Morgunblaðið - 30.07.1996, Qupperneq 16
16 B ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
KIMATTSPYRNA
Alan Shearer
til Newcastle
fyrir metfé
ÞAU miklu tíðindi urðu í knatt-
spyrnuheiminum í gær að
markahrókurinn mikli hjá
Blackburn Rovers, Alan Shear-
er, skrifaði undir fimm ára
samning við enska úrvalsdeild-
arfélagið Newcastle United.
Forráðamenn Blackburn hafa
ítrekað tilkynnt kollegum sínum
hjá Manchester United að Shear-
er væri ekki til sölu og kom það
því nánast sem þruma úr heið-
skýru lofti þegar kappinn ákvað
að færa sig um set til Newc-
astle, en í þeirri borg bjó Shear-
er einmitt á sínum yngri árum.
Samningur Shearers er talinn
hljóða upp á rúman einn og
hálfan milljarð íslenskra króna
og er hann þar með dýrasti leik-
maðurinn í sögu knattspyrnunn-
ar en fyrra metið setti Ronaldo
hinn brasilíski þegar hann fór
frá PSV Eindhoven á Hollandi
til Barcelona á Spáni fyrir 1,3
milljarða króna í byrjun þessa
mánaðar.
Shearer, sem varð marka-
hæsti leikmaður Evrópukeppn-
innar á Englandi í síðasta mán-
uði, er jafnframt eini maðurinn
í sögunni til þess að skora yfir
100 mörk í ensku úrvalsdeild-
inni og sagði hann eftir félaga-
skiptin að óneitanlega hafi það
verið freistandi að ganga til liðs
við ensku meistarana, Manc-
hester United, en heimþráin
hafi sagt til sín að lokum og
hlakkaði hann nú mikið til þess
að klæðast hinni margfrægu
svarthvítu treyju Newcastle.
0B Þórir Áskelsson stökk upp í skalla-
■ I boita í eigin vítateig en rak höndina
í knöttinn og Bragi Bergmann dæmdi víta-
spyrnu á síðustu minútu fyrri hálfleiks.Mihajlo
Bibercic skoraði örugglega í hægra homið.
upphafi seinni hálfleiks, nánar til-
■ JCatekið á 49. mínútu, gaf Kári Steinn
fyrir frá vinstri, Bjami Guðjónsson skallaði
knöttinn út í teig þar sem Mihajlo Bibercic
þrumaði boltanum í netið af stuttu færi.
Oa ^jGlæsiIegasta mark Skagamanna
■ ^Jkom á 87. mínútu. Eftir þunga sókn
barst boltinn til Kára Steíns Reynissonar sem
var skammt utan við hægra vítateigshom Þórs-
ara. Kári skrúfaði boltann með bráðmyndarlegu
utanfótarskoti upp í samskeytin fjær á Þórs-
markinu.
i
Morgunblaðið/Kristján
ÓLAFUR Þórðarson, fyrirllðl Skagamanna, og Þórir Áskels-
son berjast um knöttinn á Akureyri.
Frá Páli
Rikharóssyni
á Húsavík
Vængbrotnir Þórs-
arar misstu flugið
Skagamenn eru komnir f úrslit bikarkeppninnar eftir öruggan
sigur á 2. deildar liði Þórs, 3:0. Fjórir fastamenn Þórsara voru
í leikbanni og tveir fóru á sjúkralista skömmu fyrir leik, auk
þess sem einn meiddist íleiknum. Liðið var þvívængbrotið.
Ungu strákarnir vörðust þó vel allan fyrri hálfleik en misstu síð-
an flugið. Meistaralið ÍA sýndi þá styrk sinn eftir að hafa átt í
töluverðu basli framan af.
Fyrri hálfleikur var lítt spennandi.
Skagamönnum gekk illa að
skapa sér færi því Þórsarar lokuðu
vel af- Alexander
Stefán Þór Högnason komst þó
Sœmundsson í gott færi á 16. mín-
skrifarfrá útu eftir samspil við
Akureyri Ólaf Þórðarson en
vamarmenn Þórs björguðu á elleftu
stundu. Þórsarar náðu fáeinum sókn-
um um miðjan hálfleikinn en aðgerð-
ir þeirra voru máttlitlar. Góð vörn
virtist ætla að skila þeim jafnri stöðu
í leikhléi en vítaspyrnudómur á síð-
ustu mínútu hálfleiksins breytti
miklu. Mark frá Skagamönnum í
upphafi seinni hálfleiks gerði síðan
útslagið og má segja að Bibercic
hafi afgreitt Þór með þessum tveimur
mörkum.
„Svona leikur snýst um það að fá
ekíri á sig mark. Við lágum aftar-
lega, lokuðum leiðum og svæðum og
þetta gekk vel þar til við fengum á
okkur ódýrt víti. Þá þurftum við að
breyta um leikaðferð og eftir annað
markið var á brattann að sækja. Við
nýttum ekki góð færi en strákamir
stóðu sig í heild vel,“ sagði Nói
Bjömsson, þjálfari Þórs.
Leikurinn opnaðist eftir annað
markið og bæði lið áttu færi. Jóhann-
es Harðarson skallaði yfír á 64. mín.
eftir að Atli Rúnarsson hafði hálfvar-
ið skot Olafs Þórðarsonar. Hreinn
Hringsson skaut naumlega yfír
Skagamarkið mínútu síðar og á 57.
mín. björguðu Þórsarar í horn eftir
góða rispu Alexanders og Bibercic.
Kári Steinn og Jóhannes komust síð-
an í þokkaleg færi áður en besta
færi Þórs leit dagsins ljós á 65. mín.
Hreinn fékk þá langa sendingu frá
Árna Þór og komst einn í gegn á
móti Þórði markverði. Þórður lagðist
niður og í stað þess að lyfta yfir
hann eða leika fram hjá honum skaut
Hreinn í Þórð.
„Þórsarar eru alltaf erfiðir en það
hefði verið skemmtilegra að mæta
sterkasta liði þeirra. Okkur gekk þó
illá að eiga við þá í fyrri hálfleik því
þeir vörðust vel en seinni hálfleikur
var skömminni skárri," sagði Skaga-
maðurinn Olafur Adolfsson.
Kári Steinn var bestur Skaga-
manna, Miljkovic var sterkur í vörn-
inni, Bibercic hættulegur og Jóhann-
es duglegur. Skaginn var með sitt
sterkasta lið. Haraldur Ingólfsson
kom þó inn á sem varamaður. Hjá
Þór voru Zoran Zicic, Þorsteinn
Sveinsson, Birgir Þór Karlsson og
Davíð Garðarsson í leikbanni. Bjarni
Sveinbjörnsson og Halldór Áskelsson
meiddust á æfingu og Páll Gíslason
meiddist í seinni hálfleik. Guðmund-
ur Hákonarson og félagar hans í
vörninni voru duglegir en minna fór
fyrir miðju- og sóknarmönnum.
Mikilvæg-
ur sigur
Húsvíkinga
Völsungur frá Húsavík nældi sér
í þrjú dýrmæt stig í barátt-
unni í neðri hluta 2. deildar þegar
liðið fékk botnlið
deildarinnar, Leikni,
í heimsókn á sunnu-
dag. Leikurinn fór
hægt af stað og fátt
markvert gerðist fyrstu mínúturnar
en um miðjan fyrri hálfleik kom
Ásmundur Arnarsson heimamönn-
um yfir eftir góðan undirbúning frá
Jónasi Grana.
Ekki liðu svo nema tvær mínútur
þar til Guðni Rúnar Helgason bætti
við öðru marki með skalla eftir
sendingu frá Arngrími Arnarsyni
en þrátt fyrir margar ágætar til-
raunir Völsunga til að bæta við enn
einu markinu í fyrri hálfleik tókst
það ekki.
Þriðja markið kom hins vegar
þegar skammt var liðið síðari hálf-
leiks og var þar að verki Arngrímur
Arnarson en gestirnir náðu að
minnka muninn í 3:1 um miðjan
hálfleikinn með marki Heiðars
Omarssonar.
Ekki leið svo á löngu þar til
Róbert Arnþórsson skoraði annað
mark Leiknis en Arngrímur Arnar-
son og Ásmundur Arnarsson gull-
tryggðu stóran sigur heimamanna
með mörkum á síðustu tveim mínút-
um leiksins og Völsungur er því í
kjölfarið kominn úr fallsæti 2. deild-
ar, í bili að minnsta kosti.
Leiknir er hins vegar í heldur
slæmum málum eftir ósigurinn á
sunnudag og ljóst er að strákarnir
úr Breiðholtinu verða að herða róð-
úrinn ætli þeir sér að komast hjá
falli í 3. deild.
Ólympíumeistaramir úr leik
Ekkert þeirra fjögurra liða, sem
um helgina tryggðu sér sæti í
undanúrslitum knattspyrnukeppni
Ólympíuleikanna í Atlanta hefur áð-
ur náð að krækja sér í ólympíugullið
’ eftirsótta og það er því ljóst að síðar
j í þessari viku munu verða krýndir
ólympíumeistarar í knattspymu, sem
hljóta munu þennan mikla heiður í
fyrsta sinn.
Núverandi ólympíumeistararnir
frá Spáni höfðu fullan hug á að veija
titil sinn og mættu þeir ákveðnir til
leiks gegn hinu geysisterka liði Arg-
entínumanna á laugardag. í fyrri
hálfleik léku bæði lið mjög fast,
k greinilega harðákveðin í því að gefa
ekki þumlung eftir, og allt stefndi i
skemmtilegan og spennandi síðari
hálfleik.
Það varð raunin því síðari hálfleik-
urinn hófst með miklum látum og
! eftir aðeins nokkurra sekúndna leik
;j hafði hinum sókndjarfa Heman Cre-
I spo tekist að koma Argentínumönn-
t um í 1:0. Skömmu síðar varð spánski
> varnarmaðurinn Augustin Aranzabal
svo fyrir því óláni að senda knöttinn
í eigið mark og staðan því skyndilega
orðin 2:0 þeim s-amerísku í vil.
Eftir þetta var sem allur kraftur
færi úr ólympíumeisturunum og Arg-
entínumenn gengu á lagið, Claudio
Lopez kom þeim í 3:0 um miðjan
síðari hálfleikinn og Hernan Crespo
negldi svo síðasta naglann í kistulok
Spánveijanna þegar hann bætti við
fjórða markinu úr vítaspyrnu tveim
mínútum fyrir leikslok.
Eftir frábæra frammistöðu Arg-
entínumanna eru nú margir knatt-
spyrnuunnendur farnir 'að spá þeim
sæti í úrslitaleiknum sjálfum en til
þess að svo verði munu þeir þurfa
að leggja að velli í undanúrslitunum
hið skemmtilega lið Portúgala, sem
án efa mun verða þeim argentínsku
stór biti að kyngja.
í 8-liða úrslitunum mættu Portúg-
alir Frökkum og varð sá leikur bráð-
fjörugur og spennandi allt frá upp-
hafi til enda. Portúgalir komust yfir
undir lok fyrri hálfleiks með marki
frá Capucho en ekki var langt liðið
fram í síðari hálfleikinn þegar Florian
Maurice hafði náð að jafna metin
fyrir Frakka.
Ekki tókst liðunum að bæta við
fleiri mörkum þrátt fyrir margar
ágætar tilraunir áður en dómari
leiksins flautaði til leiksloka og varð
að grípa til framlengingar þar sem
leikið yrði þar til annað lið myndi
ná að skora eða í þijátíu mínútur ella.
Ekki virtist liðunum ætla að tak-
ast að tryggja sér sigurinn í fyrri
hluta framlengingarinnar en þegar
áhorfendur og leikmenn biðu einung-
is eftir því að dómarinn myndi flauta
til leikhlés gerðist hið óvænta, Port-
úgalir fengu dæmda vítaspyrnu.
Fyrirliði Frakkanna, Jerome
Bonnissel, mótmælti vítaspyrnudóm-
inum ákaft og fékk í kjölfarið að líta
rauða spjaldið en Calado hinn portúg-
alski stillti knettinum á vítapunktinn
og bjó sig undir að taka spyrnuna.
Hann sendi knöttinn örugglega
framhjá markverði Frakkanna og
skoraði þar með fyrsta „gullmarkið"
á Ólympíuleikum og annað „gull-
mark“ sögunnar en skemmst er að
minnast sigurmarks tjóðverjans Oli-
ver Bierhoffs gegn Tékkum í úrslita-
leik Evrópukeppninnar á Englandi í
síðasta mánuði.
Draumur Brasilíumanna gefur
enn ræst
í hinum undanúrslitaleiknum
munu svo mætast heimsmeistarar
Brasilíumanna, sem stefna nú
ótrauðir að því að verða fyrsta liðið
síðan 1930 til þess að halda bæði
heims- og ólympíumeistaratitli á
sama tíma, og Nígeríumenn, sem
örugglega eiga eftir að velgja heims-
meisturunum vel undir uggum.
Brasilíumenn mættu Ghanabúum
á sunnudag og var það fyrst og
fremst stórkostlegum leik þeirra
Bebetos og Ronaldos að þakka að
heimsmeistararnir höfðu sigur. Þeir
komust yfir í leiknum eftir að Ghana-
búinn Afo Dodoo hafði sent knöttinn
glæsilega í eigið mark en aðeins örfá-
um mínútum síðar jafnaði fyrirliði
Ghana, Charles Akunnor, metin og
snemma síðari hálfleiks komust svo
Afríkubúarnir yfir með marki Felix
Aboagyes.
Tvö mörk frá Ronaldo komu þó
heimsmeisturunum yfir á ný og það
var svo Bebeto, sem gulltryggði sig-
ur Brasilíumanna með glæsilegu
marki um miðjan síðari hálfleik.
Nígeríumenn þurftu að hafa mikið
fyrir sigrinum á sprækum Mexíkóbú-
um í hinum leiknum í 8-liða úrslitun-
um á sunnudag en Austin Okocha
kom þeim fyrrnefndu yfir með lag-
legu marki í fyrri hálfleik.
Eftir hlé sóttu svo Mexfkóbúar
nær látlaust en náðu ekki að jafna
metin og í þessari viðureign sannað-
ist enn einu sinni svo rækilega hið
forna máltæki „kapp er best með
forsjá“ því þvert gegn gangi leiksins
náðu Nígeríumennnir að komast í
2:0 með marki frá Celestin Babayaro
skömmu fyrir leikslok og það verða
því þeir, sem mæta munu heims-
meisturum Brasilíumanna í undanúr-
slitum Ólympíuleikanna en Mexí-
kóbúar sitja eftir með sárt ennið.