Vesturgötu.
Er það skoðun hönnuða að til þess
að húsin njóti sín sem best skuli
þau vera laus við lokaðar viðbygg-
ingar. Áætlaður kostnaður er rúm-
lega 57,6 millj.
Vesturgata 1
í kjallara Vesturgötu 1 er gert
ráð fyrir snyrtingum og ræstiklef-
um, geymslum, tæknirými og bún-
ingsaðstöðu. Á 1. hæð er 250 fer-
metra kynningar- og fræðslusalur
fyrir kynningar á vegum borgarinn-
ar, stofnana hennar og ýmissa fé-
lagasamtaka. Á 2. hæð er 250 fer-
metra salur sem hugsanlegt væri
að nýta undir hluta fyrirhugaðs
Borgarbókasafns í Aðalstræti 6.
Til dæmis tónlistar- og eða mynd-
bandadeild með aðstöðu til að hlusta
eða tímarita- og blaðadeild með les-
aðstöðu. Þá gæti salurinn nýst til
bókmenntakynninga, upplesturs og
leshringa. Á sömu hæð er einnig
aðstaða fyrir starfsfólk og fyrir
sýningar á myndböndum. Á 3. hæð
er 150 fermetra salur fyrir stærri
fundi, fyrirlestra og fræðslu um
land og þjóð. Áætlaður kostnaður
er rúmar 124,7 millj.