Morgunblaðið - 24.08.1995, Page 8
8 B FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Samrúni Pharmacia í Svíþjóð og Upjohn frá Bandaríkjunum eru
enn einn liðurinn í átt að öfiugri og stærri samsteypum
Verður níunda stærsta
lyfjafyrirtæki heims
Áætluð velta er 500 milljarðar
íslenskra króna og starfsmenn
verða 34.000
Kaupmannahöfn. Morgunbladið.
leiðir meðal annars
krabbameinslyf og augn-
lyf, en Upjohn'er á sviði
kvensjúkdóma og smit-
sjúkdóma.
Samkvæmt Jan Ekberg
er reiknað með að kostn-
aður fyrirtækjanna minnki
um 35 milljarða íslenskra
króna við samrunann.
Starfsmenn nýja fyrirtæk-
isins eru 34.500, þar af
sex þúsund í Svíþjóð. Gert
er ráð fyrir að fjögur þús-
und manns verði sagt upp
vegna hagræðingar, eink-
um á sviði stjórnunar, sölu
og dreifingar.
Hvorugt fyrirtækjanna
hefur verið rekið með
glans, en standa heldur
ekki illa og hafa bæði ver-
ið endurskipulögð undaf-
arin ár. Það háir Upjohn
að ýmis einkaleyfi þess eru
að renna út um þessar
mundir, án þess að það
hafi náð að koma nýjum
lyfjum á markaðinn. Veiki
hlekkur Pharmacia hefur
verið að ekkert lyú'a þess
hefur selst verulega vel og
að Bandaríkjamarkaður
hefur verið utan seilingar.
Þróunarkostnaður hár
Auk hagkvæmni á
samruni fyrirtækjanna að
styrkja þróun og rann-
sóknir nýja fyrirtækisins,
sem einsetur sér að koma
með 28 ný lyf næstu þrjú
PHARMACIA UPJOHN
SAMRUNINN
Pharmacia í Svíþjóð og Upjohn í
Bandaríkjunum renna saman í eitt
stærsta lyfjafyrirtæki heims.
DÆMI UM LVF FTRIRTÆKJANNA
UPJOHN Getnaöarvamarlyfiö Depo-Provera,
hárvaxtarlyíjö fíogabe, Molrin IB viö
verkjum, Kaopectate vlö ríidurgangi,
miötaugakertistyttb Xanax og
Cabergoline viö Parkinsonsveiki.
Heimssala: um 3,4 mllljarðar dollara
PHARMACIA Vaxtarhormóniö Gentropin, krabba-
meinslytiö Fármorubicin og blóö-
tappra lyliöFragmih.
He’nssaia: um 3,4 milljaröar dollara
STARFSMANNAFJÖLDI
Alls:
Fyrirhugaöur samdráttur:
34.500
4.000
NETTÓ HAGNAÐUR (milljónir Bandar. dala)
0 100 200 300 400 500
1994
1993
1992
1 1 1 — r
i i i i i
i i i i .. - ——"vn
1PHARVACIA iUPJOHN
10 STÆRSTU LYFJAFYRIRTÆKIN Salaí milljöröum dollara
Glaxo Wellcome 10,7
Merck 8,8
Pharmacia & Upjohn Inc 6,8
Bristol Myers Squibb 5,2
SmithKline Beecham ' 5,2
Hoechst 5,1
Pfizer 4,9
Johnson & Johnson 4,6
Eli Lilly 4,6
Roche REUTER
leiðslu, til að fá sem mest
á einum stað. Við þessar
aðstæður eru það aðeins
þeir stóru sem dafna, eða
eins og Ekberg segir, þá
eru það aðeins þeir stóru,
sem stækka.
Því hafa lyfjafyrirtæk-
in leitast við að stækka
með því að kaupa upp
fyrirtæki, eins og listinn
yfir tíu stærstu lyfjafyrir-
tækin sýnir. Efst er
Glaxo/Wellcome, þá
Merck, Hoechst/MMD,
BMS, AHP(AC), Roche,
Pfizer, SB, Pharmacia &
Upjohn, sem þar með
spretta úr 21. og 22.
sæti, og Lilly.
Hikandi móttökur
í Svíþjóð
Stærstu hluthafar
Pharmaciu, Volvo og
sænska ríkið, hafa þegar
lagt blessun sína yfir
samrunann og vísast
verður svo með aðra hlut-
hafa. Raddir hafa þó ver-
ið uppi um að Pharmacia
sé mun sterkara fyrirtæki
og því hefði verið eðli-
legra að meta hlutabréfin
60-40 prósent, Pharmac-
ia í hag, í stað 50-50,
eins og gert var.
Áhyggna gætir yfir að
uppsagnir bitni illa á
sænska útibúinu, en enn
er óljóst hvernig þeim
verður hagað.
Svíar hafa einnig
áhyggjur af að enn eitt
sænskt stórfyrirtæki
flytji höfuðstöðvar úr
landi. Enn er þó ekkert
sem bendir til að atvinnu-
tækifærum fækki í kjöl-
árin. Þar af eru sautján með alveg ný efni, far þess, auk þess sem bent er á að fyrirtæk-
Stefnt að
opnun lok-
aðs álvers
Sydney. Reuter.
ASTRALSKA álfyrirtækið Capral Aluminium
Ltd. greindi í gær frá því að það áformaði
að taka notuð álver í notkun á ný. Capral
hét áður Alcan Australia en breytti um nafn
eftir að það sleit tengslum við hið kanadíska
móðurfyrirtæki sitt Alcan Aluminium Ltd.
Capral hyggst þegar í stað byija að gang-
setja Kurri Kurri-álverið í borginni Newcastle
í Nýju Suður-Wales og verður afkastageta
þess 15 þúsund tonn í upphafi. Á næstu
mánuðum verða sífellt fleiri bræðsluofnar
teknir í notkun og er markmiðið að ná 150
þúsund tonna afkastagetu fyrir árslok.
Capral er fyrsta ástralska fyrirtækið sem
lýsir því yfir að það hyggist taka bræðsluofna
í notkun á ný eftir að samkomulag var gert
milli sex helstu álframleiðsluríkja veraldar á
síðasta ári að draga úr framleiðslu um tíu
prósent.
Alls féllust ástralskir framleiðendur á að
daga úr afkastagetu sinni um 141 þúsund
tonn.
Stækka álver í Queensland
Annað ástralskt fyrirtæki, Comalco, er nú
að stækka álver í Boyne Island í Queensland
og mun það auka afkastagetu þess úr 219
þúsund tonnum í 479 þúsund tonn á ári.
Talsmaður fyrirtækisins sagði hins vegar að
ekki væru uppi áform um að gangsetja þann
þriðjung bræðsluofna álvers fýrirtækisins í
Tasmaníu sem lokað var fyrir nokkru.
„Við fylgjumst ávallt með markaðnum en
viljum vera vissir um að hin aukna eftirspurn
er varanleg áður en við tökum þá ákvörðun,"
sagði talsmaður Comalco.
Ónnur áströls álfyrirtæki sögðust ekki hafa
uppi áform um að auka afkastagetu sína í bili.
------» ---------
Dregur úr
hagnaði Volvo
Gautaborg. Reuter.
VOLVO greindi í gær frá afkomutölum sínum
fyrir fyrstu sex mánuði ársins. Hagnaður
fyrir skatta nam 5,33 milljörðum sænskra
króna samanborið við 9,02 milljarða sænskra
króna á síðasta ári.
Þetta er nokkuð verri afkoma en búist
hafði verið við. Sérfræðingar höfðu spáð því
að hagnaður Volvo myndi nema 8,28 milljörð-
um sænskra króna. Að sögn stjórnenda Volvo
er ráðgert að selja dótturfyrirtækið Swedish
Match á almennum hlutafjármarkaði og verð-
ur hagnaður af sölunni greiddur út til hlut-
hafa fyrirtækisins.
Vörubifreiðadeild Volvo skilaði auknum
rekstrarhagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins
og nam hann 3,11 milljörðum miðað við 1,83
milljarða á sama tíma í fyrra. Afkoma bif-
reiðadeildar fyrirtækisins er hins vegar nær
óbreytt. Skilaði hún 1,58 milljörðum í hagn-
aði miðað við 1,56 milljarða rekstrarhagnað
á sama tíma í fyrra.
SAMRUNI sænska lyfjafyrirtækisins
Pharmacia og hins bandaríska
Upjohn er enn ein hreyfingin í átt
að stærri og öflugri lyfjafyrirtækj-
um. Áætluð velta nýja fyrirtækisins,
Pharmacia & Upjohn, er um 500 milljarðar
íslenskra króna og starfsmenn eru 34.500.
Hlutabréf fyrirtækjanna tveggja verða met-
in jafnt. Hluthafar í Pharmacia fá hlutabréf
í hinu nýja sameinaða félagi í skiptum á
sléttu en hluthafar í Upjohn munu hins
vegar fá 1,46 hluti í nýja félaginu í skiptum
fyrir hvern hlut.
Jan Ekberg, forstjóri Pharmacia, verður
stjórnarformaður Pharmacia & Upjohn og
John L. Zabriskie, framkvæmdastjóri
Upjohn, verður framkvæmdastjóri nýja fyr-
irtækisins. Tilgangurinn er að ná hag-
kvæmni í framleiðslu, dreifingu og stjórn-
un, auk þess að ná betri markaðsstöðu.
Einnig er ætlunin efla rannsóknarstarfið,
sem er tröllslegur kostnaðarliður lyfjafyrir-
tækja. Samrunanum er vel tekið í Svíþjóð,
þótt það örli á kvíða yfir að of mikið af
starfseminni flytji úr landi. Höfuðstöðvarn-
ar verða í London, þar sem næstum öll
fimmtíu stærstu lyfjafyrirtækin eru með
skrifstofur.
Pharmacia var einkavætt í fyrra. Stærstu
hluthafarnir eru Volvo, sem á 28 prósent,
og sænska ríkið, sem á 14 prósent. Volvo
stefnir að því að selja sinn hlut í samræmi
við þá stefnu að einbeita sér að bílafram-
leiðslu, en skuldbatt sig að selja ekki hlut
sinn fyrr en í fyrsta lagi í lok ársins. Volvo
leggur blessun sína yfir samrunann, sem
breytir í engu söluáætlununum.
1 plús 1=3
Pharmacia hefur verið á höttunum eftir
hugsanlegum samstarfsaðila. Eftir að
álykta að bandarískt fyrirtæki hentaði best
til að komast inn á þann markað, varð
Upjohn og samruni ofan á, í stað þess að
kaupa fyrirtæki. Forsvarsmenn fyrirtækj-
anna tveggja hafa staðið í leynilegum sam-
ræðum frá því snemma síðastliðið vor. Fyr-
irtækin eru svipuð að stærð, ársveltan hjá
hvoru fyrir sig er um 250 milljarðar ís-
lenskra króna. Þau bæta hvort annað upp,
eða eins og einn forráðamanna Upjohn
sagði, væri samruninn eitt fárra dæma um
að einn plús einn yrði þrír. Pharmacia fram-
sem forráðamenn Pharmacia & Upjohn
segja met. Á meðal þeirra eru lyf gegn
krabbameini, eyðni og parkinsonsveiki.
Hár þróunarkostnaður þykir sýna að
aðeins hinir stóru lifa af. Lyfjafyrirtæki eru
undir þrýstingi vegna niðurskurðar í heil-
brigðiskerfinu og frá neytendum sem eru
meðvitaðri en áður um verð. Stórir kaupend-
ur, til dæmis á Bandaríkjamarkaði, kjósa
að skipta við fyrirtæki með fjölbreytta fram-
m styrkist af tengslum við önnur fyrir-
tæki, eins og ABB, ASEA og Brown Bo-
veri sýni. Með því að nýja fyrirtækið hefur
valið London fyrir höfuðstöðvar bætist enn
eitt lyfjafyrirtækið við þar, en London er
þegar orðin miðstöð lyfja- og líftæknifyrir-
tækja. Fyrir Pharmacia og Upjohn er Lond-
on hlutlaus staður, haganlega í sveit settur
milli stærstu deildanna, sem eru í Michig-
an, Stokkhólmi og Mílanó.
Tívolí í Kaupmannahöfn rekið með tapi vegna lítillar aðsóknar í sumar
Fyrsti hall-
inní 152 ár
Ástæðan er veðrið og breyttur smekkur
FYRSTA skipti í 152 ára
sögu Tívolís í Kaupmanna-
höfn stefnir í taprekstur
garðsins í ár. Ástæðan er kalt
vor og sumarbyrjun, en einnig
breyttur smekkur og hve dýr
Tívolíferð er fjölskyldunni, miðað
við hvað annað væri hægt að fá
fyrir peningana. Lækningin á að
felast í ódýrum dögum, fleiri
skemmtitækjum og ókeypis tón-
leikum á stóra útisviðinu. Niels
Jörgen Kaiser framkvæmdastjóri
garðsins undanfarna tvo áratugi
hefur jafnframt tilkynnt að hann
hyggist láta af starfi sínu.
Stjórn Tívolís hefur ekki látið
uppi hve mikið tapið er áætlað,
en aðeins tilkynnt stuttaralega
að ekki hafi tekist að vinna upp
slælega aðsókn framan af. Veðr-
ið hefur alla tíð haft mikil áhrif
á aðsókn og í sumar hefur það
verið óheppilegt. Fyrst var svo
kalt og þá fer enginn heilvita
maður með krakka í garðinn, því
þó krakkarnir hlaupi sér til hita
á milli leiktækjanna, gera for-
eldrarnir það ekki. Og svo varð
svo heitt að enginn hélst við inn-
anbæjar.
Veðrið er því fastur liður í
ársskýrslum Tívolí, en veðrið eitt
dugir ekki til að skýra hallann í
ár. Fyrir krakka hafa nýjar teg-
undir skemmtigarða vinninginn
yfir Tívolí, svo sem vatnsgarðar
og skemmtigarðar úti á Sjá-
landi, þar sem gestir borga að-
gangseyri, en greiða síðan ekki
fyrir einstök tæki. Og síðast en
ekki síst hefur verðið áhrif. Dag-
ur fyrir fjölskyldu með tvö börn,
sem fá dagsmiða í tækin, kostar
léttilega um tíu þúsund íslenskar
og fyrir þá upphæð er hægt að
gera eða kaupa margt annað.
Undanfarin ár hafa verið
gerðar tilraunir með að hafa
ódýra daga, þegar bæði dag-
smiðar og aðgangseyri kosta
minna en ella og eins hafa mat-
staðirnir verið með hádegistil-
boð. Þetta hefur gefist vel. Einn-
ig eru tónleikar á stóra útisvið-
inu vinsælir og fleiri slíkir tón-
leikar með þekktum nöfnum eru
á dagskrá. En það verður höfuð-
verkur nýs framkvæmdastjóra
að finna aftur leiðina að hjörtum
og pyngjum Dana og ferða-
manna, þó Tívolí sé reyndar enn
efst á blaði yfir ferðamanna-
staði hér.