Morgunblaðið - 26.01.1997, Side 8

Morgunblaðið - 26.01.1997, Side 8
8 SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR !lk - II I KJARASAMNING-,. AROGVEIÐI- ,1,1 ll LEYFAGJALD l|j| Um fátt hefur verið meira rætt manna á meðal und- anfarnar vikur og mánuði en þá gífurlegu eignatílfærelu, sem er að verða í landinu 1 skjóli kvóta- kerfisins svonefnda. liirni Jón og séra Jón. Morgunblaðið/Ingvar Skátaskáli eyðilagðist í eldsvoða SKÁTASKÁLINN Vífilsbúð í Heiðmörk, sem er í eigu skátafé- lagsins Vífils í Garðabæ, gjör- eyðilagðist í eldsvoða í fyrra- kvöld eftir að eldur kviknaði út frá gaskút. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði varð skálinn, sem er skammt austan við golfvöll Oddfellowa í Urriðavatnsdölum, strax alelda eftir að eldurinn varð laus, en hópur skáta sem ætlaði að dveija í skálanum um helgina ásamt foringja sinum slapp án nokkurra meiðsla. Til- kynning um eldsvoðann barst lögreglunni í Hafnarfirði kl. 22.25 í fyrrakvöld og þegar slökkviliðið úr Hafnarfirði kom á vettvang varð ekki við neitt ráðið, en slökkvistarf stóð yfir fram yfir miðnætti. Nefnd fjallar um veiðar á ríkisjörðum Á VEGUM umhverfísráðuneytis er verið að kanna hvort véita eigi skotveiðimönnum aðgang að ríkis- jörðum sem ekki eru í ábúð en ríkið veitir að jafnaði ekki veiði- mönnum leyfi til að veiða á ríkis- jörðum. Guðmundur Bjarnason um- hverfísráðherra segir að málið tengist langvinnri deilu skotveiði- manna og bænda og umræðu um aðgang þéttbýlisbúans að landinu. „Ríkið á mikinn fjölda af jörð- um, sem að vísu eru flestar í ábúð eða leigðar til einhverra nytja. En það hafa komið eindregnar óskir frá ýmsum aðilum um að ná sam- komulagi um aðgengi að þessum lendum og mér fannst sjálfsagt að verða við því að kanna þetta mál,“ sagði Guðmundur. Verið er að skipa nefnd til að fjalla um málið og verður Ólafur Om Haraldsson alþingismaður væntanlega þar í forsvari. Guð- mundur sagði að í nefndarstarfínu yrðu leiddir saman fulltrúar skot- veiðimanna, þeirra sem fara með eignamál fyrir hönd ráðuneytisins, bænda og annarra sem nytja ríkis- jarðir sem ekki eru í ábúð, svo sem skógræktar- og landgræðslu- manna. -----♦ ♦ ♦----- Hvolsvöllur Bíll endaði í skurði BÍLL fór út af veginum við Mjóa- sund, rétt vestan við Landvega- mótin í Holta- og Landsveit, um sjöleytið í fyrrakvöld, og endaði á réttum kili niðri í skurði. Ökumað- urinn, sem var einn í bflnum, slapp ómeiddur en bíllinn er töluvert skemmdur. Samkvæmt lögregl- unni á Hvolsvelli missti ökumaður- inn stjórn á bílnum í krapinu með fyrrgreindum afleiðingum. Þakdúkar og vatnsvarnarlög Þakdúkar og vatnsvarnarlög á: ► þök ► þaksvalir ► steyptar rennur ► ný og gömul hús - unnið við öll veðurskilyrði FAGTUN Brautarholti 8 • síml 562 1370 • fax 562 1365 Islensk heimildamyndagerð Vegið að heimilda- og stuttmyndagerð Þór Elís Pálsson ÁMSKEIÐ í fjár- mögnun heimilda- myndagerðar var haldið í vikunni en að sögn Þórs Elísar Pálssonar, sem er fulltrúi íslands í samnor- rænu heimilda- og stutt- myndasamtökunum Film Kontakt Nord, eru miklir möguleikar fyrir íslendinga á erlendum heimilda- myndamarkaði. Á nám- skeiðinu er kennt hvernig á að skilgreina markhóp og hvemig sé best að standa að kynningu á verkefni en vanalega fá kvikmynda- gerðarmenn aðeins fáar mínútur til að kynna verk- efni sitt fyrir væntanlegum kaupanda. Að námskeiðinu loknu var haldin fjármögn- unarmessa þar sem íslensk- ir kvikmyndagerðarmenn kynntu verkefni sín á sviði heimilda- myndagerðar fyrir erlendum fjárfestum sem hingað komu frá norrænum sjónvarpsstöðvum, ZDF í Þýskalandi, Ontario TV í Kanada og Discovery Channel. - Hefur verið erfitt að fá ís- lenskt fjármagn til heimilda- myndagerðar? „Það hefur gengið mjög erfið- lega að fjármagna þessa tegund mynda og sjáum við það kannski best á því að hér á námskeiðinu em um fjörutíu kvikmyndagerð- armenn sem eru að læra hvernig á að bera sig að við að ná í fjár- magn til heimildamyndagerðar. Þetta fólk er með mikið af afar áhug;averðum verkefnum en hef- ur hins vegar gengið illa að fá fé til þeirra hér á landi. Á mið- vikudaginn, daginn áður en við hófum þetta námskeið, fengum við svo þær fréttir að stjórn Kvik- myndasjóðs Íslands hefði ákveðið við úthlutun úr sjóðnum að veita enga styrki til framleiðslu á heimildamyndum. Um það bil fimmtíu umsóknir um styrk til heimildamynda bárust sjóðnum og engin þeirra hlaut náð fyrir augum stjórnarinnar sem hlýtur að teljast undarlegt því það er útilokað að ekkert þessara fimm- tíu verkefna hafi verið þess verð að fá styrk; sum þessara verk- efna voru meira að segja komin með fjármagn að utan til fram- leiðslunar. Heimildamyndir hafa alltaf fengið styrk úr sjóðnum fram til þessa og stuttmyndir einnig sem ekki fengu styrk held- ur að þessu sinni. Með þessu er vegið að íslenskri heimilda- og stuttmyndagerð. Þessi afstaða sjóðsins er afar skrýtin því að með heimilda- myndagerðinni erum við að byggja upp iðnað og kvikmyndalist sem er gríðarstór markaður fyrir. Og þessi markað- ur er sífellt að opnast meira þar eð sjón- varpsstöðvar eru farnar að vinna meira saman að framleiðslu heimildamynda. Það eru haldnar svokállaðar heimildamyndamess- ur víða um Evrópu og Bandarík- in þar sem fjárfestar eru beinlín- is að leita að myndum til að kaupa en þetta námskeið er ein- mitt ætlað til að kenna íslenskum kvikmyndagerðarmönnum að selja verkin sín á slíkum mess- um.“ - En eiga íslenskar heimilda- myndir möguleika á erlendum mörkuðum? „Já, tvímælalaust. Við höfum gert margar góðar heimilda- myndir. Á heimildamyndahátíð í Frakklandi fyrir skömmu var Páll Steingrímsson til að mynda ►Þór Elís Pálsson er fæddur 23. september 1952 í Reykja- vík. Hann tók stúdentspróf í Kennaraskólanum og er með myndlistarmenntun frá Mynd- lista- og handíðaskóla íslands. Framhaldsnám stundaði hann í Jan Van Eyck skóianum í Maastricht í Hollandi. Hann starfaði hjá Sjónvarpinu í sjö ár en er nú sjálfstætt starfandi kvikmyndagerðarmaður. Hann hefur unnið við auglýs- ingagerð og gert nokkrar heimildamyndir, einkum um listamenn. Þór Elís er kvæntur Jóhönnu Bernharðsdóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau tvo syni. valinn einn af tíu fremstu kvik- myndagerðarmönnum í heimin- um í dag sem fást við náttúrulífs- myndir. Þorfínnur Guðnason er að gera mynd um stærstu mús í heimi sem er íslenska hagamús- in en sú mynd hefur verið seld um víða veröld fyrirfram. Þegar hann hefur lokið þeirri mynd mun hann gera aðra um íslenska ref- inn en hann hefur þegar fjár- magnað hana að fullu, að segja má, með erlendu fjármagni. Báð- ar þessar myndir gerir hann í samvinnu við National Geography. Þessir tveir standa sennilega fremst af þeim sem gera heimildamyndir hér á landi í dag en marga fleiri mætti nefna.“ - Það verður svo haldin stutt- myndahátíð í næstu viku í Há- skólabíói? „Þetta er örhátíð því hún verð- ur aðeins tvo daga, þriðjudaginn og fimmtudaginn kl. 19. Á hátíð- inni verða sýndar heimildamyndir með listrænu ívafi, ef svo má kalla. Þessum myndum hefur lítið verið sinnt hér á landi og heldur ekki bíóhús- in. Þetta eru 35 mín- útna myndir með bestu hljóðgæð- um og væru því vel hæfar til sýningar í bíóum. Við munum meðal annars sýna danska verð- launamynd sem heitir Dauða- syndirnar sjö en í henni játar fólk syndir sínar fyrir framan myndavél. Big Boys don’t Cry heitir svo norsk mynd sem farið hefur sigurför um Norðurlöndin." - Hafa verið gerðar myndir af þessu tagi hér á landi? „Það er alltaf að aukast en eins og fyrr er erfítt að finna fjármagn til þess konar verkefna. En ég býst við að námskeið eins og það sem við héldum um helg- ina eigi eftir að skila sér í meiri grósku á sviði heimildamynda- gerðar hér á landi.“ lönaður með gríðarstóran markað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.