Morgunblaðið - 04.10.1994, Side 26

Morgunblaðið - 04.10.1994, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Jákvæð þróun í rekstri Flugleiða Fyrri grein REKSTRARÁ- ÆTLUN Flugleiða gerir ráð fyrir að hagn- aður verði af starfsem- inni á þessu ári. Af- koma íélagsins fyrstu sjö mánuði ársins, miklir flutningar r ág- úst og árangur í lækk- un kostnaðar á ýmsum sviðum hafa aukið starfsfólki bjartsýni á að markmið um hagn- að náist þótt enn sé of snemmt að fullyrða um niðurstöður. Flugleiðir birta jafnan uppgjör fyrir þrjá, sex, sjö, átta og níu mánuði auk ársreiknings. Eins og fram hefur komið í þessum reikn- ingsskilum skipta sumarmánuðirn- ir jafnan sköpum um afkomu árs- ins. Sjö mánaða uppgjör félagsins, sem birt var í gær, staðfestir það sem fram kom í sex mánaða reikn- ingsskilum að mjög jákvæð þróun er nú í rekstrinum. Farþegum fjölgar verulega _frá fyrra ári og umfram áætlun. Á sama tíma tekst að halda kostnaði í skefjum. Vaxtakjör eru hagstæð og lausafj- árstaða er með því besta sem sést hefur hjá félaginu. Afkoma félags- ins fyrir skatta á fyrstu sjö mánuð- um ársins er verulega beri en á sama tíma í fyrra og sama er að segja um handbært fé eða greiðslu- flæði frá rekstri. Rekstrarafkoma og greiðsluflæði batna Rekstur Flugleiða er um margt sérstakur þegar borið er saman við önnur fyrirtæki hér á landi. Af- komusveiflur innan hvers rekstrar- árs vegna árstíðasveiflu í flutning- um eru svo gífurlegar að vart er hægt að finna samjöfnuð með öðr- um fyrirtækjum. Jafnan er verulegt tap á fyrstu mánuðum ársins, en um og eftir mitt ár er yfirleitt veru- legur hagnaður af rekstrinum. Til marks um það nam hagnaður í júlí einum um 640 milljónum króna. Samanburður við milliuppgjör ann- arra fyrirtækja getur því verið vill- Sigurður Helgason andi ef ekki er litið til þessara aðstæðna. Þá er þess að geta að breytingar á gengi krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum hafa önnur áhrif í upp- gjörum Flugleiða en hjá öðrum fyrirtækjum sem skulda í erlendum gjaldmiðlum. Ástæð- urnar eru meðferð gengismunar í reikn- ingsskilum félagsins og áhrif gengisbreyt- inga á eignfærsju flug- vélaflota þess. Ég mun víkja nánar að þessum þætti hér á eftir. Samanburður á rekstrarafkomu félagsins miili ára og á milli ein- stakra rekstrartímabila er því nauð- synlegur til þess að unnt sé að gera sér grein fyrir þróun afkomunnar. Hér fylgir tafla sem sýnir niðurstöð- ur rekstrareikninga fyrstu sjö mán- uði 1994 og 1993, mismun þar á milli og til samanburðar tölur úr ársreikningi 1993. Afkoma Flugleiða fyrir skatta á fyrstu sjö mán- uðum ársins er verulega betri en á sama tíma í fyrra, segir Sigurður Helgason, og sama er að segja um hand- bært fé eða greiðslu- flæði í rekstri. hafa í huga við samanburð á raun- verulegri rekstrarafkomu milli ára. I sjóðstreymi kemur fram fram- legð rekstrarins af handbæru fé til afborgunar lána, fjárfestinga og annarrar ráðstöfunar. Einnig þar kemur hin batnandi afkoma greini- lega fram. Handbært fé frá rekstri fyrstu sjö mánuði ársins nam 1.025 milijónum króna, sem er 184 millj- ónum króna meira en árið áður. Veltufjárstaðan batnar meira eða Úr rekstrarreikningum Allar fjárhæðir Milliuppgjör Milliuppgjör Mismunur Ársreikn. í milljónum króna jan.-júlí jan.-júlí jan.-des. 1994 1993 1993 Hagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda 442 283 159 703 Fj’ármunatekjur og fjármagns- gjöld (579) (523) ( 56) (1.007) Vaxtatekjur og verðbætur 17 29 ( 12) 68 Vaxtagjöld og verðbætur ( 570) ( 700) 130 (1.164) Gengismunur 828 (2.138) 2.966 (2.194) (Lækkun) hækkun flugvéla vegna brejdinga á USD-gengi (1.067) 2.027 (3.094) 1.750 Reiknaðar tekjur vegna verðlags- breytinga 213 259 ( 46) 553 Aðrir tekju- og gjaldaliðir 44 ( 19) 63 (64) Tap fyrir áhrif tekjuskatts ( 93) (259) 166 ( 368) Lækkun tekjuskattsskuldbind- 180 180 180 ingar Tap tímabilsins ( 93) ( 79) ( 14) ( 188) Af þessu yfirliti sést að afkoman fyrstu sjö mánuði ársins án vaxta og gengismunar er um 160 milljón- um króna betri fyrstu sjö mánuði þessa árs en 1993 og niðurstaðan án áhrifa tekjuskatts er á sömu nótum. í fyrra kom hins vegar til tekna lækkun tekjuskattsskuld- bindingar, sem hafði áhrif á endan- lega niðurstöðu og það verður að um 412 milljónir króna. Helstu nið- urstöður sjóðstreymis eru sem hér segir: (SJA TÖFLU 2) Meðferð gengismunar og áhrif gengisbreytinga Félagið hefur í mörg ár notað aðrar aðferðir við endurmat flug- vélaflotans en annarra eigna, sem eru endurmetnar eftir sömu aðferð- AUGLYSING UM INNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00 1980-2.fl. 25.10.94-25.10.95 kr. 284.388,70 1981-2.fl. 15.10.94 - 15.10.95 kr. 172.170,20 1982-2.fl. 01.10.94-01.10.95 kr. 121.042,20 1987-2.fl.A 6 ár 10.10.94-10.10.95 kr. 31.865,20 *) Innlausnarverö er höfuöstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, 29. september 1994 SEÐLABANKIÍSLANDS Úr sjóðstreymi Allar fjárhæðir í milljónum króna Handbært fé frá rekstri: Milliuppgjör jan.-júlí 1994 Milliuppgjör jan.-júlí 1993 Mismunur Ársreikn. jan.-des. 1993 Tap tímabilsins ( 93) ( 79) ( 14) ( 188) Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi, svo sem afskriftir og reiknaðar tekjur vegna verð- lagsbreytinga 1.007 581 426 1.239 Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum, svo sem kröf- um, birgðum og skammtímaskuld- um 111 339 (228) ( H5) Handbært fé frá rekstri 1.025 841 184 936 Fjárfestingar ( 264) (267) 3 (414) Afborganir lána umfram ný lán og gr. arður ( 330) (295) ( 35) (707) Hækkun (lækkun) á handbæru fé 431 279 152 (185) Tafla 2. um og alniennt eru notaðar í reikn- ingsskilum hér á landi. Flugvéla- flotinn, sem að langmestu leyti er fjármagnaður með dollaralánum og fylgir markaðsverði í bandaríkja- dollui um, hefur hins vegar sér- stöðu. Hann hefur verið endurmet- inn í samræmi við breytingar á bandaríkjadollara gagnvart krón- unni, en með því er leitast við að jafna hin gífurlegu áhrif, sem geng- issveiflur hafa á rekstrarreikning félagsins einstök ár eða uppgjörs- tímabil. Jafnframt því verður bók- fært verð flugvélaflotans raunhæf- ara en ella. Þessi aðferð hefur reynst mjög vel á undanförnum árum, en henni er fyrst og fremst ætlað að jafna sveifiur eins og áður segir. Til lengri tíma hefur hún hins vegar ekki áhrif á afkomuþróun félagsins. Á fyrstu sjö mánuðum ársins nam gengishagnaður Flugleiða 828 millj. kr. Lækkun bandaríkjadollara hefur hins vegar ekki jákvæð áhrif á rekstrarniðurstöðuna þegar á heildina er litið vegna þess að geng- ishagnaðurinn fer allur og rúmlega það til lækkunar á bókfærðu verði flugvélaflotans. Þannig var bókfært verð flugvélaflotans lækkað um 1.067 milljónir króna á tímabilinu eða um 239 millj. króna hærri fjár- hæð en nam gengishagnaði tíma- bilsins. Þetta kemur greinilega fram í yfirlitinu hér að framan um rekstr- arafkomuna. Bæði bókfært verð flugvélaflotans og skuldirnar vegna hans lækkuðu á tímabilinu vegna lækkunar á gengi bandaríkjadoll- ara, en lækkun á bókfærðu verði flugvélaflotans var meiri Vegna þess að eign félagsins í flugvélum er meiri en skuldir vegna þeirra. Ekki hægt að draga úr gengisáhrifum á endurmat með framvirkum samningum Fyrirtæki sem eiga í miklum við- skiptum á alþjóðamarkaði og versla í mörgum gjaldmiðlum reyna að draga úr gengisáhættu í rekstrinum með framvirkum samningum. Slíkir samningar gera fyrirtækinu fært að festa gengi á tilteknum gjald- miðlum fram í tímann. Flugleiðir Gæðamerkið Trygging fyrir betri skemmtun. Sími 654455. hafa til dæmis meiri útgjöld en tekj- ur í dollurum vegna eldsneytis- kaupa, vaxtagreiðslna, viðhalds og fleiri þátta. Fyrirtækið þarf því að kaupa dollara fyrir jafnvirði tæp- lega þriggja milljarða króna á ári. Fyrir vikið fylgist fjárreiðudeiid Flugleiða afar vel með gengisþróun og spám. Ef félagið metur það svo á einhveijum tilteknum tíma að lík- ur séu á að dollarinn muni hækka í verði reynir það að gera framvirka samninga um dollaragengið. Senni- lega beita fá íslensk fyrirtæki fram- virkum samningum í jafnmiklum mæli og Flugleiðir. Það á bæði við um gjaldeyriskaup fyrir milljarða króna og vexti af lánum. Tilgangur- inn er að tryggja fyrirtækið fyrir áfölium, en auðvitað fylgir öllum spám og þar með framvirkum samningum nokkur áhætta. Sá misskilningur hefur skotið upp kollinum og jafnvel komið fram í grein hér í blaðinu að Flugleiðir hefðu með framvirkum samningum getað firrt sig „gengistapi", sem kom til vegna endurmats eigna. Þessum misskilningi veldur van- þekking á reikningsskilum og þeim endurmatsaðferðum sem félagið notar. Áhrif gengisbreytinga á end- urmat flugvélaflota félagsins hefur engin áhrif á greiðsluflæði félagsins og er engin leið til að tryggja félag- ið fyrir neikvæðum áhrifum gengis- breytinga á endurmatið á þann hátt sem lýst var hér að framan. Þekkingu þarf til að bera saman reikningsskil Markmiðið með þessum skrifum er að benda á að ýmislegt í rekstri og reikningsskilum Flugleiða er sérstætt og að óraunhæft er • að bera rekstur félagsins saman við það sem almennt er að gerast í öðrum rekstri hér á landi með þvi einu að líta á niðurstöður rekstrar- reiknings. Greining reikningsskila, samanburður þeirra og umfjöllun á opinberum vettvangi getur verið vandasamt verk, sem krefst sér- þekkingar, en mikilvægt er að fjall- að sé um slík mál af hlutlægni og sanngirni þannig að raunsæ mynd fáist af því sem er að gerast í rekstri fyrirtækja á hveijum tíma. Höfundur er forstjóri Flugleiða. Geisladrif Hljóðkort frákr. 17.900,- Á BÖÐEIND - Austurströnd 12. Sími 612061. Fax 612081 Sv_______________ . Úlpur meö oq án hettu Mikib úrval, stærbir. 34-50 Póstsendum N#HI45D Laugavegi 21, sími 91-25580

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.