Morgunblaðið - 11.11.1995, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 11.11.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 21 URVERINU Samningur Sameinuðu þjóðanna um fiskveiðar á úthöfunum „LJÓST er að úthafsveiðisamningur Sameinuðu þjóðanna mun ekki leysa sjálfkrafa hin ýmsu deilumál um verndun deilistofna og víðförulla fiskstofna og stjórnun veiða úr þeim víðs vegar í heiminum. Þar reynir fyrst og fremst á pólitískan vilja þeirra ríkja sem í hlut eiga hveiju sinni. Samningurinn mun hins vegar mynda ramma um samstarf ríkja á vettvangi svæðisbundinna veiði- stjórnarstofnana og verða tæki í höndum ríkja til vemdunar þessara stofna og stjómunar veiða úr þeim,“ sagði Helgi Ágústsspn, ráðuneytiss- stjóri á aðalfundi LÍÚ. Helgi gerði grein fyrir helstu efn- isatriðum úthafsveiðisamnings SÞ frá því í ágúst síðastliðnum og þýð- ingu hans á fundinum. Hinn 4. ágúst sl. lauk úthafsveið- iráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í New York með því að 112 ríki auk Evrópusambandsins samþykktu samhljóða nýjan úthafs- --------- veiðisamning. Yfírlýst markmið samningsins er að tryggja langtíma- vemdun og sjálfbæra nýtingu deilistofna og víðförulla fískistofna. Hann mun liggja frammi til undirritunar í eitt ár frá og með 4. desember nk. og taka gildi 30 dögum eftir að 30 ríki hafa tilkynnt um fullgildingu hans. Þó er gert ráð fyrir að ríki geti af fúsum og fijálsum vilja beitt samn- ingnum til bráðabirgða sín á milli þar til hann hefur tekið gildi. Efling vísindarannsókna Að sögn Helga er úthafsveiði- samningurinn reistur á fimm meg- instoðum. Fyrst nefnir hann þær reglur sem stuðla að verndun stofn- Leysir deilumál- in ekki sjálfkrafa anna og stjórnun veiða úr þeim. Þar sé kveðið á um eflingu vísindarann- sókna, söfnun gagna um veiðar og að alltaf skuli byggt á bestu Vísinda- legu niðurstöðum sem tiltækar séu. Þá segi að ríki skuli ávallt sýna sérstaka varúð þegar upplýsingar samþýðanlegar. Ráðstafanir sem séu samþykktar og gildi um úthafið megi ekki grafa undan ráðstöfunum sem gerðar hafí verið innan lögsögu strandríkja. Sem dæmi um slíkar ráðstafanir megi nefna ákvörðun um skiptingu leyfilegs heildarafla um viðkomandi stofn séu óvissar eða r% úr stofni á milli úthafssvæðis ann- Taka skal tillit til dreifingar fiskistofna ónógar. Einnig sé ríkjum skylt að ákvarða svonefnd viðmiðunarmörk fyrir hvem stofn um sig. Þessar reglur gildi ekki einungis um veiðar á úthafinu heldur einnig innan efnahagslögsög- unnar. í öðru lagi nefnir hann að gert sé ráð fyr- ir því að strandríki og úthafsveiðiríki starfi saman á vett- vangi svæðisbundinna veiðistjórn- arstofnana að vemdun deilistofna og víðförulla fiskstofna og stjórnun veiða úr þeim. Aðild að slíkri stofn- un sé opin öllum ríkjum á jafnræð- isgrundvelli sem hafi raunverulega hagsmuni af viðkomandi fiskveið- um. í því felist væntanlega að ríki þurfi að hafa stundað veiðar úr við- komandi stofnum. í þriðja lagi segir hann að vernd- unar- og stjórnunarráðstafanir fyrir úthafið annars vegar og efnahags- lögsöguna hins vegar skuli vera Veiðieftirlitið til útveg’smanna Kristján Ragnarsson telur eftirlitinu ekki sinnt með réttum hætti nú „ÉG TEL rétt að færa ábyrgðina á veiðieftirlitinu til starfgreinar- innar sjálfrar og er þess fullviss, að miklu betur mun til takast en nú, því engir þekkja betur til en þeir, sem í atvinnugreininni starfa. Mikill meirihluti útvegsmanna tek- ur aldrei þátt í brotum á fiskveiði- stjórnuninni og sættir sig ekki við að öðrum líðist það,“ sagði Krist- ján Ragnarsson, formaður LÍÚ, meðal annars á aðalfundi samtak- anna nú í vikulokin. Kristján taldi að eftirlitsþætti fiskveiðistjórnunarinnar væri ekki sinnt með réttum hætti og því væri hann betur koninn í höndum útvegsmanna sjálfra, því nú væri veiðaeftirlitið mjög ómarksvisst. „Allt of oft berast frásagnir af veiðibrotum, sem ekki er sinnt með viðeigandi hætti. Nær allt framleiðslueftirlit hefur verið fært út í fyrirtækin, þar sem ábyrgð þeirra er aukin og skilgreint er mikilvægi rétts starfsumhverfis. Þetta hefur verið til mikilla bóta,“ sagði Kristján. Útgerðin leggur 100 milljónir til veiðaeftirlitsins „Á þessu ári greiðir útgerðin 100 milljónir króna til veiðieftirlits Fiskistofu. Það hefur ávallt verið talið eðlilegt, að .þeir sem greiða kostnað af tilteknu verkefni hafi eitthvað um það að segja, hvernig peningunum er varið. Það myndi gerast ef útgerðinni yrði falin ábyrgð á veiðieftirlitinu, sem gæti gerzt með þvi að útgerðin fengi meirihluta í stjórn sjálfstæðs eftir- litsaðila, er annaðist eftirlitið,“ sagði Kristján ennfremur. LIU hafnar auðlindaskatti AÐALFUNDUR LIU mótmætli í samþykkt sinni um efnahagsmál hugmyndum um sérstakan auð- lindaskatt og varað var við afleið- ingum af slíkum séríslenzkum skatti á helzta útflutningsatvinnu- veg þjóðarinnar. „Jafnframt er mik- ilvægt að horfið verði frá því að atvinnugreininni verði gert að að greiða árlega 500 milljónir króna í Þróunarsjóð meðal annars vegna fyrri skuldbindinga, útgreiðslum verði hætt og liann lagður niður,“ segir í ályktun fundarins sem lauk síðdegis í gær. ars vegar og efnahagslögsögunnar hins vegar. Meðal annarra atriða, sem taka skal tillit til við ákvörðun samþýð- anlegra verndunar- og stjórnunar- ráðstafana, er dreifing viðkomandi stofns og veiðarnar úr honum, þ.e. í hve miklum mæli stofninn heldur sig og er veiddur á úthafinu annars vegar og innan efnahagslögsögunn- ar hins vegar. „Einnig má nefna að taka skal tillit til þess að hve miklu leyti strandríkin og úthafsveiðiríkin eru háð veiðum úr viðkomandi stofni hvor um sig,“ segir hann. „ísland lagði mikla áherslu á þetta ákvæði á úthafsveiðiráðstefnunni og varði það þegar önnur ríki lögðu til að það yrði fellt brott úr samningsdög- unum.“ Hann segir að í samningnum sé svæðisbundnum veiðistjórnarstofn- unum látið eftir að ákveða hvaða viðmið skuli lögð til grundvallar skiptingu kvóta milli aðildarríkja þeirra. Þó sé mikilvæg undantekn- ing frá þessu þar sem kveðið sé á um ýmsar viðmiðunarreglur við ákvörðun veiðiréttinda nýrra aðild- arríkja að svæðisstofnunum: „Meðal þess, sem tillit skal tekið til, er ástand viðkomandi stofna, veiðihagsmunir einstakra ríkja, framlög þeirra til verndunar og stjórnunar og til vísindarannsókna, þarfír strandbyggða sem byggja afkomu sína að mestu ___________ leyti á veiðum úr viðkom- andi stofnum og síðast en ekki síst þarfir strand- ríkja ef efnahagur þeirra er í mjög miklum mæli mmmmmmm háður fiskveiðum. Síðastnefnda ákvæðið var tekið inn í samninginn fyrir frumkvæði íslands, enda er leitun að öðru ríki sem það á jafn- vel við um.“ Eftirlit og framkvæmdavald Hið fjórða sem Helgi nefnir sem meginstoð úthafsveiðisamnings- ingsins er eftirlit og framkvæmda- vald: „Þeirri meginreglu þjóðarrétt- arins er fylgt að eftirlit með því að fiskiskip virði verndunar- og stjóm- unarreglur á úthafinu og framfylgd Tæki í hönd- um ríkja til verndunar þeirra sé fyrst og fremst í höndum fánaríkisins, þ.e. þess ríkis sem skip- ið er skráð í. Samingurinn leggur þá skyldu á herðar fánaríkinu að það stjórni veiðum skipa sinna á úthafinu með því að leyfísbinda þær og að það banni þeim skipum að stunda veiðar sem ekki hafa tilskilin leyfi.“ Þó segir í samningnum að gert sé ráð fyrir að öll aðildarríki samn- ingsins, sem séu aðilar að svæðis- stofnun, hafi rétt til að hafa eftir- lit með fiskiskipum annarra aðild- arríkja samningsins á því úthafs- svæði sem stofnunin nær til og jafnframt til að fara með -fram- kvæmdavaldið gagnvart þeim sinni fánaríkið ekki skyldu sinni í því efni. Þá er gert ráð fyrir því í samn- ingnum að hafnríki farið með hefð- bundið eftrlitsvald samvkæmt þjóð- arrétti og sé heimilt að setja lög -------- sem geri stjórnvöldum kleift að banna löndun á afla sem veiddur hefur verið í trássi við gildandi verndunar- og stjórnun- '’ arreglur. Friðsamleg lausn deilumála Loks nefnir hann sem fímmtu meginstoð samningsins friðsamlega lausn deilumála. Sú leið sé farin að láta ákvæði hafréttarsamningsins um skyldubundna og bindandi lausn deilumála gilda um deilur milli aðild- arrikja úthafsveiðisamningsins. Þá er þeirri leið haldið opinni fyrir þau ríki sem ekki ná samkomulagi, að þau geti skotið deilumáli sínu til alþjóðlegs dómstóls eða gerðardóms til bindandi úrlausnar. Kristnitakan og kirkja Póturs í Skálaholti Ný bók cftir Einar Póisson er komin át. Ritið er vandað að allri gerð, 317 bls., í fallegu bandi með tilvísunum og nafnaskrá. Ritið er samið í tilefni 1000 ára afmælis kristnitökunnar á íslandi og tileinkað Skálholtsstól. I riti þessu eru krufin helstu miðaldarfræði, sem ekki hafa áður verið nefnd í sambandi við kristnitökuna, og lagðar fram lausnir, sem aldrei hefur fundist á skýring fyrr. Hvað bjó að baki hugmyndafræði og tölvísi miðaldarkristni? Hver voru tengsl kirkjunnar við himinhring? Hvert var eðli launsagna Skálaholts? Hver voru tengsl Péturskirkjunnar í Róm við Péturskirkjuna í Skálaholti? Hví árið 1000? Hví gekk kristnitakan svo snurðulaust fyrir sig? Bókaútgáfan Mímir, Sólvallagötu 28, Reykjavík, sími 552 5149. UTSALA Á BARNASKÓM í ályktun fundarins var varað við stöðunni í efnahagsmálum: „Óró- leiki á vettvangi kjaramála má ekki leiða til þess að efnahagslegar koll- steypur fyrri ára verði endurteknar. Sé það einlægur vilji að byggja hér þjóðfélag, sem stenzt samanburð við lífskjör í nálægum löndum, skiptir miklu máli að samstaða í þjóðfélaginu haldist. Friður haldist á vinnumarkaði og batnandi efna- hagsástand verði notað til þess að byggja hér upp kröftugt atvinnulíf, sem geti staðið undir bættum lífs- kjörum." VerÖ frá 990.- I.99O Opið laugardaga kl. 10-16 SK0VERSLUN KÓPAV0GS HAMRABBRS 3 - SÍMI SS4 17S4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.