Morgunblaðið - 11.11.1995, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.11.1995, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Sigurður Orri Jónsson formaður Félags framhaldsskólanema Kominn tími til að við séum tek- in alvarlega LANDSÞING Félags framhaldsskólanema, FF, var sett í Sjallan- um á Akureyri í gær, en þingið sitja rúm- lega 50 fulltrúar víðs vegar af landinu. Þinginu verður fram haldið í dag og því lýkur á morgun. Sex nýir framhaldsskólar hafa gengið til liðs við FF og nú eru 20 skól- ar í félaginu, með samtals um 18.000 nemendur. Helsta mál þingsins er umræða um framhaldsskóla- frumvarpið, sem lagt Sigurður Orri Jónsson hefur verið fram á Alþingi og segir Sigurður Orri Jónsson, nemandi í Fjölbrautaskólanum í Ármúla og formaður FF, að framhaldsskóla- nemar hafi ýmislegt að við frum- varpið að athuga. „Markmiðið með þessu lands- þingi er einnig að endurskoða lög og markmið félagsins, þannig að starfandi framkvæmdastjórn geti einbeitt sér að því að vinna gott starf í þágu framhaldsskólanema í landinu og annarra ungmenna. Einnig að sameina alla framhaldsskóla í einum samtökum og með þátttöku sex nýrra skóla erum við að verða ein stærstu félagasam- tök í landinu." Sterkur þrýstihópur Sigurður Orri segir að lítið mark hafi verið tekið á framhaldsskóla- nemum til þessa en hins vegar hafi þeir sýnt fram á að þeir geti lagt ýmislegt að mörkum. Því séu þessi samtök nauðsynleg og þau. geti orðið sterkur og mikill þrýstihópur, sem hafi ýmislegt til þeirra mála að leggja sem skiptá hann máli. „Það eru margir gallar á fram- haldsskólafrumvarpinu. Þar er m.a. gert ráð fyrir því að taka af nem- endafélögunum það fijálsræði sem þau hafa haft og það finnst okkur alveg út í hött. Með þeirri breytingu færist ákvarðanatakan undir skólá- nefnd og skólastjóra og í frumvarp- inu ér gert ráð fyrir því að taka af þann atkvæðisrétt sem fulltrúi nem- Morgunblaðið/Kristján RÚMLEGA 50 framhaldsskólanemar víðs vegar af landinu sitja landsþing Félags framhaldsskólanema í Sjalllanum á Akureyri. enda í skólanefnd hefur haft til þessa. Þar með yrðum við orðin held- ur áhrifalítil innan okkar mennta- stofnunar og það getum við ekki sætt okkur við,“ segir Sigurður Orri. Samræmt námsefni um allt land Annað mál sem verður fyrirferð- armikið á þinginu snýr að kaupum nemenda á námsbókum. „Við erum á móti því að framhaldsskólanem- endur séu að kaupa námsbækur dýrum dómum og þurfi í leiðinni að borga fagurbókmenntir sem einhver Jón Jónsson úti í bæ er að gefa út og getur ekki selt. En það er ein- mitt það sem við erum að gera og þess vegna er skólabókaverð svona hátt. Þá viljum við samræmt náms- efni í framhaldsskólum um allt land,“ segir Sigurður Orri. Eftir setningu þingsins í gær var þingfulitrúum skipað í nefndir sem ætlað er að fjalla um hin ýmsu mál sem framhaldsskólanemum viðkem- ur. Á morgun, sunnudag, mun Björn Bjarnason menntamálaráðherra flytja ávarp og svara fyrirspurnum, m.a. um framhaldsskólafrumvarpið. „Okkur finnst tími til kominn að stjórnmálamenn, fjölmiðlar og fleiri fari að taka okkur alvarlega, því við höfum sýnt fram á að við séum þess megnug að standa við það sem við segjum. Það höfðu t.d. ekki margir trú á því að við hefðum burði til þess að standa fyrir blysför eftir slysið á Flateyri, en í þeirri göngu tóku þátt um 30.000 manns." Félag framhaldsskólanema var stofriað árið 1984 en Sigurður Orri segir að starfsemin hafi verið frekar máttlítil lengst af en nú sé stefnt að því að snúa við blaðinu og blása til sóknar. Fjárhagsstaðan var einnig slæm en nú er búið að koma rekstrin- um á núllið. Hitt húsið í Reykjavík hefur stutt við bakið á FF og þar er skrifstofa félagsins til húsa. Skíðasvæðið í Böggvis- staðaíj'alli op- ið um helgina Dalvík SKÍÐASVÆÐIÐ í Böggvis- staðafjalli, sem er skíðasvæði Dalvíkinga var opnað í fyrsta skipti á þessum vetri um síð- ustu helgi eftir 5 mánaða hlé, en lyftur voru þar opnar síðast 14 júní í sumar. Um helgina verður opið í fjaliinu frá kl. 13 til 17 í dag og morgun, sunnudag og er gert ráð fyrir að opið verði næstu helgar ef snjór verður nægur. Ný gjaldskrá tekur gildi með vetraropnun. Daggjald fyrir 16 ára og eldri er 750 krónur og 350 krónur fyrir 15 ára og yngri. Vetrarkort kosta 8.000 krónur fyrir fullorðna og 4.500 krónur fyrir 15 ára og yngri. Morgunblaðið/Kristján VERIÐ var að troða göngubraut í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar í gærdag, en hún verður opin um helgina. Aðstæður eru ekki sérlega góðar til skíðaiðkunar, fremur lítill snjór og harður að sögn Ivars Sigmundssonar forstöðumanns Skiðastaða, „en það þarf ekki mikinn snjó í viðbót til að við gætum opnað tvær lyftur,“ sagði Ivar sem hér er á vélsleðanum, en „troðarastjórinn" Kristinn Sigurðsson fylgir fast á eftir á snjótroðaranum. Sundlaugarbygging við Kristnesspítala Söfnunarfé komið í 8 milljónir FRAMKVÆMDIR við sundlaugar- byggingu á Kristnesspítala í Eyja- fjarðarsveit heflast eftir áramót en verið er að ljúka hönnun byggingar- innar um þessar mundir. Safnast hafa 8 milljónir króna í söfnun sem staðið hefur yfir um alllangan tíma vegna fyrirhugaðra framkvæmda. I vikunni komu fulltrúar úr Li- onsklúbbunum Ösp færandi hendi að Kristnesi en þær gáfu 400 þús- und krónur í söfnunina, sem er ágóði af plastpokasölu háustsins. Þá komu nýlega fulltrúar Lions- klúbbsins Sunnu á Dalvík með 50 þúsund krónur í söfnunina og sömu upphæð færðu fulltrúar Gigtarfé- lags Akureyrar fyrir skömmu. -»■■■♦ ♦ MESSUR AKUREYRARKIRKJA: Sunnudaga- skólinn fer í heimsókn í Glerárkirkju. Kirkjubílar verða 15 mínútum fyrr á ferðinni en venjulega. Messa kl. 14.00, kristniboðsdagurinn. Skúli Svavarsson predikar. Barna- og unglingakór kirkjunnar syngur. Messað í Seli kl. 14.00 og í Hlíð kl. 16.00. Barna- og unglingakór syng- ur. Biblíulestur á mánudag kl. 20.30. GLERÁRKIRKJA: Biblíulestur og bænastund kl. 13.00 í dag. Barna- samkoma kl. 11.00. Guðsþjónusta kl. 14.00. Fundur æskulýðsfélagsins kl. 18.00. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu- dagaskóli kl. 13.30. Almenn sám- koma kl. 20.00, Níels Jakob Erlings- son, talar. Heimilasamband kl. 16.00. á mánudag. Biblíuiestur kl. 20.30 á miðvikudagskvöld. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Sam- koma í umsjá unga fólksins í kvöld kl. 20.30. Vakningarsamkoma kl. 15.30 á morgun, biblíulestur með John og Dorothy Zpinden miðviku- dag kl. 20.30. Bænasamkoma á föstudag kl. 20.30. HÚSAVÍKURKIRKJA: Sunnudaga- skóli kl. 11.00. Kyrrðar- og bæna- stund á sunnudagskvöld kl. 21.00, beðið fyrir sjúkum og syrgjendum. KFUM og KFUK, Sunnuhlíð: Skúli Svavarsson formaður Sambands ís- lenskra kristniboðsfélaga verður í heimsókn hjá félaginu og talar á samkomum, sem verða kl. 20.30 á laugardags- og sunnudagskvöld auk miðnætursamkomu sem hefst kl. 23.30 á laugardagskvöld. Kaffisala verður í félagsheimilinu að Sunnuhlíð kl. 15.00 á sunnudag til styrktar kristniboðinu. KAÞÓLSKA KIRKJAN, Eyrarvegi 26: Messa á laugardag kl. 18.00 og sunnudag kl. 11.00. Akureyrarbær, deiliskipulag. Oseyri 1, deiliskipulagstillaga Meö vísan til greinar 4.4 og 4.4.1 í skipulagsreglugerð auglýsir Akureyrarbær tillögu að deiliskipulagi verslunarlóöar KEA-NETTÓ á Óseyri 1. í tillögunni er gert ráö fyrir aö sett veröi upp bensínafgreiösla á bílastæöi noröan verslun- arhússins. Skipulagsuppdráttur liggur frammi, almenningi til sýnis, á Skipulagsdeild Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð, næstu 4 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. til fös- tudagsins 8. desember, þannig aö þeir sem þess óska, geti kynnt sér tillöguna og gert viö hana athugasemdir. Athugasemdafrestur er til 8. desember 1995. Þeir, sem telja sig veröa fyrir bótaskyldu tjóni vegna framkvæmdar deildiskipulagsins, er bent á aö gera viö þær athugasemdir innan tilgreinds frests ella teljast þeir samþykkir skipulagstillögunni. Skipulagsstjóri Akureyrar. Tvær myndlistasýningar opnaðar í Listasafni Akureyrar Bæjarlista- maður sýnir TVÆR myndlistasýningar verða opnaðar í Listasafninu á Akureyri í dag, laugardaginn 11. nóvember kl. 16. I austur- og miðsal sýnir Guð- mundur Ármann Siguijónssón en hann hefur lengi starfað að list sinni á Akureyri. Hann hlaut starfslaun bæjarlistamanns á liðnu ári og sýnir nú afrakstur __ Morgunbiaðið/Kristján þess starfs sem hann sinnti á GUÐMUNDUR Ármann að hengja upp verk á veggi þeim tíma, en um er að ræða ein- Listasafnsins á Akureyri. þrykksmyndir og olíumálverk af ■ fólki. Guðmundur hefur lengi í vestursal safnsins sýna Erla af gagnsæjum myndum á gler- starfað sem kennari við Myndlist- Þórarinsdóttir og Andrew M. plötum, veggmálverki og hljóði arskólann á Akureyri. Mckenzie verk sem samanstendur sem allt myndar eina heild.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.