Morgunblaðið - 11.11.1995, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 11.11.1995, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MESSUR ÁRBÆJARKIRJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta á kristniboðsdegi kl. 14. Haraldur Jóhannsson læknirflyt- ur stólræðu. Organleikari Sigrún Stein- grímsdóttir. Barnakór Árbæjarsóknar syngur ásamt kirkjukór. Tekið á móti frámlögum til kristniboðssambandsins að lokinni guðsþjónustu. Prestarnir. ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Hrafnista: Guðsþjónusta kl. 14. Árni Bergur Sigurbjörnsson. KIRKJA HEYRNARLAUSRA: Guðs- þjónusta í Áskirkju kl. 14. Sr. Miyako Þórðarson. BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Foreldrar hvattir til þátttöku með börnunum. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Kjartan Örn Sigurþjörnsson messar. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Prestur sr. Hjalti Guðmundsson. Organleikari - Kjartan Sigurjónsson. Barnastarf í safnaðarheimilinu á sama tíma og í Vesturbæjarskóla kl. 13. Skírnarguðs- þjónusta kl. 14. Prestur sr. Jakob Á. Hjálmarsson. Tónleikar kl. 17 á Tónlist- ardögum Dómkirkjunnar. Helgi Péturs- son organleikari og frú Natalja. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Gylfi Jónsson. Organisti Kjart- an Ólafsson. GRENSÁSKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11. Messa kl. 14. Kristniboðsdagurinn. Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Organ- isti Árni Arinbjarnarson. HALLGRIMSKIRKJA: Fræðsluerindi kl. 10. Allsnægtir — allsleysi. Sigríður Guðmundsdótitr, RKI. Barnasamkoma og messa kl. 11. Organisti Hörður Áskelsson. Sr. Karl Sigurbjörnsson. LANDSPITALINN: Messa kl. 10. Sr. Bragi Skúlason. HÁTEIGSKIRKJA: Kl. 11. Barnaguðs- þjónusta. Sr. Helga Soffía Konráðsdótt- ir. Messa kl. 14. Organisti Pavel Mana- sek. Sr. Tómas Sveinsson. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð- brands biskups. Messa kl. 11. Prestur sr. Flóki Kristinsson. Organisti Jón Stef- ánsson. Kór Langholtskirkju (hópur I) syngur. Barnastarf á sama tíma. Kaffi- sopi eftir messu. LAUGARNESKIRKJA: Barnaguðsþjón- y-jjsta kl. 11. Messa kl. 14. Drengjakór 1_augarneskirkju syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti Gunnar Gunnarsson. Tekið við fjár- framlögum til kristniþoðsstarfs í Afríku. Kirkjukaffi eftir messu. Ólafur Jóhanns- son. Guðspjall dagsins: Hve oft á að fyrirgefa? Matt. 18. 15 samverustund með fötluðum og unglingum í æskulýðsstarfi Feila og Hólakirkju. Prestarnir. GRAFARVOGSKIRKJA: Barnaguðs- þjónusta kl. 11 í kirkjunni og kl. 12.30 í Rimaskóla. Guðsþjónusta kl. 14. Dr. Sigurjón Árni Eyjóflsson héraðsprestur þjónar. Organisti Ágúst Ármann. Prestarnir. HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Kristniþoðsins verður minnst og tekið á móti fjárframlögum til þess. Ferming- arbörn aðstoða. Skólakór Hjallaskóla syngur undir stjórn Guðrúnar Magnús- dóttur. Barnaguðsþjónusta kl. 13 í umsjá sr. Bryndísar Möllu og Dóru Guðrúnar. Kyrrðarstund kl. 21 á vegum safnaðarfélagsins. Söngur, bænir, íhugun og altarisganga. Allir velkomnir. Organisti Oddný J. Þorteinsdóttir. Kristján Einar Þorvarðarson. KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf f safn- aðarheimilinu Borgum kl. 14 (ath. breyttan tíma), frumbyggjamessa. Sér- staklega er vænst þátttöku frumbyggja Kópavogs og þeirra sem lengi hafa búið í bænum. Stefán M. Gunnarsson formaður sóknarnefndar flytur stól- ræðu. Kór Kópavogskirkju syngur und- ir stjórn Árnar Falkner. Að lokinni guðs- þjónustu verður þoðið til kaffidrykkju í safnaðarheimilinu Borgum og þar mun Jóhanna Björnsdóttir sýna litskyggnur. Ægir Fr. Sigurgeirsson. SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir guðfræðingur prédikar. Tekið verður við framlögum til Kristni- boðsins. Organisti Kjartan Sigurjóns- son. Laugardag: Guðsþjónusta í Selja- hlíð kl. 11. Sóknarprestur. FRIKIRKJAN, Rvík: j dag, laugardag, hefst Flautuskólinn í safnaðarheimilinu kl. 11. Guðsþjónusta sunnudag kl. 14. Hlutavelta Kvenfélagsins í safnaðar- heimilinu að lokinni guðsþjónustu. Kátir krakkar þriðjudag kl. 16. Organ- isti Pavel Smid. Cecil Haraldsson. KRISTSKIRKJA, Landakoti: Hámessa kl. 10.30. Messa kl. 14. Ensk messa kl. 20. Laugardaga messa kl. 14. Aðra rúmhelga daga messur kl. 8 og kl. 18. MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa kl. 11 á sunnudögum. NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11. Húsið opnað kl. 10. Föndur o.fl. Munið kirkjubílinn. Sr. Frank M. Halldórsson. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Halldór Reyn- isson. Árleg kaffisala og basar Kvenfé- lags Neskirkju að lokinni guðsþjónustu. SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11 á kristniboðsdaginn. Friðrik Hilm- arsson, kristniboði prédikar. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir þjónar fyrir alt- ari. Organisti Vera Gulasciova. Barna- starf á sama tíma í umsjá Elínborgar Sturludóttur. Eftir messu mun Friðrik Jíræða um kristinboðið og boðið verður upp á léttan hádegisverð. BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðsþjón- usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 11. Barna- kórinn annast söng í guðsþjónustunni. Tekið verður á móti framlögum til kristniboðsins. Samkoma Ungs fólks með hlutverk kl. 20. Gísli Jónasson. DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Alt- arisganga. Oragnisti Smári Ólason. Sunnudagaskóli á sama tíma. Gunnar Sigurjónsson. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Barnaguðs- þjónusta kl. 11 í umsjá Ragnars Schrams. Guðsþjónusta kl. 11. Prestur dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðs- prestur. Organisti Lenka Mátéová. Kl. FRiKIRKIUSÓFNl IÐURINN I REYKJAVÍK KRISTNIBOÐSDAGURINN í DAG, LAUGARDAG, HEFST FLAUTUSKÓLINN í SAFNAÐAR- HEIMILINU KL.11.00. GUÐSÞJÓNUSTA SUNNUDAG KL.14.00. HLUTAVELTA KVENFÉLAGSINS í SAFNAÐARHEIMILINU AÐ LOÍINNI GUÐSÞJÓNUSTU. KÁTIR KRAKKAR ÞRIÐJUDAG 7 QT g g JÓSEPSKIRKJA, Hafnarfirði: Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga er messa kl. 18. HVÍTASUNNUKIRKJAN Filadelffa: Al- menn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Snorri Óskarsson. Allir hjartanlega vel- komnir. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Messa kl. 14. Barnastarf á sama tíma. Kaffi og maul eftir messu. HJÁLPRÆÐISHERINN: Laugardagur: Lofgjörðarsamkoma kl. 20.30. Ungl- ingasamkoma kl. 23. Sunnudagur: Samkoma fyrir hermenn og samherja kl. 17. Hjálpræðissamkoma kl. 20. Of- urstarnir Norunn og Roger Rasmuss- en, yfirmenn safnaðarstarfs Hjálpræð- ishersins í Noregi, Færeyjum og Is- landi, tala á samkomum helgarinnar. KFUM og KFUK, Holtavegi: Samkoma á morgun kl. 17. Ræðumaður Ragnar Gunnarsson. Kristniboðsþáttur í um- sjón Guðlaugs Gíslasonar og Birnu G. Jónsdóttur. Ten Sing Holtavegi syngur. Barnasamverur á sama tíma. Veitingar seldar að lokinni samkomu. MOSFELLSPRESTAKALL: Messa í Lágafellskirkju kl. 14. Altarisganga. Einsöngur Jón Þorsteinssonar. Tekið á móti framlögum til Kristniboðssam- bandsins. Barnastarf í safnaðarheim- ilinu kl. 11. Bíll frá Mosfellsleið fer venjulegan hring. Jón Þorsteinsson. BRAUTARHOLTSKIRKJA, Kjalarnesi: Barnagúðsþjónusta sunnudag kl. 11. Gunnar Kristjánsson. HALLGRÍMSKIRKJA í Saurbæ: Guðs- þjónusta sunnudag kl. 14. Gunnar Kristjánsson. GARÐASÓKN: Biblíulestur í dag, laug- ardag, kl. 13 í safnaðarheimilinu Kirkju- hvoli. VÍDALÍNSKIRKJA: Kristnibpðsdag- urinn. Guðsþjónusta- og sUnnudaga- skóli kl. 11. Sr. Kjartan Jónsson, kristni- boði, prédikar. Kór Vídalínskirkju syng- ur. Organisti og kórstjóri Gunnsteinn Ólafsson. Bragi Friðriksson. BESSASTAÐAKIRKJA: Messa kl. 14. Látinna minnst. Álftaneskórinn syngur undir stjórn Johns Speights. Organisti Þorvaldur Björnsson. Bragi Friðriks- son. VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl. 11. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14. Kór Víöistaðasóknar og þarnakór syngja. Sigurður Helgi Guðmundsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Þriðja fræðsluerindi Friðriks Hilmarssonar um kristniboð, þróun og 'hjálparstarf verður í dag, laugardag, kl. 11 í Von- arhöfn, Strandbergs. Léttur hádegis- verður á eftir. Sunnudagaskóli kl. 11. Munið skólabílinn. Guðsþjónusta kl. 14. Fermingarbörn aðstoða. Barna- og unglingakórinn syngur. Friðrik Hilmars- son starfsmaður Kristniboðssambands (slands prédikar og leiðir samveru eftir guðsþjónustuna í Strandbergi með fermingarbörnum og fjölskyldum þeirra. Organisti Ólafur W. Finnsson. Gunnþór Ingason. FRÍKIRKJAN HAFNARFIRÐI: Barna- samkoma kl. 11. Organisti Kristjana Ásgeirsdóttir. Einar Eyjólfsson. KAPELLA St. Jósefssystra, Garðabæ: Þýsk messa kl. 10. JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði: Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga messa kl. 18. KARMELKLAUSTUR: Messa sunnu- daga kl. 8.30. Aðra daga kl. 8. Allir velkomnir. YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðs- þjónusta sunnudag kl. 11. Börn borin til skírnar. Nemendur úr Tónlistar- skóla Njarðvikur koma fram. Ferming- arbörn verða með kaffi- og kökusölu í safnaðarsal til styrktar ferðasjóði. Einnig rennur hluti ágóðans til hjálp- arstarfs og kristniboðs. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Steinars Guð- mundsonar. Sunnudagaskóli sunnu- dag kl. 11. Brúðurnar Axel og Ösp verða í sjónvarpinu í kirkjunni ásamt fleiri gestum sem áður hafa heimsótt sunnudagaskólann. Baldur Rafn Sig- urösson. KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskóli í dag, laugardag, kl. 11 í Stóru-Voga- skóla. Bjarni Þór Bjarnason. KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11 árdegis. Efni: Uppskeran er mik- il. Munið skólabílinn. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Kjartan Jónsson kristniboði prédikar. Sr. Ólafur Oddur Jónsson þjónar fyrir altari. Kór Keflavíkurkirkju syngur. Organisti og söngstjóri: Einar Örn Einarsson. Hann æfir sálmana, sem sungnir verða við guðsþjónusta, hálftíma fyrir athöfn með þeim sem vilja. Tekið á móti samskotum til kristni- boðs. Molasopi í Kirkjulundi eftir guðs- þjónustu. KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík: Messa kl. 14. HVERAGERÐISKIRKJA: Sunnudaga- skóli kl. 11. Jón Ragnarsson. HEILSUSTOFNUN NLFÍ: Guðsþjón- usta sunnudag kl. 11. Jón Ragnarsson. KOTSTRANDARKIRKJA: Guðsþjón- usta sunnudag kl. 14. Jón Ragnarsson. SELFOSSKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11. Messa sunnudag kl. 14. Sókn- arprestur. STRANDAKIRKJA: Messa sunnudag kl. 14. EYRARBAKKAKIRKJA: Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Úlfar Guðmundsson. GAULVERJABÆJARKIRKJA: Messa kl. 14. Úlfar Guðmundsson. STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA, Hvolsvelli: Kirkjuskóli laugardag kl. 11. Guðsþjón- usta á kristniboðsdaginn, kl. 14. Aðal- safnaðarfundur Stórólfshvolssóknar verður haldinn í kirkjunni að loknu embætti. Sigurður Jónsson. ODDASÓKN: Sunnudagaskóli í grunn- skólanum á Hellu kl. 11. Sigurður Jóns- son. VILLINGAHOLTSKIRKJA í Flóa: Messa sunnudag kl. 13.30. Vænst er þátttöku fermingarbarna og aðstand- enda þeirra. Barnaguðsþjónusta eftir messu og síðan fundur með fermingar- börnum og aðstandendum. Messur í Villingaholtskirkju verða hér eftir að jafnaði annan sunnudag hvers mánað- ar. Kristinn Ágúst Friðfinnsson. LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum: Sunnudagaskóli Landakirkju kl. 11. Al- menn guðsþjónusta kl. 14. Sr. Bjarni Þór Bjamason héraðsprestur þjónar. Benedikt Arnkelsson frá Sambandi ís- lenskra kristniboðsfélaga verður með stutta kynningu á starfsemi Kristni- boðsins í Afríku. Samskot. Barnasam- vera meðan á prédikun stendur. Að lokinni messu verður haldinn aðalfund- ur Kórs Landakirkju ( safnaðarheimil- inu. Messu útvarpað á ÚVaff (FM) 104 kl. 16. AKRANESKIRKJA: Barnaguðsþjón- usta í dag, laugardag, kl. 11. Stjórn- andi Sigurður Grétar Sigurðsson. Messa sunnudag kl. 14. Kristniboðs- dagurinn. Jóhannes Ingi Bjartsson prédikar. Altarisganga. Tekið á móti gjöfum til kristniboðsins. Björn Jóns- son. BORGARPRESTAKALL: Barnaguös- þjónusta verður í Borgarneskirkju kl. 11.15. Messa kl. 14. Sérstakur gesta- prédikari Eðvarð Ingólfsson. Þorbjörn Hlynur Árnason. MARTEINN DA VÍÐSSON + Marteinn Dav- íðsson fæddist á Húsatóftum, Skeiðahreppi, 27. október 1914. Hann lést í Reykjavík 2. nóvember síðastlið- inn og fór útförin fram 10. nóvember. ELSKULEGUR afi minn er látinn. Sökn- uðurinn er mikill og sár, en orðin eru fá. Hann afi minn var engum líkur, afar sér- stakur eins og sannir listamenn gjarnan eru. Góð kímni- gáfa og fallegt viðmót var einkenn- andi fyrir hann. Það var alltaf gott að finna hand- tak hans hlýtt og sterkt, jafnt þá er við kvöddumst í hinsta sinn. Mig langar til að kveðja afa með þessum texta. Mér finnst ég varla heill né hálfur maður og heldur ósjálfbjarga því er verr ef værir þú hjá mér vildi ég glaður verða betri en ég er. Eitt sinn verða allir menn að deyja eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það en samt ég verð að segja að sumarið iíður allt of fljótt. (Jóh. Helgason.) Megi þú hvíla í friði. Sigríður Nanna. Marteinn Davíðsson múrari og lista steinsmiður, verður borinn til sinnar hinstu hvilu hér i Reykjavik í dag. Þeir hverfa nú hver af öðrum samferðamennirnir, kunningjar og vinir, enda erum við trúlega flest, sem fædd erum á öðrum áratug aldarinnar, komin „á tíma“. Það er víst eðlilegur gangur lífsins, þótt sumum sé lengra líf gefið og aðrir falli frá fyrir aldur fram. Um það fáum við engu ráðið. Vissulega eru það mikil forrréttindi að hafa búið í hraustum líkama langt fram á elliár, geta notið síðustu áranna með lít.t skerta líkamlega burði. Sagt hefur verið að börnin, sem lifðu af harðindi, fátækt og sjúk- dóma, sem heijuðu á landsmenn á öldinni sem leið og fram á byijun þessarar, hafi verið hraust og vel byggt fólk. Líkamleg vinna, fá- breytt en kjarngott fæði forfeðra okkar, hefur ef til vill ekki verið svo afleitt hlutskipti, miðað við alls- nægtir og allt það sem hijáir Islend- iiiga nútímans. Marteinn Davíðsson var fæddur og uppalinn í sveit á íslandi, þurfti að beijast áfram af eigin rammleik, með þrotlausri vinnu að þeirra tíma hætti. Fæstir áttu þess kost að ganga menntaveginn, þótt til þess hefðu hæfileika, fólkið varð flest að vinna frá bernsku til þess að sjá sér farborða. Marteinn varð fljótt hraustur og stæltur ungur maður, sem vílaði ekki allt fyrir sér. Faðir hans var þekktur byggingameistari og því hefur það orðið að ráði að sonurinn lærði múraraiðn og skip- aði sér í hóp þeirra manna, sem unnu kappsamlega að uppbyggingu húsakosts landsmanna. Marteinn var vel gefinn maður, kunni vel til verka og iagði gjarnan listrænt mat á það, sem hann tók sér fyrir hend- ur. Hann var gæddur ríkri sköpun- argáfu, sem kom fram í ótal lista- verkum hans, gerðum úr íslenskum steinum. Hann sá kynjamyndir í klettunum, skynjaði gildi og fegurð íslenska gijótsins til listsköpunar utanhúss sem innan. Listaverk hans eru fyrir löngu orðin þjóðkunn, þau má sjá um gjörvallt landið úti sem inni. Hann ferðaðist vítt og breitt um landið í leit að steinum, sem nota mætti til þess að fegra um- hverfi og heimili landsmanna. „Mosaik“-veggi, þar sem líparíti, skrautlegu storkubergi, er raðað upp á listrænan hátt, má sjá víða um land með hand- bragði Marteins. Þá eru einnig víða stuðla- bergsborð og aðrir fagrir gripir úr ís- lensku gijóti, sem Mar- teinn hefur gert af miklum hagleik og list- rænum smekk. Varla er hægt að segja að Marteini félli nokkurn tíma verk úr hendi, vinnan var hon- um í blóð borin. Ungl- ingsárin voru enginn dans á rósum, það varð að vinna myrkranna á milli til þess að sjá sér og sínum farborða: Það var alltaf ánægjulegt að líta til hans í vinnustofuna í Korpúlfsstaðahúsinu. Þar gat að líta ótal listaverk fagurlega gerð. Og aldrei skorti umræðuefnið, Mar- teinn var í senn skemmtilegur mað- ur og fróður og hafði gaman af spaugilegum hliðum lífsins. Marteinn Davíðsson var ávallt reiðubúinn að rétta öðrum hjálpar- hönd, var gjafmildur og hlýr. Kannski lýsir það honum best. Hann var vinfastur maður og reyndist fólki sínu vel, unni dætrun- um öllum og gladdist yfir velgengni þeirra. Ein dætranna, Ingibjörg óperusöngkona og maður hennar, höfðu áformað ferðalag til söngleik- húsa erlendis nú í nóvembermán- uði, ásamt Marteini og Sigríði konu hans, sem bæði höfðu yndi af fag- urri tónlist. Nú verður ekki af þeirri för, en vinir og ættingjar fjölskyldn- anna munu í dag hlýða á fagra tónlist í Dómkirkjunni hér í Reykja- vík, þegar góður vinur verður kvaddur. Við munum öll minnast hans, sem unni fegurð tónanna, ijallanna, steinanna og stuðlanna, mannsins, sem leyndi á sér, en skil- ur eftir sig list, sem verður augna- yndi komandi kynslóða á íslandi. Innilega samúð vottum við hjónin öllum aðstandendum. Megi hann hvíla í Guðs friði. Jóhannes R. Snorrason. Heiðursmaðurinn Marteinn Dav- íðsson er látinn. Mig langar að minnast tengdaföður míns með nokkrum orðum. Marteinn var mikið gefinn fyrir ferðalög og einmitt á ferðalagi um sína uppáhaldssveit á Suðaustur- Iandi lést hann skyndilega að kvöldi 2. nóvember. Hann var þá nýorðinn 81 árs gamall. Fyrstu ár Marteins og æska hans var að ýmsu leyti óvenjuleg. Hann var tvíburi en móðir hans og bróðir létust þegar hann var aðeins nokk- urra daga gamall. Strax þá hefur komið i ljós að hann var sterk- byggður og hafði mikinn viðnáms- þrótt. Aður höfðu látist elsti bróðir hans og tvær systur úr berklum. Til fullorðinsára komust því aðeins Marteinn og Guðlaugur, eldri bróðir hans, sem látinn er fyrir nokkrum árum. Síðar kvæntist Davíð faðir hans aftur og eignaðist dótturina Magneu Aldísi, sem lést árið 1990, þá sjötug að aldri. Marteini var komið í fóstur til móðurbróður síns, til nokkurra ára, en hjá föður sínum og stjúpu annað slagið. Það þarf ekki mikið hugarflug til að skynja, að slík æska hafi verið all tvístruð og þurft hafi sterkan hug og bein til að standast slíkt mótlæti. Þá lærir Marteinn iðn sína hjá föður sínum, Davíð Jónssyni frá Hlemmi- skeiði á Skeiðum. Davíð var þekkt- ur byggingameistari hér í borginni um sína tíð. Eftirlifandi kona Marteins er Sig- ríður Ársælsdóttir frá Eystri-Tungu í Vestur-Landeyjum, en þau gengu í hjónaband 29. júlí 1950. Þeim varð fimm barna auðið, en fyrsta barn þeirra, sem var drengur, fædd- ist andvana. Síðan eignuðust þau fjórar dætur. Lífshlaup Marteins sem iðnáðar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.