Morgunblaðið - 12.03.1996, Blaðsíða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
„Stálmúsin"
lengi að hitna
SIGURÐUR Sveinsson,
hornamaðurinn knái hjá FH,
sem oft hefur gengið undir
nafninu „stálmúsin“, gerði
tvö síðustu mörkin í leiknum
gegn Haukum á sunnudags-
kvöld og voru það einu mörk-
in hans í leiknum. Hann gerði
einnig tvö síðustu mörkin
gegn Haukum í deildar-
keppninni á dögunum.
„Eg er bara svona lengi
að hitna. Guðmundur þjálf-
ari veit það og því hefur
hann mig inn á frá fyrstu
mínútu. Það er líka mikil-
vægt að gera síðustu mörkin
því þau eru oftast sýnd í sjón-
varpinu,“ sagði Sigurður og
glotti.
Þannig vörðu þeir
Bjarni Frostason, Haukum 14/1 (þar
af 5 til mótheija): (7(1) langskot, 2(1)
af línu, 2(1) eftir gegnumbrot, 2(1) úr
horni og 1 vítakast).
Jónas Stefánsson, FH 6/1 (þar af 1
til mótheija): (2(1) langskot, 2 af línu,
1 eftir gegnubrot og 1 eftir hraðaupp-
hlaup).
Magnús Árnason, FH 5/1: (4 lang-
skot og 1 vítakast.).
ÍÞRÚntR
FOLX
■ PÁLL Olafsson, fyrrum lands-
liðsmaður í handknattleik og leik-
maður Hauka, var á bekknum sem
liðsstjóri Hauka í leiknum gegn FH
á sunnudagskvöld. „Við fengum
Pál til að vera okkur til halds og
trausts, enda maður með reynslu,"
sagði Gunnar Gunnarsson, þjálf-
ari. Páll hefur reyndar verið viðloð-
andi liðið í vetur þar sem hann er
í meistaraflokksráði félagsins.
■ JÓNAS Stefánsson, markvörð-
ur FH, átti afmæli á sunnudaginn
og fékk því góða afmælisgjöf - sig-
ur á erkifjendunum Haukum. Fé-
lagar hans í FH sungu afmælis-
sönginn fyrir hann í búningsklefa
FH-inga eftir leikinn.
■ MATTHÍAS Á. Mathiesen,
fyrrum ráðherra og stjórnarformað-
ur Sparisjóðs Hafnarfjarðar, var
á leiknum í Hafnarfirði og var
ánægður með úrslitin. „Ég held allt-
af með liðinu sem sigrar þegar FH
og Haukar mætast! Sérðu ekki að
bæði liðin leika með auglýsingu frá
Sparisjóðnum," sagði hann og
brosti.
SIGURJÓN Sigurðsson var fyrrum félögum sínum
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
Haukum erfiður — FH-ingar fögnuðu sigrl við Strandgötu.
FH með tak á Haukum
FH-INGAR sýndu það gegn
Haukum í íþróttahúsinu við
Strandgötu að þeir eru ekki á
því að láta forystuhlutverkið
af hendi í bænum. Þeir hafa
hingað til verið „stóri bróðir-
inn“ íhandboltanum og það
eru þeir vissulega enn eftir
tveggja marka sigur, 27:25, á
sunnudagskvöld. Liðin leika
annan leik sinn í Kaplakrika í
kvöld og þá geta FH-ingar
tryggt sér sæti í undanúrslitum
keppninnar, en sigri Haukarfá
þeir oddaleik.
Leikurinn var jafn og æsispenn-
andi allan tímann og úrslitin
réðust ekki fyrr en á lokasekúndun-
um. FH byijaði bet-
ur og komst í 1:5
en Haukar voru
fljótir að jafna í 5:5.
Eftir það var jafnt á
flestum tölum og staðan í hálfleik
12:13 fyrir FH.
Haukar komu mjög vel stemmdir
í síðari hálfleik og skoruðu úr fyrstu
átta sóknum sínum og breyttu stöð-
unni í 22:19 og útlitið bjart. Þá
urðu kaflaskipti því FH gerði sex
mörk á móti einu næstu mínúturnar
og staðan þá 23:25 fyrir FH og 4
mínútur eftir.
Haukar voru ekki á því að færa
grönnum sínum sigurinn á silfur-
fati og börðust eins og ljón. Gústaf
minnkaði muninn í eitt mark,
24:25. Sigurður Sveinsson komst
loks á blað í leiknum með því að
gera 26. mark FH er tæpar þijár
mínútur voru eftir. Aron kvittaði
fyrir Hauka, 25:26. í næstu sókn
varði Bjarni Frostason skot frá
Gunnari Beinteinssyni af línu.
Haukar áttu því möguleika á að
jafna því þegar 1,10 mín. voru eft-
ir fékk Siguijón Sigurðsson
tveggja mínútna brottvísun. Einum
fleiri áttu Haukar að leika skyn-
samlega og bíða eftir opnu mark-
tækifæri, en þess í stað lét Halldór
Ingólfsson dæma á sig ruðning
Valur B.
Jónatansson
skrifar
Úrslitakeppnin
í handknattleik
Fyrsti leikur liðanna
í 8-liða úrslitum
íslandsmótsins,
leikinn í Hafnarfirði
sunnudaginn
10. mars 1996.
%
Haukar
Mörk Sóknir %
FH
Mörk Sóknir %
12 26 46 F.h 13 26 50
13 24 54 S.h 14 24 58
25 50 50 Alls 27 50 54
SOKNARNYTING
Langskot
Gegnumbrot
Hraðaupphlaup
Horn
Lína
Víti
Tvö töp gegn Svfum í Eyjum
Sigfús G.
Guömundsson
skrifar frá
Eyjum
Islenska kvennalandsliðið í hand-
knattleik tapaði um helgina í
tvígang fyrir sænska landsliðinu í
undankeppni Evr-
ópumótsins. Báðir
leikimir fóru fram í
Vestmannaeyjum. í
fyrri leiknum hlaut
íslenska liðið slæma útreið og ta_p-
aði með 11 marka mun, 12:23. Is-
lensku stúlkunum tókst aðeins að
rétta úr kútnum í síðari leiknum
en það dugði ekki til sigurs, lokatöl-
ur 22:16 þeim sænsku í vil. Því er
Ijóst að íslenska liðið er neðst í sín-
um riðli að loknum fjórum leikjum
með ekkert stig og á aðeins eftir
að leika tvo leiki gegn Hollending-
um.
Fyrri leikurinn var mjög ójafn
ef undan eru skildar fyrstu mínútur
leiksins. En síðan sigldu sænsku
stúlkurnar fram úr og unnu stórsig-
ur. Aðalveikleiki íslenska liðsins í
leiknum var sóknarleikurinn, hann
var mjög hikandi og sænsku stúlk-
urnar fengu boltann oft á mjög
auðveldan hátt sem þær nýttu sér
síðan til þess að fara í hraðaupp-
hlaup sem undantekningarlítið end-
aði með marki. Sænska liðið var
mjög heilsteypt og með breiðan og
góðan leikmannahóp.
Allt annað var að sjá til íslenska
liðsins í síðari leiknum. Mun meiri
barátta var í hópnum. Varnarleikur-
inn var yfirhöfuð ágætur og mun
betri en daginn áður þó ýmislegt
hafi þó verið að. Það kom þó ekki
í veg fyrir að sænska liðið innbyrti
sex marka sigur. Halla María
Helgadóttir var besti leikmaður ís-
lenska liðsins í báðum leikjunum.
„Munurinn á íslenska liðinu frá
fyrri leiknum til hins síðari var eins
og hvítt og svart. Það má segja að
úrslitin í fyrri leiknum hafi verið
hálfgert slys. En úrslitin í síðari
leiknum tel ég vera í samræmi við
getumun liðanna,“ sagði Kristján
Halldórsson, landsliðsþjálfari ís-
lands. „Ég er ánægður með varnar-
leikinn í síðari leiknum og sóknar-
leikurinn var betri en þær sænsku
eru fljótar að refsa með hraðaupp-
hlaupum.“
„Undirbúningurinn fyrir síðari
leikinn var mun betri en fyrir þann
fyrri. Hugarfarið var rétt enda verð-
ur það að vera svo ætlum við að
standa í betri þjóðum," sagði
Andrea Atladóttir að loknum síðari
leiknum. „Þær eru mun hávaxnari
og við skutum stundum beint í Iúk-
urnar á þeim, en vörnin var góð
hjá okkur. Við fengum hins vegar
of mörg hraðaupphlaup á okkur,
það voru þau sem riðu baggamun-
inn að mínu mati,“ bætti hún við.
„Við fengum sama og engan
undirbúning fyrir fyrri leikinn að-
eins klukkutíma og ég hefði kosið
að hann hefði verið lengri. Ég var
ánægður með leikinn í gær en átti
von á meiri mótspyrnu í leikjun-
um,“ sagði Peter Hedin, þjálfari
sænska landsliðsins. „Það sem helst
háir íslenska liðinu er samvinnu-
leysi, til dæmis fékk vinstrihandar-
skyttan Andrea Atladóttir alltof
litla aðstoð og varð að vinna allt
upp á eigin spýtur. Þessu er öfugt
farið hjá okkur, þar er samvinnan
aðalatriðið."
þegar 47 sekúndur voru eftir.
FH-ingar gáfu þeim rauðklæddu
ekki annað tækifæri og Sigurður
Sveinsson innsiglaði sigurinn með
því að skora úr vítakasti, sem hann
fiskaði sjálfur, á lokasekúndum
leiksins.
Leikurinn var skemmtilegur á að
horfa og bauð upp á spennu eins
og hún gerist best. FH-ingar voru
skynsamari i leik sínum á lokakafl-
anum og það réð úrslitum. Haukar
voru klaufar að jafna ekki í lokin
og fá þannig framlengingu. Þeir
geta sjálfum sér um kennt og geta
lært af mistökum sínum fyrir átök-
in í Kaplakrika í kvöld.
Guðjón Árnason, Hans og Hálf-
dán, sem gerði fjögur mörk og
fiskaði jafnmörg víti, voru bestu
leikmenn FH. Siguijón lék ágæt-
lega í síðari hálfleik og innslag Sig-
urðar Sveinssonar í lokin var ómet-
anlegt fyrri FH. Gústaf Bjarnason
var bestur Hauka, skoraði átta
mörk úr níu tilraunum — mistókst
einu sinni í vítakasti. Aron lék einn-
ig vel og Bjarni stóð fyrir sínu í
markinu þó svo að það hafi ekki
dugað að þessu sinni.
Harður slagur
„Þetta var harður slagur tveggja
áþekkra liða og sigurinn gat endað
hvorum megin sem var,“ sagði
Guðmundur Karlsson, þjálfari FH.
„Við sýndum mikinn „karakter" að
ná að snúa leiknum okkur í hag
er við vorum þremur mörkum undir
í síðari hálfleik. Nú þurfum við
bara að klára þetta í Krikanum [í
kvöld], en við verðum að leggja
okkur verulega fram því Haukarnir
gefa okkur ekkert.“
Vantaði þolinmæði
Gunnar Gunnarsson, þjálfari
Hauka, sagði að of mikil fljótfærni
hafi verið í sóknarleiknum í lokin.
„Við höfðum ekki þolinmæði til að
bíða eftir opnum færum og því fór
sem fór. Þetta var jafn leikur og
þrátt fyrir tapið er enginn tími til
að hengja haus því stutt er í næstu
viðureign. Við ætlum að sigra í
Krikanum og bjóða FH-inga síðan
velkomna á Strandgötuna aftur á
fimmtudagskvöld.“