Morgunblaðið - 19.04.1996, Qupperneq 28
48 D FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Betra loft í
eldri byggingar
Lagnafréttir
Oft hafa loftræstikeríí orðið fyrir óvæginni
gagnrýni, segir Sigurður Grétar Guð-
mundsson. En oft er orsökin sú, að þau eru
ekki stillt endanlega og enginn hugsar um
þau árum og áratugum saman.
GÖMLU eldstæðin höfðu marga
kosti hvort sem það voru hlóðir,
kolaeldavélar eða kolaofnar í
heldri manna stofum en þeir voru
jafnvel til hjá fátækara fólki. Arin-
menning Bretanna fluttist ekki
hingað að ráði fyrr en á þessari
öld eftir að önnur upphitunarkerfí
komu til sögu svo sem að nota
heitt vatn úr jörðu. Arinn í stofu
og Drápuhlíðargijót varð þá stöðu-
tákn hinna nýríku eftir miðja öld-
ina.
En gömlu eldstæðin, sólóelda-
vélar og kolaofnar höfðu í raun
önnur hlutverk, þótt óafvitandi
væri, en að hita upp hús og skapa
skilyrði til að elda mat.
Þessi eldstæði voru í rauninni
loftræstikerfi, þau tryggðu að
nýtt loft barst stöðugt inn í hý-
býli, þau sáu um loftskipti svo
notað sé nýtískulegra orð.
Það er alkunna að til að eldur
geti lifað þarf hann tvennt, elds-
mat og súrefni. Enginn eldur
brennur nema að honum streymi
stöðugt nýtt loft, þannig varð
óvart til loftræstikerfi þar sem
þessi gömlu eldstæði voru, brunn-
ið heitt loft streymdi upp um reyk-
háfinn og nýtt ferskt loft streymdi
ÞANNIG hefur tækinu verið komið fyrir í sænskri kennslu-
stofu, en eflaust væri hægt að láta fara minna fyrir því.
inn í stofuna eða eldhúsið þar sem
eldstæðið var, eldurinn brann
ekki nema einhvers staðar væri
opinn gluggi en stundum voru
byggingar einfaldlega það óþétt-
ar að það nægði. Það var síðan
önnur hlið á þessari eldamenn-
ingu að eldsneytið nýttist illa,
sóunin var gífurleg því mikill hiti
glataðist upp um reykháfinn.
Þéttari byggingar
Það er mikið álitamál hvort
byggingarnar sem reistar hafa
Suðurlandsbraut 46, 2. hæð. 108 Rvík. Sigurbjörn Skarphéðinsson Ig.fs. Þórður Ingvarsson
FUNAFOLDPARHUS Sérstak-
lega gott og vel staðsett rúml. 170 fm
parhús á tveimur hæöum I fallegu grónu
hverfi. 3-4 svefnherb. Stór stofa. Arin, 50
fm verönd m/heitum potti. Flísar, parket.
Áhv. 3,5 byggsj. Verð 13,3 millj.
VIÐ ELLIÐAÁRDAL Á fráb. staö í
grónu hverfi viö einn fallegasta útsýnis-
og útivistarst. í Rvk. stendur reisulegt
einbýli. Mögul. á séríb. á neöri hæö, fráb.
útsýni, tvöf. bílskúr, sólskáli, fallegur
garður. Áhv. ca. 5,4. Verö 21,0 millj.
DOFRABORGIR Skemmtilega
hannaö einbýli á einni hæö tæpl. 180
fm á einum besta staö I Borgunum í
Grafarvogi. Húsiö selst fullb. að utan
og fokhelt aö innan. Teikningar á skrif-
stofu. Verö 9,6 millj.
BJARNASTAÐAVÖR Sérlega fal-
legt og vel búiö einbýli ca. 160 fm ásamt
tæpl. 30 fm bílskúr, fallegur garöur
m/heitum potti og stórri verönd. Áhv. ca.
5,8. Verö 12,5 millj.
EINIBERG HF. Skemmtilegt timbur-
hús á einni hæö á góöum staö I Set-
bergslandi, góðar innréttingar, 4 svefn-
herbergi, suöurverönd og garöur. Skipti
ath. á minni eign. Hagst. langt.lán. Verö
19,3 millj.
Hæðlr og 4-5 herb.
BARMAHLIÐ - SERHÆÐ
Mjög góö efri sérhæö í góöu þríbýlis-
húsi tæpl. 100 fm ásamt 32 fm bílskúr
á rólegum staö, parket, nýtt eldhús.
Yfirbyggöar svalir (sólstofa). Bygging-
arréttur á rishæö fylgir. Áhv. 1,3. Verö
10.3 millj.
BREIÐAS GBÆ. Neöri sérhæö I tví-
býli ca. 116 fm ásamt 25 fm bílskúr. Góö-
ur staður innst í botnlanga, ath. skipti á
minni eign. Áhv. 5,8. Verö 9,3 millj.
DÚFNAHÓLAR Góð 4ra herb. á 6.
hæö ca. 104 fm íbúö I nýstandsettu lyftu-
húsi, parket, yfirb. vestursvalir, fráb. út-
sýni. Laus fljótlega. Verö 7,3 millj.
HOLTSGATA VESTURB. Ca. 90
fm neöri hæö í þribýli sem þarfnast tölu-
veröra endurbóta, laus strax. Hagstætt
verö 6,3 millj.
FELLSMÚLI Mjög góö 4ra herb. íb. á
2. hæö ca. 100 fm í vel útlítandi fjölbýli,
nýtt eldhús, suðursvalir. Skipti á ód. Áhv.
4,7. Verö 7,9 millj.
KLYFJASEL Mjög vandað og
skemmtilegt 2ja íbúöa einbýli á góöum
staö í Seljahverfi. Skipti ath. á minni eign.
Hagst. langt.lán. Verö 19,3 millj.
GARÐHÚS Vel skipulagt endahús á
tveimur hæöum ca. 160 fm meö sér-
stæðum 24 fm bílskúr. Húsiö er til afh. nú
þegar fullb. aö utan og fokhelt að innan.
Verö aöeins 7,9 millj.
LÆKJARÁS Einstaklega glæsilegt
og ríkulega búiö einbýli ca. 380 fm á
tveimur hæðum meö samþykktri íbúö á
neöri hæö og innb. bílskúr á þessum eft-
irsótta staö í Selásnum. Hagstæö lán.
Verö 23,0 millj.
OSKUM EFTIR:
>- 2-3ja herb. íbúðum á svæði 107
> 2-3ja herb. íbúðum á svæði 105 og 108
>- 4ra herb. og hæðum í vesturbænum
>- Öllum stærðum í Fossvogi
HOLTAGERÐI SERH. Neöri sér-
hæð á vinsælum staö I Kóp. íbúðin er ca.
113 fm ásamt 23 fm bílskúr. Eignin þarfn-
ast einhverra endurbóta á gólfefnum og
fl. Verö 8,3 millj.
DUNHAGI M/BILSKUR Mikiö
endurnýjuö 4ra herb. íbúö á 3ju hæö
og efstu á góðum staö I vesturb. Nýtt
eldhús og baðh. Húsiö klætt aö utan.
Eign I toppstandi. Laus strax. Áhv.
5,0. Verö 7,9 millj.
HRAUNBÆR M/AUKAH. Ein
staklega falleg 4ra herb. íb. á 3ju og
efstu hæö í góöu fjölbýli við Rofabæ.
Nýtt eldhús og baö, parket og flísar,
aukaherb. í kj. Áhv. 5,0. Verö 7,9
millj.
SIGLUVOGUR M/ BILSKUR
Mjög góð 3ja herb. ca. 66 fm (búö á
efri hæö í þríbýli ásamt 25 fm bílskúr.
Laus fljótlega, frábær staöur. Áhv.
3.7. Verö 7,2 millj.
HRAUNBÆR LAUS Mjög góö
3ja herb. ib. ca. 90 fm á 1. hæð I fjölb.
Nýlegt eldhús, parket og fl. Laus strax.
Áhv. 3,1. Verö6,4 millj.
2ja herb.
MIÐBÆR RVÍK Á besta staö í hjarta
Reykjavíkur er til sölu falleg 2ja herb. íb.
ca. 40 fm á 1. hæö I góöu litlu húsi. Áhv.
2,4 . Verö 4.1 millj.
SAFAMYRI Góð neðri sérhæð ( þrí-
býli ca. 135 fm ásamt 25 fm bílskúr á
góöum staö, nýtt baðherb. Parket, stórar
stofur, mögul. á arni ath. skipti á minni
eign. Áhv. 4.3. Verö 11,9 millj.
VALLARAS UTB. 1,7 M. Mjög
góð 2ja herb. ca. 54 fm á 5. hæð og
efstu I lyftuhúsi. Húsiö klætt aö utan,
fullfrág. lóö og bílast. Áhv. 3,2. Verö
4,9 millj.
SUÐURHLÍÐ RVÍK Virkilega falleg
2ja herb. íb. á 1. hæö ca. 50 fm í nýlegu
húsi. Áhv. 3.750 húsbr. Verö 5,2 millj.
Atvinnuhúsnæði
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR Tæp-
lega 80 fm mjög gott verslunar- og
skrifstofuhúsn. á götuhæö. Góöar
leigutekjur. Hagstæö lán áhvílandi.
Góö fjárfesting. Uppl. á skrifstofu.
Ymislegt
3ja herb.
BALDURSGATA, 3JA HERB.
Mikið endurnýjuö rúmlega 50 fm íbúö á
góöum staö í Þingholtunum. Hugsanlegt
aö taka bíl uppí. Hagstætt verö aöeins
3,9 millj.
ÁLFHÓLSVEGUR - ALLT SÉR
Falleg 3ja herb ca. 66 fm jaröhæö (ekkert
niöurgr.) Gott skipulag, parket, flísar, sér-
inng. Húsiö aö utan nýtekiö I gegn. Áhv.
3,1 mlllj. byggsj. o.fl. Verö 5,8 millj.
SKORRADALUR Nýlegur bú-
staöur ca. 40 fm ásamt 20 fm svefn-
lofti og stórri verönd I landi Vatnsenda
I Skorradal. Húsiö stendur noröan viö
vatniö og er skógi vaxið. Rafmagn og
rennandi vatn. Bústaöurinn er ekki
fullb. Áhv.hagst.lán. Verö 3,9 millj.
FÉLAG FASTEIGNASALA
verið síðustu áratugi séu betri
en þær sem eru frá fyrri hluta
aldarinnar. Eitt er þó víst að
tvöfalda glerið er framför, bygg-
ingar eru þéttari og byltingin
sem fylgdi hitaveitunum gerir
loftflæði gömlu eldstæðanna
óþarft.
En fáum við þá nóg ferskt
loft inn í húsin, eru loftskiptin
nægjanleg?
Nei, það eru þau oft á tíðum
ekki og þar með hefst þróun loft-
ræstikerfa, þau verða sjálfsögð
í sumum byggingum og þá er
það starfsemin sem þar fer fram
sem ræður hvort slík kerfi eru
valin eða ekki.
Oft hafa loftræstikerfi orðið
fyrir óvæginni gagnrýni og
ósjaldan með réttu. En þar hefur
bakari oft verið hengdur fyrir
smið, menn hafa bölvað loftræ-
stikerfum í sand og ösku, talið
þau óalandi og ófeijandi, kerfi
sem aldrei gera gagn.
En orsökin er oft sú að það
vantar punktinn yfir iið, frá kerf-
unum er ekki gengið, þau aldrei
stillt endanlega og svo kemur
stóra brotalömin; enginn hugsar
um kerfin árum og áratugum
saman, enginn þjónustar þau,
enginn skiptir um síur svo eitt-
hvað sé nefnt.
Þetta er ekki séríslenskt fyrir-
brigði, þetta þekkist víða erlend-
is. í nýju sænsku tækniriti er
greint frá könnun sem gerð var
á loftræstikerfum í Svíþjóð. Sam-
kvæmt henni er talið fullvíst að
80% af loftræstikerfum þar í
landi séu vanstillt, full af skít
og aldrei þjónustuð.
Er ástæða til að ætla annað
en að ástandið sé svipað hérlend-
is?
Lausn fyrir eldri byggingar
Þar í landi eru margar eldri
byggingar án loftræstikerfa þótt
þeirra sé sannarlega þörf, bygg-
ingarnar orðnar þéttari með
betra gleri og kolaofnarnir
horfnir, miðstöðvarhitun og fjar-
hitun tekin við.
Þar er farin athyglisverð lelð
til að leysa loftþörfina, það er
ekki víst að sú einfaida lausn að
opna glugga sé nægjanleg.
í stað þess að leggja loftræsti-
kerfi í bygginguna á hefðbund-
inn hátt, með loftstokkum sem
taka mikið rými og loftblásurum
og hitaelementum, er málið leyst
með staðbundnum tækjum í
hveiju rými.
Tökum sem dæmi að um skóla
sé að ræða, þá er einfaldlega
borað gat á vegg og loftræsti-
tæki komið fyrir í hverri kennslu-
stofu, það tengt hitagjafa og
rafmagni. Þessi tæki eru algjör-
lega sjálfstæð og hafa enda teng-
ingu hvert við annað.
Það er svo önnur saga hvort
allir væru sáttir við að fá slík
tæki inni í kennslustofu eða
skrifstofu, getur kannski gengið
í Svíþjóð en eru ekki íslendingar
of fínir til að þola slíkt?
Glæsihlið
Það væri ekki amalegt að hafa
svona hlið við innganginn í stof-
una l\já sér. Ugglaust mætti
smíða hlið af þessu tagi, þar
sem aðstæður væru hentugar.
r