Morgunblaðið - 15.09.1994, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.09.1994, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Barry sigrar forkosn- ingar í Washington Hlaut dóm fyrir krakkneyslu í borgarstj óratí ð sinni Washington. Reuter. MARION Barry, fyrrum borgarstjóri í Washington, sigraði á þriðjudag í forkosningum demókrataflokksins í borginni og verð- ur því frambjóðandi hans til borgarstjóraembættisins. í nóvember nk. Barry hrökklaðist úr embætti vegna ásakana um krakk- neyslu og hlaut hann dóm fyrir hana fyrir fjórum árum. Hafa stjórnmálaskýrendur spáð því að sigur Barrys kunni að ýta und- ir flótta miðstéttarinnar, hvítra og svartra frá borginni til ná- lægra ríkja, Maryland og Virginíu. Er þá ekki síst vísað til eig- enda fyrirtækja, sem muni flytja starfsemi sína út úr borginni. Barry sigraði John Ray, sem á sæti á löggjafarsamkundu Wash- ington D.C. með 48% atkvæða gegn 37%. Sharon Pratt Kelly, núverandi borgarstjóri í Washing- ton hlaut 13% atkvæða. Allir fram- bjóðendurnir voru svartir en blökkumenn eru í miklum meiri- hluta í borginni. Reynt að koma í veg fyrir kjör Barrys Kjósendur úr miðstétt og hvítir fylktu sér um Ray til að koma í veg fyrir að Barry yrði kjörinn en þeir óttast að nái hann aftur emb- ætti, verði borgin höfð að háði og spotti. Gengu fjölmargir repúblik- anar í demókrataflokkinn til að tryggja framgang Rays. Stjórn- málaferill hans er talinn flekklaus en Ray að sama skapi án persónu- töfra. Barry naut hins vegar stuðnings blökkumanna úr fátækrahverfum Lögreglumaður færir Barry til yfirheyrslu árið 1990 er hann var handtekinn fyrir krakkneyslu. borgarinnar og skráðu þúsundir ungra blökkumanna sig í flokkinn til að styðja hann. Sharon Pratt Kelly, núverandi borgarstjóri, átti aldrei sigur- möguleika. Að sögn dagblaðsins Washington Post hefur hún ekki sýnt fram á það að hún búi yfir pólitískum hæfileikum sem þurfi til að koma á þeim umbótum sem hún hafi lofað. Barry læknaður Bandaríska alríkislögreglan handtók Barry í borgarstjóratíð hans en hann var staðinn að því að reykja krakk á hótelherbergi með vinkonu sinni. Hann hlaut dóm fyrir og neyddist til að láta af embætti. Barry segist nú hafa læknast af eiturlyþ'afíkn sinni og frelsast og að hann telji sig geta gert það sama fyrir borgina og fyrir sjálfan sig. Glæpir og fátækt eru alvarlegt vandamál í Washing- ton. Kosning ekki trygg í vígi demókrata Jafnan er talið tryggt að fram- bjóðandi demókrata sigri í borgar- stjórakosningum í Washington enda er borgin talin eitt af vígjum flokksins. Barry er þó ekki talinn öruggur um sigur vegna mögulegs framboðs óháðs frambjóðanda. Maharishi Mahesh Yogi, frumkvöðuli innhverfrar íhugunar. ^lnnhverf íhugun (TM-hugleiðsla) Niöurstööur 350 vísindarannsókna sem birst hafa í vísindatíma- ritum undanfarin 20 ár á áhrifum innhverfrar íhugunar (TM) á huglægt og líkamlegt atgervi iökenda sýna aö innhverf íhugun er áhrifaríkasta þroskaaöferð sem þekkt er. Innhverf íhugun er náttúruleg, einföld og auölærö hugleiðsluaðferð sem iökuð er 20 mín. kvölds og morgna. lökunin er áreynslulaus og krefst engra breytinga á trú, skoöunum eöa lífsstíl. Um fjórar milljónir manna af öllum trúarbrögðum og þjóöernum hafa lært tæknina. - Endurtekin reynsla af djúpri og endurnærandi hvíld losar líkamann viö djúpstæða streitu og þreytu. Langtímaáhrif þessarar daglegu endurnæringar eru m.a. afger- andi betri heilsa, skýrari hugsun, meiri lífsfylling, minni streita og kvíði og meiri árangur í daglegu lífi. Bandarísk athugun* á fjölda innlagna á sjúkrahús leiddi í Ijós aö iðkendur innhverfrar íhugunar dvöldu um 50% sjaldnar á sjúkrahúsum en þeir sem ekki iðkuðu tæknina. Þar af: 55% sjaldnar vegna góökynja og illkynja æxla 67% sjaldnar vegna liða- og beinasjúkdóma 87% sjaldnar vegna hjartasjúkdóma - Námskeiö í innhverfri íhugun byrja fimmtudaginn 15. sept. kl. 20.30 og laugard. 17. sept. kl. 14.00 meö kynningarfundi um tæknina. Námskeiö tekur 5 daga í beinu framhaldi, um 1 1/2 tíma í senn. -Helgarnámskeið verður haldiö helgina 31. sept.-2. okt. í Veiðihúsinu við Grímsá í Borgarfirði fyrir þá sem hafa lokið grunnnámskeiði í innhverfri íhugun. Þar verður boðið upp á djúpa hvíld og hagnýta þekkingu á heilsuvernd sem þú getur notað í daglegu lífi. Námskeiðsgjald er 9.500 kr. -Einstaklingar, fyrirtæki og félög sem vilja kynna sér ofangreind atriði nánar, geta pantað kynningarfundi sérstaklega. -Upprifjunarnámskeið fyrir alla sem hafa lært innhverfa íhugun verður haldið miðvikudagskvöldið 21. sept. kl. 19.30. Aðgangur ókeypis. Skráið þátttöku í síma 628485. TM-kennslu og þjónustumiðstöðin, Vitastíg 10 — íslenska íhugunarfélagið. Opið milli kl. 10 og 18 virka daga. 10—14 laugardaga. Sími 62 84 85. Geymið auglýsinguna. ‘Psychosomatic Medicine 1987 Reutpr MARION Barry fagnar sigri í forkosningum Demókrataflokksins. Veiðar Islendinga í Smugunni Bretar lýsa áhyggjum sínum Ósló. Morgunblaðið. RÍKISSTJÓRN Bretlands hefur áhyggjur af veiðum íslenskra skipa í Smugunni og styður sjónarmið Norðmanna í deilunni. Þetta kom fram er sjávarútvegsráðherrar land- anna tveggja funduðu í Lundúnum. Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegs- ráðherra Noregs, kom á þriðjudag í fögurra daga heimsókn tii Bretlands og átti m.a. fund með hinum breska starfsbróður sínum, Michael Jack. Gerði hann breska ráðherranum grein fyrir stöðu mála í Smugunni. „Bretum er ljós þróun mála í Barentshafi. Þeir gera sér grein fyr- ir að veiðar þær sem nú fara fram geta ekki einungis haft áhrif á kvóta Rússa og Norðmanna heldur einnig á kvóta þá sem Evrópusambandið fær. Bretarnir eru mjög ákveðið þeirrar skoðunar að þetta sé óviðun- andi ástand," sagði Jan Henry T. Olsen í samtali við norska dagblaðið Aftenposten eftir fundinn með Jack. „Norskir og íslenskir embættis- menn munu hittast að nýju eftir nokkrar vikur en það á eftir að koma í ijós hvort lausn fmnst á deilunni. Við höfum rætt við íslendinga í heilt ár og við erum tilbúnir til að taka margvísleg atriði til skoðunar í við- ræðum þessum. Við munum hins vegar ekki láta undan þrýstingi," sagði Olsen. Af hálfu Breta kom fram á fund- inum að þeir teldu stöðu mála í Smugunni flókna en þeir lýstu sig jafnframt reiðubúna til að leggja sitt af mörkum til að unnt reyndist að leysa deiluna. Norski sjávarútvegsráðherrann mun eiga fundi með sjómönnum og fulltrúum útgerðar bæði í Englandi og Skotlandi en heimsóknin er liður í undirbúningi fyrir hugsanlega aðild Norðmanna að Evrópusambandinu. Michelle al-Nasseri ræðir við fréttamenn. Feeney á síður Time í NÝJASTÁ hefti fréttatímarits- ins Time er rakið hvernig banda- ríkjamaðurinn Donald Feeney, sem sat í ár í fangelsi á Litla- Hrauni fyrir misheppnaða tiiraun til að nema dætur Ernu Eyjólfs- dóttur á brott, aðstoðaði við að ná barni frá frak. Það var Mich- elle al-Nasseri sem bað Feeney um aðstoð en íraskur eiginmaður hennar fór með tveggja ára son þeirra til írak. í samtali við Time segir Feeney það of auðvelt að yfirgefa Bandaríkin með börn. Leggur hann til að forráðamönn- um barna undir 10 ára aldri verði gert skylt að leggja fram sam- þykki beggja foreldra fyrir ferðalagi barnanna. „Víst er það óþolandi, en það sama átti einnig við um öryggiseftirlit á flugvöll- um er því var komið á,“ segir Feeney. Á síðasta ári sáu um 800 bandarískar mæður á eftir börnum sínum til heimalands feðra þeirra. Fyrrverandi eigininanni Michelle, Hait- ham al-Nasseri, Feeney tókst að flýja með því að taka 25.000 dala húsnæðislán, sem Michelle var ábyrg fyrir. Að ráð- um lögfræðings síns hefði hún samband við fyrirtæki Feeneys, Corporate Training Unlimited, CTU, þar sem hann hefði reynslu í því að ná börnum sem hefðu verið rænt. Segir í blaðinu að aðgerðir CTU hafi vakið mikla athygli og jafnan tekist, nema á íslandi þar sem Feeney hafi hlot,- ið dóm.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.