Morgunblaðið - 15.09.1994, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 15.09.1994, Blaðsíða 36
T"lO MORGUNBLAÐIÐ 36 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994 MINNINGAR EINAR FARESTVEIT JOHANNA FANNEY ÓLAFSDÓTTIR + Einar Farestveit fæddist 9. apríl 1911 ájörðinni Farest- veit í Modalen á Hörðalandi í Noregi. Hann lést 14. ágúst síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni 24 ágúst. Kveðja frá Nordmannslaget, Félagi Norðmanna á íslandi „Það er alltaf gott veður 17. maí,“ var Einar Farestveit vanur að segja þegar Norðmenn og íslend- ingar hittust við minnisvarðann í Fossvogskirkjugarði á þjóðhátíðar- degi Norðmanna. Þannig var það líka sl. vor þegar Einar mætti að venju, þá greinilega merktur af - kjarni málsins! langri og hetjulegri baráttu við skæðan sjúkdóm. I dag er hann allur, 17. maí á næsta ári verður hans saknað. Frá því að Einar og fjölskylda fluttist til Reykjavíkur fyrir rúmum 50 árum var hann einn af forystu- mönnum og máttarstólpum Nord- mannslaget, einn þeirra sem setti svip á félagið. Hann var lengi í stjórn félagsins og m.a. formaður þess 1948-1953 og 1959-1961. Einar Farestveit var mikill áhugamaður um skógrækt. Hann var formaður Nordmannslaget og aðalhvatamaður þegar ákveðið var að hefja skógrækt í Heiðmörk kringum 1950. Einar átti líka hug- myndina að því að reisa norska húsið á Torgeirsstöðum og vann ötullega að því máli þar til bústaður- inn var tilbúinn 1954. Það var því mikið áfall fyrir hann þegar kveikt var í bústaðnum fyrir þremur árum og hann svo mikið skemmdur að rífa þurfti húsið. í dag stendur nýr bústaður á grunni þess gamla og minnir á gott samstarf sem alltaf hefur verið á milli noskra og ís- lenskra skógræktarmanna og þá einstaklinga sem lagt hafa hönd á plóginn í þessu starfi. Með skógræktarstarfinu vildi Einar efla tengsl milli góðra grann- og frændþjóða, milli gamla heima- landsins, Noregs, og þess nýja, ís- lands. Þá var honum mjög umhugað um norskukennsluna á íslandi. Ein- ar taldí mikilvægt að þeir sem eih- hverja undirstöðu hefðu í norsku fengju tækifæri til að læra hana í skóla í stað dönsku og fyrir þremur árum var stofnaður sjóður „Einar og Guðrún Farestveits fond“, til styrktar norskukennslunni á ís- landi. Margir nemendur og kennar- ar í norsku eiga eftir að njóta góðs af sjóði þeirra hjóna. Á Þorláksmessu 1952 var for- maður Nordmannslaget, Einar Far- estveit' á leið í Fossvoginn með blómsveit á minnisvarðann um fallna Norðmenn. Þá bárust honum gleðitíðindi frá Noregi: „Þið fáið norska húsið í jólagjöf.“ Án þessar- ar jólagjafar, án Torgeirsstaða og án framlags Einars Farestveits er óvíst hver staða félagsins hefði ver- ið í dag. Við minnumst þessa heið- ursfélaga okkar með söknuði og virðingu og sendum frú Guðrúnu og fjölskyldu samúðarkveðjur. Fyrir hönd Nordmannslaget, Tore Skjenstad, formaður. + Jóhanna Fanney Ólafsdótt- ir fæddist 1. apríl 1917 á Sellátranesi í Rauðasands- hreppi. Hún lést á gjörgæslu- deild Borgarspítalans í Reykja- vík 31. ágúst síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Foss- vogskirkju 8. september. Mig langar til að kveðja góða vinkonu mína, Jóhönnu, er lést á Borgarspítalanum eftir langvarandi veikindi. Jóhönnu kynntist ég þegar við bjuggum í Gnoðarvogi 28 en þang- að fluttumst við árið 1958. Alla tíð síðan ræktuðum við okkar vináttu- samband, jafnvel þótt ég flyttist í annað bæjarfélaga. Jóhanna kom í heimsókn til mín ásamt Dídí vin- konu okkar beggja áður en hún fór í sína síðustu ferð á sjúkrahúsið. Þar áttum við góða stund saman og verður hún dýrmæt minning í huga mér. Dídí reyndist Jóhönnu mjög vel í langvarandi veikindum hennar og var Jóhánna henni afar þakklát fyrir vináttu hennar og góðsemi í sinn garð. Jóhanna var dugnaðarforkur til allrar vinnu en eins og vill verða um atorkusamt fólk var hún skap- mikil og ekki allra. En þeir sem náðu til hennar áttu vináttu og trygglyndi óskorað. Síðustu árin voru henni erfið vegna sjúkdóma sem heijuðu á hana en andlega var hún óbuguð og gerði jafnvel grín að aðstæðum sínum. Eg er þakklát fyrir að hafa feng- ið að njóta vináttu þessarar góðu konu sem nú er horfin út þessari tilveru. Við áttum oft á tíðum skemmtilegar stundir og mun ég sakna þess að heyra ekki frá henni framar. Það er alltaf sárt þegar góður vinur hverfur á braut en minningarnar verða að dýrmætum perlum. Ég óska Jóhönnu góðrar ferðar til nýrra heimkynna þar sem hvorki heija sjúkdómar né stríð. Haraldi og öllum ástvinum Jó- hönnu sendum við Sverrir og börn okkar innilegar samúðarkveðjur. Hvíli vinkona mín í guðs friði. Bára Sigurðardóttir. RAÐAUGIYSINGAR Hraðfrystihús Tálknafjarðar Vantar starfsfólk í fiskvinnslu. Upplýsingar í síma 94-2524. Kranamenn - verkamenn Byrgi hf. óskar að ráða kranamenn og verka- menn. Næg verkefni í vetur. Upplýsingar í síma 643107. Þýskunámskeið Germaniu Námskeiðin fyrir byrjendur og lengra komna á öllum stigum hefjast 19. september. Innrit- að verður á kynningarfundi í Lögbergi, Há^ skóla íslands, stofu 102, fimmtudaginn 15. september kl. 20.30. Upplýsingar eru einnig veittar í síma 10705 kl. 11.00-12.30 eða kl. 17.00-19.00. Geymið auglýsinguna. Stjórn Germaniu. IOOF - 11 = 1760915872 = Frá Sálar- rannsókna- félagi íslands I.O.O.F. 5 = 1759157V2 = Hvitasunnukirkjan Fíladelfía Almenn samkoma kl, 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Skyggnilýsingafundur Skoski miðillinn Mary Armour verður með skyggnilýsinga- fund föstudag- inn 16. septem- ber í Garða- straeti 8, kl. 20.00. Mary Armour býður einnig uppá einkafundi og eru bókanir í sím- um 18130 og 618130. Stjórnin. ESKJFJOflÐUn Laus störf á leikskólanum Melbæ, Eskifirði. Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar við leikskólann Melbæ, Eskifirði. ★ Leikskólastjóri ★ Leikskólakennarar ★ Ófaglært starfsfólk Umsóknarfrestur er til mánudagsins 26. september nk. og skal skila umsóknum á bæjarskrifstofurnar. Leikskólastjóri gefur allar nánari upplýsingar í síma 97-61341. SK Alþingi ÍSLENDINGA Frá fjárlaganefnd Alþingis Fjárlaganefnd Alþingis ráðgerir að gefa sveit- arstjórnarmönnum kost á að eiga fund með nefndinni dagana 26.-29. september fyrir hádegi. Upplýsingar og tímapantanir í síma 630700 frá kl. 9-16 eigi síðar en 23. september nk. Neytendafélag höfuðborgarsvæðisins Aðalfundur Aðalfundur neytendafélags höfuðborgar- svæðisins verður haldinn fimmtudaginn 29. september nk. kl. 20.00 að Skúlagötu 26. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Aðalfundur Skipasmíðastöðin Dröfn hf. heldur aðalfund sinn fimmtudaginn 29. sept. 1994 kl. 20.00 í veitingahúsinu Gafl-lnn, Dalshrauni 13, Hafnarfirði. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. SEMENTSVERKSMIÐJAN HF. Tilboð óskast í vörubifreið, Scania 112, árgerð 1981, sem er skemmd eftir umferðaróhapp. Bifreiðin er til sýnis á Sævarhöfða 31, Reykja- vík. Upplýsingar gefur Þórir Marinósson í síma 871953. Tilboðum skal skila fyrir kl. 16.00 mánudag- inn 19. september 1994. Lofgjörðarsamkoma kl. 20.30. Sven Fosse taiar. Allir velkomnir. Orð lífsins, Grensásvegi 8 Almenn samkoma kl. 20.30. Allir velkomnir! Mlðlun Pýrmídinn - andleg miðstöð Okkar frábæri sannanamiðill, June Hughes, heldur skyggnilýs- ingu firinmtudagskvöldið 15. sept. kl. 20-22. Opið öllum. Pýramídinn Dugguvogi 2, símar 882526 og 881415. Frá Sálar- > rannsókna- félagi íslands Breski miðillinn Irish Hall starfar hjá félaginu 19.-24. september. Hún verður með einkafundi og eru bókanir hafnar í simum 18130 og 618130. Stjórnin. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS MÖRKINNI 6 SÍMI 682533 Helgarferðir 1. 16.-18. sept. kl. 20.00 Land- mannalaugar- Hrafntinnusker- Álftavatn. Gist f Landmanna- laugum fyrri nóttina, ekið um Posahrygg að Hrafntinnuskeri og vestan Laufafells á Fjalla- baksleið syðri og síðan að Aifta- vatni og þar verður gist seinni nóttina. 16.-18. sept. kl. 20.00 í sam- vínnu við fslenska fjallahjóla- klúbbinn - hjólað um Fjalla- baksleið. 2) 17.-18. sept. kl. 08.00 Þórs- mörk (haustlitir). 3) 23.-25. sept. kl. 20.00 Land- mannalaugar - Jökulgil. Jökulgilið er sérstakt og litfag- urt. Ekið verður inn ( Hattver og gengið þaðan til baka í Laugar. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu F.Í., Mörkinni 6. Dagsferðir: Sunnudagur 18. sept. kl. 10.30 Hrómundartindur - Grændalur og kl. 13.00 Reykjadalur-Græn- dalur. Mánudaginn 19. sept. kl. 20.00 Vættaganga í Hafnarfirði. Brottför frá Umferðarmiðstöö- inni, austanmegin og Mörkinni 6. Ferðafélag (slands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.