Morgunblaðið - 03.05.1995, Side 1
i0r0«ttMíiÍ>iií>
B
1995
MIÐVIKUDAGUR 3. MAI
BLAD
Keflvíkingar eiga
fyrst heimaleik
DREGIÐ hefur verið í riðla í TOTO-keppninni í knatt-
spymu, sem Keflavík tekur þátt í. Keflvíkingar eru í
6. riðli ásamt liði númer tvö frá Frakklandi, liði núm-
er tvö frá Austurríki, skosku liði og liði frá Króatíu.
Leikið verður í 12 riðlum og fara sigurvegarar riðl-
anna ásamt þeim fjórum liðum sem ná bestum ár-
angri í öðru sæti í 16 liða úrslit þar sem leikið verð-
ur með útsláttarkeppni eins og í átta liða úrslitum.
Þau fjögur lið sem þá verða eftir mætast í forkeppni
UEFA. Frakkar eiga eitt lið í meistarakeppninni, eitt
í keppni bikarhafa, fjögur sæti í UEFA-keppninni
og Qögur í Toto-keppninni þannig að gera má ráð
fyrir að Keflvíkingar fái lið í 7. til 8. sæti deiidarinnar
í heimsókn 24. eða 25. júní. Skotar eru með eitt lið
í Evrópukeppni meistaraliða, annað í keppni bikar-
hafa, tvö í UEFA-keppninni og svo eitt í þessari
keppni en Keflvíkingar sækja það heim 1. eða 2.
júlí. Króatar leika 5 Keflavík 8. eða 9. júlí og síðan
spila Keflvíkingar í Austurríki 15. eða 16. júlí.
HANDKNATTLEIKUR
Sextán manna hópurfyrirHM tilkynntursíðar ívikunni
Héðinn verður
ekki með
í keppninni
Héðinn Gilsson, ein helsta skytta
íslands og með öflugri varn-
armönnum, leikur ekki með í
Heimsmeistarakeppninni í hand-
knattleik sem hefst á íslandi á
sunnudag. Hann hefur ekki getað
æft að undanförnu vegna meiðsla
og að loknu þrekprófi í gær var ljóst
að hann er ekki tilbúinn.
„Það hefur legið í loftinu að
Héðinn yrði ekki með,“ sagði Þor-
bergur Aðalsteinsson, landsliðs-
þjálfari, við Morgunblaðið í gær-
kvöldi þegar niðurstöður þrekprófs-
ins lágu fyrir. „Hann hefur átt við
meiðsl að stríða, hefur ekki getað
æft síðan hann kom til landsins og
er þess vegna ekki í nægilega góðri
æfingu. Héðinn hefði án efa styrkt
hópinn og ég hefði óskað þess að
hann yrði með en því miður er það
oft svo að maður fær ekki alltaf
það sem maður vill. Við ákváðum
að setja leikmennina í þrekpróf á
þessum tíma, þetta er niðurstaðan
og við gerum okkur grein fyrir
henni.“
Héðinn var ekki með landsliðs-
hópnum í Danmörku en þangað
fóru 17 leikmenn og halda þeir
áfram æfingum en endanlegur 16
manna hópur verður tilkynntur á
morgun eða föstudag. „Hér eftir
leggjum við fyrst og fremst áherslu
á tækniæfingar og styttum æfing-
arnar frá því sem verið hefur," sagði
Þorbergur en meðan á riðlakeppn-
inni stendur og jafnvel lengur kem-
ur íslenski landsliðshópurinn til með
að halda til á Hótel Örk í Hvera-
gerði og fer þangað á laugardag.
■ *HM 95 bls. B2-B5
Morgunblaðið/RAX
Rándýrir upptökubílar
FJÓRIR upptökubílar frá TV2 og Danmarks Radio komu til
landsins í gær. Bílarnir verða notaðir við útsendingar Rikis-
sjónvarpsins frá Heimsmeistarakeppninni í handknattleik,
sem hefst um næstu helgi. Verðmæti bílanna og þess bún-
aðar sem í þeim er mun vera um 600 milljónir króna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Héðinn ekki tilbúinn
HÉÐINN Gilsson fór í þrekpróf í gær eins og 17 aðrir lands-
liðsmenn í handknattleik. Hann hefur ekki getað æft að und-
anförnu vegna meiðsla og stóðst ekki þrekprófið þess vegna.
Eins og sjá má reyndi hann það sem hann gat en það var
ekki nóg og þar með var Ijóst að hann leikur ekki á HM.
Matthías
Noregs-
meistari
Hornamaðurinn Matthías Matt-
híasson, fyrrum leikmaður
IR, varð um helgina Noregsmeist-
ari í handknattleik með félögum
sínum i Elverun þegar þeir lögðu
Runar, á heimavelli þeirra, 18:19.
Fyrri .leikur liðanna endaði með
jafntefli, 19:19.
„Þetta er í fyrsta skipti sem El-
verun hreppir Noregsmeistaratitil-
inn í handknattleik svo það má
nærri geta hvort ekki hafi verið
hátíð í bæ,“ sagði Matthías Matthí-
asson, í samtali við Morgunblaðið
í gærkvöldi. Matthías lék allan fyrri
leikinn og skorað fjögur mörk.
Hann lék fyrri hálfleikinn í síðari
leiknum og skoraði eitt mark. „El-
verun er með ungt lið og það náði
toppnum í vetur. Eg hef leikið tölu-
vert með i vetur og er með rúm
þrjú mörk _að meðaltali í leik eftir
tímabilið. Ég á einn vetur eftir af
íþróttakennaranámi mínu og verð
þvi hérna úti næsta vetur og reikna
með því að leika áfram með lið-
inu.“ sagði Matthías Matthíasson,
Noregsmeistari í handknattleik.
FRJALSAR
Martha á
réttri leið
Þetta hlaup var tilraun hjá mér
til að athuga hvar ég stæði
eftir þungar æfingar síðustu vikur.
Ég er að ljúka ákveðnu æfingatíma-
bili og nú tekur við meiri léttleiki.
Jú, það var jákvætt að bæta sig
um hálfa mínútu frá hlaupinu í
fyrra, sagði Martha Ernstdóttir,
hlaupakona, en hún varð önnur um
helgina í fjölmennasta götuhlaupi
sem haldið er í Noregi árlega. Mart-
ha hljóp 10 km á 33,33 mín. Norska
stúlkan Gunnhild Halle sigraði í
hlaupinu, var hálfri mínútu á undan
Mörthu.
„Ég er mjög sátt við það form
sem ég er í og tel að allt sé á réttri
leið. Nú fer ég að létta æfingarnar
og hlaupa skemmri vegalengdir. Þá
fer maður að verða sprækari.
Fyrsta brautarhlaupið mitt verður
3 km hlaup á móti í Ósló 20. maí og
í framhaldi af því taka við Smá-
þjóðaleikarnir og Evrópubikar-
keppnin,“ sagði Martha Ern'stdóttir.
SKVASS: KIM MAGNÚS NIELSEN VARÐIHTIUNN ENN EINU SINNI/B6