Morgunblaðið - 27.04.1995, Side 1
SÝNINCAR
Snillinqar
úr skúffum/4
#' IDNADUR mmjRLMÍ FfARSKIPTI
Bjartari tímar Farsímar falla
framundan/6 í ónáð/8
VEDSKHTIAIVINNULÍF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAQUR 27. APRÍL 1995
BLAÐ
Bónus
Stjórn Tryggingar hf. ákvað fyrir
skömmu að láta starfsfólkið njóta
góðrar afkomu félagsinsá síðasta
ári og mun fyrirtækið greiða því
sem nemur hálfum mánaðalaun-
um í svokallaðan „afkomubónus".
Hluthafar Hlutafé, kr.
Höfðahreppur 44.884.224
Burðarás hf. 20.941.115
Jöklarhf. 10.000.000
Hlutfall
Flug
Hagnaður var af rekstri flugfé-
laga á alþjóðlegum flugleiðum á
síðasta ári, í fyrsta sinn í fjögur
ár, og horfumar á þessu ári
þykja enn betri. Nettóhagnaður
230 flugfélaga var 1,8 miHjarðar
dollara 1994 en 1993 var rekstr-
artapið 4,1 milljarður. Því er
spáð að hagnaðurinn 1995 verði
5,5 milljarðar dollarar.
Sýning
Félag íslenskra vinnuvélainn-
flytjenda heldur sýningu á vinnu-
vélum frá öllum stærstu framleið-
endum slíkra véla 29. og 30. apríl
nk. Sýningin verður á útisvæði
Vömbílastöðvarinnar Þróttar að
Borgartúni 33, en sýningaraðilar
era Brimborg hf., Globus - Véla-
ver hf., Kraftvélar hf., Merkúr
hf. og Vélar og þjónusta hf.
SÖLUGENGIDOLLARS
Sveinn S. Ingólfsson 8.856.210 | j 5,0%
Tryggingamiðstöðin hf. 7.677.430 [ /| 4,4%
Hólanes hf. 5.310.648 \~\ 3,0%
Björn Rúriksson 3.630.000 2,1%
ísl. hlutabréfasj. hf. 3.248.165 [] 1,8% | 3|(g(j
Eiríkur Benjaminsson 2.047.046 [j 1,2% StrGflCflíriCjÍ hfi
Hluthafar
1.987.011
Alm. hlutabréfasj. hf.
Draupnissjóðurinn hf. 1.972.922 1 1,1%
Lífeyrissj. verslunarm. 1.731.400 j 1,0%
Verkalýðsf. Skagastr. 1.723.733 jl,0%
Jón Gunnar Stefánsson 1.650.000 j 0,9%
gi,i% 25. apríl
1995
Aðrir
Hlutafé alls
60.606.890
176.266.794
34,4%
Burðarás orðinn annar stærsti hluthafinn
BURÐARÁS hf., eignarhaldsfélag Eimskips, er orðinn annar stærsti hlut-
hafinn í Skagstrendingi hf. eftir kaup á hlut Smáeyjar hf. í félaginu. Um var
að ræða 6,5% hlut sem Smáey keypti af nokkrum smærri hluthöfum um
síðustu áramót og 0,1 % hlut sem var í eigu Magnúsar Kristinssonar,
framkvæmdastjóra Smáeyjar og aðaleiganda.
Fyrir kaupin átti Burðarás 5,3% í Skagstrendingi, en nú nemur eignarhlutinn
11,9%. Nafnverð hlutafjáreignar Burðaráss í Skagstrendingi er nú samtals
20,9 milljónir króna, en heildartilutafé Skagstrendings er 176,3 milljónir.
Kaupverðið er ekki vitað, en síðasta viðskiptagengi með hlutafé í Skag-
strendingi sem skráð var á Verðbréfaþingi Islands 21. april sl. var 2,41.
Umrædd kaup Burðaráss hafa ekki verið skráð á Verðbréfaþinginu enda
geta viðskiptin farið fram utan við viðskiptakerfi þingsins. Aðalfundur
Skagstrendings er haldinn í dag, en áður hefur komið fram að 82 milljóna
króna tap varð af rekstri félagsins á síðasta ári.
Bókfærð iðgjöld Vátryggingafélagsins
Skandia hf. hækkuðu um 22% milli ára
Markaðshlut-
deildin 4,5%
Hagnaður félagsins 3,3 milljónir
BOKFÆRÐ iðgjöld Vátryggingafé-
lagsins Skandia hf. hækkuðu um
68 milljónir króna, úr 302 milljónum
í 370 milljónir, milli áranna 1993
og 1994. Friðrik Jóhannsson, for-
stjóri félagsins, segir að til viðbótar
megi telja 80 milljónir í óbókfærð-
um tryggingarsamningum. Skandia
hafi því á þessum tíma aukið mark-
aðshlutdeild sína úr 3% í 4,5% og
sá vöxtur sé vel viðunandi.
Brúttó tjónahlutfall Vátrygg-
ingafélagsins Skandia var 95% á
síðasta ári þar sem tjón ársins voru
313,4 milljónir á móti 329,6 milljón-
um sem voru skráð iðgjöld ársins.
Árið 1993 var tjónahlutfallið 117%
og 128% á árinu 1992. Að sögn
Friðriks er stefnt að því að hlutfall-
ið verði orðið um 80% á árinu 1996.
Frá því að Skandia í Svíþjóð eign-
aðist Vátryggingafélagið Skandia
að fullu í ársbyijun 1993 hefur
vátryggingafélagið verið með veru-
legar tekjur umfram gjöld vegna
endurtryggingasamninga við Skan-
dia í Svíþjóð. „Það var ljóst þegar
Skandia í Svíþjóð eignaðist félagið
að það þyrfti að styðja vel við bak-
ið á því á meðan reksturinn væri
endurreistur. Þar hafa eigendurnir
verið að horfa til lengri tíma,“ sagði
Friðrik.
145 milljónir vegna
endurtryggingasamninga
Á síðasta ári tók Skandia í Sví-
þjóð á sig 225 milljónir af tjónum
ársins, en fékk til baka 170 milljón-
ir í endurtryggingariðgjöldum. Til
viðbótar koma umboðslaun til Vá-
tryggjngafélagsins Skandia upp á
liðlega 100 milljónir. Samtals voru
hreinar tekjur félagsins af endur-
tryggingasamningunum því um 155
milljónir á síðasta ári.
„Þetta er erfiður markaður að
vinna sér sess á, en á undanförnum
tveimur árum hefur félagið stækk-
að verulega. Markaðshlutdeildin
hefur aukist hraðar en áætlanir
gerðu ráð fyrir og við höfum sett
stefnuna á að ná 7-8% markaðshlut-
deild á árinu 1997. Það er það sem
þarf til að ná þokkalegum rekstri
og ég er bjartsýnn á að þetta mark-
mið náist," sagði Friðrik.
Friðrik sagðist hins vegar hafa
viljað sjá tjónahlutfallið ganga niður
hraðar þó segja mætti að allar
áætlanir hefðu gengið upp í megin-
dráttum. „Hvað varðar endurtrygg-
ingasamningana við Skandia í Sví-
þjóð þarf að taka með í myndina
að hluta þess fjár höfum við notað
til þess að styrkja tryggingasjóði
okkar verulega. Þar er verið að
horfa til framtíðar, enda voru þetta
nauðsynlegar aðgerðir ef átti að
takast að endurreisa félagið. Þar
þurfti líka að hafa hagsmuni trygg-
ingataka félagsins í huga.“
Hagnaður af rekstri Vátrygg-
ingafélagsins Skandia var 3,3 millj-
ónir á síðasta ári samanborið við
2,5 milljónir árið 1993.
ISLENSKI
LÍFEYRISS JÓÐURINN
fyrir betri fram tíð
íslenski lífeyrissjóðurinn hf, séreignasjóður í umsjá Landsbréfa,
hefur sýnt bestu ávöxtun séreignasjóða sl. þrjú ár.
Allir sem vilja skapa sér og sínum meira öryggi
í framtíðinni eiga erindi í sjóðinn.
Ráðgjafar Landsbréfa hf.
og umboðsmenn í
Landsbanka Islands
um allt land
veita allar frekari upplýsingar
§
, LANDSBREF HF.
7^4« Z/t — -
7^
S IJ I) I) II I A N I) S IJ li A II I
1 (1 K lt I Y K .1 A V I K . S I M I [> (I K «.1 2 0 0, It II I I A S I M I !i B II II S 9 11