Morgunblaðið - 17.11.1995, Page 16

Morgunblaðið - 17.11.1995, Page 16
16 D FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ TILLAGA arkitektanna á Verkstæði 3 að skipulagi Grófartorgs er unnin í framhaldi af samkeppni um Ingólfstorg sem þau unnu. IMýtt skipulag og nýbygging á Grófartorgi í Reykjavík Þegar Ingólfstorg í Reykjavík var skipulagt settu þeir sem unnu samkeppni um torgið jafnframt fram hugmyndir um nýja ásýnd Grófartorgs sem er milli Vesturgötu, Hafnar- strætis, Grófarinnar og Nausta. Jóhannes Tómasson ræddi við arkitektana á Verk- stæði 3 um þessar hugmyndir en þama er gert ráð fyrir að rífa skúrabyggingar og opna gönguleiðir um svæðið, gera það meira aðlaðandi og loka vesturenda þess með ný- byggingu sem jafnframt myndar skjól. HUGMYNDIR eru nú uppi hjá skipulagsyfirvöldum í Reykjavík um að byggja nýtt hús á Gróf- artorgi og endurskipuleggja og nýta betur allt það svæði en Grófartorg afmarkast af Hafnarstræti, Vestur- götu, Tryggvagötu og Naustum. Borgarskipulag hefur kynnt þessar hugmyndir fyrir Þróunarfélagi Reykjavíkur sem telur þær af hinu góða. Þær hafa einnig verið sam- þykktar í Skipulagsnefnd Reykja- víkur. Það eru arkitektarnir Elín Kjartansdóttir, Haraidur Öm Jóns- son og Helga Benediktsdóttir sem starfa á arkitektastofu sinni, Verk- stæði 3, sem sett hafa fram þessar hugmyndir. Þau unnu samkeppni um skipulag Ingólfstorgs og Gróf- artorgs. í framhaldi af vinnunni við Ingólfstorg var ákveðið að skoða Grófartorg. Unnu arkitektarnir þrjár tillögur um útfærslu Grófar- torgs og hefur ein þeirra verið val- in til frekari úrvinnslu. „Grófartorgið er eitt af þessum óskilgreindu opnu svæðum sem mikið er um í Reykjavík, þar eru götumyndir sundurlausar og svæðið formlaust án skýrra afmarkana og þarfnast þess vissulega að það sé Morgunblaðið/Ásdís ARKITEKTARNIR Elín Kjartansdóttir og Haraldur Örn Jónsson hafa unnið skipulag Grófartorgs ásamt Helgu Benediktsdóttur sem stödd er erlendis um þessar mundir. SUND opnast frá Naustum í vestur í átt að Bryggjuhúsinu fjærst til hægri á myndinni en vinstra megin sést Fálkahúsið. allt hresst við og lagfært," segja þau Elín Kjartansdóttir og Haraldur Óm Jónsson arkitektar í samtali við Morgunblaðið en þriðji sam- starfsmaðurinn, Helga Benedikts- dóttir var stödd erlendis. í dag er svæðið mikið til helgað bílum og bílastæðum, það er opið fyrir veðri og vindum og óvistlgt og óvandað á að líta eins og segir í greinargerð um núverandi ástand reitsins. Þama sé mikil bflaumferð og gang- andi umferð lítil enda lítið að sækja á svæðið. Þama eru 6 verslanir, þrjú veitingahús og tvær menning- armiðstöðvar og í útjarði svæðisins nokkur fyrirtæki. Segir í greinar- gerð að þau gangi ekki sem skyldi vegna öldudals sem miðborgin sé í og að svæðið tengist ekki hafnar- svæðinu þaðan sem ferðamenn ganga oft frá borði skemmtiferða- skipa til að skoða borgina og versla. Fjarlægja þarf kofa Þau segja jafnframt að inn á milli sögufrægra bygginga á þessu svæði séu hálfgerðir kofar sem hikstalaust megi fjarlægja en með því yrði hægt að opna bæði frá Naustum og Tryggvagötu inní húsagarðana og á hið nýja torg. „Við viljum leggja áherslu á að við uppbyggingu á Grófartorgi verði öll rými þar vel skilgreind og þau jafnframt vel tengd öðrum svæðum í nágrenninu. Grófartorgið er svo að segja við hlið Ingólfstorgs og við höfðum allt þetta svæði undir þegar við unnum tillögu okkar fyrir Ingólfstorg, það þarf að vinna þetta allt í ákveðnu samhengi þótt ekki allt sé framkvæmt í einu. Á Ingólfstorgi hefur tekist vel að safna saman fólki bæði vegna skipulagðra funda og á góðviðris- dögum safnast fólk þar, á Austur- völl og þarna getur Grófartorg einn- ig orðið skemmtilegur kostur. Þegar allt þetta svæði verður endanlega frágengið skapast þama heildar- mynd þar sem borgarbúar og ferða- menn geta spókað sig, skoðað sögu- fræg hús og kynnt sér sögu Reykja- víkur, rekið erindi sín í verslanir og þjónustufyrirtæki á svæðinu og átt þama ánægjulegar stundir. Nýbygging við Grófina Hugmynd þremenninganna auk þess að lagfæra ásýnd svæðisins er að reisa nýbyggingu við Grófina, þ.e. u-laga byggingu sem næði allt frá Vesturgötu, meðfram Grófinni og yfir að Tryggvagötu. Með því myndaðist gott skjól fyrir strekk- ings-norðanátt sem oft er ríkjandi á þessu homi en gert er ráð fyrir að reisa þama tveggja hæða bygg- ingu með um 400 fermetra grunn- flöt. Þar yrðu verslanir og þjónustu- fyrirtæki á neðri hæð en íhúðir á efri hæð eða skrifstofur en nánari hönnun hússins bíður frekari ákvarðana skipulagsyfirvalda. „Menn vildu gjaman fá betri nýtingu á þessum reit en hinar tvær tillögur okkar gerðu ekki ráð fyrir þessarl nýbyggingu heldur að ann- aðhvort yrðu þama áfram bílastæði sem mætti þá gera betur úr garði og meira aðlaðandi eða að hlaðin yrði upp eins konar hæð sem skjól- garður fyrir torgið. En byggingin skýlir torginu bæði fyrir vindum og umferð og innan við hana eða aust- an við gemm við ráð fyrir að grafa upp gamla bólverkið sem þarna er undir yfírborðinu og mynda skemmtilegt torg. Þarna gætum við sameinað torgstemmningu og varð- veislu sögulegra minja enda er þessi blettur mikilvægur í sögu Reykja- víkur. Bólverkstorgið og húsagarð- arnir tengjast einnig vel Geysishúsi og sýningarsvæðinu norðan þess með göngustíg við Vesturgötu. Þánnig gæti svæðið allt orðið sam- felld heild áhugaverðra rýma í stað þess að vera það vindblásna flæmi sem það nú er,“ segja þau. Gert er ráð fyrir nýjum bílastæð- um beggja vegna Grófarinnar og við suðurhlið Tryggvagötu og í Naustum yrðu nokkur stæði fyrir gónferðabíla eins og þau orðuðu það sem er þýðing þeirra á enska orðinu sight-seeing-buses. Eftir formlega kynningu á tillögunni verður farið út í frágang á frekari útfærslu en um framkvæmdahraða eða kostnað er ekki vitað á þessari stundu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.