Morgunblaðið - 15.09.1994, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.09.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994 21 LISTIR Parker og Strayhorn í stórsveitarflutningi TONLIST Ráöhús Reykjavíkur STÓRSVEIT REYKJA- VÍKUR Stórsveit Reykjavíkur flutti þekkta stórsveitartónlist á RúRek-djasshá- tíðinni. 10. september 1994. STORSVEIT Reykjavíkur hefur um árabil starfað undir styrkri stjórn Sæbjörns Jónssonar en að þessu sinni naut sveitin einnig krafta bandaríska stórsveitar- trommarans Bobs Grauso sem lék á trommurnar í þremur lögum. Sveitin hóf leik sinn á Take The „A“ Train hljómsveit Duke Elling- ton gerði vinsælt en félagi hans og útsetjari, Billy Strayhorn samdi. Sagt er að þótt Strayhorn hefði ekki gert annað en að semja Lush Life og Take The „A“ Train hefði hans samt vérið minnst um ókomna tíð í djasssögunni. Stórsveitin fór vel með lagið og sérstaklega voru saxófóna- og trompetadeildirnar drifmiklar. Veigar Margeirsson trompetleikari sem hefur undanfar- ið verið við frekara trompetnám í Bandaríkjunum blés glæsilega sólóa. Hann er kraftmikill og tekn- ískur og spilar nógu sterkt til að sólóið lifir sjálfstæðu lífi frá sveit- inni. Sama verður ekki sagt um Árna Elfar sem er rútíneraðasti básúnuleikari landsins en hans sóló heyrðist varla út í pakkfullan sal- inn, en ef til vill má kenna hljóm- burðinum eitthvað um það. Næst var skipt yfir í Parker ár- gerð 1947, Scrapple From the Apple, hraðar bíbopplínur og ágæt sóló hjá Veigari og Stefáni S. Stef- ánssyni, hryndeildin þétt með Einar Nýjar smásögur Upplestur í Norræna húsinu BÓKMENNTAUPPLESTUR undir yfirskriftinni Nýjar smásögur verð- ur í Norræna húsinu sunnudaginn 18. september og hefst hann kl. 16. Að framtak- inu stendur óformlegur fé- lagsskapur sem hefur að markmiði að auka veg og vanda smá- sagnagerðar á íslandi og koma á fram- færi smásögum eftir þekkta jafnt sem óþekkta höf- unda, segir í fréttatilkynningu. Eftirtaldir höfundar lesa upp úr verkum sínum: Ágúst Borgþór Sverrisson, Kristín Ómarsdóttir, Þórarinn Torfason, Stefanía Þor- grímsdóttir, Bjarni Bjarnason og Sigfús Bjartmarsson les eigin þýð- ingu á smásögu eftir bandaríska rithöfundinn Raymond Carver. Kynnir er Kristján Franklín Magn- ús. Aðgangseyrir er 300 krónur. Ágúst Borgþór Sverrisson Val Scheving, stórsveitartrommara af nýja skólanum í aðalhlutverki, hæfilega dempaðan en þó með sterkan púls. Opus One eftir Sy Oliver, aðalútsetjara Jimmy Lunce- ford stórsveitarinnar, svíngaði í meðförum Stórsveitar Reykjavíkur. Bob Grauso tók sæti Einars Vals í Shoehorn Shuffle og Sæbjörn bættist í trompetseksjónina. Grauso er stórsveitartrommari af gamla skólanum með mikinn slagkraft og simbalaslátt. Stórsveitin er ef til vill óvön svona ekta stórsveitart- rommara, altént riðlaðist leikur hennar og sóló urðu enn ógreini- legri. Þrátt fyrir það sá Stórsveit Reykjavikur fyrir prýðis skemmtun og góðu innleggi í RúRek ’94. Guðjón Guðmundsson. Morgunblaðið/Jón Svavarsson BLÁSTURSDEILDIR Stórsveitar Reykjavíkur á útopnu í Ráðhúsinu. Orka 113 kcal* Orka 473 kj* Ríbóflavín 27% (RDS) Prótín 4 g* Jám 58% (RDS) Kolvetni 21,4 g* Fita 2,1 g: Natríum 314 mg* Kalíum 105 mg: A-vítamín 38% (RDS) Píamín 27% (RDS) Níasfn 27% (RDS) Kalsíum 5% (RDS) D-vítamín 10% (RDS) B6-vítamín 25% (RDS) C-vítamín 25% (RDS) Fólínsýra 25% (RDS) Cheerios FÆÐUHRINGURINN Það er samhengi á milli mataræðis og heilsu. Heilsan er dýrmæt og þess vegna er ætíð skynsamlegt að huga að samsetningu fæðunnar sem við neytum. Cheerios er ríkt af hollustuefnum og inniheldur sáralítið af sykri og fitu. í hverjum Cheerios „fæðuhring“ er að finna bragð af góðum, trefjaríkum og hollum mat; fyrir fólk á öllum aldri. 1víaður Kaettir Irekkioðborða^'"— * 1 skammtur eöa 30 g. RDS: Ráðlagður dagskammtur. Cheerios - einfaldlega hollt! YDDAF45.13/SfA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.