Morgunblaðið - 11.11.1995, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 11.11.1995, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Tommi og Jenni Ljóska Ferdinand Smáfólk HOU) ARETHIN65 IN LEFT FIELR PIGF’EN ? I PUT 5URNT CORK UNDER MY EVE5 JU5T LIKE THE PR05.. "'zr MANAGER5 ARE ALWAV5 5AVIN6 STRANfíF THIN6F Hvernig er staðan á Ég setti brenndan kork „Málaðir liljurnar," ha? Stjórareru alltaf að segja svæðinu til vinstri, Sóða- undir augun eins og at- Málaðir hvað? skrítna hluti... Pési? vinnumennirnir. BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reylqavík • Sími 5691100 * Símbréf 569 1329 Frelsi til vímuefnaneyslu Frá Sigurði Magnússyni: ER ÞAÐ ekki undarlegt að fólk skuli styðja „einkavæðingu og fijálsa samkeppni" í brennivínssölu í sömu andrá og ljóst er að það auðveldar og eykur vímuefnanotk- un? Brennivín og tóbak eru fíkni- efni. Eru það þeir og þær sem flagga hentifána ESB, eru það þeir og þær sem vilja svipta sig og þjóð sína frelsi til eigin ákvarðana? Eru það þeir og þær sem vilja ganga af lífgjöfum okkar dauðum; bænd- um, sjómönnum og verkafólki þessa lands, fólki sem hefur með atorku sinni byggt upp og fram- fleytt þjóð okkar með dugnaði og harðfylgi í gegnum erfíðleika síð- ustu áratuga? Margir afkomendur forfeðra okkar hafa sótt skóla, en þrátt fyrir skólagöngu og menntun hafa sumir þeirra „aldrei migið í saltan sjó eða dýft hendi í kalt vatn“ og að auki gleymt uppruna sínum og skyldum við íslenskt samfélag. Það má glöggt sjá að það eru gylliboð sem glepja þegar fólk kýs hentifána og leitar í fang ESB sem lofar móðurumhyggju, föðurforsjá, gulli og grænum skógum. Eða er það áætlaður gróði fyrir fyrirfram- seldan varning, miðaður við gull- grunn óskhyggjunnar sem farinn er að hringla í vasa? Samræmist það hugtakinu „frelsi" þegar ákveðið er úti í Brussel söluform og dreifing á vímuefninu brennivíni hér á landi? Að vísu ákveður borgarstjórn og lögreglustjóri hversu langan tíma sólarhringsins brennivínsbar- ónamir í Reykjavík mega stunda sálardráp á upprennandi fólki borgarinnar, Er ekki furðulegt, að á sama tíma og glæpamenn borgarinnar em settir í fangelsi fyrir að smygla dópi og selja, er skipulagt hjá borg- arstjórn hvar brennivínsbarónar „fá aðstöðu og tímasett frelsi" til að selja vímuefni og bjór í borginni? (Nú hefur Hagkaup hafið kynn- ingu á óáfengum drykkjum; þessi kynning stóð yfír í ostabúð þeirra seinni part dags 3.11. 1995. Ég spyr: Er þetta til að koma börnum viðskiptavinarins á bragðið áður en farið er að selja vímuefnið vín í Hagkaupsbúðunum?). Mjólkur- og vímuefnakaupmenn Sem kunnugt er af blaðagrein- um, og útvarpsfréttum hrópa brennivínsbarónarnir hátt um óheft frelsi og nú nýlega hafa mjólkurkaupmenn bæst í hópinn og lýst sig ákafa í að selja vímu- efni með mjólkinni. Kristján Bene- diktsson, forsvarsmaður kaup- mannasamtakanna, sagði í morg- unrabbi RÚV í þættinum „Hér og nú“ fyrir skömmu, að hann telji það kröfu neytenda að kaupmenn eigi að hafa vín og bjór á boðstól- um með haframjölinu og mjólkinni. Það var tekið fram af stjórnanda þáttarins að Neytendasamtökin hafa ekki tekið afstöðu til málsins. í þessum sama þætti var talað við Hauk Þór Hauksson sem var kynntur sem varaformaður í nefnd innan Sjálfstæðisflokksins, sem leggur til afnám áfengisverslunar- innar og fijálsa einkavæðingu Áfengis- og tóbakssölu ríkisins. Hann segir túlkun sína á málinu vera almenna lífsskoðun sjálfstæð- ismanna landsins. Meðal annars telur hann að ríkissjóður tapi 3-4 milljörðum við að einkavæða Áfengis- og tóbaks- verslun ríkisins og skal engan undra að brennivínsbarónarnir hafí áhuga á þeim peningum. Á fijáls samkeppni að ríkja hér á landi til að selja banvænt eitur sem sýkir huga og líkama þeirra sem hafa óþol fyrir því? Er það frelsi að geta drukkið eitur sem drepur fleiri en alnæmi og sýkir þúsundir sem þjást og kveljast af því alla ævi? Foreldrar, sem vilja velja börn- um sínum vímuefna- og áfengis- laust líf, þurfa að bindast samtök- um til varnar gegn spillingunni, sem kemur með frelsinu. Sjúkdómseinkenni brennivínsins eru svipuð og alnæmiseinkennin, það er dvínandi mótstaða líkama og sálar og lífslíkur verða litlar. Það eru furðulegir stjórnhættir að veita leyfí til fijálsrar sölu á vímuefninu brennivíni, á sama tíma og minnkuð er hjálp við þá sem veikir eru og sjúkradeildum lokað. Á sama tíma fá brennivíns- barónarnir í miðborginni fría hreinsun á skítnum sem í kringum þá hleðst. Óþol! „Talið er“ að óþol líkamans við vímuefninu brennivíni gangi með erfðavísum frá foreldri til afkvæm- is og sé því ættgengt, þeir sem hafa þessa erfðavísa og smakka áfengi geta fengið hin hræðileg- ustu eftirköst. Að lokum vil ég skora á alla þá sem annt er um heilsu og hag meðbræðra sinna að taka höndum saman og gera sameiginlegt átak til varnar g'egn einkavæddri vímu- efnastefnu og stöðva fijálsræði til neyslu áfengis. Hæstvirtur forseti Alþingis, hæstvirtir ráðherrar, háttviitir al- þingismenn! Ég bið yður að íhuga hvort einkavæðing og frelsi til sölu áfengis sé nauðsynleg hér á landi og hvort sé ekki athUgandi að gera þá sem selja áfengi ábyrga gerða neytandans eins og tíðkast í Bandaríkjunum. Dæmi: Ef viðskiptavinur vínveit- ingamanns veldur slysi í ölvímu, eftir að hafa þegið vímuefnaveit- ingar hans, verður veitingamaður- inn samábyrgur geranda. Það seg- ir að veitingamaður er ábyrgur ef sannast að hann hafi firrt fólk viti með vímuefnasölu. SIGURÐUR MAGNÚSSON, Skólavörðustíg 16a, Reykjavík. Alit efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.