Morgunblaðið - 26.01.1997, Page 10

Morgunblaðið - 26.01.1997, Page 10
10 SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ Davíð Oddsson forsætisráðherra segir möguleika á mikilli kaupmáttaraukningu launafólks ef samið verður af skynsemi á vinnumarkaði ÓTTAST AÐ MENN SÉU AÐ TALA SIG í VERKFÖLL Morgunblaðið/Kristinn Mikil kaupmáttaraukning er möguleg „ÞAÐ er því sama á hvaða mælikvarða er litið, möguleikarnir á þessu ári og hinu næsta eru gífurlegir. Ef við höldum sæmilega á spilunum gætum við séð fyrir okkur átta til tíu prósenta kaupmáttaraukningu á næstu þremur árum og jafnvel meiri, ef skynsamlega er haldið á mál- um. Það myndi þýða að við værum að auka kaupmáttinn á árabilinu frá 1994 til aldamóta um 20%,“ segir Davíð Oddsson forsætisráð- herra. Davíð Oddsson for- sætisráðherra segir möguleika á að auka kaupmátt verulega hér á landi á næstu árum, ef vel er haldið á spilunum. Skyn- samlegir kjarasamn- ingar geti leitt til 8-10% kaupmáttar- aukningar á næstu þremur árum og lækkunar á vöxtum og sköttum. Davíð segist í viðtali við Ómar Friðríksson hins vegar óttast að aðilar á vinnumarkaði ætli að skemma þenn- an feril af einhverri skammsýni og tala sig út í verkföll. NÆR allir kjarasamningar í landinu losnuðu um seinustu áramót, blikur eru á lofti og margir spá verkfallsátökum á næstu mánuðum. Davíð Oddsson forsætisráðherra segir gríðarlega mikið í húfi að skynsamlegir kjarasamningar verði gerðir á vinnumarkaði. Hann segir að ef verkföll skelli á séu þau svik við fólkið í landinu, sem hafi að undanfömu búið við betri tíð í efna- hagsmálum en í mörg ár þar á undan. „Forystumenn launþega áttu dijúgan þátt í því að auðvelda mönnum að komast upp úr krepp- unni. Ef aðilar á vinnumarkaði ætla með einhverri skammsýni að skemma þennan feril, lít ég á það sem svik við fólkið í landinu. Ég er ekki að skella skuldinni á annan hvorn aðilann en tel að báðir verði að sýna hvað í þeim býr og hafa vitsmuni til að hafa raunverulega velferð fólksins og fyrirtækjanna fyrir augum í þessum samningum. Ég held að það sé ekki raunveruleg- ur vilji til verkfalla meðal fólksins í landinu," segir Davíð Oddsson. Getur orðið fengsælt og happadrjúgt ár „Ef skoðaðar em allar spár eru flest- ir, sem líta á staðreyndir mála, þeirr- ar skoðunar að þetta nýbyijaða ár geti verið okkur fengsælt og happa- dijúgt, fjórða árið í röð. Ef þú spyrð síðan þessa sömu aðila hversu ör- uggir þeir séu í sínum spám, eru svörin þau, að hafa verði alla fyrir- vara á vegna kjarasamninga. Við þessar aðstæður ætti í rauninni að vera fagnaðarefni að kjarasamning- ar eru lausir, vegna þess að þá sé tækifæri til að ákvarða kaupmáttar- aukningu fyrir fólkið í landinu til tveggja eða þriggja ára og halda áfram þessari fjögurra ára þróun í sömu átt. En nú er óttast að kjara- samningamir geti leitt til þess, að kaupmáttaraukning verði engin og menn lendi á sömu villigötunum og þeir voru á í mörg ár. Þetta er mjög sérstök staða sem menn þurfa að koma sér út úr,“ segir Davíð. 1,5% meiri hagvöxtur en í öllum viðmiðunarríkjum Forsætisráðherra bendir á að samfelldur hagvöxtur hafi verið hér á landi undanfarin þijú ár og ef spár fyrir þetta ár gangi eftir sé meðaltal hagvaxtar á Islandi á tíma- bilinu 1994 til ársloka 1997 3,9%. „Á þessu fjögurra ára tímabili er meðalhagvöxtur í Evrópusamband- inu 2,4%, í Bandaríkjunum 2,5% og í OECD-n'kjunum samtals 2,4%. A hveiju ári yfir þetta fjögurra ára tímabil höfum við búið við hagvöxt sem er 1,5% hærri en í öllum þessum viðmiðunarríkjum. Þetta er þvi afar merkilegt tímabil," segir Davíð. Hann segir einnig að á sama tímabili sé verðbólga á íslandi 2,0% að meðaltali en 2,5% í ESB-Iöndum, 2,2% í Bandaríkjunum og 1,9% að meðaltali í OECD-löndunum sam- anlagt. „Þarna erum við að tala um samfellt fjögurra ára skeið. Meðal- tal kaupmáttaraukningar er 3,1% á íslandi frá 1994 og út þetta ár ef spár ganga eftir. Kaupmáttur mun því aukast á fjórum árum um 12,4%. Meðaltalskaupmáttaraukn- ing í Evrópusambandinu er 2,6% á sama tímabili og í Bandaríkjunum 0,7%. Það væri hrikalegt ef við misstum þennan árangur niður. Meðalatvinnuleysi á tímabilinu 1994 og til loka yfirstandandi árs er 4,5% hjá okkur, en 11,4% í ESB- löndunum, 5,6% í Bandaríkjunum og 7,9% í OECD-ríkjunum að með- altali. Á árinu 1997 eru tölurnar allar hagstæðari hjá okkur en í viðmiðunarlöndunum. Ef við höld- um rétt á spilunum í kjarasamninjg- um verður atvinnuleysi 3,7% á Is- landi á þessu ári en því er spáð að það verði 11,3% í ESB-löndunum, 5,4% í Bandaríkjunum og 7,7% að meðaltali i OECD-ríkjunum. Við höfum óskaplega mikla möguleika og það er mikið sem kann að tap- ast ef við höldum ekki rétt á mál- um,“ segir Davíð. í máli hans kemur einnig fram að afkoma hins opinbera (ríkis og sveitarfélaga) getur orðið betri á íslandi á þessu ári en spáð er að meðaltali í viðmiðunarlöndunum. Gert sé ráð fyrir að halli hins opin- bera verði neikvæður um 0,6% á árinu 1997 hér á landi, en neikvæð- ur um 3,3% meðal ESB-rikja, 1,8% í Bandaríkjunum og 2,5% í OECD- löndum að meðaltali. „Ef við tökum heildarskuldir hins opinbera á þessu ári verða þær 53,7% af landsfram- leiðslu á Islandi, 78,2% í Evrópu- sambandinu, 64% í Bandaríkjunum og 74,8% að samanlögðu í OECD- ríkjunum. Það er því sama á hvaða mælikvarða er litið, möguleikarnir á þessu ári og hinu næsta eru gífur- legir. Ef við höldum sæmilega á spilunum gætum við séð fyrir okkur átta til tíu prósenta kaupmáttar- aukningu á næstu þremur árum og jafnvel meiri, ef skynsamlega er haldið á málum. Það myndi þýða að við værum að auka kaupmáttinn á árabilinu frá 1994 til aldamóta um 20%. Ég hygg að það sé ekkert skeið í íslandssögunni sem sýni aðra eins kaupmáttaraukningu. Nú óttast margir að við munum eyðileggja þennan árangur með handafli. Ég tel að launþegar í land- inu hljóti að gera þá kröfu til við- semjendanna, beggja vegna borðs- ins, að þeir fari ekki að ganga frá samkomulagi sem felur í sér að þessir möguleikar fólksins verði eyðilagðir. Það kemur ekki til álita. Eg er þeirrar skoðunar að menn vilji ekki fara í þetta gamla far, sem einstaka aðilar predika. Ábyrgð þeirra sem sitja við kjaraborðið er því mjög mikil,“ segir forsætisráð- herra. Góðærinu skílað hratt til fólksins -Meginkrafa launþegahreyfing- arinnar er að góðærinu verði skilað til launafólks. Er ekki skiljanlegt að farið sé fram á umtalsverðar kauphækkanir í Ijósi þessarar stöðu? „Þegar kaupmáttur hefur aukist um rúm 12% á fjórum árum, er verið að skila góðærinu til Iauna- fólks, og það hratt. Auðvitað gæt- um við ákveðið að kaupið eigi að hækka um 30%, 50% eða 100%, en það felur ekki í sér neina kaupmátt- araukningu. Það er bara della. Skuldir heimilanna hafa verið að aukast og það er út af fyrir sig skiljanlegt, vegna þess að mögu- leikar fólks á lánsfé hafa verið að aukast og eignamyndun fólks hefur einnig aukist, þótt það hafi að vísu ekki orðið nægilega hratt. Fyrir- tækin notuðu ábata, sem þau hafa haft, til að lækka sínar skuldir. Nú verðum við að auka kaupmáttinn næstu þijú eða fjögur árin til þess að gera fólki kleift að grynnka á sínum skuldum. Þær verða ekki lækkaðar með göldrum, heldur með því einu að auka kaupmáttinn. Skuldir verða síst af öllu lækkaðar með því að hækka kauptölurnar, ef ekki er innstæða fyrir þeim, því þá ijúka þær upp með aukinni verð- bólgu,“ svarar Davíð. - Hvað er mikið svigrúm til kauphækkana að þínu mati? „Ég ætla ekki að fara að diktera kauphækkunartöluna en við höfum metið það svo, að hægt verði að ná að minnsta kosti 3% kaupmáttar- aukningu á þessu ári. Þeir sem vilja fara hærra en það geta aðeins gert það með því að auka verðbólguna sem því nemur, og verðbólga og kaupmáttaraukning fara illa sam- an.“ Stjórnvöld stefna aldrei í átök - Það er augljóst að mikið ber í milli í samningaviðræðunum. For- ystumenn ASI saka stjórnvöld og vinnuveitendur um að bera ábyrgð á hvernig komið er og það stefni að óbreyttu í átök. Hvernig metur þú stöðuna? „Stjórnvöld stefna aldrei í átök á vinnumarkaði. Átök skila engu fyrir þjóðarbúið. Ef við getum auk- ið kaupmáttinn um 3,2% á þessu ári, þá vitum við að það byggist á því að atvinnulífið gangi eðlilega. Ef hér verða verkföll er það ein- göngu reikningsdæmi hversu mikið kaupmátturinn minnkar við það. Verkföll skapa ekki nýja peninga, framleiðslan stöðvast, þjóðin hægir á sér og ber minna úr býtum. Verk- föll geta búið til kauptölur sem ekki er innistæða fyrir en ekki pen- inga,“ svarar Davíð. - Eru samt ekki yfirgnæfandi líkur á að það muni koma til stað- bundinna eða víðtækra átaka á vinnumarkaði? „Ég hef áhyggjur af því að menn séu að tala sig inn í það far. En þá eru þeir að bregðast sinu fólki og hagsmunum beggja megin borðsins ef haldið verður þannig á málum að menn flækjast út í verk- föll, sem engum verða til gagns. Ég tel að þegar aðilar fara yfir málin og sjá þá möguleika sem við höfum, þá átti þeir sig á að ábyrgð þeirra gagnvart fólkinu er gríðar- leg. Fólkið mun ekki kunna þeim þakkir fyrir að eyðileggja það sem áunnist hefur. Fólk er að sjá skuld- ir sínar lækka vegna þess að verð- bólgan er lág. Það veit hvar það á að versla veg-na þess að það þekkir orðið verðlagið. Ef þetta verður allt saman eyðilagt eru það hinir lægst- launuðu sem fara verst út úr því.“ -Hvaða leiðir sérðu út úr núver- andi stöðu kjaramála sem sátt gæti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.