Morgunblaðið - 11.11.1995, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 11.11.1995, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 27 Sáttur við Karvel „ÉG HEF aldrei hugsað út í að nafnið kunni að vera óvenjulegt eða skrýtið,“ sagði Karvel Pálmason, fyrrum alþingismaður, en nafn hans er kallað skrípanafn", ásamt mörgum öðnim íslenskum mannanöfnum, í ádrepu sem birt er í Almanaki Hins íslenska þjóðvinafélags frá árinu 1913. Kasrvel kveðst aldrei hafa spurt foreldra sína hvaðan nafnið sé komið og sagðist ekki vita til að nokkur forfeðra sinna hafi borið það á undan honum. „Þetta vafðist aldrei fyrir mér þegar ég var krakki enda var annar maður á Bol- ungarvík sem bar þetta nafn, Kar- vel Steindórsson, sem nú er látinn. Ég hef alltaf lifað sáttur með þessu nafni og mun gera það áfram,“ sagði Karvel Pálmason. Við þetta má svo bæta að nafnið Karvel kemur fyrir í Riddarasög- um, en merking þess er óljós. „Skrípa- nöfnina Meðal annarra nafna sem tal- in eru „skrípanöfn" í áður- nefndri ádrepu frá 1913 eru nokkur sem koma kunnug- lega fyrir á vorum dögum, svo sem ANDREA, ÁRILÍUS, BÓAS, ELÍ, FRIÐBERT, HAGA- LÍN, HANNIBAL, HERA, HERMÍNA, MONIKA, RÓS- MUNDUR, RÚRIK, SIGUR- JÓNA og SIGURKARL. Hins vegar eru önnur sem koma dálítið spánskt fyrir sjónir svo sem ÁRÍNA, BRÁD- LÍNA, BÍBÍANA, DÝRÓLÍNA, EDILRÍÐUR, EFRET og EFSENIUS, svo einhver séu nefnd. Höfundur greinarinnar, sem mun hafa verið JÓHANN ættfræðingur KRISTJÁNSSON lýkur máli sínu með eftirfar- andi orðum: „Algengt er það, að skíra börn alútlendum nöfnum, og þá oft afbökuð- um, t.d. ALFRED DREYFUS, BJÖRNSTJERNE, IBSEN, NAPÓLEON o.s.frv. Enn frem ur að slengja saman tveimur nöfnum, t.d. ANNAMARÍA, PETRÚNANNA. Þá eru fleir- nefnin ekki heldur smekkleg. Hér í Reykjavík heitir einn krakkinn: KARLOTTA-ELLEN- INGIBJÖRG-VIKTORÍA- STJERNE. - Það hefur oft verið brýnt fyrir fólki, að skíra böm sín sæmilegum nöfnum, en árangurslftið virðist það vera, því skrípanöfnum fer fjölgandi. Prestarnir ættu að hafa einhver áhrif f þá átt, en þeir virðast flestir láta sér í léttu rúmi liggja, hversu af- skræmílegum nöfnum þeir skíra, eða þá að þeir fá ekkí ráðið vitleysu fólksins. Em foreldrar í landínu al- veg tilfinningalausir fyrir þvf, hver hörmung það má vera fyrir börnin, þegar þau vitkast, að verða að bera þessi óhræsis ónefni?“ '<$> E I N K Y N J A HÖFGUR ilmur nýja lyktarefnisins §K One“ hefur borist víða að undanförnu, enda nýr af nálinni. Ilmefnið er, eins og nafn- ið gefur til kynna, fyrir bæði kynin og er svar hönnuðarins Calvin Klein við tíðarandanum, að eigin sögn. Einkynja ilmvötn eru hins veg- ar ekki nýmæli því karlar og konur deildu þeim með sér fyrr á öldum. Háttalag þetta er sagt hafa náð hámarki í Frakklandi á dögum Napóleons III. sem mun hafa baðað sig úr | Kölnarvatni og notað um 24 lítra á dag. ' í dag er talið að 40% kvenna noti rakspíra og að svipað hlutfall karla noti kvenilmvatn til geðjast vitum sínum og annarra. Ilmvatnsnotkun er talin hafa tíðkast í fyrnd- inni meðal Kínverja, Hindúa, Egypta, ísrels- manna, araba, Grikkja og Rómverja svo ein- hverjir séu nefndir. Einnig er minnst á ilm- efni, jafnvel forskriftir ilmvatna, 1 Biblíunni. Fyrsta ilmvatnsflaskan sem vitað er um fannst í Egyptalandi og er talin frá árinu 1000 fyrir Krist. Egyptar beittu ilmefnum óspart fyrir sig, til dæmis í helgiathöfnum og tóku nýja uppfinningu sína, gler, strax undir ilm- vatn. Grikkir fóru að dæmi þeirra og bjuggu til gler- og leirílát fyrir ilmvötn sem oft voru í lagiríu eins og sandalar, dýr, eða mannshöfuð. Töldu Rómverjar ilmvötn kynörvandi og not- uðu blásnar glerflöskur til varðveislu. Vorum að fá nýja sendingu af Opel Corsa margverðlaunaður fyrir öryggi - útlit - sparnað Opel Corsa verbur til sýnis Bja dyra, 5 dyra, bæbi 1,2i og 174i. Fullkomin sjálfskipting, 4ra gíra meb sparnabarstillingu, sportstillingu og spólvörn. Komið og reynsluakib Opel • 'f * Opel, einfaldlega bestu kaupin Opib um helgina kl. 14-1 7 ab Fosshálsi 1 . ■ ■■' -■ BH . !■ Afsláttur út nóvember 30% afsláttur á hágæba vetrardekkjum meb nýjum Opel út nóvember. 20% • afsláttur af aukahlutum út nóvember. Bílheimar Fosshálsi 1 sími: 563 4000 l
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.