Morgunblaðið - 11.11.1995, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.11.1995, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ t FRETTIR i s I í hættumati fyrir ísafjörð er miðað við að snjóflóð falli á hættusvæði á 50-300 ára fresti ísafjörður á engar lóðir undir einbýlishús KRISTJÁN Þór Júlíusson, bæjar- stjóri á Isafirði, segir að ekki verði byggt meira í Seljalandshverfi, en samkvæmt nýju snjóflóðahættu- mati fyrir ísafjörð er hverfið á hættusvæði. Hann segir þetta áfall fyrir bæinn því að hann sé búinn að fjárfesta fyrir tugi milljóna í hverfinu í lögnum og götum. ísa- fjörður eigi nú engar lóðir fyrir ein- býlishús, en nýtt hverfi verði hann- að í vetur. Hverfið á Seljalandsdal er nýj- asta íbúðahverfi Isfirðinga og fram- tíðaruppbygging bæjarfélagsins næstu árin átti að vera þar. Þar eru nú tvær blokkir og fimm einbýl- ishús, sem byggð hafa verið á síð- ustu átta árum. Bæjarsjóður hefur verið að úthluta lóðum í hverfinu allt fram á síðasta ár. „Eftir að bæjarstjóm fékk grun um að hættumat fyrir Seljalands- svæðið kynni að breytast hefur engum lóðum verið úthlutað þarna. Það verður ekki um frekari upp- byggingu á svæðinu að ræða. Eins og staðan er í dag hefur Isafjarðar- kaupstaður engar lóðir lausar til bygginga einbýlishúsa. Við höfum lóðir undir Qölbýlishús á Suður- tanga, en skipulag fyrir hann var nýlega samþykkt í bæjarstjóm. Framtíðarbyggingarland okkar er sennilega í landi Neðri-Tungu og Skeiða. Ég á von á því að unnið verði að því að skipuleggja það svæði í vetur. Þetta setur verulegt strik í reikn- inginn hjá okkur. Bæjarfélagið gekk frá götum og lögnum í Selja- landshverfinu fyrir tveimur árum og lagði í það tugi milljóna króna. Þetta kemur því afar illa við okk- ur,“ sagði Kristján. Fleiri hús rýmd í framtíðinni Nýja hættumatið fyrir Selja- landsdal og Hnífsdal setur fleiri hús inn á skilgreint hættumat en eldra hættumat gerði. Ólafur Helgi Kjart- ansson, sýslumaður og formaður almannavarnanefndar ísafjarðar- kaupstaðar, sagði þetta þýða að ef Einbýlishús íFossvogi Til sölu er vel staðsett, nýlegt einbýlishús. 5 svefn- herb., stofa, borðstofa, garðstofa. Bílskúr. Þeir, sem óska eftir frekari uppl., sendi nafn og síma til afgreiðslu Mbl., merkt: „Hús - 15893“, fyrir 15. nóv. í Hamrahverfi, Grafarvogi er „penthouse“-íb. til sölu. Gott útsýni. A hæðinni, sem er 120 fm, eru 2-3 svefnh., góðar stofur, rúmg. eld- hús, bað, þvottahús og stórar svalir á móti suðri. Steypt- ur stigi er upp í ris. í risi má t.d. koma fyrir svefn- herb., sjónvherb. eða tómstundaherb. Bílskúr fylgir. Örn Isebarn, byggingameistari, sími 896-1606. Fossvogsdalur Birkigrund - Kóp. Vorum að fá mjög gott ca 196 fm endaraðhús ásamt 28 fm bílskúr. Möguleiki á að hafa séríb. í kj. Verð 13,0 millj. Skipti á minni eign koma til greina. Borgir, fasteignasala, sími 588 2030. 552 1150-552 1370 LARUS Þ. VALDIMARSSON, FRAMKVÆMDASIiÓRi KRISTJÁN KRISIJANSSON, lOGGiiiUR msieignasaii Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Úrvalsfbúð - Eskihlíð - útsýni Á 4. hæð 102,6 fm. Gólfefni, eldhús, bað, skápar, allt nýtt. í risi fylg- ir rúmgott herb. Ágæt sameign. Tilboð óskast. Skammt frá Hlemmtorgi 2ja herb. íbúð á 2. hæð í reisulegu steinhúsi tæpir 50 fm. Lítið gott eldhús, gott sturtubaö, góður skápur i svefnherb., sólrik stofa. Verð aðeins kr. 3,8 millj. Tilboð óskast. Skammt frá Sundhöllinni Ný endurgerð rishæð í reisulegu steinhúsi. Tvöf. stofa, 2 svefnherb. m.m. Allar lagnir og leiðslur að og í húsinu nýjar. Langtimalán kr. 3,6 millj. Tilboð óskast. Við Bogahlíð eða nágrenni óskast góð 3ja herb. íbúð. Skipti mögul. á 4ra herb. úrvalsíb. í Nýja miðbænum með sérþvhúsi, góðum bílskúr og útsýni. Fjöldi traustra kaupenda á skrá. Ýmiskonar hagkvæm eignaskipti möguleg. Sérstaklega óskast eignir í miðborginni og nágrenni. Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga. • • • Opið í dag frá kl. 10-14. Góð sérhæð óskast ívesturborginni. ALMENNA FASTEIGNASALAN hættuástand skapaðist yrði að rýma fleiri hús en áðúr var gert. í óveðr- inu sem gekk yfir Vestfirði á dögun- um var allt Seljalandshverfið rýmt. „Þegar hættuástand skapast að mati séi'fræðinga, snjóflóðafræð- inga, veðurfræðinga og snjóat- hugunarmanns, tekur ' almanna- varnanefnd ákvörðun um að lýsa yfit' hættuástandi og þá þurfa þau hús sem eru á hættusvæði hverju sinni, samkvæmt hættumati, að rýmast," sagði Ólafur Helgi. Félagsheimilið í Hnífsdal lendir innan hættusvæðis samkvæmt nýju hættumati fyrir HnífsdaL Þegar hús á svæðinu hafa verið rýmd hefur fólk safnast saman í félagsheimilinu og þaðan hefur það verið flutt í öruggt skjól. Kristján sagði að síð- ustu ár hefði fólk, sem liefði þurft að yfírgefa heimili sín vegna snjó- flóðahættu, ekki gist yfir nótt í fé- lagsheimilinu. Snjóflóð falla á rautt svæði á 50-300 ára fresti í nýja hættumatinu er reynt að leggja mat á líkur á tíðni snjóflóða á svæðinu sem hættumatið nær til. Þetta er m.a. byggt á reiknilíkönum sem hönnuð hafa verið fyrir Noreg og S-Alaska. Miklir fyrirvarar eru settir við þessa útreikninga og bent á að ekki sé víst að sömu aðstæður ríki hér á landi og í þessum löndum. í hættumatinu fyrir Seljalandsdal er miðað við að líkur á að snjóflóð falli á það sem skilgreint er rautt svæði séu 100-300 ár og meðalend- urkomutími fyrir gula svæðið sé allt að 300 ár. Í hættumati fyrir Hnífsdal er meðalendurkomutími fyrir rauða svæðið líklega á bilinu 50-300 ár og á gula svæðinu allt að 300 ár. Kristján sagði að umræða hefði farið fram í bæjarstjórn um nýja hættumatið í september á þessu ári og fjölmiðlar hefðu fjallað um það þá. Það væru því engin ný tíðindi að gerast núna önnur en þau að búið væri að teikna hættumörkin inn á kort og staðfesta matið. „Það verð- ur hins vegar eðlilega mikil umræða um þetta núna vegna þeirra atburða sem urðu á Flateyri fyrr nokkrum dögum. Ég legg aftur á móti áherslu á að fólk haldi ró sinni.“ Nefnd um hópumferðarslysið í Hrútafirði 22. október Lögbundin rannsóknamefnd umferðarslysa verði starfrækt LAU6AVEG118 S. 552 1150-552 1370 STUNGIÐ er upp á því að starf- rækt verði lögbundin rannsóknar- nefnd umferðarslysa í niðurstöðum nefndar um hópumferðarslysið í Hrútafirði 22. október. Hópferða- bifreið fór út af þjóðveginum með þeim afleiðingum að tvær konur létust og fjöldi farþega slasaðist. Fjörutíu og einn farþegi og bílstjóri voru í bílnum. Dómsmálaráðuneytið skipaði nefndina daginn eftir slysið. Hana skipa formaðurinn, Magnús Einars- son, yfirlögregluþjónn í Kópavogi, Brynjólfur Mogensen, yfirlæknir á Borgarspítala, og Kristján Vigfús- son, deildarstjóri í samgönguráðu- neytinu. Magnús kynnti niðurstöður nefndarinnar á blaðamannafundi á fimmtudag. Hjá honum kom fram að nefndin byggði niðurstöðumar á samtölum við fjölda fólks, rannsókn á vettvangi og bifreið. Nefndin telur að orsök slyssins megi rekja til nokkurra samverkandi þátta, þ.e. krapaflots, vindhviðu, hjólbarða og hraða bifreiðarinnar, þannig að hún hafi farið út af veginum og oltið. Afleiðingar þessa hefðu orðið minni ef farþegar hefðu verið í öryggis- beltum. Morgunblaðið/Kristinn MAGNÚS Einarsson kynnti niðurstöður nefndar vegna alvarlegs umferðarslyss í Hrútafirði á fimmtudag. Hér svarar hann spurn- ingum fréttamanns. Aðrir í nefndinni voru Brynjólfur Mogensen, yfirlæknir á Borgarspítalanum, og Kristján Vigfússon, deildar- sljóri í samgönguráðuneytinu. Öryggisbelti verði sett í hópferðabifreiðar Nefndin leggur til að sjö tilgreind atriði verði skoðuð sérstaklega með það í huga að gera flutning farþega í hópferðabifreiðum sem allra ör- uggastan miðað við hinar erfiðu og margbreytilegu akstursaðstæður milli landshluta. Hið fyrsta er að kannað verði hvort unnt sé að setja öryggisbelti í öll sæti hópferðabif- reiða. Annað er að ökumenn hóp- ferðabifreiða geri ferðaáætlun ef þeir aka yfir heiðar eða Jjallvegi á leiðum sínum. í ferðaáætlun verði tekið tillit til veðurs og færðar með hliðsjón af aksturseiginleikum hóp- ferðabifreiðar þeirrar er í hlut á. Sérstaklega sé aflað upplýsinga um veður, færð, krapaflot, vindstyrk, hálku o.þ.h. Þriða atriðið er að séð verði til þess að hópferðabifreiðin sé ávallt búin miðað við aðstæður, einkum að hjólbarðarnir séu grófmynstraðir með nöglum og keðjum þegar gera megi ráð fyrir snjó, krapafloti eða annars konar hálku. Þegar Magnús var inntur eftir ásigkomulagi dekkja umræddrar bifreiðar sér- staklega tók hann fram að mynstur dekkja hefði verið innan lögmæts ramma. Hins vegar sagðist hann ekki geta neitað því að grófari dekk og naglar hefðu hjáipað mikið eins og færið hefði verið þegar slysið átti sér stað. Nefndin leggur til að gerð verði tæknileg úttekt á því hvort hægt sé að setja öruggt net eða lok fyrir farangursgeymslur yfir höfðum far- þega í hópferðabifreiðum sem not- aðar séu í áætlunar- eða hópferðir. í hverri bifreið sem notuð sé í áætl- unar- eða hópferðaakstri verði leið^ beiningarskilti með áletrun um að þunga hluti eða hluti sem geti skað- að fólk í umferðaróhappi skuli geyma í farangursgeymslu en ekki í farþegarými. Lagt er til að gerð verði tæknileg úttekt á því hvaða tæknibúnaður þurfi að vera til stað- ar hjá löggæsiuaðilum tii að unnt sé að rannsaka og varðveita gögn á hópsiysavettvangi. Með því ér átt við ljóskastara, myndavélar, merkjabúnað o.fl. Að lokum er stungið upp á að umferðarráði verði falið að láta taka til sérstakrar skoðunar og rannsóknar vatns-, hálku- og krapflot hópferðabifreiða. ■ Sérstaklega er tekið fram í niður- stöðum nefndarinnar að greining, merking og fyrsta meðferð slasaðra ásamt flutningi á sjúkrahús hafi verið góð. Hugsanlega í útjaðri vindsveips Hjá Magnúsi kom fram að ekk- ert hefði fundist athugavert við sjálfan þjóðveginn. Hann sagði að hjá veðurfræðingi hefði komið fram að útjaðar vindsveips gæti hafa verið í Hrútafirðinum þegar slysið átti sér stað. Niðurstöður nefndar- innar hafa ekki áhrif á lögreg- lurannsókn sýslumannsembættisins á Blönduósi vegna slyssins. Eins og áður segir skipaði dómsmála- ráðuneyti nefnd um slysið í Hrúta- firði og hefur nefndin skilað niður- stöðum sínum til þess. Ráðuneytið fer yfir niðurstöðurnar og tekur ákvörðun um framhaldið. i I I I í I ! i i « i i S t
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.