Morgunblaðið - 15.09.1994, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 15.09.1994, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994 35 + Kjartan A. Kristjánsson fæddist í Reykjavík 19. apríl 1912. Hann lést á Hrafnistu 7. september síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Kristján Kjart- ansson, f. 5. maí 1881, d. 5. mars 1964, frá Efrihús- um í Önundarfirði, skipstjóri og út- vegsbóndi, og Þóra Björnsdóttir, f. 13. júní 1885, d. 25. desember 1948, frá Þormóðsstöðum í Reykjavík. Þau voru ávallt kennd við Björnshús á Grímsstaðarholti. Þeim varð tíu barna auðið, en þrjú þeirra dóu í æsku. Upp komust Magnús, f. 1. júní 1909, d. 17. júní 1992, Björn, f. 10. mars 1916, d. 5. janúar 1948, Sveinn, f. 19. júní 1921, d. 9. júní 1975, Kristján, f. 14. mars 1923, d. 19. apríl 1984, Bjóla, f. 20. júní 1925, d. 21. apríl 1993, og Finnborg, f. 9. júní 1928. Kjartan vann við bústörf og sjó- mennsku með föður sínum til ársins 1938,' en síðan stundaði hann leigubílaakstur fram til FUNDUM okkar Kjartans bar fyrst saman fyrir rúmum tveimur áratug- um við stofnun venzlabanda fjöl- skyldna okkar. Það, sem einkum vakti athygli mína þá, var hversu sjálfstæður Kjartan var í skoðunum sínum. Þær voru auðheyrilega myndaðar í hans eigin huga, en ekki fengnar að láni. Ég held að þessi hugsanaháttur hans hafi leitt hann inn á brautir þær, sem hann gat sem bezt ráðið sjálfur verklagi sínu og vinnutíma. Segja má að alla ævina hafi hann verið í eigin at- vinnu og ekki sótzt eftir öðru. Kjart- an ólst upp við Sketjafjörð, í Skild- inganesi og í Bjömshúsi á Gríms- staðaholtinu. Heimilið var mann- margt. Systkinin voru sjö er náðu fullorðins aldri. Sjór var sóttur og stórt kúabú var rekið um árabil. Grasnytjar voru ekki nægar heima við, svo Þerney var tekin á leigu til að afla heyja. Mikið erfiði fylgdi þessum nytjum. Mjólkin var svo flutt á hestvögnum eða sleðum að vetrar- lagi til hvers og eins neytanda í Reykjavík. Á unglingsárunum ann- aðist Kjartan gjarnan þessa flutn- inga, og hafði hann orð á við mig að oft hafi gripið sig ótti, er hann þurfti að bijótast áfram með steða- hestinn í myrkri og hryðjum á leið þeirra í bæinn. Kjartan vann við búskap og sjó- mennsku með föður sínum til tutt- ugu og sex ára aldurs eða til ársins 1938. Bezt líkaði honum við útræð- ið, sem stundað var vor og sumar. Sama ár hófst aðalævistarf Kjart- ans, sem var bifreiðaakstur, einkum akstur fólksbifreiða er hann sjálfur átti. Starf þetta stundaði hann ná- kvæmlega í hálfa öld. Aldrei mun honum hafa hlekkst á í starfi, þ.e. aldrei valdið farþegum miska né tjóni á bifreið þeirri, er hann stýrði. Á unglingsárum sínum stundaði Kjartan um hríð nám í Flensborgar- skóla. Árið 1929 kom að skólanum 25 ára maður, sem sama ár hafði lokið íþróttakennaraprófi í Kaup- mannahöfn. Þetta var Halisteinn Hinriksson, sem síðar átti eftir að koma mjög við sögu íþrótta- og menningarmála hér á landi. Sagt hefur verið að Hallsteinn hafi flutt handknattleikinn með sér til Islands. Kjartan hreifst strax bæði af manninum og þessari íþrótt, sem hann tók að stunda af kappi. Síðan urðu íþróttir, einkum handbolti og knattspyrna, hans áhugamál og ánægjuefni alla tíð. Þau hjón, Þóra og Kjartan, voru Vesturbæingar í húð og hár. Bjuggu alltaf „vestast í vesturbænum". Fyr- ir tæplega þremur áratugum reistu þau sér myndarlegt hús við Frosta- ársins 1988 eða til 76 ára aldurs. Eftirlif- andi kona Kjartans er Þóra Þórðardóttir, f. 7. janúar 1917, frá Miðhrauni á Snæfells- nesi. Þau giftu sig 7. júní 1941 og bjuggu í Reykjavík alla tíð. Eignuðust þau tvo syni, Kristján Arn- finn, f. 12. janúar 1944, og Ingþór, f. 20. maí 1950. Krislján er kvæntur Hrafnhildi Guðmundsdóttur, f. 11. sept. 1947, og eigá þau tvö börn, Guðmund Leif, f. 19. nóvember 1969, unnusta hans er Sólveig Einarsdóttir, f. 9. ágúst 1972, og eiga þau tvö börn, Einar Kára, f. 21. nóvem- ber 1992, og Þórhildi, f. 11. september 1972, gift Kristjáni Guðmundssyni, f. 16. október 1969. Áður átti Krislján Sigurð, f. 12. september 1966. Ingþór er kvæntur Elísabetu Guðnýju Árnadóttur, f. 7. júlí 1950, og eiga þau tvo syni, Kjartan Þór, f. 6. desember 1982, og Árna Gunnar, f. 11. maí 1984. Útför Kjartans fer fram frá Neskirkju í dag. skjól innan steinsnars frá KR-heim- ilinu. Hér gafst því gullið tækifæri til að glæða íþróttaáhugann, enda varð Kjartan þar tíður gestur. Hjónaband Kjartans varð honum til mestrar gleði í lífínu, enda hjónin samheldin og ríkti ástríki og virðing þeirra á millum. Fleira varð honum til yndisauka. Honum þótti vænt um æskustöðvar sínar við Skeijafjörð, sundin og holtið, þar sem hann lék sér í bollum og lautum við álfabörn og huldufólk, sem hann sá með barnsaugum sínum og dró ekki til- vist þeirra í efa. Þá var Reykjanes- skaginn framlenging á þessum un- aðsvangi og þangað brá hann sér oft með fjöskylduna á góðviðrisdög- um og ekki sízt er barnabörnin bættust í hópinn. Minningarnar urðu ljóslifandi af vörum hans því hann sagði vel frá. Grímur Thomsen kvað svo: „Aldr- ei deyr, þótt allt um þrotni/ endur- minning þess, sem var.“ Sjálfsagt hefir Kjartan reynt sannleiksgildi þessara orða. Og vin- ir hans og kunningjar munu rifja þau upp fyrir sér er þeir minnast góðs og gengins drengs. Árni Finnbjörnsson. Afi Kjartan var alltaf góður við okkur bræðurna. Hann gaf okkur tjóma ef hann átti hann til. Hann fór með mig á leikvöllinn og leyfði mér að fá fótbolta til þess að kasta í körfuna í Vesturbænum. Hann fór líka með okkur í KR- heimilið til þess að gefa okkur bræðr- unum sælgæti hjá Þrándi vini okkar. Þegar ég var lítill „steig hann oft við stokkinn," sem var leikur. Ég á eftir að sakna afa, sem dó fyrir tveimur dögum. Síðustu árin var afí mikið veikur eftir hjarta- MINNINGAR áfall. Þegar ég fór að kveðja afa, gat hann veifað til mín og þykir mér vænt um það. Kjartan Þór. Þegar við minnumst elskulegs afa okkar, Kjartans Kristjánssonar, er okkur efst í huga hversu umhyggju- sámur og góður hann var við okk- ur. Við bjuggum um tíma hjá honum og ömmu okkar Þóru Þórðardóttur, meðan foreldrar okkar voru að byggja hús. Hann kom þá alltaf á kvöldin og breiddi vel yfir okkur. Afí var yfirleitt alvörugefinn maður, en gat oft slegið á létta strengi og tók þátt í leikjum okkar. Jólin heima hjá afa og ömmu eru okkur minnis- stæðust, pakkarnir voru alltaf stórir frá þeim, og hvað afa tókst að halda spennunni lengi við að útbýta jóla- gjöfum, og hélst sá siður fram á síðustu ár. Á seinni árum áttum við góðar stundir saman við kartöflu-upptöku, og var hann mjög ötull, en hélt líka upp miklu glensi og gríni. Þegar íjölskyldan sameinaðist undir sama þaki fyrir tæpum þrem- ur árum, og skammtímaminnið hjá honum var orðið gloppótt, gerði hann mörg meinlaus prakkarastrik, sem allir gátu brosað að eftir á. Nú er komið að leiðarlokum, og því viljum við þakka afa okkar allan þann velvilja, umhyggju, og allar góðu stundirnar, sem við áttum saman. Blessuð sé minning Kjartans A. Kristjánssonar. Þórhildur og Guðmundur. Eins og hafaldan fellur upp við fjörunnar sand ein og ein þá gildir það sama um jarðlífið, vinirnir kveðja einn og einn. Nú er einn af mínum gömlu kunningjum af Grímsstaðaholtinu, Kjartan A. Kristjánsson, farinn yfir móðuna miklu. Þar sem Kjartan heitinn var mun eldri maður en ég þá vorum við ekki beint æskufélagar í þeim skilningi séð, en í þau skipti sem ég hitti hann á liðnum árum þá varð ég þess var að hann hafði já- kvæða afstöðu gagnvart mér og það er einmitt það sem máli skiptir. Hinar neikvæðu persónur eru út- blásnar af yfirborðskennd og falskri persónudýrkun og eiga það jafnvel til að taka vissa einstaklinga fyrir og sýna þeim fyrirlitningu. Það er leiðinleg staðreynd að þessar ómerkilegu persónur má finna innan hinna kristilegu safnaða. Hvar er trúin og hveiju á að trúa? Kjartan hafði ekki þennan hugræna ókost, en vissulega ef eitthvað er gert á hlut annarra þá verður að bregðast gegn því, annars getur verr farið. Hvað ævistarfi Kjartans heitins viðkemur þá var hann lengst af bíl- stjóri, sennilega fyrst hjá Gasstöð- inni og síðan á bifreiðastöðvunum Heklu og Geysi. Eftir það keyrði hann hjá Bifreiðastöð Hreyfils þang- að til hann gerðist einn af stofnfé- lögum Borgarbílastöðvarinnar og þar mun hann hafa endað sinn síð- asta vinnudag. Ég sé ekki ástæðu til þess að bæta meiru við þessi fáu kveðjuorð og vil enda með því að votta eftirlif- andi konu hans og öðru af hans nánasta skyldfólki mína hluttekn- ingu. Blessuð veri minning Kjartans A. Kristjánssonar. Þorgeir Kr. Magnússon. t Ástkær eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTA HJARTARDÓTTIR Laugarnesvegi 84, Reykjavík, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju föstudaginn 16. september kl. 13.30. Haraldur Steingrímsson, Jóna Ólafsdóttir, Þorvaldur Kristjánsson, Ástrfður Haraldsdóttir, Árni Kristjánsson, Steingrímur Haraldsson, Þóra Pétursdóttir, Arnar, Ásta, Kristín, Anna María, Haraldur, Sandra og Helena. KJARTAN A. KRISTJÁNSSON ÁSTA KRISTÍN DA VÍÐSDÓTTIR + Ásta Kristín Davíðsdóttir fæddist 1. september 1912 að Litlu-Þúfu í Miklaholts- hreppi. Hún lést 11. ágúst síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Kópavogskirkju 19. ágúst. ÞAÐ ríkti mikil tilhlökkun hjá krökkunum í húsinu nr. 12 við Ný- býlaveg vorið 1946. Undanfarna mánuði höfðu menn verið að byggja hús á lóðinni nr. 16 og innan skamms yrði húsið tilbúið. Þetta var fallegt hús með kjallara og risi. Mamma og pabbi voru búin að kynn- ast húsbóndanum á heimilinu, hon- um Pétri, sem var svo hress og skemmtilegur. Hann hafði oft litið inn hjá okkur meðan á húsbygging- unni stóð og hafði alltaf mikið að segja. „Hann er krati,“ sagði mamma og fannst heldur lítið leggj- ast fyrir svo ágætan mann. Aðrir heimilismenn voru okkur ókunnir. Hvernig skyldi konan hans Péturs vera? Hún hét svo róman- tísku nafni, Ásta, eins og peróna í sögu, en best af öllu var þó að þau Pétur áttu þrjár stelpur og tvær þeirra voru alveg eins. Það var líka svo rómantískt og spennandi að eiga tvíbura, engir aðrir sem við þekktum gátu státað af slíku. Ásta hlaut að vera alveg sérstök kona. Það var víst líka einn strákur í hópnum, en við stelpurnar vorum ekkert hrifnar af því, áttum fullt í fangi með okk- ar eina og strákar voru ekki efstir á vinsældalistanum á þessum árum. Einn góðan veðurdag var flutt í húsið og auðvitað fóru litlir, forvitn- ir nágrannar á stúfana að sjá nýja fólkið. Og þama var hún Ásta Krist- ín. Ég sé hana fyrir mér ennþá þar sem hún stendur í sólskini á tröpp- unum í nýja húsinu sínu. Stór kona, falleg kona, í rósóttum sumarkjól og brosir við okkur, feimnum og uppburðarlitlum telpukornum sem langar að sjá hana og kynnast telp- unum hennar. Og í hönd fóru mörg og góð ár þar sem Ásta var miðpunkturinn og sólargeislinn á nr. 16 ásamt Sig- rúnu ömmu sem bjó í risinu. Þær voru einráðar innan húss, mæðgur og vinkonur sem hjálpuðust að við hússtörfin og uppeldi barnanna. Á góðviðrisdögum klæddu * þær sig gjarnan upp á og fóru í bæinn, báð- ar svo „dömuiegar" og fínar þar sem þær ganga niður Nýbýlaveginn til að taka Hafnarijarðarstrætó niðri á Horni. Ásta í glæsilegri.sumarkápu með hatt í stíl og veski á handlegg. Sigrún á peysufötum, lítil kona, grönn og beinvaxin og létt á fæti eins og ung stúlka. Svona liðu árin. Við krakkarnir á báðum þessum heimilum urðum leikfélagar og vinir. Við elskuðum víðáttuna í Kópavogi og fundum sárlega til með veslings börnunum sem urðu að búa í Reykjavík. Hug- myndaflugið var í góðu lagi þegar þurfti að fínna upp á einhveiju skemmtilegu. En ekki var fullorðna fólkið þó ævinlega ánægt með gerð- ir okkar og stundum byrstu sig reið- ir feður þegar of langt þótti gengið. En Ásta tók öllum okkar uppátækj- um með jafnaðargeði. Aldrei sá ég hana skipta skapi, ekki einu sinni þegar við Jóna systir lékum drauga og höfðum næstum hrætt líftóruna úr tvíburunum._ Þá áttum við hirt- ingu skilið en Ásta fyrirgaf okkur. Hún skildi börn. Þannig var hún, umburðarlynd, hlý og góð. Eftir að Ásta flutti úr gamla húsinu sínu, þegar það varð að víkja fyrir „framförunum“ í Kópavogi, hitti ég hana sjaldan. En þá sjaldan það var, var eins og tíminn hefði staðið í stað. Ásta breyttist aldrei neitt. Nú er hún horfin, hún hefur kvatt okkur eins og gamli tíminn hefur kvatt okkur. Ásta var hluti af lífi mínu árum saman, eins og þær voru allar, mæður leiksystkina minna. Hún Var ein þeirra kvenna sem byggðu bæ í Kópavogi og lagði með vinnu sinni og eignum grunninn að Kópavogi nútímans. Hún setti sterkt svipmót á mannlíf frumbýl- ingsáranna í Kópavogi og verður minnisstæð öllum sem kynntust henni. En fyrst og fremst var hún góð kona. Hún var góð móðir, góð eiginkona, góð dóttir og góð ná- grannakona sem í engu brást því sem henni var trúað fyrir. Ég kveð hana með þakklæti fyrir allt og allt. Bömum hennar, barnabörnum og öðrum vandamönnum votta ég inni- lega samúð. Helga Sigurjónsdóttir. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föðursystur okkar, INGIBJARGAR HELGADÓTTUR frá Tungu. Fyrir hönd annarra vandamanna, Guðrún Árnadóttir, Gréta Árnadóttir. t Bestu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför JÓNS E. STEFÁNSSONAR smiðs, Hvoli, Dalvík. Sérstakar þakkir til bæjarstjórnar Dalvíkur og starfsfólks Dalbæjar. Elin Skarphéðinsdóttir, Gylfi Björnsson, Jón E. Gylfason, Sigríður Kristinsdóttir, María Sigurjónsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÞÓRÐARKÁRASONAR fyrrverandi lögregluvarðstjóra, Sundlaugavegi 28, Reykjavík. Sérstakar þakkir til Lögreglukórs Reykjavíkur. Elín Guðrún Gísladóttir, Vilborg Þórðardóttir, Sigurjón Torfason, Kári Þórðarson, Rósa V. Guðmundsdóttir, Gísli Þórmar Þórðarson, Ulla Juul Jörgensen, Elmar Þórðarson, Ólafía Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.