Morgunblaðið - 13.01.1995, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR1995 B 25
Arkitektúr
---——-
SI LJIIADI K
-
Glerhús meö
garði í mióju
EKKI er óalgengt að árekstrar
verði fyrir framan hús Judiths
Kennedys og Bennets Greenwalds
í La Jolla í Kaliforníu, því bílstjórar
geta ekki haft augun af óvenjulegu
húsi þeirra. Flestir halda að þessi
sérkennilega bygging sé listasafn
eða rannsóknarstofnun, fæstum
dettur í hug að hér sé um íbúðar-
hús að ræða.
Ungur arkitekt, Wallace Cunn-
ingham, teiknaði húsið eftir for-
skrift og óskum eiganda, sem báðir
eru hönnuðir að atvinnu. Húsið er
byggt í kringum garð sem er í jap-
önskum stíl. Gler þekur um 80%
af veggjum hússins,_ en því er skipt
upp í þijú svæði. Á einu svæðinu
eru eldhús, borðstofa, svefnher-
bergi og vinnuaðstaða, á öðru svæð-
inu dagstofur og á þriðja svæðinu
gestaherbergi.
■ SOLUUMBOÐ - Áður en
fasteignasala er heimilt að bjóða
eign til sölu, ber honum að hafa
sérstakt söluumboð frá eiganda
og skal það vera á stöðluðu
formi sem dómsmálaráðuneytið
staðfestir. Eigandi eignar og
fasteignasali staðfesta ákvæði
soluumboðsins með undirritun
sinni á það. Allar breytingar á
söluumboði skulu vera skrifleg-
ar. í söluumboði skal eftirfar-
andi koma fram:
■ TILHOGUN SOLU - Koma
skal fram, hvort eignin sé í
einkasölu eða almennri sölu, svo
og hver söluþóknun sé. í maka-
skiptum ber að athuga að sé
eign sem er í einkasölu tekin
upp í aðra eign sem er á sölu
hjá öðrum fasteignasala þá skal
hvor fasteignasali annast sölu
þeirrar eignar sem hann hefur
söluumboð fyrir.
■ AUGLÝSINGAR - Aðilar
skulu semja um hvort og hvern-
ig eign sé auglýst, þ.e. á venju-
legan hátt í eindálki eða með
sérauglýsingu. Fyrsta venjulega
auglýsing í eindálki er á kostnað
fasteignasalans en auglýsinga-
kostnaður skal síðan greiddur
mánaðarlega skv. gjaldskrá
dagblaðs. 011 þjónusta fast-
eignasala þ.m.t. auglýsing er
virðisaukaskattsskyld.
■ GILDISTÍMI - Tilgreina
skal hve lengi söluumboðið gild-
ir. Umboðið er uppseigjanlegt
af beggja hálfu með 30 daga
fyrirvara. Sé einkaumboði
breytt í almennt umboð gildir
30 daga fresturinn einnig.
■ GREIÐSLUSTAÐUR
KAUPVERÐS - Algengast er
að kaupandi greiði afborganir
skv. kaupsamningi inn á banka-
reikning seljanda og skal hann
tilgreindur í söluumboði.
■ OFLUN GAGNA/SOLU-
YFIRLIT - Áður eii eignin er
boðin til sölu, verður að útbúa
söluyfírlit yfír hana. Seljandi
skal leggja fram upplýsingar
um eignina, en í mörgum tilvik-
um getur fasteignasali veitt
aðstoð við útvegun þeirra skjala
sem nauðsynleg eru. Fyrir þá
þjónustu þarf að greiða, auk
beins útlagðs kostnaðar fast-
eignasalans við útvegun skjal-
anna. í þessum tilgangi þarf
eftirfarandi skjöl:
■ VEÐBÓKARVOTTORÐ -
Þau kostar nú 800 kr. og fást
hjá sýslumannsembættum.
Opnunartíminn er yfírleitt milli
kl. 10.00 og 15.00. Á veðbókar-
vottorði sést hvaða skuldir (veð-
bönd) hvíla á eigninni og hvaða
þinglýstar kvaðir eru á henni.
■ GREIÐSLUR — Hér er átt
við kvittanir allra áhvílandi
lána, jafnt þeirra sem eiga að
fylgja eigninni og þeirra, sem á
að aflýsa.
■ FASTEIGNAMAT - Hér
er um að ræða matsseðil, sem
Fasteignamat ríkisins sendir öll-
um fasteignaeigendum í upp-
hafí árs og menn nota m.a. við
gerð skattframtals. Fasteigna-
mat ríkisins er til húsa að Borg-
artúni 21, Reykjavík sími
614211.
■ FASTEIGNAGJÖLD -
Sveitarfélög eða gjaldheimtur
senda seðil með álagningu fast-
eignagjalda í upphafi árs og er
hann yfirleitt jafnframt
greiðsluseðill fyrir fyrsta gjald-
daga fasteignagjalda ár hvert.
Kvittanir þarf vegna greiðslu
fasteignagjaldanna.
■ BRUNABÓTAMATS-
VOTTORÐ - í Reykjavík fást
vottorðin hjá Húsatryggingum
Reykjavíkur, Skúlatúni 2, II.
hæð, en annars staðar á skrif-
stofu þess tryggingarfélags,
sem annast brunatryggingar í
viðkomandi sveitarfélagi. Vott-
orðin eru ókeypis. Einnigþarf
700-1000 fm atvhúsn. óskast
Traust fyrirtæki í iðnaði og þjónustu óskar eftir
700-1000 fm atvinnuhúsnæði til kaups á Stór-Reykja-
víkursvæðinu. Nauðsynlegt er að 600 fm húsnæði sé
með góðri lofthæð og hluti undir skrifstofu. Æskilegt
að umhverfi sé aðlaðandi og góð aðkoma.
Húsnæðið þyrfti að vera til afh. sem fyrst og eigi síðar
en í apríl-júní nk.
Fasteignamarkaðurinn hf.,
, Óðinsgötu 4, símar 11540 og 21700.