Morgunblaðið - 26.01.1997, Side 16

Morgunblaðið - 26.01.1997, Side 16
16 SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1997 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Nýjar bækur • LEITIN að tilgangi lífs- ins er eftir austurríska geð- lækninn Viktor E. Frankl, sem er upphafsmaður þeirrar kenningar í sálarfræði sem nefnd er lógóþerapía. Þar er lögð áhersla á að í lífi sér- hvers manns sé einstakur til- gangur sem hver og einn verði að finna fyrir sjálfan sig. Þessi tilgangur gefi lífinu gildi. Frankl sat á unga aldri árum saman í fangabúðum nasista og notar reynslu sína þaðan sem undirstöðu kenn- inga sinna. Frásögnin úr fangabúðunum hefur fyrst og fremst þann tilgang að færa sönnur á kenningarnar en ekki að rekja hörmungar fangabúðarlífsins. Gordon W. Allport pró- fessor í sálarfræði skrifar formála að bókinni og segir m.a.: „Ég mæli af heilum hug með þessari bók því að hún er dramatísk frásagnar- perla sem fjallar um mesta vanda mannsins. Hún hefur bókmenntalegt og heim- spekilegt gildi og er nauð- synlegur inngangur að merkustu sálfræðistefnu nútímans.“ Páll Skúlason prófessor í heimspeki skrifar formála að íslensku útgáfunni. Útgefandi eru Háskólaút- gáfan og Siðfræðistofnun Háskóla íslands. Hólmfríður K. Gunnarsdóttir íslenskaði. Leitin að tilangi lífsins er 138 blaðsíður að stærð og kostarkr. 1.990 ogfæstí öllum helstu bókaverslun- um. • TVEGGJA heima sýn. Saga Ólafs Þórhallssonar og þjóðsögurnar er eftir Maríu Önnu Þorsteinsdótt- ur. Þetta er 53. bindi í ritröð Bókmenntafræðistofnun- ar Studia Islandica en rit- stjóri er nú Vésteinn Óla- son prófessor í íslensku við Háskóla íslands. í bókinni fjallar María Anna Þor- steinsdóttir um Sögu Ólafs Þórhallssonar eftir Eirík Laxdal, sem hefur verið tal- in fyrsta íslenska skáldsag- an. Sagan er þroskasaga manns sem ferðast milli tveggja heima, álfheima og mannheima. Höfundur klæðir þar hugmyndir upp- lýsingaraldar í búning þekktra þjóðsagna sem hann fléttar saman og lagar að skáldsöguforminu. „í ná- kvæmri greiningu á verkinu sýnir höfundur að þar er teflt skynsemishyggju gegn stöðnuðum samskiptum samtímans og róttækri trú á gildi tilfinninganna í mannlegum samskiptum gegn valdboðum, hræsni og hviklyndi. Hún færir marg- vísleg rök að því að ut- angarðsmaðurinn Eiríkur Laxdal hafi í senn verið frumlegur og snjall rithöf-' undur og langt á undan samtíð sinni í hugmyndum um sálarlíf einstaklingsins og samfélagsleg skilyrði ástarinnar," segir í kynn- ingu. Bókmenntafræðistofn un Háskóla íslands gefur úr í samvinnu við Háskólaútgáf- una. Tveggja heima sýn, saga Ólafs Þórhallssonar og þjóð- sögurnar er 288 bls. aðstærð með ágripi á ensku. Verð er kr. 2.100. Að læra um ást- ina á spænsku BREFBERINN í ít- ölsku kvikmyndinni „II Postino" byrjaði að yrkja ljóð og elska konu undir leiðsögn chileska ljóðskáldsins Pablo Neruda. Þó Pablo Neruda, sem fæddist 1904, hafi látist 1973 virð- ast fleiri en bréfber- inn sækja námskeið hjá honum, því þar sem spænsku- kennsia fer fram er hann markvisst not- aður. Guðrún H. Tulinius „Það er auðvelt að nota Pablo Neruda sem beitu á mennta- skólakrakka sem eru að læra spænsku því ljóðin í ljóðabók hans „Tuttugu Ijóð um ást og einn örvæntingarsöngur" geyma mátt hins forboðna þó þau séu langt frá því að vera það sem við köllum ósiðsöm,“ segir Guðrún H. Tulinius, menntaskólakennari og annar þýðandi ljóðabókarinnar, en hinn þýðandi hennar er Karl Guðmundsson. „ Ljóðin eru einlæg og op- inská. Þau eru einföld og skiljanleg en það kemur krökk- um á óvart því þeir eru oft bún- ir að skipa Ijóðum efst á óvin- sældalistann. Krafturinn sem býr í efni ljóðanna ratar beina leið inní tilfinningalíf nemend- anna. Pablo Neruda var á sama aldri og íslenskir menntaskóla- krakkar þegar hann orti ljóðin í þessa bók og þegar nemendur mínir uppgötva það skilja þeir betur afhverju þeir eiga jafn auðvelt með að spegla sig í ljóð- unum, en sjá um leið sig sjálf í nýju ljósi: „Nú, fyrst hann gat þetta á mínum aldri hlýt ég að geta.“ Og þá á jafnvel nemand- inn það til að prófa að fara að yrkja. Bókin sameinar því margt. Hún kennir manni spænsku. Hún opnar tilfinningalíf manns því svo einlægar og ótrúlegar rit- gerðir fæ ég frá nemendum sem skrifa um þessa bók. Hún gerir ástina merkilega. Hún gerir skaphitann og örvæntinguna eft- irsóknaverð. Það má segja að hún hvelji mann til dáða á alla kanta og gefi manni leyfi til að kynnast sjálfum sér upp á nýtt.“ „Ég var einn sem undirgöng. Burtfrá mér flúðu fuglar“ Þessi ljóðabók Pablos Neruda kom fyrst út á spænsku árið 1924 og hefur ekki gert annað síð- an en sigra lesendur í hvert sinn og hún er opnuð. Islenska útgáfa henn- ar kom út rétt fyrir síðustu jól og er að mörgu leyti sérstök. M.a. vegna þess að ljóðin koma fyrir í þremur útgáfum. Fyrir neðan hvert ljóð á spænsku birt- ist bein þýðing þess og á síð- unni við hliðina bragþýðing þess. „Fyrir tveimur árum var Karl Guðmundsson nemandi hjá mér í efstu áföngunum í spænsku," svarar Guðrún þeg- ar hún er spurð um tilurð verksins. „Hann var að þýða þessi ljóð og sýndi mér tilraun- ir sínar. Afþví hann talar ekki spænsku átti hann í dálitlum erfiðleikum. Ég stakk upp á því við hann hvort við ættum ekki að gera þetta saman, ég með spænskuþekkinguna og hann með skáldskapargáfuna. Við urðum hinsvegar ekki ánægð með afrakstur samvinnu okkar. Ég vildi halda í hvers- dagslegt málfar ljóðanna og einfaldleika þeirra en Karli var umhugað um formrænu hlið- arnar. Karl er reyndur þýðandi og færni hans óumdeilanleg. Úr varð að við tókum beinar þýðingar mínar á ljóðunum og skáldskaparþýðingar hans saman hlið við hlið inní verkið. Þá var orðin til góð kennslubók sem nýtist nemendum í mennta- skólum og háskólum, hvort sem þeir læra spænsku eða suður- amerískar bókmenntir. Því við erum náttúrulega líka að koma á framfæri einum af perlum bókmenntanna.“ Ástarljóð Það er dögun villtra vinda í hásumars hjarta. Sem hvítir kveðjuklútar velta skýin um loftin, á ferð sinni veifar þeim vindurinn sterkum höndum. Vindsins hundraðfalt hjarta slær og slær yfir ástarþögn okkar. Dunandi innan um eikur, marghljóma, guðlegt svo sem sú tunga er syngur stríðsins stæltu söngva. Vindur sem hremmir ránshendi laufin þurru og titrandi örvar fuglanna sveigir af brautu. Vindur sem hana fellir með brimlausri báru, þyngdarlausu efni, og lútandi logum. Þá molna og sökkva öll kossakynstrin hennar, er sótt var að í borghliði sumarvindsins. Þetta er hinn óveðursþrungni morgunn / í hjarta sumarsins. // Sem hvítir kveðjuklútar ferðast skýin, / vindurinn veifar þeim með sínum ferðavönu hönd- um. // Óteljandi hjarta vindsins / slær yfir ástfang- inni þögn okkar. // Suðandi á milli trjáa, marghljóma og guðlegt, / eins og tunga full af stríði og söngv- um. // Vindur sem hrifsar með sér fallin laufin / og hrekur af braut tifandi örvar fuglanna. // Vindur sem fellir hana með froðulausri báru / og þyngd- arlausu efni, og lútandi logum. // Kossasafn hennar brotnar og sekkur / fallið í valinn í dyrum sumar- vindsins. Úr Tuttugu Ijóðum um ást eftir Pablo Neruda. Bragþýðingin er eftrir Kari Guðmundsson en bein þýðing eftir Guðrúnu H. Tulinius. „Lotinn er Iíður að kveldi, legg ég döpur net mín í útsæ augna þinna" Guðrún hefur nú þegar dá- litla reynslu af því að kenna ljóðin í þessari nýju útgáfu. „Ég kenni ljóðin í ólíkum hópum. Annar hópurinn lærir spænsku og hinn lærir suður- amerískar bókmenntir. Spænskunemandinn byijar að lesa ljóðið á spænsku og kíkir í beinu þýðinguna beint fyrir neðan það. Þannig stoppar lest- urinn ekki of lengi við það að þurfa að fletta í orðabók. Hann kemst strax inní ljóðið og getur þá snúið sér að bragþýðingunni ef hann vill. Bókmenntanem- andinn byrjar væntanlega á bragþýðingunni, fer aðra leið en hinn, og les Jjóð sem honum kannski líkar, verður forvitinn um, kíkir í beinu þýðinguna áður en hann snýr sér að spænska textanum; og er þar- með óvart að breytast í | spænskunemanda. Þannig tekst manni kannski að veiða eitt stykki spænsku- nemanda, og kannski eitt stykki skáld, eða þýðanda, því við Karl viljum taka það fram að þýðing- ar okkar á Ijóðum Pablos Neruda eru tillögur okkar og nýjar tillögur að þýðingum á Ijóðum hans verða alltaf vel þegnar." Baráttan við aukakílóin Brúðu- leikhús í Norræna húsinu BÆKUR Næringarfræðl ÉGBORÐA - EN GRENNIST SAMT! eftir Michel Montignac. Þýðandi: Guðrún Finnbogadóttir. Prentun: Prentsmiðjan Oddi hf. Útg. Fróði hf. 1996. MICHEL Montignac er franskur næringarfræðingur sem í æsku var of feitlaginn. Hann hefur sett fram kenningar um mataræði og skrifað bækur, sem farið hafa sannkallaða sigurför um heiminn eftir því sem segir á bókarkápu. Þáð að bækur hafí orðið met- sölubækur úti í hinum stóra heimi er reyndar ekki trygging fyrir að í þær sé varið, eins og menn vita, en við lestur þessarar bókar virtist mér að í þetta sinn hefðu vinsæld- ir verið verðskuldaðar. Allir þeir, sem barizt hafa við aukakílóin, og þeir eru fjölmargir, vita, hve erfitt getur verið að kom- ast í kjörþyngd. Endalausir megr- unarkúrar, áramótaheiti um nýtt og betra líf, strengja þess heit að fara í leikfimi, gönguferðir, sund, fitubrennslu, líkamsrækt eða hvað nú verður fyrir valinu. Allt kemur þó fyrir ekki, keppirnir gefa sig ekki og holdið er veikt. Fyrirheitin fara fyrir lítið. Ætli það séu ekki æði margir sem finnst lýsingin eiga vel við sig? Michel Montignac tekur öðru- vísu á málinu en margir aðrir og það afar skynsamlega sýnist mér. Hann setur sér það markmið með bók sinni að kenna fólki að borða. Lífsstíll og breytt mataræði eru leiðarljós hans og hann leitast við að sameina næringarfræði og matargerðarlist. Hann bendir á að maður fitni ekki af því að borða mat, heldur af því að borða rangan mat. Þess vegna þarf að læra að borða hollari mat og ná jafnvægi hvað líkamsþyngd varðar, án þess að þurfa að neita sér um góðan mat. Hann hafnar hitaeiningaað- ferðinni, gagnrýnir óhóflega vinnslu nokkurra matartegunda, vill auka til muna trefjar í fæðu, og gera greinarmun á slæmum kolvetnum og góðum kolvetnum og sömuleiðis góðum fituefnum og slæmum. Hann vekur athygli á fæðutegundum sem ekki eiga að vera í sömu máltíð, fari ekki saman. Markmiðið er að grennast og fitna aldrei aftur. Aðferðin skipt- ist í tvo hluta, stig I, megrunina sjálfa og að henni lokinni stig II, að viðhalda jafnvægi í þyngd. Rétt er að gera kröfur sem eru raunhæfar en þó metnaðarfullar. Miklu máli skiptir að sleppa ekki máltíðum. Stigi I lýkur ekki fyrr en aukakílóin eru farin, en mi- slangan tíma tekur að ná sykur- þolinu í eðlilegt horf. Á stigi II er nauðsynlegt að vera alla ævi, en á því stigi er ekkert eða svo til ekkert bannað sé aðgát höfð. Þessi bók er skemmtileg af- lestrar, þýðing ágæt og áhuga- verðar kenningar eru þar settar fram, sem gaman verður að spreyta sig á. Þá er bara að heij- ast handa! Katrín Fjeldsted í DAG, sunnudag kl. 14, verður Eva Ljungar frá Svíþjóð með brúðuleikhús í dagskrá fyrir börn í fundarsal Norræna hússins. „Leikritið sem flutt verður heit- ir Hampus og eggið og hefur Eva Ljungar samið það og gerir hún i einnig allar leikbrúðurnar. Eva k Ljungar blandar saman íslensku | og sænsku í sýningunni og ætti að vera auðvelt fyrir áhorfendur að fylgjast með framvindu sög- : unnar,“ segir í kynningu. „Leikbrúður hennar eru litríkar, margvíslegar að gerð og lögun og á einfaldan hátt skapar hún per- ; sónur gjarnan úr efnisbút eða sjöl- um. Þetta gerir hún fyrir framan k börnin þannig að þau taka þátt í > söguþræðinum." Aðgangur að sýningunni er | ókeypis.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.