Morgunblaðið - 11.11.1995, Side 1
60 SIÐUR B/LESBOK/D
258. TBL. 83. ÁRG.
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 - PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Aftökur í Nígeríu vekja hörð viðbrögð ráðamanna víða um heim
Deilt um A-Slavoníu
Níg'eríustjórn
hótað refsi-
aðgerðum
London, Lagos. Reuter.
RÍKISSTJÓRNIR, stjórnmála-
menn og mannréttindasamtðk víða
um heim fordæmdu aftöku Kens
Saro-Wiwas, forseta samtaka Og-
oni-ættbálksins í Nígeríu, og átta
fylgismanna hans í gær. Banda-
ríkjamenn sögðust vera að íhuga
tillögu um refsiaðgerðir af hálfu
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
og Nelson Mandela, forseti Suður-
Afríku, kvaðst ætla að leggja til
að Nígeríu yrði vísað úr breska
samveldinu. John Major, forsætis-
ráðherra Bretlands, kvaðst styðja
þá tillögu.
Saro-Wiwa, sem er einnig
þekktur rithöfundur, og fylgis-
menn hans höfðu barist fyrir rétt-
indum Ogoni-ættbálksins í Nígeríu
og mótmælt umhverfisspjöllum er-
lendra olíufyrirtækja í Ogoni-landi.
Þeir voru dæmdir til dauða : vik-
unni sem leið fyrir morð á fjórum
Ogoni-höfðingjum, sem höfðu stutt
herforingjastjóm landsins. Þótt
dauðadómunum hefði verið mót-
mælt harðlega út um allan heim
voru mennirnir hengdir í fangelsi
í suðvesturhluta landsins í gær.
„í ljósi síðustu atburða mun
suður-afríska sendinefndin leggja
til að Nígeríu verði vísað úr breska
samveldinu þar til lýðræðisleg
stjórn hefur verið mynduð," sagði
Nelson Mandela á fundi leiðtoga
aðildarríkjanna 52 á Nýja Sjálandi.
Tillaga um
viðskiptabann
Suður-afríski erkibiskupinn,
Desmond Tutu, sem var sæmdur
friðarverðlaunum Nóbels árið
1984, hvatti leiðtoga samveldis-
landanna til að beita sér fyrir við-
skiptabanni á Nígeríu af hálfu
Sameinuðu þjóðanna.
Framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins mótmælti aftökunum
og sagði að bandalagið myndi
endurskoða tengslin við Vestur-
Afríkuríkið. Mannréttindastofnun
Sameinuðu þjóðanna og Amnesty
Intemational fordæmdu einnig af-
tökurnar.
Umhverfisverndarsamtökin
Greenpeace sögðu ensk-hollenska
olíufyrirtækið Shell, sem er um-
svifamest í olíuvinnslu í Nígeríu,
vera með „blóðflekkaðar hendur".
Fyrirtækið kvaðst harma aftökurn-
ar og tók fram að það hefði ekki
getað hindrað þær.
Reuter
FRÁ mótmælum við sendiráð Nígeríu í Washington eftir aftök-
ur á níu mönnum sem börðust fyrir réttindum minnihlutaætt-
bálks og mótmæltu náttúruspjöllum olíufyrirtækja á landi hans.
Króatar
efla
viðbúnað
Zagreb, Vincovci. Reuter.
STJÓRNARFLOKKUR Króatíu
hvatti í gær leiðtoga Serba í Aust-
ur-Slavoníu til að semja um fram-
tíð héraðsins innan Króatíu og
koma þannig í veg fyrir stríð. Kró-
atar hafa flutt mörg hundruð her-
manna í átt að héraðinu auk skrið-
dreka og annarra þungavopna og
sögðust talsmenn Sameinuðu þjóð-
anna óttast að til átaka gæti kom-
ið.
„Stríð milli Króata og Serba
yrði reiðarslag fyrir alla,“ sagði í
yfirlýsingu stjómarflokksins.
Stjórnmálaskýrendur benda
sumir á að herflutningarnir geti
verið tilraun tíl að auka þrýstinginn
á samningamenn Serba í Ohio þar
sem nú er reynt að ná friðarsamn-
ingum milli deiluaðila í ríkjum
Júgóslavíu sem var. Héraðið um-
deilda er að meirihluta til byggt
Serbum og brutust þeir undan
króatískum yfírráðum árið 1991
með aðstoð hers Serbíu. Var þá
borgin Vukovar í héraðinu lögð í
rúst.
Austur-Slavonía er nú eina hér-
aðið sem Króatía hefur ekki endur-
heimt en ríkið missti fjórðung land-
svæða sinna í stríðinu við Serbíu
og serbnesk þjóðarbrot í Króatíu.
Franjo Tudjman Króatíuforseti
hefur hótað að beita hervaldi til
að fylgja eftir kröfunni um að
svæðið verði á ný hluti Króatíu.
Reuter
Kollhúfan fauk
ÍSRAELSKUR landnemi kyssir
Palestínumann á mótmælafundi í
Halhoul á Vesturbakkanum í gær
og í sama mund fýkur yamulka-
kollhúfa hans af. Palestínumenn-
irnir höfðu komið saman til að
mótmæla því að palestínskt land
yrði tekið eignarnámi en landnem-
inn sagðist vilja fullvissa þá um
að ekkert yrði úr eignarnáminu.
■ Hafa litlar sannanir/22
Mikil óvissa um valið á framkvæmdastjóra NATO
Lubbers ákveður
að draga sig í hlé
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
STJÓRN Hollands skýrði frá því í
gær að hún drægi til baka framboð
Ruuds Lubbers, fyrrverandi forsæt-
isráðherra landsins, til embættis
framkvæmdastjóra Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) vegna and-
stöðu Bandaríkjastjómar. Frakkar
og fleiri Evrópuþjóðir höfðu áður
lýst yfír stuðningi við Lubbers. Tals-
maður Jacques Chiracs sagði að
franski forsetinn útilokaði ekki að
Uffe Ellemann-Jensen, fyrrverandi
utanríkisráðherra Danmerkur, fengi
embættið, en hins vegar væri æski-
legt að fleiri yrðu tilnefndir.
Hans van Mierlo, utanríkisráð-
herra Hollands, sagði að Warren
Christopher, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hefði hringt á mið-
vikudag og sagt að bandaríska
stjórnin gæti ekki stutt framboð
Lubbers, án þess að tilgreina ástæð-
una. Lubbers var í fyrra hafnað sem
forseta framkvæmdarstjórnar Evr-
ópusambandsins org hollenskir frétta-
skýrendur sögðu ósigur hans nú mik-
ið áfall fyrir hann sjálfan, Hollend-
inga og hollensku stjómina. Franska
stjómin skýrði frá
því að hún hefði
samþykkt að
Herve de Cha-
rette, utanríkis-
ráðherra Frakk-
lands, ræddi við
Ellemann-Jensen í
París á mánudag.
„Við höfum ekki
tekið endanlega
afstöðu til hans,“
sagði Catherine Colonna, talsmaður
Frakklandsforseta.
Krefjast enn frönskukunnáttu
Leitin að framkvæmdastjóra
NATO hefur staðið frá 20. október,
þegar Willy Claes sagði af sér vegna
meintrar aðildar að spillingarmáli í
Belgíu. Þegar Lubbers og Ellemann-
Jensen þóttu líklegastir til að taka
við embættinu voru Frakkar fljótir
að taka afstöðu með Lubbers og
Þjóðverjar, Bretar, Spánveijar og
Portúgalar fóru síðan að dæmi
þeirra. Fregnir hermdu að Frakkar
gætu ekki fallist á Ellemann-Jensen
vegna þess að hann talaði ekki
frönsku. Þegar Colonna var spurð
hvort Frakkar legðu enn áherslu á
að næsti framkvæmdastjóri taiaði
frönsku játti hún því, þótt hún segði
að þeir hefðu aldrei útilokað Elle-
mann-Jensen.
Samkvæmt International Herald
Tribune þótti Lubbers ekki hafa
nægilega innsýn í málefni NATO
þegar hann ræddi við bandaríska
ráðamenn í vikunni sem leið. Ónafn-
greindur stjórnarerindreki sagði að
svo virtist sem Bandaríkjamenn væru
reiðir Evrópuríkjunum fyrir að hafa
ekki haft samráð við hana áður en
þau gerðu upp hug sinn. Þýska
stjórnin sagði að hún myndi ekki
lýsa sjálfkrafa yfir stuðningi við Elle-
mann-Jensen. Bandarískir embættis-
menn sögðu hann koma til greina í
embættið.