Morgunblaðið - 07.11.1996, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.11.1996, Blaðsíða 1
KÖNNUN Aukin bjartsýni almennings/4 ||||^* ^ ; MIDBÆR DANMÖRK •Si'-"- Vf C Verslunum fækkar sö O ***' j ^ -,ýr Fiskvinnslan 1' l't ý en krám fjölgar/6 hlaöin gjöldum /8 I 1 vj krBL í' Bókbandsvél BÓKBANDSVÉL, sem bókbands- stofan Flatey og prentsmiðjan Oddi hafa deilt um eignarhald á, hefur verið tekin niður. Vélin var staðsett í húsnæði prentsmiðjunn- ar Grafíkur, sem að langmestu leyti er i eigu prentsmiðjunnar Odda. Krafa um innsetningu verð- ur tekin fyrir á mánudaginn kem- ur í framhaldi af úrskurði Héraðs- dóms. 2 Símafyrirtæki EVRÓPSK símafyrirtæki berjast um hylli fjárfesta þessa dagana í tengslum við afnám einokunar ríkisrekinna símafyrirtækja i að- ildarríkjum Evrópusambandsins sem og í þeim löndum sem eiga aðild að evrópska efnahagssvæð- inu, en samkeppni í þessum geira verður gefin fijáls 1998. 3 Sjávamtvegur ENDURMETIÐ eigið fé tíu sjáv- arútvegsfyrirtælga á hlutabréfa- markaði er þrefalt hærra en bók- fært eigið fé fyrirtækjanna. Eigið fé hækkar úr 13 milljörðum króna í 39 milljarða króna við endurmat- ið og er þá meðtalið áætlað verð- mæti veiðiheimilda að upphæð 28 milljarðar króna. 5 SÖLUGENGI DOLLARS Verðlag sjávarafurða 1990-1996 Vísitala 125 - Áætlað verðlag sjávarafurða i SDR. Vísitala, 1993 = 100. 1990 1991 1992 1993 1994 . 1995 104,8 2200 - dotlarar/tonn, 2000 - Alverð 1990-1996 Verð á áli á skyndimarkaði --------- í London (LME)" Dollarar kshí i 1332 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 Alþjóðleg miðlun ehf., samstarfsaðili FIB, eykur umsvif sín í tryggingum Erlend sam- keppni íheim- ilistryggingum Stefnt að því að bjóða lægri iðgjöld en gerist og gengur ALÞJÓÐLEG miðlun ehf., sem ann- ast rekstur FÍB-tryggingar í sam- starfi við Félag íslenskra bifreiða- eigenda, hefur í undirbúningi að bjóða heimilis- og húseigendatrygg- ingar í tengslum við bílatrygging- arnar. Er stefnt að því að þær verði töluvert ódýrari en gengur og ger- ist hjá íslensku vátryggingafélög- unum. Fyrirtækið hefur haft milligöngu um bíiatryggingar félagsmanna FÍB hjá Ibex policies hjá Lloyd’s í Bretlandi, en þar hefur eitt af stærstu og virtustu fyrirtækjum í vátryggingamiðlun á Lloyd’s-mark- aðnum, Jardines, jafnframt komið að málinu. Samstarf við önnur samtök neytenda Alþjóðleg miðlun hyggst nú efna til samstarfs við önnur stór samtök neytenda, hliðstæð FÍB, um heimil- is- og húseigandatryggingar. Mun annar breskur vátryggjandi á Lloyd’s-markaðnum væntanlega taka að sér tryggingarnar. Halldór Sigurðsson, vátrygging- amiðlari hjá Alþjóðlegri miðlun, sagði í samtali við Morgunblaðið að þetta mál væri í vinnsiu fyrir ákveðna umbjóðendur sem ekki væri hægt að nafngreina á þessu stigi. Hægt yrði að bjóða þessar tryggingar innan örfárra vikna. „Þetta verður unnið á svipaðan hátt og gert hefur verið með bíl- ana, en við stefnum að því að bjóða bíla- og heimilistryggingarnar sam- an,“ sagði Halldór. „Takmarkið er að heimilistryggingarnar verði ódýrari en gengur og gerist." Erum ennþá langódýrastir Um útkomuna hjá FÍB-trygg- ingu, sem hóf starfsemi 18. sept- ember sl., sagði Halldór að ánægja ríkti með viðtökurnar hingað til og þær hafi farið fram úr upphaflegum áætlunum. Hann kvaðst þó ekki geta skýrt frá því hversu margir bílar væru komnir í tryggingu hjá fýrirtækinu. „Það kom mikið rót á þennan markað aftur eftir að VÍS keypti Skandia, en þar voru um 12 þúsund bílar tryggðir. Ég veit ekki hversu margir vilja koma hingað, en sá stofn verður allur laus í 30 daga eftir samruna Skandia við VÍS sem verður væntanlega um áramótin. Það hefur einnig komið í ljós að við erum ennþá langódýrastir í þessum tryggingum,“ sagði Halldór Sig- urðsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.