Morgunblaðið - 28.03.1996, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1996 B 3
VIÐSKIPTI
Ekkert lát á aukinni notkun alnetsins hér á landi
Reiknað með að bandvídd þurfi
að 17-faldast fram til aldamóta
Þróun alnetsins er hraðari en flestir ná að
fylgjast með og kröfur um aukna fiutnings-
getu aukast eftir því sem upplýsingaflæðið
eykst. INTIS hefur séð um rekstur alnetsins
hér á landi og er þar gert ráð fyrir því að
auka þurfi bandvíddina milli landa í 34 Mb
fyrir aldamót til að mæta þessari þörf.
MEÐ sívaxandi áhuga al-
mennings á alnetinu hefur
umferðin um tenginguna
til útlanda aukist til muna. Hér á
landi hefur fyrirtækið Internet á ís-
landi hf. (INTIS) annast rekstur
þessarar tengingar frá miðju síðasta
ári, en fyrirtækið var hins vegar
stofnað upp úr Surís, samtökum sem
annast höfðu þennan rekstur í u.þ.b.
7 ár þar á undan.
INTIS er ekki stórt fyrirtæki þrátt
fyrir mikla útbreiðslu. Starfsmenn
fyrirtækisins eru þrír, þeir Helgi
Jónsson framkvæmdastjóri, Sigurður
Jónsson markaðsstjóri og Maríus
Ólafsson netstjóri. Helgi segir hins
vegar að það hafi verið talið nauðsyn-
legt að stofna hlutafélag um þennan
rekstur sökum þess hve umfangs-
mikill hann hafi verið orðinn. Ófært
hefði verið talið að láta félagasamtök
sjá um rekstur sem stefndi í um 100
milljóna króna veltu á ári.
Verð á tengingu við
útlönd of hátt
Helgi segir að notkunin hafi auk-
ist jafnt og þétt á undanförnum miss-
erum. Um miðjan næsta mánuð verði
bandvídd tengingarinnar við útlönd
komin í 2 megabit (Mb), en áætlanir
fyrirtækisins geri ráð fyrir því að
þörf verði á 34Mb tengingu um
næstu aldamót. „Það er hins vegar
mjög mikilvægt að verðlagning á
þessari línu verði með eðlilegu móti
ef íslendingar ætli að standa öðrum
þjóðum jafnfætis í þessari þróun,“
segir Helgi.
Hann bendir á að fyrirtækið muni
koma til með að greiða um 45-50
milljónir króna fyrir notkun á 2Mb
sambandi til Svíþjóðar, til Pósts og
síma og Telia símafyrirtækisins í
Svíþjóð. Miðað við óbreytta verðskrá
muni 34Mb samband því kosta um
550 milljónir króna. Að teknu tilliti
til annars kostnaður muni rekstur
þessa sambands því kosta um 6-700
milljónir króna á ári. Til samanburð-
ar sé sænskur samstarfsaðili að
greiða um 400 milljónir króna á ári
fyrir afnot af 34Mb sambandi til
Bandaríkjanna, sem sé talsvert lengri
leið.
Helgi segir verðið einnig nokkuð
blóðugt í ljósi þess að stofnkostnaður
Pósts og síma við þessa tengingu
hafi verið um 2 milljarðar króna eft-
ir því sem næst verði komist. Miðað
við þann kostnað verði INTIS búið
að greiða stóran hluta þess kostnað-
ar upp árið 2001 miðað við spá um
aukna bandvídd.
„Þá má einnig nefna að áætlanir
NORDUnet, norræna háskóla- og
rannsóknanetinu, gera ráð fyrir því
að kostnaður af bandvídd muni
lækka um á bilinu 30-35% á ári fram
til aldamóta. Samkvæmt þeirri þróun
myndi 34Mb samband kosta um 132
milljónir króna á ári, árið 2000. Það
er nauðsynlegt að verðþróunin hér á
Morgunblaðið/Sverrir
HELGI Jónsson, framkvæmdastjóri INTIS, og Sigurður Jónsson,
markaðsstjóri.
Burðargeta á útlandasambandi INTIS
landi fylgi þessari þróun erlendis, ef
við ætlum að vera samkeppnishæfir
á þessu sviði.“
Helgi segir að tæknilega séð sé
engin fyrirstaða fyrir aukningu í
34Mb. í dag sé Póstur og sími með
155Mb samband til útlanda og Cant-
at 3 strengurinn sé mun stærri og
frekari aukning sé einungis samn-
ingsatriði.
Óljóst um áhrif af samkeppni
við Póst og síma
Póstur og sími hefur boðað að
hann hyggist bjóða upp á alnetsþjón-
ustu á næstunni og að fyrirtækið
muni opna eigin gátt til Bandaríkj-
anna í tengslum við þá þjónustu.
Bandvídd þeirrar gáttar á að vera
2Mb, eftir því sem haft var eftir
Sérverslun með vörur úr hrauni og íslenskum náttúrusteinum opnuð
Óþrjótandi möguleikar
í steinaframleiðslu
SÉRKENNILEG verslun hefur
verið opnuð í kjallara Miðbæjar-
markaðarins, Aðalstrætis 9, eða
verslun með íslenska náttúru-
steina og vörur unnar úr þeim.
Eigendurnir eru þeir Pálí Þ. Páls-
son og Freyr Baldursson ásamt
eiginkonum sínum en þeir hafa á
undanförnum árum unnið og þró-
að ýmsa listmuni og aðra gjafa-
vöru úr íslenskum steinum. Sam-
hliða versluninni reka þeir verk-
stæði við Tangarhöfða þar sem
öll hönnun og vinnsla fer fram.
Páll er 41 árs. Hann lauk prófi
í útgerðartækni frá Tækniskóla
íslands 1982 og hefur verið sjálf-
stæður atvinnurekandi síðan.
Hann rekur Heildverslunina Múr-
kem ehf. sem er með innflutning
á múrviðgerðar- og íblöndunar-
efni fyrir steypu.
Freyr er 32 ára og múrari að
mennt. Meðan á náminu stóð
komst hann í kynni við Martein
heitinn Davíðsson, mikinn áliuga-
mann um steina. Þá kviknaði
áhuginn hjá Frey að vinna list-
muni og aðra gripi úr steinum og
hefur þetta áhugamál síðan undið
upp á sig. Fyrir tveimur árum
fékk hann Pál í lið með sér og
fóru þeir í leiðangra víðs vegar
um landið til að safna fallegum
steinum. Páll segir að fljótlega
hafi þeim orðið ljóst að þeir þyrftu
vélar til að saga og slípa gijótið.
„Við komumst hins vegar að því
að slíkar vélar eru mjög dýrar og
því var brugðið á það ráð að smíða
bæði sög og slipivélar með aðstoð
vina. Síðan höfum við verið
óstöðvandi við að hanna listmuni
og gjafavörur úr ýmsum tegund-
um úr steinasafni íslands. Við
erum með vinnsluna í verkstæði á
Tangarhöfðanum en höfum nú
opnað verslun í miðbænum. Auk
þess se(jum við framleiðsluvörur
okkar til listmuna- og gjafavöru-
verslana víðs vegar um landið og
hefur þeim verið vel tekið.“
íslenskir steinar
til Danmerkur
í versluninni fást listmunir og
gjafavörur af ýmsu tagi, t.d. vegg-
klukkur, standklukkur og klukkur
á hraunsteinum. „Viðframleiðum
einnig borð og fólk getur nánast
pantað þau í þeirri stærð sem
hentar því. Þá seljum við einnig
steina, sem handunnið silfur hefur
verið fagurlega greipt í af Davíð
Jóhannessyni gullsmið.“
Páll og Freyr eru bjartsýnir á
FREYR Baldursson og Páll Þ. Pálsson eru eigendur
verslunarinnar Náttúrusteina í Aðalstræti.
að vinnsla úr íslenskum hraunmol-
um og steinum sé að verða að
arðbærum smáiðnaði og benda á
að spurn sé eftir þessari fram-
leiðslu erlendis frá. „Við höfum
selt töluvert af miniagripum eða
steinum með klukku á til tölvufyr-
irtækisins „Tulip Comput.ers" í
Danmörku. Vörumerki þeirra er
límt á vöruna og þeir gefa hana
síðan til viðskiptavina. Við erum
að sjálfsögðu ánægðir með að er-
lent fyrirtæki skuli velja vöru frá
okkur til að vekja athygli á sér
en þetta er ekki síður góð land-
kynning fyrir Island."
Hyggjast framleiða
hellur og gólfflísar
Möguleikarnir á að vinna vörur
úr íslenskum steinum eru óþijót-
andi að sögn Páls. Þeir félagar
hafa lagt mesta áherslu á listmuni
°g gjafavöru og borð úr steinum
eru einn af fáum hagnýtum hlut-
um, sem þeir hafa framleitt. „Við
erum nú að íhuga að framleiða
gólfflísar úr íslenskum steinum
og einnig steina fyrir arinhleðsl-
ur, vatnsbretti utan húss og sól-
bekki. Fólk hefur koinið til okkar
með hugmyndir, sem við höfum
síðan unnið eftir og bent á ýmsa
möguleika. Þá hefur fólk komið
með steina, sem það sjálft hefur
safnað og beðið okkur um að saga
þá niður eða smiða úr þeim. Siikir
þjónusta hefur verið vaxandi þátt-
ur í starfseminni og með opnun
verslunarinnar erum við að bæta
hana til muna.“
Haraldi Sigurðssyni, framkvæmda-
stjóra samkeppnissviðs P&S í Morg-
unblaðinu þann 2. desember sl.
Helgi segir að enn sé alveg óljóst
hvaða áhrif þessi áform P&S muni
hafa þar sem tæknileg útfærsla sé
alveg óljós. Hins vegar snúist starf-
semi INTIS ekki um einstaklings-
þjónustu heldur rekstur Internets hér
á landi og þjónustu við þær stofnan-
ir og þau fyrirtæki sem því tengjast.
Þar á meðal séu fyrirtæki sem sér-
hæfi sig í einstaklingsþjónustu. „Það
er alveg skýr stefna hjá okkur að
vera ekki í samkeppni við samstarfs-
aðila okkar og því sinnum við ekki
þessari einstaklingsþjónustu og mun-
um ekki gera það. Við viljum aðeins
fá frið til þess að halda starfi okkar
áfram á okkar sviði," segir Helgi.
Maríus bætir því við að það skipti
í sjálfu sér litlu máli hvaða Internet-
þjónustu P&S komi til með að reka.
Það sem mestu máli skipti sé að
grunnþjónusta fyrirtækisins, þ.e.
ieigan í línunni út úr landinu, sem
og afnot af línum hér innanlands,
sé rétt verðlögð.
Lítill áhugi á samstarfi
hjá P&S?
Helgi bendir hins vegar á að skyn-
samlegra kunni að vera að reka að-
eins eina slíka tengingu og hafi INT-
IS oftar en einu sinni ljáð máls á
samstarfi við Póst og síma á slíku.
„Um áramótin 1994/95 buðum við
þeim t.d. slíkt samstarf og stóðum í
viðræðum við einkaleyfissvið P&S
um það. Þeirra skilmálar voru hins
vegar með þeim hætti að það hefði
ekki þýtt neitt annað en yfírtöku og
það gátum við ekki sætt okkur við.
Þá var samkeppnissviði P&S boðið
samstarf um rekstur gáttar til Sví-
þjóðar í janúar á þessu ári, en ekk-
ert hefur heyrst frá samkeppnissviði
varðandi hugsanlega samvinnu á
þessu sviði.“
Maríus bætir við að sér lína P&S
hafi í för með sér að á íslandi verði
tvö aðskilin Internet og þeir notendur
sem tengdir verða neti P&S'og þurfi
að hafa samband við notendur á
neti INTIS þurfi að fara með þau
samskipti um net P&S til Bandaríkj-
anna, þaðan til Evrópu og síðan hing-
að heim. Svar þyrfti síðan að fara
hinn hringinn.
„Við vitum einnig hvernig ástand
línanna frá Bandaríkjunum til Evr-
ópu er. Þær eru mun þrengri en lín-
ur NORDUnet til Bandaríkjanna og
því væru notendurnir í raun að kaupa
sér lakari tengingu til Evrópu." Þá
yrði rekstur tengingarinnar helmingi
dýrari fyrir báða aðila auk þess sem
nýtingin á burðargetunni yrði lakari.
Borgar-
ráð selur
hlutí
Mætti hf.
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að selja hlut Reykjavíkurborgar
í Mætti hf., fýrir 3,5 milljónir.
Kaupandi er Verslunarmanna-
félag Reykjavíkur, Iðja, félag
verksmiðjufólks, Verkamanna-
félagið Dagsbrún og Rafiðnað-
arsamband Islands.
í erindi borgarlögmanns til
borgarráðs kemur fram að
borgarráð hafi samþykkt árið
1991 að kaupa hlutafé í Mætti
hf. fyrir 7 millj. Helmingur
hlutafjárins eða 3,5 millj. voru
í Mætti hf., sem er rekstrarfé-
lagið en hinn helmingurinn er
i Máttarstólpum hf., sem er
eigandi húsnæðisins í Faxafeni
14. Tilgangur kaupanna var
að tryggja borgarstarfsmönn-
um afsláttarkjör hjá Mætti hf.,
með sama hætti og ýmis verka-
lýðsfélög buðu félagsmönnum
sínum.
Jafnframt segir í erindi borg-
arlögmanns að hlutafjáreign
borgarinnar í Máttarstólpum
hf. muni tryggja borgarstarfs-
mönnum óbreytt afsláttarkjör
hjá Mætti hf.