Morgunblaðið - 15.09.1994, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.09.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994 19 _______________LISTiR Guðrún Gunnarsdóttir í Umbru GUÐRÚN Gunnarsdóttir opnar sína 9. einkasýningu í Gallerí Úmbru, Bernhöftstorfunni í dag, fimmtu- dag. Á sýningunni verða þráðverk unnin úr vír og gúmmíi. Guðrún dvaldi á norrænu vinnu- stofunni í Bergen fyrri hluta árs 1994, en hún hlaut 6 mánaða starfslaun myndlistarmanna á þessu ári. Þar vann hún úr hug- myndum tengdum möguleikum þráðarins og er sýningin í Úmbru að hluta til afrakstur þeirrar vinnu. Guðrún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis og hefur jafnhliða starfað við textíl- hönnun. Hún hefur verið valin sem einn af þremur fulltrúum íslands til þátttöku í 7. norræna textílþríær- SÝNINGU á verkum eftir danska myndhöggvarann Susanne Christ- ensen, sem staðið hefur yfir í Gall- erí Sævars Karls frá 26. ágúst sl. lýkur í dag fimmtudag. Verkin á sýningunni eru flest unnin í íslenskan stein, en nokkur eru úr kalksteini frá grísku eyjunni EITT verka Guðrúnar í Gall- erí Úmbru. ingnum sem er norræn farandsýn- ing og hefst í Finnlandi á næsta ári. Sýningin stendur til 5. október. Krít, þar sem hún bjó og stundaði höggmyndagerð ásamt eiginmanni sínum Einari Má Guðvarðarsyni myndhöggvara. íslenski steinninn sem Susanne notar í verkin á þess- ari sýningu er rauður sandsteinn og móberg. Ný tímarit ■ Hausthefti Tímarits Máls og menningar (3. 1994) er komið út. Meginstef tímaritsins er að þessu sinni svonefnd „gróteska" í bók- menntum. Fjallað er um tvö verk út frá þessum sjónarhóli, skáldsög- una Önnu eftir Guðberg Bergsson og leikritið Gandreiðina eftir Bene- dikt Sveinbjarnarson Gröndal. Árni Sigurjónsson birtir grein um Níels skáld og leiðir að því líkur að Níels hafi verið fyrsti íslenski bókmennta- fræðingurinn. Kvikmyndun Sölku Völku er viðfangsefni greinar eftir írskan kennara og fræðimann, Neil Mc Mahon, sem búsettur er hér á landi. Loks má nefna grein um Hringadróttinssögu Tolkiens og tengls hennar við norrænar bók- menntir. Að þessu sinni frumbirta ljóð þeir Hannes Sigfússon, Böðvar Guðmundsson og Haraldur Jónsson, auk þess sem birt er eitt ljóð eftir skáld frá Chile, Ariel Dorfmanh, í þýðingu Sigurðar A. Magnússonar. Fjórar smásögur eru í þessu hefti TMM, þijár eftir íslenska, þá Bjama Bjarnason, Stefán Steinsson og ísak Harðarson og ein eftir Banda- ríkjamanninn Charles Bukowski. Verk á forsíðu er eftir Hönnu Styrmisdóttur. TMM er 120 bls., unnið í Prentsmiðjunni Odda hf. TMM kemur út fjórum sinnum á ári og kostar ársáskrift 3.300 krón- ur. Blab allra landsmanna! ptorgtmblabib - kjami málsins! Gallerí Sævars Karls Sýningu Susanne Christ- ensen að ljúka Skyrtur, peysur, bolir og jakkar. Einstakt tækifæri. SSsUTiUFfmS ~ CLJOESfBÆ • SÍMI 812922 Mercedes-Benz í 40 ár á íslandi Verið velkomin á sýningu í tilefni afmælisins laugardag 17.9. eða sunnudag 18.9. Opið kl. 12.00 - 16.00. Mercedes-Benz

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.