Morgunblaðið - 13.04.1995, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 C 5
LAUGARDAGUR 15/4
MYIMDBÖND
Sæbjöm Valdimarsson
ÁTÖKIIM í
GETTYSBURG
DRAMA
Gettysburg 'k'kyh
Leikstjóri Ronald E. Maxwell.
Handrit Maxwell, byggt á bók-
inni The Killer Angels, eftir
Michael Shaara. Tónlist Randy
Edelman. Aðalleikendur Tom
Berenger, Jeff Daniels, Martin
Sheen, Kevin Conway, C. Thom-
as Howell, Richard Jordan, Sam
Elliott. Bandarísk stuttþátta-
röð. Turner Pictures 1993. Sam-
myndbönd 1995.2x100 mín.
Aldurst. 16 ára.
Þessi ábúðar-
mikla stórmynd
hefst þegar þræla-
stríðið er búið að
geisa í Bandaríkj-
unum á þriðja ár
og herir sunnan-
og norðanmanna
eru í grennd við
smábæinn Gettys-
burg í Pennsilvaníu. Þama urðu
ein blóðugustu átök borgarastyij-
aldarinnar, bardagar sem urðu
undanfari friðarsamninga.
Þessi mynd, sem var gerð fyrir
sjónvarp, er oftast tilkomumikil,
ekkert hefur verið til sparað til
að útlitið sé sem trúverðugast.
Handritið er byggt á Pulitzer-verð-
launabókinni The Killer Angels
eftir rithöfundinn Michael Shaara
og var það leiksljóri myndarinnar,
Ronald E. Maxwell, sem sá jafn-
framt um kvikmyndagerð hennar.
Verður að segjast eins og er að
handritið er langort, þumglama-
og bókmenntalegt, hér sjást engir
Pulitzer-töfrar, svo mikið er víst.
Lengdin er Akkillesarhæll Gettys-
burg.
Hartnær fjórir tímar em helm-
ingi of mikið af því góða. Fyrri
hlutinn er langtum betri, þar sem
Jeff Daniels stendur sig með mikl-
um sóma. Hann virðist kunna
ýmislegt fyrir sér, leikur um þess-
ar mundir algjört flón í Heimskur,
heimskari og ferst það ekki síður
vel. Semsagt bagalega langdregin
eftir því sem á líður en metnaðar-
full og vandvirkisleg mynd. Ómiss-
andi þeim sem gaman hafa af
sögu Bandaríkjanna.
EG, DOMARINIM
SPENNUMYND
Móðirtekurtilsinnaráða (“Desp-
erate Justice“) kk
Leikstjóri Ar-
mand Mastroi-
anni. Handrit
John Robert Bens-
ink, byggt á sögu
eftir Richard
Speight. Aðalleik-
endur Lesleý Ann
Warren, Annette
O’Toole, Bruce
Davison. Bandarísk kapalmynd.
WIN 1993. Skífan 1995. 91 mín.
Aldurstakmark 12 ára.
Mæðgumar Carol (Lesley Ann
Warren) og Wendy dóttir hennar
(Annette 0’ Toole) hafa verið nán-
ar vinkonur alla tíð og því verður
það ekki síður áfall fyrir Carol er
dóttur hennar er nauðgað hrotta-
lega. Lögreglan hefur hönd í hári
illvirkjans, en allt kemur fyrir ekki
því kviðdómurinn dæmir hann sak-
lausan. Miður sín af reiði grípur
Carol til sinna ráða.
Kunnuglegt efni út tugum
metnaðarlítilla mynda. Það sem
bjargar málunum hér er bærilegur
leikur Lesley Ann Warren (sem
reyndar er skírð upp á kápunni
og nefnd Leslie) sem jafnan stend-
ur fyrir sínu og hin kynþokka-
fyllsta að venju. Warren var t.d.
það besta í Life Stinks, mistökun-
um hans Mels Brooks, og átti
góða hluti í gamanmyndinni Vict-
or, Victoria.
ÁTÖK í
PARADÍS
DRAMA
Rapa NuikVi
Leikstjóri Kevin Reynolds.
Handrit Tim Rose Price og
Kevin Reynolds. Tónlist Stew-
art Copeland. Kvikmyndatöku-
stjóri Stephen E, Windon. Aðal-
leikendur Jason Scott Lee, Esai
Morales, Sandrine Holt. Banda-
rísk. Majestic Films 1994, Skíf-
an 1995.103 mín. Aldurstak-
mark 16 ára.
Hér er komin ein dýrasta og
umdeildasta mynd síðari ára. Ein
stærstu mistökin sem Japanir hafa
gert eftur að þeir keyptu sig inní
kvikmyndaframleiðslu Hollywood-
borgar með því að greiða stórfé
fyrir Columbia/Tristar samsteyp-
una fyrir nokkrum
árum.
Rapa Nui er
sígilt dæmi um
kvikmyndagerð
sem fer úr bönd-
unum. Kevin
Reynolds er eng-
inn leikstjóri en
hins vegar besti
vinur framleiðandans, stórstjörn-
unnar Kevins Costners. Hann hélt
kvikmyndagerðinni'á floti í gegn-
um erfiða mánuði þegar Austur-
landabúamir í Kaliforníu voru fyr-
ir iöngu búnir að segja stopp, hing-
að og ekki lengra. Myndin fór tugi
milljóna dollara framúr áætlun og
er það nánast með ólíkindum þeg-
ar afurðin er skoðuð. Rapa Nui
hefur fátt til að bera sem gleður
augað annað en nokkrar maorísk-
ar blómarósir og unaðslegt um-
hverfi á Páskaeyjunni sem kvik-
myndatökuskussunum hefur ekki
tekist að fordjarfa. Myndin hlaut
ekki náð kvikmyndahúseigenda í
Evrópu og var dreift beint á mynd-
böndum.
BÍÓMYIMDBÖIMD
Sæbjörn Valdimarsson
Leifturhraði (,,Speed“)kkkk
Leifturhraði er
ekki aðeins ein
besta spennu-
mynd síðasta árs
heldur allra tíma.
Það má segja að
ekki sé dautt
augnablik að
fínna, keyrslan
Iátlaus frá upp-
hafi til enda. Myndin hefst með
frábæru atriði í lyftugöngum, síð-
an berst leikurinn vítt og breytt
um Los Angeles-borg, mestmegnis
um borð í strætisvagni sem spring-
ur uppí heiðan háan ef hann fer
hægar en 50 mílur! Lokakaflinn
fer svo fram í neðanjarðarbrauta-
kerfi borgarinnar. Myndin er óað-
finnanlega gerð í alla staði og
ótrúlegt að hún skuli vera fyrsta
mynd leikstjórans Vam Bont, en
hann er gamalreymdur kvik-
myndatökustjóri hasarmyndaleik-
stjórans Pauls Werhoevens. Því
ýmsum hnútum kunnugur eins og
glögglega kemur í ljós. Leiftur-
hraði var heiðruð með tveimur
Óskarsverðlaunum á dögunum og
var vel að þeim komin.
Emiliana Torrini er ung
og upprennandi söng-
kona, lfkt og Svala.
NCKKRIR dagskrárliðir Bylgjunnar
um páskana vekja athygli öðrum
fremun Þar ber fyrstan að nefna
þátt Þorgeirs Ástvaldssonar, Landa-
fræði og ást, sem verður sendur út
á milli klukkan 9 og 12 fyrir hádegi
á skírdag. Þorgeir fagnar páskaleyf-
inu með landsmönnum og ræðir við
Islendinga erlendis, sem segja frá
páskahaldi víða um heim. Auk þess
fáum við að heyra sýnishom af evr-
ópskri kímni og fjallað verður um
sögumar á bak við lögin.
Eftir hádegi á skírdag, eða klukk-
an eitt, hefst síðan þáttur Bjama
Dags Jónssonar sem er gerður í til-
efni 50 ára afmælis poppgoðsins frá
Keflavík, Rúnars Júlíussonar. Rúnar
segir frá tónlistarferli sínum og
kynnum af góðu fólki, þar á meðal
Karli Sighvatssyni og Gunnari Þórð-
arsyni. Að sögn Bjama Dags dregur
Rúnar ekkert undan og er mjög
opinskár um sjálfan sig og þá sem
næst honum standa.
Að morgni laugardagsins fyrir
páska vakna hlustendur með Eiríki
Jónssyni og Sigurði L. Hall en þeir
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
Svala Björgvins er meðal
gesta Erlu Friðgeirsdóttur
á Bylgjunni á páskadag.
félagar láta að venju móðan mása.
Sigurður Hlöðversson og Halldór
Backman stýra síðan þættinum
Laugardagur um land allt eftir há-
degið og því næst tekur Jón Axel
Ólafsson við með glænýja útgáfu
af íslenska listanum.
Klukkan þijú á páskadag verður
send út upptaka frá tónleikum sem
hljómsveitin Take That hélt á
Wembley í Lundúnum fyrir
skemmstu, en Erla Friðgeirsdóttir
leyfir okkur að heyra annars konar
tónlist klukkan fjögur. Þá verður
sendur út þáttur hennar íslenskar
söngkonur fyrr og nú sem fjallar
eins og nafnið gefur til kynna um
söngfuglana sem hafa yljað okkur
um hjartarætur ftá því um miðja
öldina og til dagsins í dag. Erla
spjallar við söngkonumar og leyfir
okkur að heyra nokkrar perlur í
flutningi þeirra. Þar á meðal eru
Ellý Vilhjálmss, Hallbjörg Bjama,
Helena Eyjólfs, Sigríður Beinteins,
Emiliana Torrini, Erla Stefáns, Ingi-
björg Þorbergs, Svala Björgvins og
Andrea Gylfa.
Páskadagskrá Bylgjunnar
Eilífur unglingur og
og íslenskar söng-
konur á Bylgjunni
UTVARP
RÁS 1
FM 92,4/93,5
6.45 Veðurfregnir.
6.50 Bæn: Jóna Kristfn Þorvalds-
dóttir flytur. Snemma á laugar-
dagsmorgni Þulur velur og kynn-
ir tónlist. 7.30 Veðurfregnir.
0.07 Snemma á laugardags-
morgni heldur áfram.
9.03 Við eða þau. Hvemig taka
fjöimiðiar og yfirvöld á málum
nýbúa hér á landi og annars stað-
ar? Umsjón: Jóhanna Harð-
ardóttir.
10.03 Brauð, vfn og svfn. Frönsk
matarmenning f máli og mynd-
um. 2. þáttur: Aköm og ódáins-
fæða. Úmsjón: Jóhanna Sveins-
dóttir.
10.45 Veðurfregnir.
11.00 f vikulokin. Umsjón: Logi
Bergmann Eiðsson.
12.00 Útvarpsdagbókin og dag-
skrá laugardagsins.
12.45 Veðurfregnir og auglýsing-
ar.
13.00 Fréttaauki á laugardegi.
14.00 Hagyrðingar á Norðurlandi.
Upptaka frá hagyrðingakvöldi á
Akureyri. (Endurflutt á mánu-
dagskvöldi klukkan 23.) 15.00-
Tónlist
16.05 íslenskt mál. Umsjón: Gunn-
laugur Ingólfsson. (Endurflutt
nk. miðvikudagskvöld kl. 21.50)
16.15 Söngvaþing.
íslensk sönglög eftir Pál ísólfsson
og Emil Thoroddsen í útsetningu
Símons H. ívarssonar. Viktoría
Spans syngur, Sfmon H. ívars-
son leikur á gitar.
Sönglög eftir Emil Thoroddsen og
Sigvalda Kaldalóns. Gunnar
Guðbjömsson syngur ; Jónas
Ingimundarson leikur með á
píanó.
16.30 Veðurfregnir.
16.35 Ný tóntistarhljóðrit Ríkisút-
varpsins Einsöngvararnir Elfn
Ósk Óskarsdóttir, Sigríður
Gröndal og Þorgeir J. Andrésson
flytja ný og gömul lög eftir fs-
lensk tónskáld. Ólafur Vignir
Albertsson og Bjarni Þór Jóna-
tansson leika með á píanó. Um-
sjón: Dr. Guðmundur Emilsson.
17.10 Kiruna í Lapplandi. Bær
hinna átta árstfða. Umsjón:
Björg Ámadóttir. (Áður á dag-
skrá 20. nóvember sl.)
18.00 Tónlist á laugardagssíðdegi.
Forleikurinn að óperunni Töfra-
flautunni eftir Wolfgang Amad-
eus Mozart. Hljómsveitin St.
Martin in the Fields leikur; Nev-
ille Mariner stjórnar.
Sinfónfa númer 100 f g-moll eftir
Joseph Haydr.. Enska kammer-
sveitin leikur, Jeffrey Tate
stjómar.
Tvær konsertaríur eftir Wolfgang
Amadeus Mozart. Edita Gm-
berova og Walter Berry syngja
með Mozarteum hljómsveitinni í
Salzborg; Leopold Hager stjórn-
ar.
18.48 Dánarfregnir og auglýsing-
ar.
19.30 Auglýsingar og veðurfregn-
ir.
19.35 Óperukvöld Útvarpsins. Frá
tónleikum útvarpsins í Bæjara-
landi 5. júlí sl. Sálumessa eftir
Giuseppe Verdi. Cheryl Studer,
Marjana Lipovsek, Vincent Cole
og Samuel Ramey syngja með
kór og hljómsveit útvarpsins f
Bæjaralandi; Sir George Solti
stjórnar. Umsjón: Ingveldur G.
Ólafsdóttir.
21.10 Næsta ár f Jerúsalem. Þáttur
um páskahátíð gyðinga fyrr og
nú. Umsjón: Arni Bergmann.
Lesari: Olga Bergmann. (Þátt-
urinn var áður á dagskrá f aprfl
1984.)
21.45 Tónlist.
Kol Nidrei ópus 47; adagio fyrir
selló og hljómsveit eftir Max
Bruch, byggt á hebresku lagi
Matt Haimovitz leikur með Sin-
fóníuhljómsveitinni í Chicago;
James Levine stjórnar.
22.15 Lestur Passiusálma. Þorleif-
ur Hauksson les fimmtugasta og
sfðasta sálm.
22.35 Smásagan Brúðargjöfin eftir
Thomas H. Raddall. Franz Gísla-
son les þýðingu sína. (Áður á
dagskrá sl. fimmtudag)
23.25 Tónlist.
Black, Brown and Beige, svíta
eftir Duke Ellington Mahalia
Jackson syngur með hljómsveit
Dukes Ellingtons.
0.10 Ný tónlistarhljóðrit Ríkisút-
varpsins. Einar Jóhannesson
leikur einleiksverk fyrir klarinett
eftir Atla Heimi Sveinsson: Lyft-
ið höfðum yðar, þér hlið. Verkið
var frumflutt í Landakotskirkju
1994. Umsjón: Dr. Guðmundur
Emilsson
1.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns.
Fróttir ó RÁS I og RÁS 2 kl. 7, 8,
9, 10, 12.20, 16, 19, 22 og 24.
RÁS 2
FM 90,1/99,9
8.05 Endurtekið barnaefni Rásar
1. 9.03 Laugardagslff. Umsjón:
Hrafnhildur Halldórsdóttir. 12.45
Helgarútgáfan. Umsjón: Lfsa Páls.
16.05 Heimsendir. Margrét Kristín
Blöndal og Siguijón Kjartansson.
17.00 Með grátt f vöngum. Gestur
Einar Jónasson. 19.30 Veðurfréttir.
19.32 Vinsældalisti götunnar. Um-
sjón: Ólafur Páll Gunnarsson. 20.30
Úr hljóðstofu. Umsjón Andrea
Jónsdóttir. 22.00 Næturvakt Rásar
2. Umsjón: Guðni Már Hennings-
son. 24.10 Næturvakt Rásar 2.
Guðni Már henningsson.
NÆTURÚTVARPID
1.30 Veðurfregnir. Næturvakt rás-
ar 2. 2.00Fréttir, 2.05 Rokkþáttur
Andreu Jónsdóttur. 3.00 Næturtón-
ar. 4.30 Veðurfréttir. 4.40 Nætur-
tónar halda áfram. 5.00 Fréttir.
5.05 Stund með Bert Kaemfert.
6.00 Fréttir, veður færð og flug-
samgöngur. 6.03 Ég man þá tíð.
Hermann Ragnar Stefánsson.
(Veðurfregnir kl. 6.45 og 7.30).
Morguntónar.
AÐALSTÖÐIN
90,9/ 103,2
9.00 Sigvaldi Búi. 13.00 Á mjúku
nótunum með Völu Matt. 16.00
íþróttafélögin. Þáttur í umsjá
íþróttafélaganna. 19.00 Magnús
Þórsson. 21.00 Næturvakt Aðal-
stöðvarinnar.
BYLGJAN
FM 98,9
9.00 Morgunútvarp með Eiríki
Jónssyni og Sigurði L. Hall. 12.10
Laugardagur um land allt. Halldór
Backman og Sigurður Hlöðversson.
16.00 Islenski listinn. Umsjón: Jón
Axel Ólafsson. 17.10 Islenski list-
inn. 19.00 Gullmolar. 20.00 Laug-
ardagskvöld með Grétari Miller.
23.00 Hafþór Freyr Sigmundsson.
3.00 Næturvaktin.
Fréttir kl. 10, 12, 15, 17 og 19.30.
BYLGJAN, ÍSAFIRÐI
FM 97,9
9.00 Samtengt Bylgjunni FM 98,9.
20.00 Tveir tæpir. Viðir Arnarson
og Rúnar Rafnsson. 23.00 Gunnar
Atli með næturvakt. Síminn f hljóð-
stofu 93-5211. 2.00 Samtengt
BylgjUnni FM 98.9.
BROSID
FM 96,7
10.00 Ellert Grétarsson. 13.00
Léttur laugardagur. 17.00 Helgar-
tónar. 23.00 Næturvaktin. 3.00
Næturtóniist.
FM 957
FM 95,7
9.00 Ragnar Páll Ólafsson í morg-
unsárið. 13.00 Fló á skinni. Helga
Sigrún. 16.00 Lopapeysan. Isl. tón-
list. Axel Axelsson. 19.00 Björn
Markús. 23.00 Mixið. Ókynnt tón-
list. 1.00 Pétur Rúnar Guðnason.
4.00 Næturvaktin.
LINDIN
FM 102,9
8.00 Morguntónar. 11.00 Á laugar-
dagsmorgni. 13.00 Ókynnt tónlist.
16.00 íslenski kristilegi listinn
(endurfluttur). 18.00 Ókynnt tón-
list. 20.00 Laugardags vaktin.
23.00 Næturvaktin.
SÍGILT-FM
FM 94,3
8.00 Ljúfir tónar. 12.00 Á léttum
nótum. 17.00 Einsöngvarar. 20.00
I þá gömlu góðu. 24.00 Næturtón-
ar.
TOP-BYLGJAN
FM 100,9
7.00 Sjá dagskrá Bylgjunnar FM
98,9. 10.00 Svæðisútvarp TOP-
Bylgjan. 11.00 Samtengt Bylgjunni
FM 98,9.
X-ID
FM 97,7
10.00 Örvar Geir og Þórður Örn.
12.00 Með sítt að aftan. 14.00 X-
Dómínóslistinn. !6.00Þossi. 19.00
Party Zone. 22.00 Nætun/akt.3.00
Næturdagskrá.