Morgunblaðið - 11.11.1995, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 1995 47
Kristniboðs-
dagurinn í
Seltjarnar-
neskirkju
KRISTNIBOÐSDAGURINN
verður haldinn hátíðlegur í
Seltjarnarneskirkju í ár sem
fyrr.
Kristniboðsdagurinn er
annar sunnudagur í nóvem-
ber og er þá minnst þeirrar
skyldu sem allir kristnir menn
hafa, sem er að koma boð-
skapnum um Jesú Krist til
allra þjóða. Prestar kirkjunn-
ar samþykktu á Prestastefnu
í sumar að gefa kristniboði
meira rúm í safnaðarstarfinu
og nýlega tók Kirkjuþing í
sama streng.
Sunnudaginn 12. nóvem-
ber mun Friðrik Hilmarsson
kristniboði predika við messu
í Seltjarnarneskirkju og eftir
messu mun hann segja frekar
frá hinu íslenska kristniboði
erlendis í safnaðarheimilinu
en þar verður boðið upp á
léttan hádegisverð.
Breyttur
sölutímií
Kolaportinu
KOLAPORTIÐ hefur hingað
til verið opið á laugardögum
kl. 10-16 en nú breytist sá
sölutími í 11-17 og verður
þá sami sölutími og á sunnu-
dögum.
Nú um helgina verður sér-
staklega mikið um kompudót
í Kolaportinu.
Breskra
hermanna
minnst
I
STUTT minningarathöfn um
hermenn frá Bretlandi og
bresku samveldislöndunum
verður haldin í hermanna-
grafreitnum í Fossvogs-
kirkjugarði sunnudaginn 12.
nóvember kl. 10.45.
Athöfnin er til minningar
um þá sem létu lífið í heims-
styijöldunum. Sr. Arngrímur
Jónsson stjórnar athöfninni
og öllum er velkomið að taka
þátt í henni.
„Frumbyggja-
messa“ í
Kópavogs-
kirkju
GUÐSÞJÓNUSTA, „frum-
byggjamessa", verður haldin
í Kópavogskirkju sunnudag-
inn 12. nóvember kl. 14.
Tilefni hennar er 40 ára
afmæli Kópavogskaupstaðar.
Allir eru hjartanlega vel-
komnir en sérstaklega er
vænst þátttöku „frum-
byggja“ Kópavogs og þeirra
sem lengi hafa búið í bænum.
Stefán M. Gunnarsson, for-
maður sóknarnefndar, flytur
stólræðu og kirkjukór Kópa-
vogskirkju syngur undir
stjórn Arnar Falkner, organ-
ista.
Að lokinni guðsþjónustu
verður boðið upp á kaffiveit-
ingar í Safnaðarheimilinu
Borgum og þar mun Jóhanna
Björnsdóttir sýna litskyggn-
ur. Boðið verður upp á akstur
til og frá kirkju.
Biblíusýning
í Kringlunni
Á ÞESSU ári eru liðin 180 ár frá
stofnun Hins íslenska Biblíufé-
lags. Af því tilefni hefur verið
sett upp í Kringlunni sýning er
nefnist: Biblían - hvernig varð
hún til?
Á sýningunni er rakin í máli
og mynduni saga Biblíunnar,
bæði Gamla- og Nýja testament-
isins, þar til hún tekur á sig nú-
verandi mynd. Einnig er stutt-
lega rakin saga Bibliuþýðinga og
sagt frá þýðingu Biblíunnar á
íslensku. Þá er einnig kynning á
Hinu íslenska Biblíufélagi.
Sýningin, Biblían - hvernig
varð hún til? er farandsýning og
geta söfnuðir, og trúfélög og
einnig stórmarkaðir, hvort held-
ur er í Reykjavík eða annars
staðar, óskað að fá hana.
Hönnunsýningarinnar annað-
ist Búi Kristjánsson en myndaval
og textagerð var í höndum sr.
Sigurðar Pálssonar.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Handbók um málfræði
ÚT ER komin Handbók
um málfræði eftir Hö-
skuld Þráinsson, pró-
fessor við Háskóla ís-
lands. Bókin er hugsuð
sem hjálparrit bæði fyr-
ir nemendur og kennara
á grunn- og framhalds-
skólastigi,
í fyrri hluta bókar-
innar er að finna stuttar
skilgreiningar á liðlega
420 hugtökum og heit-
um í íslenskri skólamál-
fræði. Þurfi menn að
lesa sér nánar til er við
hveija einustu flettu
vísað í grein í síðari
hluta bókarinnar. Þar er yfirlit yfir
íslenska málfræði í víðasta skilningi.
Sá hluti skiptist í sjö meginkafla og
nefnast þeir: Framburður, málhjóð
og atkvæði, Beygingar og orðflokk-
ar, Orðmyndun, Setn-
ingafræði, Merking
orða og setninga, Mál-
rækt, málvöndun og
mállýskur og Nútíma-
mál, fommál og önnur
mál.
Útgefandi er Násm-
gagnastofnun, en Lýð-
veldissjóður, sem stofn-
aður var í tilefni af 50
ára afmæli lýðveldis ís-
lands árið 1994, styrkir
útgáfu bókarinnar. Hef-
ur verið ákveðið að láta
nemendur og skóla
njóta þess í verðlagn-
ingu bókarinnar og
jafnframt með því að gefa bókina
öllum nemendum sem nú eru í 8.
bekk. í þessu skyni hafa á fimmta
þúsund eintök fengið sérstaka
gjafaáritun.
Höskuldur
Þráinsson
KRISTNIBOÐSSTÖÐIN í Gisma, Voitódal, S-Eþíópíu.
Kristniboðsdagur-
inn á sunnudag
Basar í
Neskirkju
KVENFÉLAG Neskirkju stendur
fyrir kaffísamsæti og basar í safn-
aðarheimili að lokinni guðþjónustu
í kirkjunni næstkomandi sunnudag,
12. nóvember. Messan hefst kl. 14.
Kvenfélagið, sem er eitt elsta
kirkjukvenfélag landsins, hefur í
áratugi staðið fyrir kaffísamsætL
og basar á haustin. Þetta hefur að
jafnaði verið mjög vel sótt.
-----♦ ♦ ♦----
Fyrirlestur um
barnaheimspeki
HREINN Pálsson heimspekingur
fjallar um bamaheimspeki og um-
hverfissiðfræði mánudaginn 13.
nóvember nk. kl. 20.30 í Alviðru í
Ölfusi.
Fyrirlesturinn er á vegum
Fræðsluskrifstofu Austurlands og
Umvherfisfræðslusetursins í Al-
viðru og er opinn öllu áhugafólki.
Aðgangur er ókeypis. í hléi verður
borið fram kaffi í boði hússins.
Hreinn Pálsson rekur m.a. Heim-
spekiskólann og hefur haldið fjölda
fyrirlestra um barnaheimspeki.
Yfirlýsing
AÐ MARGGEFNU tilefni, vegna
fjölda fyrirspuma ónafngreindra að-
ila, tek ég undirritaður, Friðrik Vest-
mann, eigandi framköllunarfyrirtæk-
isins Pedromynda á Akureyri, það
skýrt fram að sögusagnir, um að fyr-
irtæki mitt tengist dreifíngu á um-
ræddri mynd af Heiðari Jónssyni, eiga
ekki við nokkur rök að styðjast.
Við höfum enga heimild til að sýna
eða skýra öðrum frá myndum sem
framkallaðar eru í Pedromyndum,
hvort sem umræddar myndir hafa
verið framkallaðar þar eða ekki. Al-
gjörum trúnaði er haldið við viðskipta-
vini. Ég tel mig reka traust og gott
fyrirtæki og vil því ekki á nokkum
hátt vera viðriðinn slík mál, enda
ekki okkar vani að rægja einstakar
persónur eða atvinnurekstur.
Friðrik Vestmann.
STÓRSTÚKA íslands hefur mót-
mælt harðlega þeirri skammsýni og
því ábyrgðarleysi sem birtist í fram-
kominni tillögu á Alþingi um lækk-
un lögaldurs til áfengiskaupa í 18
ár.
I fréttatilkynningur Stórstúk-
unnar segir m.a. að reynsla Banda-
ríkjamanna af lækkun áfengis-
kaupaaldurs hafi orðið sú að þeir
hækkuðu þann aldur á ný í 21 ár.
Þá hefur Áfengisvamarráð sent
frá sér fréttatilkynningu „Áhrif
lækkaðs lögaldurs til áfengiskaupa
alvarleg."
Þar er fjallað um rannsókn í
Bandaríkjunum á lækkun lögaldurs
og skýrt frá eftirfarandi: „Slysum
á ungu fólki ijölgaði uggvænlega,
til að mynda um 54% á milii ára í
ÞJÓÐKIRKJAN hefur um árabil
helgað einn sunnudag á ári málefn-
um kristniboðsins. Kristniboðsdag-
urinn er að þessu sinni sunnudaginn
12. nóvember nk. Biskup íslands
hefur ritað sóknarprestum bréf og
hvatt þá til að minnast kristniboðsins
í prédikun sinni og gefa kirkjugestum
tækifæri til að styðja það með fjár-
framlögum.
Biskup bendir á að prestastefna
hafí sl. sumar hvatt til þess að kirkj-
an gæfi kristniboðinu meira rúm í
starfi sínu. Nýliðið kirkjuþing tók í
sama streng og mælti með því að
stofnaðir yrðu starfshópar á vegum.
safnaða og prófastsdæma sem hefðu
það að markmiði að efla kristniboðið.
Samband ísl. kristniboðsfélaga,
sem er leikmannahreyfing þjóð-
kirkjufólks, hefur um þessar mundir
ellefu kristniboða á sínum vegum í
Eþíópíu og Kenýu. Nú hafa fjölmenn-
ar lútherskar kirkjur risið í báðum
Michigan og meira en 100% í
Massachusetts. Ekki einasta fjölg-
aði banaslysum og öðrum alvarleg-
um slysum í umférðinni á fólki
18-20 ára heldur og á 16-17 ára
unglingum. Það sýnir að drykkjan
færist enn neðar en að mörkum
lögaldurs ef lækkuð eru.
Þegar sýnt var að hundruð
bandarískra ungmenna höfðu gold-
ið fyrir lækkun lögaldurs til áfengis-
kaupa með lífi sínu tóku ýmis ríki
að þumlunga sig upp á við að nýju.
Þá kom í ljós að dró úr slysum á
ungu fólki og áfengisneysla þess
minnkaði. Nú er svo komið að lög-
aldur til áfengiskaupa er 21 ár um
gervöll Bandaríkin. Á íslandi er
hann 20 ár.“
Mótmæla lækkun lög-
aldurs til áfengiskaupa
þessum löndum. Þær vaxa mjög ört
og eru kristniboðarnir í raun réttri
starfsmenn þessara kirkna.
Auk boðunarstarfs leggja kirkj-
urnar í báðum löndunum mikla
áherslu á almennt framfara- og þró-
unarstarf. Þannig hafa íslenskir
kristniboðsvinir í félagi við Norð-
menn hjálpað Pókot-mönnum í Vest-
ur-Kenýu að koma sér upp 27 grunn-
skólum. í 40 ár hafa tugþúsundir
barna í Konsó í Eþíópíu notið fræðslu
vegna skólahalds kristniboðsins og
síðar kirkjunnar. Mjög mikið starf
er unnið á vettvangi heilsugæslu og
forvarna.
Kristniboðssambandið hefur ný-
lega ákveðið að ganga til samstarfs
við norska útvarpsfélagið NOREA
og mun styðja gerð útvarpsþátta á
kínversku. NOREA hefur starfað í
fjóra áratugi og stendur að fram-
leiðslu og útvarpi kristilegs dag-
skrárefnis á 20 tungumálum.
KÍN'
-leikur að Itera!
Vinningstölur 10. nóv. 1995
4*8*9»18*19«21 • 22
Eldri úrslit á símsvara 568 1511