Morgunblaðið - 15.09.1994, Side 23
MORGiUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15, SEPTEM.BER 1994 23
AÐSEIMDAR GREIIMAR
Spilling af versta tagi
Enda á ég eða blaðamenn ekki neitt
með að krefja svo persónulegra upp-
lýsinga. Aðeins það að hún er ekki
í eigin húsnæði ætti þó að duga til
að setja spurningarmerki við enn
eina fullyrðingu blaðamanna.
SPILLING er sorg-
legt fyrirbæri hvar og
hvernig sem hún birtist,
— misnotkun á trausti,
valdi og ábyrgð. Sorg-
legastir eru þó þeir sem.
nota traust sitt til að
leggja einstaklinga í
einelti.
Hvað er það annað
en spillt hugarfar þegar
blaðamenn endurvarpa
fagnandi illkvittni,
slúðri og pólitísku fuss-
umsvei-i gagnrýnis-
laust? Hvar eru blaða-
menn staddir sem telja
það fullgilda afsökun
fyrir vinnubrögðum
sínum að ráðherra hafi einhvern tím-
ann verið „ókurteis" við þá?
Forsagan
Fyrir rúmum átta árum var ráðinn
bæjarstjóri í Hafnarfirði ungur mað-
ur sem leitt hafði flokk sinn til stór-
sigurs.
Bærinn hafí í langan tíma safnað
miklum vanræksluskuldum. Á þeim
tíma kostaði hver grunnskólanemandi
Hafnarfjarðarbæ helmingi minna en
bæði Kópavog og Reykjavík.
Nú fór í hönd mesti alhliða upp-
gangstími sem _ sést hefur í einu
bæjarfélagi á íslandi. Menn geta
reynt að þakka það einhverju öðru
en bæjarstjóranum unga og þeirri
bæjarstjórn sem hann leiddi. En
Hafnfirðingar voru stolt'ir af því að
vera Hafnfirðingar.
Þessi mikli árangur hlaut að kalla
á andsvar andstæðinga og öfundar-
fólks í sama mæli. Það kom vart
neinum á óvart.
Það kemur hins vegar á óvart hve
margir sprenglærðir blaðamenn féllu
á prófinu.
Þegar blaðamenn gera gagnrýnis-
laust pólitískt fussumsvei og smá-
borgarasmjatt að íjölmiðlaveislu,
vakir eitthvað annað fyrir þeim en
blaðamennska. Þeir þyrftu ekki að
rýna langt til að sjá að veislustjórinn
ætlar sér ekkert nema pólitískt líf
Guðmundar Árna Stefánssonar.
Krónprinsar og ættarlaukar
Margir virðast ekki gera sér grein
fyrir að á ýmsan hátt líkist Hafnar-
íjörður fremur bæ úti á landi en t.d.
Kópavogi. Hafnarfjörður á margt
fremur sameiginlegt með t.d. Súða-
vík. Þar eru rótgróin ættar- og féla-
gatengsl eins og margofið net um
allan bæinn.
Guðmundur Árni Stefánsson er..af
stórri og virtri ætt í Hafnarfirði og
trúlega þeirri áhrifamestu í seinni
tíma sögu bæjarins. Til marks um
það má benda á að faðir hans, Stef-
án Gunnlaugsson, var áður bæjar-
stjóri í Hafnarfirði og þingmaður
Alþýðuflokksins. Fyrra valdaskeiði
Alþýðuflokksins _ lauk þegar föður-
bróðir GÁS, Árni Gunnlaugsson,
stofnaði sérstakt bæjar-
málafélag, Félag óháðra
borgara. Það fór með
völd ásamt Sjálfstæðis-
flokknum í tuttugu_ ár,
þar til Guðmundur Ámi
Stefánsson tók efsta
sæti á lista Alþýðu-
flokksins 1986.
Andstæðingunum
finnst því hrakfarir sín-
ar kristallast í einum
manni, Guðmundi Árna
Stefánssyni.
Krónprinsar Mathi-
esen-ættarinnar hafa
haft opinbera forystu
um árásir á Guðmund
Árna ættarlauk Gunn-
laugssonanna. Það skal sagt þeim
til hróss að í stíl höfðingja ganga
þeir fram fyrir skjöldu og standa
sjálfir fyrir ásökunum sínum. Á
meðan er enn ófundin óþreytandi
uppspretta annars óhróðurs.
Það sem kemur á óvart er að
blaðamenn lepji það allt upp án þess
að rýna í mótsagnir sem við blasa.
Óteljandi dæmi um það væri hægt
að taka en aðeins fá rúmast hér í
blaðinu.
Of mikið — of lítið!
Blaðamenn segja GÁS sjálfum sér
ósamkvæman fyrir að taka að sér
niðurskurðarhnífinn í heilbrigðis-
ráðuneytinu eftir yfirlýsingar um að
oft langt væri gengið í þeim efnum.
Misseri seinna birta þeir umfjöllun
og viðtal við Árna Mathiesen þing-
mann sem krefst afsagnar ráðherra,
og af hverju? Jú hann var sér sam-
kvæmur og hægði á niðurskurði í
heilbrigðisráðuneytinu í samræmi
við fyrri yfirlýsingar sínar og ein-
róma kröfu landsmanna þar um.
Þegar Hafnfirðingar stýra
Hafnarfirði
Það er vandséð hvernig GÁS átti
að geta afgreitt nokkurt mál í Hafn-
arfirði án þess að þar kæmu við
sögu samfiokksmenn, ættingjar,
kunningjar, vinir og íþróttafélagar.
Það er í raun merkilegt að eftir sjö
ára valdatíma skuli ekki finnast
„svæsnari" dæmi um slík tengsl en
að maður tengdur GÁS skuli hafa
fengið húsvarðarstarf við einn af
grunnskólum bæjarins. Sérstaklega
þar sem á fárra mánaða stjórnartíð
núverandi bæjarstjórnar hefur nýi
bæjarstjórinn þegar þurft að sætta
sig við að eiginkona hans sækti um
og fengi stöðu hans sem aðstoðar-
skólastjóri við stærsta grunnskóla
bæjarins. Þetta sýnir okkur erfiða
stöðu sveitarstjórnarmanna í svona
málum. Enda hafa ýmsir næstu ná-
granna Hafnfirðinga „þurft“ að út-
hluta nánustu ættingjum sínum svo
sem systkinum ogbörnum félagsleg-
ar íbúðir, verkefni og vinnu og jafn-
vel sjálfum sér tugmilljóna króna
verktaka- og viðskiptasamninga.
Helgi Jóhann
Hauksson
EGIA
- röð ogregla
Margir litir margar stærðir.
Þessi vinsælu bréfabindi fást í öllum
helstu bókaverslunum landsins.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Símar: 628450 688420 688459
Fax 28819
i
vernd
Þegar blaðamenn gera
gagnrýnislaust pólitískt
fussumsvei bg smá-
borgarasmjatt að fjöl-
miðlaveislu, vakir eitt-
hvað annað fyrir þeim
en blaðamennska, segir
Helgi Jóhann Hauks-
son. Þeir þyrftu ekki að
rýna langt til að sjá að
veislustjórinn ætlar sér
ekkert nema pólitískt líf
Guðmundar Árna
Stefánssonar.
Annars geta kratar í Hafnarfirði
horft björtum augum á framtíðina.
í það minnsta ef þá vantar vinnu
og eru ekki af Mathiesen-ætt eða
öðrum íhalds- eða kommaættum og
auðvitað ekki ef þeir eru í vinfengi
við Magnúsana eða Mathiesenana.
Kratar eru nefnilega eini andstöðu-
flokkurinn í bæjarstjórn og ef Press-
an og DV gera sömu kröfur til núver-
andi bæjarstjórnar og kratanna þá
sitja kratar einir að öllum störfum,
styrkjum og verkum fyrir bæinn.
Það má ekki ráða stuðningsmenn,
ættmenni, vini eða félaga. Þessi
bæjarstjórn getur því aðeins ráðið
til starfa ókunnuga og óskylda and-
stæðinga, þ.e. krata.
Stóra hneykslið — leigumálið!
Kunn sómamanneskja, einni kyn-
slóð eldri frænka, tekur á leigu íbúð
bæjarins í Reykjavík.
Hvað blasir við af framlögðum
upplýsingum Pressunnar um málið?
Sagt er að leigja hefði átt skjól-
stæðingi félagsmálastofnunar Hafn-
arfjarðar íbúðina. Hvernig? Þegar
flutt er til Reykjavíkur er ekki leng-
ur um skjólstæðing Hafnarfjarðar
að ræða heldur Reykjavíkur.
Sagt er að íbúðin hafi verið tekin
úr sölu þegar hún var sett í leigu.
— Eg spurði blaðamanninn hvort
hann hefði gengið úr skugga um
þetta. Hann kvað svo ekki vera.
Sagt er að konan sé vel stæð og
hafi ekki þurft á þessu að halda.
Þeir sem til þekkja vita að hver sem
væri mynda hrósa happi yfir að fá
svo ráðvandan ieigjanda í íbúð sem
hann bæri ábyrgð á. En hvers vegna
er kona á þessum aldri í leiguíbúð
ef fullyrðing Pressunar um stöndug-
leika væri rétt? Ég veit ekki svarið.
Bæjarábyrgðir, hvílíkt
hneyksli!
Eða hvað? Stendur virkilega, hér
í grein Pressunnar, í næstu línu, að
bæjarábyrgðir hafi verið samþykkt-
ar með atkvæðum allra bæjarfull-
trúa — líka sjálfstæðismanna og
Alþýðubandalags? Bíðið við, hvert
er þá eiginlega hneykslið? Hafa ein-
hverjar bæjarábyrgpir tapast? Hvað
gerði Guðmundur Árni af sér?
Pólitískt „fussumsvei“
Þar með er þó ekki sagt að ekkert
sé umdeilanlegt eð_a aðfinnsluvert við
störf Guðmundar Árna Stefánssonar.
Ekki eru allir á eitt sáttir um hvað-
eina sem gert er og ekki er ólíklegt
að einhvers staðar liggi eftir hrein
mistök þegar hraustlega er tekið til
hendi. Áf því sem blaðamenn hafa
borið á borð fyrir okkur er hins veg-
ar ekkert bitastætt. Þeir hafa kosið
sjálfir að leggja til hliðar heilbrigða
skynsemi, hlutlægni og eðlilega rýni
sannrar blaðamennsku til að geta
boðað til fjölmiðlaveislu þar sem að-
eins era bornar á borð gnægtir af
pólitísku fussumsveii og smáborgara-
smjatti, soðið í sjóðandi heitri ill-
kvittni sem hefur pólitískt líf Guð-
mundar Árna eitt að markmiði.
Þetta kalla ég spillingu af versta
tagi.
Höfundur er kennari og starfar
að útgáfumálum.
FARSIMAKERFIÐ
GSM farsímakerfið
Póstur og sími hefurtekið í notkun
nýtt farsímakerfi hér á landi. Kerfið
kallast GSM (Global System for
Mobile Communication) og er
stafrænt farsímakerfi fyrir
talsímaþjónustu innanlands og milli
landa.
Fyrst um sinn nær GSM kerfið aðeins
til höfuðborgarsvæðisins, Suðurnesja
og Akureyrarsvæðisins en það verður
síðan byggt upp í áföngum út frá
helstu þéttbýlissvæðum landsins.
Alþjóðlegt kerfi
Notandi fær einnig aðgang að GSM
farsímakerfum í öðrum Evrópulöndum eftir
að nauðsynlegir samningar hafa verið gerðir.
GSM kortið - lykillinn að kerfinu
Áskrift að GSM kortinu er bundin við kort,
svokallað GSM kort sem stungið er í símann.
Kortið er í senn lykill að kerfinu og
persónulegt númer þess sem er notandi
og greiðandi þjónustunnar.
Kynntu þér nýja GSM farsímakerfið og
stígðu skref í átt til framtíðarfjarskipta.
Allar nánari upplýsingar um GSM
farsímakerfið er að fá hjá seljendum
farsímatækja.
Þeir eru:
Bónusradíó, Bræðurnir Ormsson hf.,
Hátækni hf., Heimilistæki hf., (stel hf.,
Nýherji hf., Radíóbúðin hf., Radíómiðun hf.,
Símvirkinn - Símtæki hf., Smith & Norland hf.,
söludeildir Pósts og síma í Ármúla,
Kirkjustræti, Kringlunni
og á póst- og símstöðvum
um land allt.
FARSÍMAKERFl
PÓSTSOGSÍMA